Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Blaðsíða 14
14 + Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoðarritstjóri: Jónas Maraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Filmu- og plötugerð: Isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr, m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Hagrœði sameiningar Byggö á höfuðborgarsvæðinu er að kalla samfelld frá Mosfellsbæ að Hafnarfirði og Bessastaðahreppi. Svæðið er fyrir löngu orðið eitt þjónustu- og atvinnusvæði. Það er í örum vexti og má segja að ytri mörk þess markist nú af Kjalarnesi og Kjós í norðri og jafnvel Vogum í suðri. Það- an er með auðveldum hætti hægt að sækja vinnu og þjón- ustu til kjarna höfuðborgarsvæðisins. Raunar má segja að Akranes hafi komist í útjaðar höfuðborgarsvæðisins með tilkomu Hvalfjarðarganga. Á því svæði sem nú telst til höfuðborgarsvæðisins eru átta sveitarfélög. Þau eru af ýmsum stærðum, frá fámenn- um Bessastaða- og Kjósarhreppi til hinna stærstu á land- inu, Hafnarfjarðar, Kópavogs og einkum höfuðborgarinnar sjálfrar, Reykjavíkur. Samvinna milli þessara sveitarfélaga er mikil og fer vaxandi. Hún hlýtur að vera vísir að því sem síðar verður, sameiningu í eitt eða tvö sveitarfélög. Endurskoðunarnefnd Samtaka sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu hefur skilað áliti um framtíðarsamstarf þeirra. Niðurstaða hennar er að veruleg hagræðing náist aðeins fram með sameiningu sveitarfélaganna. Lagt er til að ítarlega verði kannað að sameina öll sveitarfélög á höf- uðborgarsvæðinu í eitt eða tvö eða lögbinda sameiginlegt svæðisskipulag þeirra. í skýrslu nefndarinnar kemur fram að mestur hluti nú- verandi samvinnu sveitarfélaganna sé í formi ýmiss konar byggðarsamlaga. Þar má nefna sameiginlegt slökkvilið að hluta, akstur fatlaðra og rekstur hjúkrunarheimila. Þá má nefna sameiginlegt veitukerfi í nokkrum þeirra fyrir raf- magn og heitt og kalt vatn. Nefndin telur að nokkru hag- ræði megi ná fram með byggðarsamlögum en veruleg hag- ræðing náist ekki nema með sameiningu sveitarfélaganna. Sameining gerði samstarfið skilvirkara og gegnsærra, eink- um í skipulagsmálum. Tillögur þær sem endurskoðunarnefndin leggur til og vill að kosið verði um í sveitarfélögunum eru þrjár. í fyrsta lagi að sveitarfélögin sameinist öll í eitt. í öðru lagi að þau verði tvö, að Kjósarhreppur, Mosfellsbær, Reykjavík og Sel- tjarnarnes myndi eitt sveitarfélag en Kópavogur, Garða- bær, Hafnarfjörður og Bessastaðahreppur annað. Hin til- laga nefndarinnar um tvö sveitarfélög er sú að Kópavogur fylgi Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ og Kjós en Garðabær, Hafnaríjörður og Bessastaðahreppur verði eitt sveitarfélag. Þriðji möguleiki nefndarinnar er lögbundið, sameiginlegt svæðisskipulag. Fram kemur hjá endurskoðunarnefndinni að helstu kost- ir við sameiningu allra sveitarfélaganna sé sameiginleg skipulagsheild og að samkeppni um fjármuni og þjónustu ríkisins minnki. Þá verði sameinað sveitarfélag á höfuð- borgarsvæðinu samkeppnishæfara við útlönd. Væru sveit- arfélögin tvö yrði hagræðingin hugsanlega minni en á móti kæmi að til staðar yrðu tvö sveitarfélög, samanburðar- og samkeppnishæf. Sameining sveitarfélaga á þessu svæði er fyrirsjáanleg, hvort sem þau verða