Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 22
34 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 I>V Ættfræði__________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára_______________________ ^ Anna Guömundsdóttir, Dalbraut 27, Reykjavík. Dagbjört Gísladóttir, Lindargötu 57, Reykjavík. Mínerva Bergsteinsdóttir, Bólstaðarhlíö 46, Reykjavík. ?5 ára_______________________ Hclmfríöur Einarsdóttir, Sléttuvegi 13, Reykjavík. Magnús B. Gíslason, Hvassaleiti 56, Reykjavík. 70 ára_______________________ Guðrún Valdemarsdóttir, Strandaseli 11, Reykjavík. ■'60 ára________________________ Alice Bergsson Nielsen, Krummah.ólum 4, Reykjavík. Magnús Eyjólfsson, Hrútafelli, Hvolsvelli. Róslaug Jónína Agnarsdóttir, Seljalandsvegi 75, ísafirði. 50 ára_______________________ Agnes Ingvarsdóttir, Kirkjubraut 10, Höfn. Hún er að heiman I maí. Benedikt Blöndal Lárusson, Melabraut 1, Blönduósi. Eyþór Haraldsson, Tunguvegi 40, Reykjavík. Gunnar E. Sigurösson, Dalseli 34, Reykjavlk. Hildigunnur Sigurðardóttir, Kjalarlandi 3, Reykjavlk. ' Siguróli Geirsson, Vlkurbraut 38, Grindavík. Þorvaldur Geir Sveinsson, Kjartansstöðum, Selfossi. 40 ára_______________________ Borgar Jónsteinsson, Fannafold 114, Reykjavík. Hallgrímur Ingólfsson, Sveighúsum 12, Reykjavík. Helga Níelsdóttir, Steintúni 4, Dalvík. Jón Atli Benediktsson, Hjarðarhaga 17, Reykjavlk. Magnús Ingi Magnússon, ; Skaftahlíö 16, Reykjavlk. Margrét Kolbeinsdóttir, Faxabraut 3, Keflavík. Stefán Scheving Einarsson, Koltröð 15, Egilsstööum. Laugavegi 49 Sendum myndalista Sími 551 7742 Sveinn Halldór Sveinsson skipasmiður, Nesgötu 27, Neskaupstaö, lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Neskaupstaö 16.5. Vilhjálmur V. Hjaltalín bóndi, Brokey, síöast til heimilis á Skólastíg 16, Stykk- ishólmi, andaöist á St. Fransiskusjúkra- húsinu I Stykkishólmi þriðjud. 16.5. Páll J. Briem, fyrrv. bankaútibússtjóri, -> Sigtúni 39, Reykjavík, lést mánud. 15.5. Tryggvi Gíslason plpulagningarmeistari, Hraunbæ 103, lést þriðjud. 16.5. Gylfi Gunnarsson, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum I Reykjavík miðvikud. 10.5. Útför hefur farið fram I kyrrþey aö ósk hins látna. Elsa Haidy Alfreösdóttir, Funalind 13, -,,-Kópavogi, lést þriöjud. 16.5. á gjörgæsludeild Landspítalans I Fossvogi. _____________________ . ___ Signý Þórkatla Óskarsdóttir húsmóðir og fyrrv. yfirfóstra Signý Þórkatla Óskarsdóttir, gjarnan nefnd Ninna, húsmóðir og fyrrv. yfírfóstra, Stórholti 47, Reykjavík, er sjötug í dag. Starfsferill Signý lauk prófi frá Uppeldis- skóla Sumargjafar 1952. Hún rak eigin fóndurskóla 1963-68, var for- stöðukona í Barónsborg 1969-76, í Skóladagheimilinu í Heiðargerði 1976-85, eftirlitsfóstra með dag- mæðrum og gæsluvöllum í Reykja- vík 1985-90, kenndi á námskeiðum fyrir dagmæður 1985-89, var for- stööukona á skóladagheimilinu Völvukoti 1990-95 og yfirfóstra á skóladagheimilinu Stakkakoti 1995-97. FJölskylda Signý giftist 6.10. 1956 Geir Guð- laugi Jónssyni, f. 5.1. 1928, d. 18.2. 