Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2000, Síða 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Verkfall:
Kolmunnaskip
verða stöðvuð
Sigurður Ingvarsson, forseti Al-
þýðusambands Austfjarða og for-
«,.-maður samninganefndar starfs-
manna loðnuverksmiðja, segir við-
tæka samstöðu ríkja meðal þeirra.
Þeir njóti einnig samstöðu starfs-
bræðra um allt land, Færeyjum og
víðar ef á þurfi að halda.
Sigurður segir að fundur hafi ver-
ið boðaður hjá ríkissáttasemjara kl.
11 í fyrramálið.
Sigurður Freysson, formaður
verkamannafélagsins Árvakurs á
Eskifirði, segir kolmunnaveiðiskip-
ið Jón Kjartansson muni fá að landa
þar í dag, en hann hóf veiðiferð sina
áður en verkfallið byrjaði.
„Aðrir sem hófu veiðiferð áður en
verkfallið skall á, fá löndun. Það eru
allar líkur til að þeir sem héldu til
veiða eftir að verkfall hófst verði
F*stoppaðir af.“
Sigurður reiknar með að
kolmunnaveiðiskip verði því stöðv-
uð hvar sem þau reyna löndun.
Hann vonast til að samningar
náist á fundinum hjá sáttasemjara á
morgun. -HKr.
Björk og Erla
, í Helgarblaði
í Helgarblaði DV á morgun er ít-
arleg úttekt á leikferli Bjarkar Guð-
mundsdóttur og reynt að varpa Ijósi
á þjóðsagnapersónuna Lars von Tri-
er, leikstjóra Dancer in the Dark
,sem nú gerir allt vitlaust í Cannes.
Einnig er í Helgarblaði opinskátt
viðtal við Erlu Bolladóttur sem
krafist hefur endurupptöku Guð-
mundar- og Geirfinnsmála nú þegar
20 ár eru liðin frá dómi Hæstaréttar
í þessum umdeildustu sakamálum
íslandssögunnar. DV fer i kínverska
leikflmi með Gunnari Eyjólfssyni
leikara og ræðir við Bubba
Morthens um skáldið og drykkju-
boltann Bellman. Einnig er fjallað
um gráa markaðinn í hlutabréfavið-
skiptum og hættur sem því fylgja að
versla þar.
Dómkirkjan fær nýjan kross
Dómkirkjan í Reykjavík er að taka á sig nýja mynd þessa dagana og hefur fengiö nýjan og einkar fallegan kross.
Krossinn skipar stóran sess í trú kristinna manna og því er sérstaklega gleöilegt hve vel krossinn fellur inn í endur-
bætur kirkjunnar.
Forsetakosningar í júní:
Ástþór í for-
setaframboð
- vill að handhafar forsetavalds taki við í kosningabaráttunni
„Ég legg ríka áherslu á að Ólafur
Ragnar Grímsson feli handhöfum
forsetavalds öll embættisverk sín á
meðan á kosningabaráttunni stend-
ur og mæti til leiks sem almennur
frambjóðandi á jafnréttisgrund-
velli. Þannig verður fyllsta jafn-
ræðis gætt og engin hætta á að for-
setaembættið verði notað sem
kosningamaskína gegn mér,“ sagði
Ástþór Magnússon í morgun en
hann hefur ákveðið að efna tO
blaðamannafundar innan sólar-
hrings og tilkynna þar um framboð
sitt til embættis forseta íslands í
kosningum sem fram fara laugar-
daginn 24. júni.
Ástþór og stuðningsmenn hans
höfðu i morgun skilað inn með-
mælendalistum t öllum kjördæm-
um landsins og telja sig nú klára í
slaginn við Ólaf Ragnar Grímsson.
Eins og fram
hefur komið er
markmið Ást-
þórs Magnús-
sonar með fram-
boði sinu ekki
það að fella Ólaf
Ragnar úr for-
setastóli, heldur
skapa umræður
um friðarmál og
segist hann vera
styrktur til
framboðs af er-
lendum félagasamtökum I ætt við
Frambjóöandinn
Engar auglýsingar.
Frið 2000.
„Þrátt fyrir vilyrði sem ég hef
fyrir íjármögnun auglýsinga vegna
framboðsins hef ég að svo stöddu
ákveðið að kaupa engar auglýsing-
ar. Ég vil ekki að fjölmiðlaumræð-
an snúist um auglýsingakostnað
frambjóðenda eins og gerðist í síð-
ustu forsetakosningum. Ég vona að
kosningabaráttan verði málefnaleg
og að sitjandi forseti gæti alls vel-
sæmis í baráttunni,“ sagði Ástþór í
morgun.
