Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2000, Page 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 2000
ÐV
Franskir gagnrýnendur spara ekki stóru orðin um Björk:
Cannes krýnir Björk
FRÁ FRÉTTARITARA DV í PARÍS:
Varla verður sagt að verðlaunaveitingin í
Cannes hafi komið gagnrýnendum franskra
fjölmiðla mikið á óvart því svo er að sjá að
þeir hafi allir átt von á því að kvikmynd
Lars von Trier, Dancer in the Dark hlyti
verðlaun - og þá frekar tvenn en ein eins og
raun varð á. En þessa verðlaunaveitingu
túlka þeir allir á einn veg: Það var leik- og
söngkonan Björk sem átti heiðurinn af öllu
saman; án hennar hefði engin kvikmynd ver-
ið. „Cannes krýnir Björk“ er forsíðufyrir-
sögn i blaðinu Le Parisien en inni í því blaði
er fyrirsögnin „Björk snæstjarna".
Á forsíðu France Soir er með risaletri
heldur klúðurslegur orðaleikur: „A Star is
Björk“ - og vísar blaðið þar til frægrar
Hollywood-kvikmyndar með Judy Garland í
aðalhlutverki, A Star is Born. Svo til allir
ljúka lofsorði á myndina en gagnrýnandi Le
Figaro situr þó enn við sinn keip, talar um
Björk
Jafnvel hrollvekjuhöfundurínn Brían de Palma
grét höfgum tárum yfir Dansara í myrkrinu.
ögrun í anda tískunnar og endurtekur fúkyrð-
in sem hann viðhafði þegar myndin var frum-
sýnd.
Það sem gagnrýnendum finnst að því er
virðist einna athyglisverðast við þessa verð-
launaveitingu er að með henni sé verið að
sætta gamlar andstæður, listrænar kvik-
myndir og kvikmyndir fyrir hinn breiða al-
menning. Benda menn á að áhorfendur af öllu
tagi, bæði gagnrýnendur og venjulegir bíó-
gestir, hafi orðið hrifnir af myndinni, jafnvel
hrollvekjuhöfundurinn Brian de Palma hafi
grátið höfgum tárum. Þarf þá ekki fleiri vitna
við.
Að öðru leyti benda gagnrýnendur á að
kvikmyndahátíðin hafi einnig verið sigur fyr-
ir kvikmyndir frá Asiu en ósigur fyrir fransk-
ar kvikmyndir. Engin þeirra fékk nokkur
minnstu verðlaun og virðist það einnig hafa
farið fyrir brjóstið á gagnrýnanda Le Figaro.
Einar Már Jónsson
www.opinnhaskoli2000.hi.is
Líf í borg
MINNINGABBORfi
EVRÖPU ÁRIO 2000
í tilefni af því aö Reykjavík er ein af menning-
arborgum Evrópu í ár býður Háskóli íslands al-
menningi á hátíð undir heitinu Líf í borg þar sem
boðiö veröur upp á efni tengt borginni og borgar-
lífinu. Undirbúningur og þróun hugmyndarinnar
hefur staöið í tvö ár og nú á fimmtudagskvöldiö
opnar Háskólinn veislugestum dyr sínar. Opnun-
arathöfnin hefst í Hátíöarsalnum í aöalbygging-
unni kl. 20.
„Háskólinn stendur að þremur viðburðum í til-
efni af menningarárinu undir yfírskriftinni Op-
inn háskóli," segir Eggert Þór Bemharðsson,
einn af verkefnisstjórum hátíðarinnar. „I fyrsta
lagi var opnaður Visindavefur 29. janúar þar sem
allur almenningur á greiðan aðgang að fræði-
mönnum Háskólans; svo var boðið á námskeið
sem opin eru almenningi endurgjaldslaust og
loks verður þessi menningar- og fræðahátíð um
næstu helgi sem öllum er boðið á. Þangað getur
fólk komið þegar þvi sýnist. Engin þörf er að skrá
sig fyrir fram.“
Á hátíðinni verður lífið i borginni skoðað frá
ótal hliðum á ellefu dagskrárliðum sem fólk get-
ur blandað saman eftir geðþótta. Borgarfjölskyid-
an verður skoðuð, borgarlikaminn, borgarmenn-
ingin, framtíð borgarinnar, huliðsheimur Reykja-
víkur, jaðarmenning og skuggahliðar borgarinn-
ar, kirkja og trú í borginni, náttúra og umhverfí
Reykjavíkur, tækni og vísindi í þágu borgarans,
útivist og borgarskipulag. Auk þess verða stúd-
entar með fjölbreytta dagskrá frá morgni til
kvölds í risastóru „listatjaldi" i skeifunni framan
við aðalbyggingu Háskólans alveg frá því kl. 21 á
fimmtudagskvöldi.