1975, vélvirkja og vélstjóra. Hann var sonur Jóns Guölaugssonar, f. 16.6. 1886, d. 24.8. 1961, bónda í Hvammi, verslunarstjóra og spari- sjóðsstjóri á Akureyri, og Maríu Ámadóttur, f. 8.12. 1891, d. 17.10. 1985, húsmóður. Böm Signýjar og Geirs eru Sig- ríður Ósk, f. 17.12.1956, húsmóðir og iðnverkakona í Reykjavík, gift Jóni Eiríkssyni, fulltrúa hjá Trygginga- stofnun ríkisins; María Jóna, f. 15.3. 1960, búsett í Reykjavík; Þorkell Guðlaugur, f. 26.5. 1961, bílstjóri hjá Reykjalundi í Mosfellsbæ, var kvæntur Dóru Guðrúnu Wild leik- skólakennara en þau skildu og eru börn þeirra Egill, f. 9.8. 1986, og Agnes, f. 10.10. 1989, sambýliskona Þorkels er Vigdís Heiður Pálsdóttur húsmóðir. Sambýlismaður Signýjar frá 1979 er Aðalsteinn Helgason, f. 15.10. 1925, húsgagnasmiður og síðast hús- vörður í Æfmgadeild KHÍ. Hann er sonur Helga Jónssonar, f. 14.7. 1884, d. 2.9. 1965, bónda í Hnausakoti og síöar í Reykjavík, og Ólafar Jóns- dóttur, f. 15.2. 1880, d. 11.10. 1969, húsfreyju í Hnausakoti. Systkini Signýjar eru Ólafur H. Óskarsson, f. 17.3.1933, fyrrv. skóla- stjóri, f.h.k., var Elín Anna Sigurð- ardóttir, f. 24.10. 1929, d. 20.9. 1980, hjúkrunarkona, s.k.h., er Ingibjörg Björnsdóttir, f. 10.7. 1940, skrifstofu- stjóri í Norræna húsinu og á hún þrjú börn og fjögur barnabörn; Anna Hansína Óskarsdóttir, f. 2.8. 1942, húsmóðir og sérhæfður starfs- maður á Tjaldanesi, gift Þorgrími Ólafssyni, lengst af farmanni, verkamanni og sendibílstjóra, þau eiga tvo syni og eitt barnabarn; Guðrún Fanney Óskarsdóttir, f. 17.6. 1947, grunnskólakennari, gift Þráni Sigurbjömssyni verktaka og eiga þau tvo syni; Skarphéðinn P. Óskarsson, f. 21.10. 1951, mennta- skólakennari, kvæntur Valgerði Guðbjörgu Björnsdóttur, f. 13.1. 1950, grunnskólakennara og eiga þau tvær dætur. Foreldrar Signýjar Þórkötlu: Ósk- ar Ástmundur Þorkelsson, f. 23.2. 1906, d. 22.8. 1988, aðalgjaldkeri Slippfélagsins í Reykjavík, og Sig- ríður Ingunn Ólafsdóttir, f. 26.9. 1912, húsmóðir í Reykjavík. Ætt Óskar var sonur Þorkels, báta- smiðs og sjómánns í Reykjavík, Guðmundssonar, b. eða vinnu- manns á Mið-Sýruparti og Sólmund- arhöfða, Magnússonar, b. á Melum og Ósi í landi Kiðafells, Magnússon- ar, b. og fiskimanns, lengst á Út- skálahamri, Magnússonar, b. og fiskimanns í Lambhúsum frá Braut- arholti, síðar á Bakka, Hallgríms- Stefán Lárus Pálsson veiðieftirlitsmaður Fiskistofu Stefán Lárus Pálsson, veiðieftir- litsmaður Fiskistofu, Klapparholti, Akranesi, er sextugur á morgun. Starfsferill Stefán Lárus fæddist á Gilsá í Breiðdal og ólst þar upp. Hann var í farskóla í Breiðdal og lauk gagn- fræðaprófi við Alþýðuskólann á Eið- um 1959 og skipstjórnarprófum frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1964. Stefán Lárus stundaði bústörf á unglingsárunum, vann i vegagerð og við lagningu á háspennulínum og var verkstjóri í fiskvinnslu. Hann stundaði sjómennsku sem að- alstarf frá 1959 á flestum tegundum fiskibáta, sem háseti, kokkur, vél- stjóri, stýrimaður og skipstjóri. Þá