eitt eða tvö þegar upp er staðið. Þar ræður hagur íbúanna á svæðinu og um leið þjóðarhagur. Svo stór ákvörðun verður hins vegar ekki tekin nema til komi ítarleg kynning á þeim sameiningarmöguleikum sem fyrir hendi eru, kostum og vanköntum, svo íbúar einstakra sveitarfélaga geti ígrundað þá og myndað sér skoðun í framhaldi þess. Þar kunna hins vegar ýmsir smákóngar að standa í veg- inum, þeir sem nú maka krókinn í feitum embættum sveit- arfélaganna. Hætt er við að sumir þeirra meti embættin, góð kjör og valdaaðstöðu, meira en hag fjöldans. Jónas Haraldsson FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 3>V 55 Á síðustu dögum þingsins“ Forviða hafa landsmenn horft á þingmenn sína und- anfarna daga. Óðagotið og fumið við að keyra í gegn lagafjöld „á síðustu dögum þingsins" er yfirgengilegt. Að vísu má segja að þetta sé árviss atburður og skýri meðal annars þá annmarka sem einatt koma fram á lög- um og frumvörpum sem þingið lætur frá sér fara í upplausn „síðustu daga“. Hvaða læti eru þetta? Hver segir að „siðustu dag- ar þingsins" eigi að vera í miðjum maí? Hvaða tilbúna paník er hér á ferðinni? Afleitt símasamband og frumstætt vegakerfi í framhaldi af því hlýtur athyglin að beinast að verklagi þingsins yfir höfuð. Hvernig stendur á því að þing- ið hefst ekki fyrr en í október á haustin og varla komið af stað þegar blásið er til jólaleyfis? Næst verður þjóðin vör við þingmenn sína þegar þeir eru að læðast heim úr jólaleyfi í febrúar, eins og nemendur sem hafa sofið rækilega yfir sig. Og bíta síðan Pétur Gunnarsson rithöfundur höfuðið af skömminni með þvi að hlaupast úr vistinni í maí! Hvemig stendur á því að þingmenn geta ekki farið að eins og aðrir menn í landinu og tekið sér sumar- leyfi en þess utan sinnt þeim störfum sem þeir voru kjömir til? Ég minnist þess ekki að fréttamenn hafi borið upp þessar spumingar og þar af leiðandi er fátt um svör. Hugsanleg skýring kann að vera sú að Alþingi íslend- inga hrærist ekki í alveg sama veru- leika og fólkið utan þings. í hugar- heimi þingsins búa enn 80% lands- manna í sveitum og lifa af búskap, fljót eru flest óbrúuð og vegakeríl frumstætt. Sími er að vísu nýkominn til landsins en sambandið afleitt og langt í land að allar sveitir séu tengd- ar. í undirvitund þingsins þurfa þingmenn einmitt nú að hraða sér heim í sauðburðinn, síðan tekur við heyskapur, líka þurfa þeir að ferðast ríðandi um kjördæmin og sundríða óbrúaðar ár til að hafa tal af hæst- virtum kjósendum. Það er með ólíkindum að heil „Nœst verður þjóðin vör við þingmenn sína þegar þeir eru að lœðast heim úr jólaleyfi í febrúar, eins og nemend- ur sem hafa sofið rcekilega yfir sig. Og bíta síðan höfuðið af skömminni með því að hlaupast úr vistinni í mai!“ stofnun í samfélaginu skuli geta lifað svo gersamlega ósnortin af tímanum og væri vitaskuld hjartnæmt ef lítið byggðasafn ætti í hlut. En nú vill svo Að vera lifandi en ekki dauð Allir eru á höttunum eftir góðri sögu, sagði Sólveig Anspach, unga konan sem á rætur í Vestmannaeyj- um, Ameríku og Paris og skrifaöi sög- una sína á hvíta tjaldið. Það var hún sem bjó til kvikmynd um þá reynslu sina að fá krabbamein í brjóstið þeg- ar lífið var að byrja og hún átti von á frumburði sínum. Sagan hennar var grípandi, margir treystu