Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2000, Blaðsíða 4
Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000 x>v Páll Pétursson um húsbréfavandann: Lífeyrissjóðirnir sinni heimamarkaðinum - afföll húsbréfa minnka lítillega „Sem betur fer þá sneri þetta við á föstudaginn og ef sú þróun held- ur áfram í vikunni er kannski ástæðulaust að hafa miklar áhyggjur. En ef þetta lagast ekki fljótlega þarf að grípa til einhverra ráðstafana," segir Páll Pétursson félagsmálaráðherra um ástandið á húsbréfamarkaðnum vegna hækk- andi ávöxtunarkröfu. Embættismenn ráðuneytis Páls og fjármálaráðuneytis funduðu vegna málsins á föstudag en engar ákvarðanir hafa verið teknar. Ráðherrann sagði m.a. hægt að hugsa sér breytta viðskiptavakt með hús- bréfin og sagðist ætla að ræða við verkalýðshreyf- inguna. „Hún ræður í stórum dráttum lífeyris- sjóðunum og hefur mikla samfélagslega ábyrgð,“ sagði Páll og vísaði þar með í tregðu lífeyrissjóð- anna við að fjárfesta í hús- bréfum en sú tregða hefur aukist til muna eftir að Pál Pétursson Félagsmálaráö- herrarm vill eiga orðastaö viö verkalýðs hreyfinguna Alþingi samþykkti 8. maí sl. að heimila lífeyrissjóð- unum að fjárfesta allt að 50% af eigum sínum í hlutabréfum í fyrirtækjum í stað aðeins 35% áður. „Manni finnst að minnsta kosti eðlilegt að þeir sinni íslenskum fjármagnsmark- aði frekar en að spekúlera i útlöndum," segir Páll Pét- ursson. Viðskipti með húsbréf á Verðbréfaþingi í gær námu aðeins 126 milljónum króna. Ávöxtunarkrafan lækkaði lítillega frá þvi á föstudag. Miðað við hag- stæðustu kauptilboð í lok dags eru afföll af 40 ára húsbréfum nú 13,4% en 11,2% af 25 ára bréfum. Yfir 1600 milljóna viðskipti með húsbréf vour hins vegar utan Verðbréfaþingsins i gær en miðað við gengi bréfanna töldu kunnugir að fyrst og fremst væri um fulln- ustu framvirkra samninga að ræða. -GAR Stúlka féll af hand- riði við Lögberg Tíu ára gömul stúika féll um einn og hálfan metra af handriði við Lögberg á Þingvöllum í gærmorgun. Stúlkan, sem er af höfúðborgarsvæðinu, var á skóla- ferðalagi á Þingvöllum er hún féll. Far- ið var með stúlkuna á slysadeild Land- spítalans í Fossvogi og reyndust meiðsl hennar minni háttar. -SMK Búðareigandi hljóp þjóf uppi Eigandi skartgripaverslunar á Lauga- vegi brást ókvæða við er þjófur reyndi að stela tveimur verðmætum hringum úr búð hans seinnipartinn í gær. Þjófurinn tók á rás með hringana og eigandinn á eftir honum. Eigandinn hljóp manninn uppi og kallað var á lögreglu sem handtók þjófinn og fór með hann til yfirheyrslu á lögreghistöðinni. -SMK Átak við Elliðavatn Hann minnti helst á áramótabrennu, kösturinn sem til varö eftir hreinsunarátak íbúa viö Elliðavatn sem staðið hefur undanfarna daga. íbúarnir tóku til í húsum sínum og á lóöum og úr uröu heilu bílhlössin af drasli. Stofnandi Herbalife lést í svefni: Los Angeles í tárum - segir eiginkona Jóns Óttars Ragnarssonar „Þetta er eins og að missa náinn vin. Los Angeles er i tárum og við Jón Óttar eru einmitt núna að fara á sorgarfund meö félögum okkar vegna þessa sviplega fráfalls manns sem skipti okkur öll svo miklu,“ sagði Margrét Hrafnsdóttir, eigin- kona Jón Óttars Ragnarssonar, um andlát Marks Hughes, stofnanda Herbalife, sem lést í svefni á heimili sínu ytra í fyrrinótt, aðeins 44 ára að aldri. Jón Óttar og Margrét hafa sem kunnugt er verið umsvifamikil í sölu á Herbalife í Bandaríkjunum og viðar og voru í góðu vinfengi við Mark Hughes sem nú er allur. „Mark var einn af virtustu borg- urum í Los Angeles og enginn einn maður hefur gefið jafn mikið til góð- gerðarmála og hann. Um dánaror- sök hans veit ég ekki annað en sagt er í fréttum en ég veit hins vegar að Mark var með slæman asma sem bam og fyrr á þessu ári fékk hann slæma lungnabólgu og var töluvert veikur," sagði Margrét Hrafnsdóttir þar sem hún var stödd á heimili sínu í Los Angeles í gær. -EIR Jónína kaup- ir Þokkabót Jónína Bene- diktsdóttir líkams- ræktarfrömuður hefúr keypt heilsu- ræktarstöðina Þokkabót sem er til húsa á KR-vell- inum. Eru kaupin liður í stefiiu Jón- ínu að eignast fimmtán líkams- ræktarstöðvar á höfuðborgar- svæðinu á næstu þremur