var hann stýrimaður á Akraborg- inni um árabil. Stefán Lárus stofnaði útgerðarfyr- irtækið Skagaberg sf. á Akranesi með Kristni R. Finnssyni og Símoni Símonarsyni en þeir gerðu út bát- ana Sigurvon og Önnu. Þá stofnaöi hann Fiskistein hf. 1986 ásamt Pétri, syni sínum, og gerðu þeir út smá- bátana Gáska og Háhyming. Auk þess stunduðu þeir fiskverkun. Stefán Lárus er nú veiðieftirlits- maður á vegum Fiskistofu á út- hafsveiðiflotanum við ísland og á Norður-Atlantshafi en hann var þrjú ár viö störf á Flæmingjagrunni og við Kanadastrendur. Stefán Lárus hefur starfað í Kiwanishreyfingunni, tók þátt í störfum stéttarfélaga, var varabæj- arfulltrúi á Akranesi fyrir Fram- sóknarflokkinn og hefur gegnt nefndarstörfum fyrir sveitarfélagið. Hann hefur skrifað greinar í blöð og tímarit um menn og málefni. Fjölskylda Stefán Lárus kvæntist 23.5. 1965 Elsu Sigurðardóttur, f. 21.1. 1940, iðnverkakonu. Hún er dóttir Sigurð- ar Jóhannessonar, sjómanns frá Djúpavogi, og k.h., Sigríðar Hlöðversdóttur húsmóður. Böm Stefáns Lárasar og Elsu eru Sigríöur Lárusdóttir, f. 4.2. 1960, verslunarkona á Hornafirði, gift Reyni Guðmundssyni og er sonur þeirra Stefán Lárus en börn Sigríð- ar eru Elsa Lára, í sambúð Steð Rúnari Geir Þorsteinssyni og er sonur þeirra Þorsteinn Atli, Sigrún Ólöf, í sambúð með Jóhanni Hilm- sonar, b. í Arnarholti og á Bakka, Þorleifssonar eldra, b. á Þorláks- stöðum í Kjós, Jónssonar, og k.h., Guðrúnar Eyjólfsdóttur á Ferstiklu, Hallgrímssonar, sálmaskálds, Pét- urssonar. Móðir Óskars var Signý Guð- mundsdóttir, b. á Mýrum og í Borg- arfirði, Guðmundssonar, b. á Vals- hamri, Finnssonar, b. á Jarðlangs- stöðum, Vigfússonar, b. á Brekku í Staðarsveit, Ásmundssonar. Sigriður Ingunn er dóttir Ólafs Jóns, sjómanns, síðast í Reykjavík, Jónassonar, b. á Úlfarsfelli og á ari Haraldssyni, og Helga Jóna, í sambúð með Sigurði Runólfssyni; Pétur Þór Lárusson, f. 16.2.1965, sjó- maður á Akranesi, kvæntur Krist- ínu Bergþórsdóttur og eru böm þeirra Bergþór Páll, og Eva Björk. Albræður Stefáns Lárusar eru Sigurður Pálmi, bóndi á Dynjanda í Hornafirði; Sigþór, stýrimaöur, bú- settur í Reykjavík. Hálfbróðir Stefáns Lárusar, sam- mæðra, var Björgvin Hlíðar Guð- mundsson sem lést 31.1.1962. Hálfbræður Stefáns Lárusar, sam- feðra, eru Sigurður Hafsteinn; Þór- hallur; Ari Már og Guðmundur. Foreldrar Stefáns Lárusar voru Páll Lárusson húsasmiður, og Jó- hanna Petra Björgvinsdóttir hús- móðir. Kársstöðum í Álftafirði í Helgafells- sveit, Márussonar, b. á Hafursstöð- um og á Hóli, Márussonar, b. í Kirkjuskógi, Marteinssonar. Móðir Sigríðar Ingunnar var Ólína Jóhanna Pétursdóttir, b. í Svefneyjum, Hafliðasonar, b. þar, Eyjólfssonar, eyjajarls og óöalsb. í Svefneyjum, Einarssonar, yngra b. þar, Sveinbjörnssonar, sem ætt Svefneyinga er rakin frá. Signý Þórkatla tekur á móti gest- um í safnaðarheimili Seljakirkju í Breiðholti í dag, fóstudaginn 19.5., frá kl. 20.00. Ætt Páll var sonur Lárusar Krist- bjarnar, b. á Höskuldsstöðum í Breiðdal, Jónssonar, b. í