sér ekki til að horfa á hana, voru hræddir við að þetta gæti líka komið fyrir þá. Og það er líka alveg rétt. Tók Kallgerði fram yfir Bergþóru Já, allir á höttunum eftir góðri sögu, annað hvort til að skrifa hana eða lesa. Sögur eru ekki bara búnar til úr orðum. Myndverk og tón- list geta sagt sögur en á ann- an hátt en orðin. Þegar ég var lítil var oft gestkvæmt heima hjá okkur. Margir gestanna kunnu sög- ur að segja og við systkinin hlustuðum með athygli og spennt á frásagnir þeirra. Einn i þessum hópi var dálít- ið sérstakur, enda hafði hann gleypt brunnklukku í æsku, að því er sagt var. Ég var nú ekki alveg viss um hvað brunnklukka var, en það var að minnsta kosti eitthvað sem betra var að gleypa ekki óvart og hafð- ist víst við í brunnum. Upp frá þessu óláni var Ólafúr svolítið sér á parti, eins og sagt var. Ég hugsaði til Ólafs þegar ég las bókina Uppvöxt Litla trés. Frændi afans i bókinni fékk spark í hausinn frá múlasna og var aldrei í al- mennilegu lagi eftir það. Svona getur ýmislegt hrist til i kollinum á fólki, bæði hér og þar. Ölafur dvaldist stundum hjá okkur vikum saman en aldrei kom fyrir að hann tæki til hendinni við neina vinnu. Það var ekki hans fag. Afi Litla trés vann heldur aldrei almenna vinnu. „“Almenn vinna“ táknaði í augum fjalla- fólksins sérhverja launa- vinnu. Afi þoldi alls ekki venjulega launavinnu. Hann sagði að hún gerði ekki annað Hólmfríður Gunnarsdóttir en taka frá manni tíma án þess að veita nokkra ánægju. Og það er satt.“ Ólafur var líklega á sömu skoðun. Á hinn bóginn las hann stanslaust og oft upp- hátt. Það var gaman að hlusta á upplesturinn sem reyndar var stundum dálítið sundurslitinn því að upples- arinn ýmist grét eða hló, allt eftir efninu. Hann hafði sjálf- stæðar og ákveðnar skoðanir _____ á ýmsu sem oft á tíðum gengu þveröfugt á viðtekin viðhorf. Hann kenndi mér til dæmis að meta Hallgerði langbrók meir en aðrar konur. Hann hélt mikið upp á hana en hafði illan bifur á Bergþóru sem hann benti mér á að hefði verið tíkarleg við Hallgerði frá fyrstu tíð. Afi Litla trés hafði sömu afstöðu til lafði Mackbeðs og Ólafur, vinur minn, til Bergþóru. „Ekki líst mér á hana þá“ Ólafur átti vini bæði handan fjalla og úthafsins sem hann taldi hlynnt- ari sér meir en aðrir menn og hlupu undir bagga með honum þegar á þurfti að halda. í þeirra hópi voru tilteknir þjóðhöfðingjar og svo Spán- verjar. Þeir voru honum sérstaklega innan handar, að því er hann sagði, við að líta eftir hrossum hans. Hann sagðist eiga nokkur hross einhvers staðar á útigangi, annað átti hann ekki, hvorki fast né laust, og heyrð- ist aldrei á það minnst að þess væri þörf. Afi Litla trés vildi fleygja orðum sem ekki var þörf fyrir. Ólafur var líka á því að fara sparlega með orðin þegar svo bar undir. Hann var skáld- mæltur í betra lagi og aldrei brást að vísur hans væru kórrétt kveðnar en nokkuð nýstárlegar í hugsun. Hann fann meðal annars upp þá aðferð að hafa tiltæka staðlaða seinniparta sem mátti hnýta aftan við hvenær sem var eins og: „Ekki líst mér á hana þá / ofan í snýst hún klettagjá." Og þetta passaði næstum alltaf þegar kveðið var um konur. Þannig gat hann sparað sér bæði orð og hugsun. Allir eru á höttunum eftir góðri sögu, sagði Sólveig. Sagan um Upp- vöxt Litla trés