„Dagskráin fer mestöll fram innan veggja skól-
DV-MYND PJETUR
Eggert Þór Bernharösson sagnfræðingur
„Þetta erekki ráöstefna í hefðbundnum skilningi.
Þetta er menningar- og fræðahátíð og þarna nálg-
ast Háskóli íslands almenning eftir nokkuð
annarri leið en venjutega. Allir eru velkomnir og
um aö gera að sem allra flestir komi. “
ans en ekki öll,“ segir Eggert. „í ýmsum dag-
skrárliðum er boðið upp á ferðir. Til dæmis verð-
ur farið í vettvangsferð um álfabyggðir í Reykja-
vfk undir liðnum „Huliðsheimur Reykjavíkur“,
undir liðnum „Náttúra og umhverfi" verður far-
ið í garðana í Reykjavík, bæði einkagarða og al-
menningsgarða, og þeir sem sækja „Útivist og
borgarskipulag" eiga kost á hjólreiðaferð um
grænu svæðin i borginni og bátsferð um sundin.“
Dagskrá hefst í sumum liðum síðari hluta
fóstudags en meginþunginn verður á laugardegi
og sunnudegi. Dagskrána má nálgast á Netinu eft-
ir slóðinni www.opinnhaskoli2000.hi.is en einnig
hefur hún verið gefin út í handhægum bæklingi
sem nálgast má á öllum bensínstöðvum Olís á
Reykjavíkursvæðinu, í Háskólanum sjálfum og
víðar.
Gífurlegur áhugi
Hátiðin heldur sig að mestu á háskólasvæðinu,
í aðalbyggingunni, Odda, Lögbergi, Endurmennt-
unarstofnun, Dunhaga 7, og Norræna húsinu, en
einstaka liðir verða utan þess: Tækni og vísindi
verða til dæmis á fjórum stöðum: í Odda, á Korp-
úlfsstöðum, í stjómstöð Landsvirkjunar við Bú-
staðaveg og f Endurmenntunarstofnun.
- Heldurðu að fólk komi á hátíðina? spyrjum
við Eggert Þór að lokum.
„Atriðin sem Háskólinn hefur boðið upp á nú
þegar hafa heppnast mjög vel,“ segir hann. „Það
sækja svo margir inn á Vísindavefmn að þeir
sem þar svara hafa ekki undan og flest námskeið-
in fylltust á örfáum dögum. Við höfum mikla trú
á að almenningur muni flykkjast á Líf í borg.“
Erfðabreyttur
djass
Aziza Mustafa Zadeh er píanóleikari og
söngvari frá Azerbajdzhan. Hún er einn af
gestum Listahátíðar í Reykjavík að þessu
sinni og hélt tónleika í íslensku Óperunni á
sunnudagskvöldið. Tónlist hennar er afar sér-
stök en hennar eigin tónsmíðar eru uppistað-
an í því sem hún flytur. í heimalandi hennar
er svonefnt „mugam“ eins konar spunnin þjóð-
lagatónlist og þótt hún hafi hlotið klassíska
tónlistarmenntun þá eru það djass og mugam-
tónlistin sem eru grunnurinn i tónlist hennar.
Kannski mætti segja að rétt eins og hefð-
bundinn djass sé grundvallaður á cifrískri tón-
list þá sé tónlist Azizu allt að þvi „erfðabreytt-
ur djass" að því leyti að hennar eigin tónlist-
arhefð er svo sterkur grunnur í sköpiminni.
En hvað sem menn vilja nefna hlutina þá er
útkoman áhrifamikil. Hún fór hægt af stað.
Fyrsta lagið, „Endless Power“, var aðallega
röð brotinna hljóma. „Strange Mood“ var svo
tileinkað fóður hennar, Vagif Mustafa Zadeh,
en hann var þekktur mugam- og djassleikari. í
Reytfiavik Arts Festival
20. mif - 8. jcni 2000
hennar eigin tónsmíðum er spuninn oft eins
konar hugleiðingar og ekki er endilega fastur
hljómagangin- undirstaða hans heldur allt eins
stefln sjálf.