Forsetakosningamar í júní
munu kosta tugi milljóna króna og
óvíst er hvernig sjónvarpsstöðvar
munu bregðast við framboði Ást-
þórs með tilliti tii hefðbundinna
umræðuþátta en sjálfur er fram-
bjóðandinn ekki áhyggjufullur:
„Ég luma á leynivopni hvað
þetta varðar en grip ekki til þess
fyrr en í fidla hnefana."
- Ætlar þú að kaupa sjónvarps-
stöð til að koma fram í?
„Nei, en það eru aðrar leiðir,“
sagði Ástþór Magnússon forseta-
frambjóðandi.
-EIR
Örar lækkanir á gengi hlutabréfa:
Hlutabréf verðminni
en um áramótin
- taugatitringur meðal skuldsettra fjárfesta
Mikil lækkun á gengi hlutabréfa
undanfarnar vikur hefur nú gert
það að verkum að Úrvalsvístala
Verðbréfaþings íslands er nú 3,1%
lægri en hún var um síðustu ára-
mót. í fyrradag lækkaði Úrvals-
visitalan um 2,25% og í gær um
3,0% og þar með var meðalgengi
hlutabréfanna, sem í vísitölunni
eru, komið undir það gengi sem
fékkst fyrir bréfin um áramót.
Lækkanimar hafa verið mjög
skarpar á undanfömum vikum og
hefur Úrvalsvísitalan lækkað um
16,6% frá 1. apríl sl. Svo virðist
sem vaxandi taugatitrings gæti
meðal margra fjárfesta en fram
hefur komið að margir hafa fjár-
magnað' hlutabréfakaup sín með
lánsfé og em því fremur úthalds-
litlir ef teygist úr niðursveiflum á
markaðnum.
Mestu lækkanimar frá 1. apríl
hafa verið á gengi banka, tölvufyr-
irtækja og samgöngufyrirtækja, á
bilinu 14,4% til 19,9%.
-GAR
Húsbréf falla:
Dæmi um
milljón króna tap
Vaxandi ávöxtunarkrafa húsbréfa
hefur leitt til mikilla affalla að undan-
fórnu til tjóns fyrir handhafa bréf-
anna. í gær voru aíföll af 40 ára bréf-
um komin i allt að 19% og 14% af 25
ára bréfum.
Páll Pétursson
félagsmálaráð-
herra segir affóll
á húsbréfum
valda áhyggjum
og menn muni nú
setjast niður i dag
og leita leiða varð-
andi viðbrögð. í
fréttum Búnaðar-
banka em rakin
dæmi um seljanda
8 milljóna íbúðar sem fær um 1,1
milljón króna minna fyrir bréfln en
fyrir flórum mánuðum.
Páll Pétursson.
Óvænt
„Þetta kemur nokkuð óvænt, því
alit síðastliðið ár vora aldrei affóll og
jafnvel yfirverð. f april sl. var farið að
bera á afíollum og þau komin upp í
7-10%. Síðan taka þau þetta stökk
núna í maí. Mönnum ber þó ekki sam-
an um hvað afíollin era mikil. Þetta
er væntanlega afleiðing af því að
Seðlabankinn hefur verið að spenna
upp vextina, en vextirnir á fasteigna-
bréfunum hafa staðið óbreyttir. Þá
hafa lífeyrirsjóðirnir frekar viljað
flárfesta í útlöndum. Þeir kaupa
minna af húsbréfum en þeir gerðu.
Það er auðvitað ekki gott að hækka
vextina á fasteignabréfunum og ekki
beint æskilegt fyrir húskaupendur.
Það er þó eins og menn gleymi því að
húsbréfin eru verulega góðir pappír-
ar. Húsbréfin eru ríkistryggð, en ekki
fiárfesting í einhverjum óljósum
draumum eins og sumt af þeim hluta-
bréfum sem era á markaðnum."
- Hvaða aðgerða er hægt að grípa
til?
„Það er ekki nein lausn á þessu
sem blasir beint við. Við ætlum hins
vegar að fara yfir málin og kanna í
framhaldinu hvort hægt er að hafa
einhver áhrif á markaðinn. Við getum
ekki sagt lífeyrisjóðunum fyrir verk-
um, en það er kannski hægt að freista
þeirra eitthvaö." -HKr.
Dýrbítar
Hafnfirðingar sáu tvo lausa
hunda drepa kött í gær. Talið er að
þeir séu hinir sömu og réðust á
lamb í Setbergshverfi á mánudag og
sködduðu það svo illa að nauðsyn-
legt var að aflífa það. Að sögn lög-
reglunnar í Hafnarfirði eru hund-
amir skráðir heimilishundar frá
sama heimili.
Lögreglan mun senda málið
áfram til heilbrigðisyfirvalda, sem
munu taka ákvörðun um það hvað
gert verður við hundana. -SMK
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFER.Ð AÐ PINNI WPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
hhhhhhhbhhhí
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
oppurirw
á tsnum