er sagan sem allir vildu hcifa skrifað. Þýðandinn, Gyrð- ir Elíasson, segir að bókin hafi stundum verið skilgreind sem ung- lingabók, en sá maður á fuilorðinsár- um sem telji sig vera vaxinn upp úr þvi að lesa hana sé ekki þroskaður heldur dauður. - Mikið er ég fegin að vera ekki dauð. Hólmfríður Gunnarsdóttir „Ég hugsaði til Ólafs þegar ég las bókina Uppvöxt Litla trés. Frœndi afans í bókinni fékk spark í hausinn frá múlasna og var aldrei í almennilegu lagi eftir það. Svona getur ýmislegt hrist til í kollinum á fólki, bæði hér og þar. Með og á móti l að hœkka ökuleyfisaldur í átján ár? Skortur á ábyrgðartilfinningu 18 ára aldurinn breytir engu J „Ljóst er að ++ ungir ökumenn ||g eru í allt of mörg- um tilfellum aðil- ar að umferðaró- höppum og -slysum. Um þetta þarf ekki að deila þar sem tölulegar staðreynd- ir liggja fyrir um það. Þetta ástand hefur varað lengi og breytist þvi miður lítið þó verið sé að gera ýmsar ráð- stafanir til úrbóta. Áfram — ' þarf að leita leiða til að bæta þetta ástand og má einskis láta ófreistað í því efni. Ekki þýðir að láta tilfinn- ingasemi ráða. Ljóst er aö ein aðalá- stæða mikils fjölda umferðaróhappa hjá ungum ökumönnum er skortur á Guöbrandur Bogason, form. Ökukennara- félags íslands. ábyrgðartilfinningu, röng viðhorf til umferðarsamfé- lagsins og reynsluleysi. Ökukennarar vinna mikið með aldurshópinn frá 16 ára til þrítugs. Þeir hafa því góða möguleika á því að kynnast þroskastigi hinna ýmsu ár- ganga og eru þeir flestir sam- mála um að verulegur munur geti verið á viðhorfi og þroska eftir aldri. Þess vegna var á síðasta aðalfundi Öku- kennarafélags íslands samþykkt ályktun þess efnis að stjómvöld létu kanna hvort hækkun ökuleyfisald- urs í 18 ár sé líkleg til þess að draga úr umferðaróhöppum ungra öku- manna.“ tm . . „Með því að I hækka ökuleyfis- aldurinn um eitt r ár er aðeins verið að færa mesta áhættuhópinn upp um eitt ár. Það bjargar engu. Að keyra bíl er spurning um reynslu, ekki aldur. Ég tel að sautján ára unglingar hafi andlega og líkamlega burði til að takast á við það að læra að keyra bíl af öryggi, alveg eins og átján ára unglingar. Ég tel ekki að á þessu eina ári frá sautján til átján ára aldurs nái ung- lingar meiri andlegum eða líkamleg- um þroska til að þeir eigi auðveldara með að stjóma bíl. Mestu þroska- Kristinn Ársæisson, ármaöur í MS. stökkin á þessum árum em að baki. Ef á að fara að tala um breytingu á þroska hjá ungu fólki þá er örugglega meira vit í að hækka ökuleyfisald- urinn meira, jafhvel um sjö eða átta ár. Þá er vissulega orðin breyting á þroska og viðhorf- um þess og um leið er .... áhættuhópurinn horfinn. Þó er ég á því að það mundi heldur ekki skipta neinu máli. Þetta er spuming um reynslu frekar en þroska. -HK Miklir áhættuhópar í umferölnni eru ungt fólk sem nýbúiö er að fá bílpróf en stóran hiuta slysa og árekstra má aö margra mati rekja til reynsluleysis og þroska. Ökukennarafélag íslands hefur viöraö þær hugmyndir aö hækka ökuleyfisaldurinn í átján ár. til að þingið er ein mikilvægasta stjórnstöð samfélagsins og því baga- legt að hún skuli eiga svo litla sam- leið meö veruleikanum. Efnahvatar þjóðfélagsumræöunnar Vel á minnst - veruleikinn. Nú þegar landsmenn em/geta verið samtengdir í einum vef, er ein