Aziza er mjög leikinn píanisti og afar sér-
stæður söngvari. Textar eru í lágmarki en
„skatt“ af ýmsum gerðum er áberandi; röddin
sjálf er titrandi og ekki hljómmikil. Hún söng
einnig tvö lög og lék undir á litla handtrommu
með fingrurium. Þess ber að geta að hún söng
og spilaði í hljóðnema og í seinna laginu var
bergmál á söngnum sem gerði það að verkum
að það var eins og tvær manneskjur væru að
syngja. Hún lék svo þrjú þekkt lög í lokin, „My
Funny Valentine", „It Aint Necessarily So“ og
„Georgia“, á sinn persónulega hátt þótt formið
væri hefðbimdið. Hún fékk verðskuldað gífur-
lega góðar móttökur hjá tónleikagestum sem
kunnu vel að meta þennan unga og sérstaka
listamann.
Ársæll Másson
Azfza Mustafa Zadeh
J hennar eigin tónsmíðum er spuninn oft eins
konar hugleiðingar. “
________________Menning
Urnsjón: Siija Aðalsteinsdóttir
Húrrahróp
Ó, af hverju var maður ekki í
Cannes á sunnudagskvöldið til að
fagna með álfa-
stúlkunni með und-
ursamlegu röddina?
Hér á blaðinu voru
rekin upp mikil
húrrahljóð þegar
fréttirnir bárust frá
fréttastofu RÚV -
eiginlega má segja að allt hafi orðið
vitlaust. Altryllt í nokkra stund.
Við erum ólýsanlega stolt af
henni - og heimurinn tekur undir
með okkur þegar við segjum: Til
hamingju, Björk!
Kisi kisi
kisikis...
Næstu bólfarir Óvæntra bólfélaga
verða háðar í Kaffileikhúsinu á
fimmtudagskvöldið, kl. 21. Þá verð-
ur kammeróperan
Kisa eftir MÚM og
Sjón flutt af MÚM,
Ásgerði Júníusdótt-
ur og Völu Þórsdótt-
ur. Nýbakaði há-
vaðasipparinn Aux-
pan mun stýra TAL-
símgjörningnum Telefóníunni og
Imma og Hilmar Bjarnason mynd-
listarspírur steikja skífur. Barþjón-
ar Kaffileikhússins bjóða í framúr-
stefnulegt frescahanastél (gegn
vægu).
Upplýsingar-
öldin
Mál og menning hefur gefið út
stórbókina Upplýsingaröldin. Úrval
úr bókmenntum 18. aldar. Víkingur
Kristjánsson og Þorfmnur Skúlason
tóku saman og rita inngang.
í bókinni er um-
fangsmesta safn ís- £
lenskra texta frá 18. 1
öld - upplýsingar- I
öldinni. Hún var B
einn mesti umbrota- E
tími íslenskrar I
menningarsögu og I
þar liggja rætur 19. |
aldar og þeirrar
voldugu vakningar sem gerði ís-
lendinga að nútímaþjóð. Því er
hverjum manni nauðsynlegt að
kynna sér hana.
1 formála segja ritstjóramir m.a.:
„Rannsóknir á íslenskum bók-
menntum hafa að miklu leyti verið
bundnar við glæsta fortíð þjóðveld-
isaldarinnar, þegar hetjur riðu um
héruð og drápu mann og annan, og
gullregn nítjándu aldar, þar sem
sjálfstæðisbaráttan blés skáldum
hetjumóð í brjóst. Á milli þessara
tímaskeiða er einhvers konar svart-
hol i íslenskri bókmenntasögu þar
sem eymd fólks, plágur og sóttdauði
og ströng hugsanagæsla kirkjunnar
gerði landsmönnum ókleift að skapa
fögur og safarík bókmenntaverk.
Þessi sýn á söguna er villandi, eins
og Pétur Gunnarsson hefur bent á í
grein sinni um samhengisleysið í ís-
lenskum bókmenntum."
Meðal þekktra höfunda sem efni
eiga í bókinni eru Árni Magnússon,
Páll Vídalín, Jón Ólafsson frá
Grunnavík, Látra-Björg, Björn Hall-
dórsson í Sauðlauksdal, Eggert
Ólafsson, Jón Steingrímsson, Bene-
dikt Gröndal og Magnús Stephen-
sen, en auk þess eru þar textar eftir
höfunda sem eru almenningi lítt
kunnir en verðskulda fyllilega að
gefinn sé meiri gaumur.
LISTASAFN ÍSLANDS
Davis
á myndbandi
Við minnum á myndbandasýn-
ingar í Listasafni íslands á morgun,
kl. 12 og 15. Þá verða sýnd mynd-
böndin Studies in Myseíf (1973) og
Studies in Black and White (1971)
eftir Douglas Davis.