Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Síða 7
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
DV
7
Fréttir
Kristján Möller alþingismaður segir jarðgöng sporna við landsbyggðarflótta:
Flóttinn hefur kostað
30 til 60 milljarða
- þjóðhagslega hagkvæmt að sporna við því
Kristján Möller, alþingismaður
og fyrrum forseti bæjarstjórnar
Siglufjarðar, segir jarðgöng á milli
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar skipta
öllu máli fyrir framtíð byggðar á
svæðinu. Hann segir að flóttinn af
landsbyggðinni hafi kostað þjóðina
30 til 60 milljarða síðastliðin átta
ár.
„Fyrirhuguð jarðgöng stytta leið-
ina til Ólafsfjarðar úr 233 í 15 kíló-
metra átta til níu mánuði ársins.
Til Akureyrar yrðu þá 76 km, það
eru nú 130 km um Lágheiði en ann-
ars tæpir 200 km.
Leiðin um Lágheiði til Ólafs-
fjarðar er lokuð allt að 240 daga á
ári. Aðalfyrirtækin á þessum tveim
stöðum hafa verið sameinuð, Þor-
móður rammi - Sæberg. Ég spái
því að þetta muni líka
leiða til sameiningar
Siglufjarðar, Ólafsfjarðar
og Dalvíkurbyggðar.
Fimm til tíu árum þaðan i
frá mun Eyjafjörður allur
vera orðinn eitt sveitarfé-
lag.“
- Menn benda á að
Vestfjarðagöng hafi ekki
dregið úr fólksfækkun.
„Við gætum líka spurt
okkur að því hvað hefði
gerst ef göngin hefðu ekki
komið. Þessi byggðarlög
eru að tapa fólki vegna
þess að það er vitlaust gef-
ið í þjóðfélaginu. Alþingi
Islendinga hefur sett lög
sem takmarka aðgengi að
Kristján Möller
alþingismaður
,,Ég get því ekki
hugsaö þá hugsun
til enda fyrir
byggöariög hér á
Miö-Noröurlandi
ef þessi jarögöng
koma ekki tit. “
tveimur höfuðatvinnu-
vegum landsbyggðarinn-
ar, fiskveiðum og land-
búnaði. Á sama tíma má
allt blásast út á höfuð-
borgarsvæðinu án nokk-
urra takmarkana.
Ég get því ekki hugsað
þá hugsun til enda fyrir
byggðarlög hér á Mið-
Norðurlandi ef þessi jarð-
göng koma ekki til. Ég
tek þó skýrt fram að ég
hef fullan skilning á sam-
göngubótum á höfðuð-
borgarsvæðinu og ég styð
þær heils hugar.“
- Hvað með að slá af-
skekktustu sveitarfélögin
hreinlega af?
„Forsætisráðherra, Davíð Odds-
son, hefur sagt að við það að fólk
flytji frá landsbyggðinni sé áætlað
að hver einstaklingur kosti sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu
þrjár til sex milljónir króna. Und-
anfarið hafa þetta verið tvö þúsund
manns og kostnaðurinn er því sex
til tólf milljarðar á ári. Ef við tök-
um bara lægri töluna þá er hún
hærri en þessi göng munu kosta.
Það eru í kringum tíu þúsund
manns sem hafa flutt suður þau
átta ár sem Davíð Oddsson hefur
verið forsætisráðherra (byggða-
málaráðherra). Það þýðir 30 til 60
milljarða króna. Þetta eru tölur
sem enginn hefur andmælt. Þetta
er hrein og bein eignaupptaka.
Frekari og meiri aðgerðir til að
sporna við þessum byggðavanda
eru því þjóðhagslega mjög hag-
kvæmar," sagði Kristján Möller.
-HKr.
Við erum í okkar árlegu ferð um landið með nokkra af okkar bestu og vinsælustu bilum.
Við verðum á Austfjörðum um helgina. Nýttu tækifæríð. Komdu og prófaðu bila af bestu gerð.
Land Rover Discovery
Land Rover Defender
Land Rover Freelander
BMW Compact
Renault Scénic
Renault Laguna
Renault Mégane Break
Renault Mégane Classic
Hyundai Starex
Hyundai Accent
Hyundai Sonata
Austurland
Laugardaginn 20. maí
Egilsstöðum, Ásinn Bílasala,
Lagarbraut 4, kl. 11-15
Seyðisfirði, við Herðubreið, kl. 16-18
Sunnudaginn 21. maí
Reyðarfirði, Shell skálanum kl. 11-12
Eskifirði, Shell skálanum kl. 12:30-14:30
Neskaupsstað, Olís skálanum kl. 15-18
Allar nánari upplýsingar: Bilasalan Ásinn,
Egilstöðum, sími 4712022
% <B>
RENAULT HYUROni