helsta ástæða fulltrúalýðveldis að falla út. Heilu þjóðirnar - hvað þá lítill flokk- ur manna á borð við íslendinga - ætti með auðveldum hætti að geta annast ákvarðanatöku í atkvæða- greiðslu hvenær sem þurfa þykir. Það hlýtur senn að líða að því að „þingmaður" öölist á ný sína upp- runalegu merkingu sem er nánast „atkvæði“. (Goðar áttu svo og svo marga þingmenn, svipað og nú er tal- að um atkvæði á bak við þingmann). Ekki þar fyrir, þingmenn hljóta alltaf að vera í gryfjunni, hlutverk þeirra er að ræða og reifa og brjóta til mergjar málin áður en þjóðin tek- ur um þau ákvörðun. Þeir eru efna- hvatar þjóðfélagsumræðunnar og mikilvægir sem slíkir - mikilvægari en svo að hægt sé að skáka þeim út sex mánuði á ári hverju. Pétur Gunnarsson Vill ekki á Krókinn í frétt Dags um hugsanlegan flutning starfsemi Byggða- stofhunar til Sauðár- krós kemur fram að þungt er hljóðið í for- stjóra stofnunarinn- ar, Guðmundi Malmquist. Miðað við fyrri reynslu af flutningi þróunarsviðs norður, sagði hann útlitið ekki gott með að starfsmenn Byggðastofnunar i Reykjavík flyttu norður. Vildi samt ekki útiloka neitt og fyrst þyrfti tillag- an að koma fram og ganga sína leið frá stjórn til ráðherra og ríkisstjórnar. Haft eftir Guömundi Malmquist, í Degi 18. maí. Gjald fyrir sjónvarpsrásir „Það eru margvísleg rök, sem mæla með gjaldtöku vegna farsímarása ... Úr því að samgönguráðherra ætlar að láta fara fram sérstaka athugun á þessu máli í ráðuneyti sínu er eðlilegt að samhliða verði rökin fyrir því að taka upp gjald vegna úthlutunar sjónvarps- og útvarpsrása einnig tekin til með- ferðar. Það eru þess vegna allt önnur sjónarmið sem liggja að baki en þau að afla þurfi ríkissjóði aukinna tekna.“ Úr forystugrein Mbl. 18. maí. Forsetakosningar - kostnaöur í raun enginn „Fólk ætti að hugsa um eitthvað allt annað en kostn- aðinn. Ef rýna á í þær krónur sem kostar að halda lýð- ræðinu uppi þá má t.d. skoða landbún- aðarkerfið sem kost- ar 20 milljarða á ári og svo kostar 3.500 milljónir að bora í gegnum eitt tjall. Kannski við ættum að leggja lýö- ræðið af og sleppa alþingiskosningum ... Það má ekki hugsa eins og asni út í hið óendanlega." Sverrir Stormsker, í Degi 18. maí. Byggöastofnun brott? Það væri hið besta mál og ekkert er því til fyrirstöðu með þeirri tækni sem nútíminn biður upp á. Hins vegar veit ég ekki hvort hugur fylgir máli í þeim fógru fyrir- heitum sem gefm hafa verið um flutn- ing verkefna og stofnana út á land, til dæmis loforð forsætisráðherra um að flytja hluta af verkefnum Hagstofunn- ar til Ólafsfjarðar.“ Kristján L. Möller alþm., í Degi 18. maí. rf 27 Skoðun Þörf á nýrri utanríkisstefnu íslendingar sýndu fúrðu mikla reisn í lok seinni heimsstyrjaldarinnar, þeg- ar þeir höfnuðu ósk Banda- rikjamanna um að fá að starfrækja hér herstöðvar tU frambúðar. Að baki voru veltiár hemámsins, svo að fólk vissi alveg hvað útlend herseta gat fært í aðra hönd, fram undan grimm óvissa um hvort unnt yrði að finna atvinnu handa landsmönnum í herlausu landi eða kreppan skyhi á aftur. Stríösógnarblekkíngin Eins var raunar þegar hlutleysis- stefnan var yfirgefm. í Atlantshafs- bandalagið var gengið árið 1949 með því skilyrði að hér yrði ekki útlend- ur her á friðartímum. Tveimur árum seinna féUu ríkjandi