Papey, Jónssonar. Móðir Páls var Þorbjörg Pálsdóttir, hreppstjóra á Gilsá, Benediktssonar og Ragnhildar Stef- ánsdóttur, b. í Stakkahlíð, Gunnars- sonar, bróður Gunnars, afa Gunn- ars Gunnarssonar rithöfundar. Móðir Ragnhildar var Þorbjörg Þórðardóttur, ættfóður Kjarnaætt- ar, Pálssonar. Jóhanna er dóttir Björgvins, b. á Hlíðarenda í Breiðdal, Jónassonar, b. í Geldingi í Breiðdal, Bóassonar. Móðir Jónasar var Guörún Jóns- dóttir, gullsmiös á Sléttu í Reyðar- firði, Pálssonar, bróður Sveins læknis og náttúrufræðings í Vík. Móðir Jóhönnu var Sigurbjörg Er- lendsdóttir, b. á Eyri í Fáskrúðs- firði, Finnbogasonar, b. í Reyðar- firði, Erlendssonar b. á Kirkjubóli, Þórðarsonar. Móðir Erlendar Þórð- arsonar var Sigríður Erlendsdóttir, b. á Ásunnarstöðum, Bjarnasonar, ættfóður Ásunnarstaðaættarinnar. Stefán Lárus tekur á móti ættingj- um og vinum á heimili sínu á morg- un eftir kl. 16.00. I Merkir Islendingar Steingrímur Thorsteinsson fæddist á Amarstapa á Snæfellsnesi 19. maí 1831, sonur Bjarna Thorsteinsonar amtmanns og k.h., Þórunnar Hannesdóttur, biskups Finnssonar. Steingrímur er merkastur íslenskra, síðrómantískra skálda, var feikilega vinsæll af samtíð sinni og er liklega eitt mesta skáld okkar fyrr og síðar. Hann var afar dæmigerður róman- tíkus og sjálfur sérfræðingur í róman- tískum bókmenntum. Ljóð hans loga af ástarþrá, frelsisþrá og óði til íslenskrar náttúru. Tvennt hið síðarnefnda var mik- ilvægt framlag til þjóðfrelsisbaráttunnar, en Steingrímur var mjög handgenginn Jóni Sigurðssyni forseta á Hafnarárum sínum. Steingrímur Thorsteinsson Þá var Steingrímur, líkt og afi hans, mikill menningarfrömuður. Hann var háklassísk- ur að mennt, málfræðingur og grísku- og latínumaður. Hann var stórmerkur þýðandi en þekktustu þýðingar hans eru Þúsund og ein nótt og Ævintýri H.C. Andersens. Steingrimur lauk stúdentsprófum 1851, sigldi þá til Kaupmannahafnar, lauk þar embættisprófi i málfræði 1863 en var þar við ritstörf og kennslu til 1872. Þá kom hann loks heim, bjó lengst af í húsi sínu við Austurvöllinn, kenndi við latinuskólann og varð þar rektor 1904. Steingrimur lést 21. ágúst 1913. Hannes Pétursson skáld hefur skrifað ágæta bók um ævi hans og skáldskap. Nanna Björnsdóttir, hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð I Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju 22.5. kl. 10.30. Pétur Sigurösson, Skeggsstöðum, Svartárdal, verðurjarðsunginn frá Bergsstaöakirkju laugard. 20.5. kl. 14.00. Útför Sigurlaugar Ólafsdóttur, Steina- gerði 9, Reykjavík, fer fram frá Bústaöa- kirkju föstud. 19.5. kl. 13.30. Dröfn Friðriksdóttir myndlistarmaður, Hindarlundi 6, Akureyri, verður jarðsung- in frá Akureyrarkirkju 19.5. kl. 13.30. Sigrún Siguröardóttir, Sundlaugavegi 22, Reykjavlk, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstud. 19.5. kl. 15.00. Guörún Sigurðardóttir, Stangarholti 12, Reykjavík, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju föstud. 19.5. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.