árum. „Nú á ég orðið íjórar stöðvar og held ótrauð áfram þar til ég hef náð settu marki. Þokkabót heitir nú Planet Pump og þama er frábært að vera,“ sagði Jónína eftir að gengið hafði ver- ið frá kaupunum, en um verðið vildi hún ekki ræða. -EIR Jónína Ben. Heldur áfram aö kaupa líkams- ræktarstöövar. Ársþing WACO í Reykjavík Ársþing alþjóðlegra samtaka flutn- ingsmiðlara í flugi, WACO, var sett af Halldóri Ásgrímssyni utanríkis- ráðherra í Reykjavík í gær. Flutn- ingsmiðlunin Jónar-B.M. Flutningar halda þingið sem stendur í fjóra daga og 85 fuiltrúar frá 42 löndum sitja og er þetta í fyrsta sinn í 31 árs sögu samtakanna sem fundað er á íslandi. Samtökin em net 50 flutningsmiðlun- arfyrirtækja sem mynda al- heimskeðju um samstarf og flutn- ingsleiðir. WACO er ætlað að mynda mótvægi við alþjóða-flutningarisa en styrkur þess era sjáifstæðar einingar með samvinnu á heimsvísu. Fram undan eru miklar breytingar á flutn- ingamarkaðinum og á þinginu verða helstu nýjungar ræddar, svo sem á sviði viðskiptaþjónustu, upplýsinga- og tollamála. -HH Homstrandir: Veiðiþjófar gómaðir Fjórir veiðiþjófar vora gómaðir á Homströndum nýverið. Mennimir höföu lagt bát sínum við neyðarskýli og vora þar sofandi þegar sýslumað- urinn í Bolungarvík kom að þeim í reglubundnu eftirliti björgunarsveit- anna. Bannað er að nota neyðarskýl- in nema í neyðartilvikum og eins era allar Homstrandimar alfriðaðar allt árið um kring. Mennimir, sem eru á milli tvitugs og þrítugs, eru góðkunn- ingjar lögreglunnar í veiðiþjófnaði. Lagt var hald á skotvopn og mikið af sjófugli sem mennimir höfðu veitt, bæði með byssum og í net. Lögreglan á ísafiröi rannsakar nú málið. SMK VeðriÖ í kvðld T Vætusamt í kvöld Gert er ráð fyrir austlægri átt, 5-10 m/s og skúrum, einkum sunnanlands síödegis í dag, en 8-13 m/s í kvöld og í nótt. Búast má við rigningu á Norður- og Austurlandi með kvöldinu. Tiltölulega hlýtt verður í veðri, einkum noröanlands. Sólarlag í kvöld Sólarupprás á morgun Síðdegisflóó Árdegisflóð á morgun Skýringar á veðurtáknum AKUREYRI 23.12 03.06 13.59 02.20 ^VINDÁTT 10°< Hiri -io° -“XVINÐSTYRKUR \roftCT j metrum $ sekúwíu 1 HEIOSKÍRT LÉrrSKÝJAÐ TD HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ o AISKÝJAÐ RiGNiNG SKÚRIR ■Q SIYDDA Q SNJÓKOMA ifs ÉUA0ANGUR ÞRUMU- VEÐUR | -J*- \ T SKAF- RENNINGUR ÞOKA 5NJÖR GREIDFÆRT HÁLT ÞUNGFÆRT ÓFÆRT Helstu þjóövegir greiöfærir Á Vestfjörðum er ófært um Þorskafjarðarheiöi og á Noröurlandi er ófært um Öxarfjaröarheiöi. Annars eru allir helstu þjóövegir landsins greiðfærir í dag. BYGCTAUm YStNGUM FRA VECAGERÐ RIKI5INS rmœmm Hæg austlæg átt Á morgun er búist við fremur hægri austlægri átt og skúrum víðast hvar á landinu nema vestanlands, þar sem veröur þurrt aö kalla. Hiti verður á bilinu 6 til 12 stig. Fímiiitud Fostudá Laugajdg Vindur: //ff? C' 0 5-11 ^ Hiti 5° til 12° 4 * Vindlur: /-^ 6-12 nt/s Hiti 4° tii 11“ Vindur: /* ' 5-10 Hiti 5° til 12° Búlst er vlð norðaustlægrl átt. Þá er gert ráð fyrlr vætu, elnkum norðan- og austanlands. Áfram verður fremur kalt Gert er ráð fyrlr áframhaldandl norðaustanátt og vætusómu veðri, elnkum norðan- og vestanlands. Enn verður kalt í vebrl. Gert er ráð fyrir norðaustlægrl átt, 5-10 m/s og vætusömu veðrl. Lengst af verður þurrt suðvestanlands. Afram fremur kalt. amníL s AKUREYRI skýjaö 3 BERGSTAÐIR skýjaö 4 BOLUNGARVÍK léttskýjað 6 EGILSSTAÐIR 6 KIRKJUBÆJARKL. skúrir 3 KEFLAVÍK skúrir 3 RAUFARHÖFN heiöskírt 5 REYKJAVÍK úrkoma 4 STÓRHÖFÐI skúrir 4 BERGEN léttskýjað 9 HELSINKI skýjað 12 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 12 ÓSLÓ alskýjað 11 STOKKHÓLMUR 11 PÓRSHÖFN skúrir 7 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 11 ALGARVE léttskýjað 18 AMSTERDAM þokumóöa 12 BARCELONA þokumóöa 16 BERLÍN léttskýjaö 11 CHICAGO alskýjaö 19 DUBLIN rigning 11 HAUFAX alskýjaö 6 FRANKFURT þokumóða 10 HAMBORG léttskýjaö 10 JAN MAYEN þoka 0 LONDON rigning 12 LÚXEMBORG þokumóða 8 MALLORCA heiöskírt 16 MONTREAL alskýjaö 13 NARSSARSSUAQ skýjaö 2 NEW YORK alskýjaö 11 0RLAND0 heiösktrt 23 PARÍS skýjaö 11 VÍN skúrir 13 WASHINGTON alskýjað 14 WINNIPEG 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.