stjórnmálaöfl frá því skilyrði, en aðeins af því að þeim var talið trú um að þriðja heimsstyrjöldin væri rétt að skeUa á. Á fyrstu árum hersetunnar var aldrei spuming um það í hugum al- mennings að hún væri neyðarráð- stöfun; svo deUdi fólk og skipti um skoðun á því hvort hún væri Ul- skárri en að taka áhættunni af vam- arleysi. Stjómmálamenn sem studdu hersetuna afneituðu því líka stöðugt að þeir hefðu neitt annað en öryggi- sjónarmið i huga; skoðun sem var kennd við Aron Guðbrandsson, að íslendingar ættu að taka leigu af Bandaríkjamönnum, for- dæmdu þeir einróma af heUagri vandlætingu. öingur lækka Gunnar Karlsson prófessor og risið lækkar Eftir að kom fram á átt- unda og níunda tug aldarinn- ar varð æ erfiðara að gera sannfærandi að hersetan væri okkur nauðsyn af ör- yggisástæðum. Svo tók stein- inn úr um 1990, þegar and- stæðingurinn leystist hrein- lega upp fyrir framan augun á okkur, Austurblokkin, Varsjárbandalagið og síðast sjálf Sovétríkin. Gagnstætt því sem maður bjóst við þögguðu þessar nýjungar að verulegu leyti niður í herstöðvaandstæðingum. í rauninni var það þó alveg rökrétt, því nú var ekki lengur um neitt að tala. Ekki um stríðsógn því hún var sýnilega engin. Ekki um sjálfstæði þjóðarinnar eða þjóðlega reisn, því hvemig metur maður slikt á móti því að veita atvinnu á Suðumesjum, fá íslenskum aðalverktökum og Eim- skipafélaginu verkefni eða að láta moka snjó ókeypis af flugbrautum á helsta farþegaflugvelli þjóðarinnar? Því er þetta rifjað upp nú að við höfum nýlega verið smækkuð meira í þessu máli en nokkru sinni fyrr. Staðið hefur verið í langvarandi samningum við Bandaríkjamenn og löngum málaferlum í Bandaríkjun- um, sett hafa verið lög á Alþingi, í því skyni að reyna að tryggja Eim- skipafélagi íslands flutninga fyrir herliðið upp á smáræði eins og kannski 130 milljónir króna. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hefur tekið þá stefnu að standa eins og* r hundur á beini á hverjum smábit- lingi sem kann að vera hægt að slita út úr hernum. Rökin sem beitt er fyrir þessari kröfu eru líka slík hundalógík að maður fer hjá sér. Samkvæmt fróð- legri grein Égils Ólafssonar í Morg- unblaðinu 7. maí sl. var á sínum tíma talið „að vegna öryggishags- muna íslands væri ... þörf á að hér væru ávallt til staðar tryggir sjó- flutningar frá íslandi til Evrópu og Bandaríkjanna." - Til að flytja þjóð- ina burt eða hvað? Þörfin á nýrri utanríkisstefnu Við íslendingar erum komnir í al- gerar ógöngur með hermangsstefnu okkar. Sjálfsagt snúum við ekki tilc baka til varnarleysis áranna fyrir seinni heimsstyrjöld, til þess hefur heimurinn breyst of mikið síðan þá, svo ekki sé talað um efnahagslega getu okkar til að verja okkur sjálf. En við verðum að losa okkur út úr þessu sníkjulífsástandi, taka málin í eigin hendur, skilgreina sjálf lág- marksþörf okkar á vömum og skapa sem breiðasta pólitíska samstöðu um nýja stefnu sem sæmir sjálfstæðri þjóð. Gunnar Karlsson „Staðið hefur verið í langvarandi samningum við Bandaríkjamenn og löngum málaferlum í Bandaríkjunum, sett hafa veríð lög á Alþingi, í því skyni að reyna að tryggja Eimskipafélagi íslands flutninga fyrir herliðið upp á smárœði •*. eins og kannski 130 milljónir króna.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.