Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Page 4
Hvítasunnuhelgin: Fókuskvöld á Thomsen A I©ið í leiklistarskóla í tilefni Tónlistarhá- t í ö a r Reykjavík- ur, Reykja- vík Music Festival, í Laugardalnum hefur Fókus stofn- aö næturklúbb í samvinnu við Kaffi Thomsen. Þar verður klúbbastemningin allsráðandi alla hvítasunnuhelgina, 9.-11. júní næstkomandi. Allar stjöm- urnar sem mæta á klakann til að spila verða með passa og ein- hveijar þeirra koma til með að troða upp (nánar auglýst siðar). Auk þess munu blaðamenn heimspressunnar leita frétta inni á staðnum. Þeir munu finna eitt- hvað við sitt hæfi þvi djammið á Thomsen er einstakt. Þar er að f i n n a ástæðuna fyrir því að ísland er upp- h æ p a ð land í út- löndum. Og þú get- ur verið á ^þúTst^msen FókusinnTónlistarhátíðar þinn ofsa- Reykjavíkijr. lega vel og fylgist með í næstu viku. Þá verð- ur leið þín á Thomsen útskýrð nánar. En þangað til geturðu smellt þér á Thomsen í kvöld og hlustað á eðaltóna frá virkilega færum hús-Dj-um en annað kvöld verður svo Partyzone með blússandi gleði fram eftir morgni. Þeir eiga afmæli. Eru tíu ára og svona. Það er því í lagi að fólk komi syngjandi og færi félög- unum Helga Má og Kristjáni gjaf- ir. klúbbur Þaö veröur heitt í kolunum á Thomsen um hvítasunnuhelgina. Þá er Reykjavik Music Festival í fullum gangi og stjörnur hátíöarinnar mæta á staöinn til aö dansa og troöa upp. GRIM r heyrnariausa Elsu hefur alltaf langaö til að vinna viö leiklist og hefur nú þegar leikið í leikritinu Ég sé sem sett var upp af Draumasmiöjunni. „Ég hef alltaf haft áhuga á leik- húsi og þegar ég var 12 ára spurði amma mín mig hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór. Ég ans- aði henni hreint út að ég vildi verða leikkona og það kom svolít- ið á hana. Hún sagði það ekki beint en i svip hennar las ég að það væri nú viturlegra að reyna við eitthvað annað,“ segir Elsa Guðbjörg Björnsdóttir, heym- leysingi og verðandi leiklistar- nemi. Hún er nú í óðaönn að undirbúa sig undir að flytja búrferlmn til Noregs þar sem hún mun leggja stund á leiklist næsta árið. „Skól- inn heitir Á1 og er sérhæfður skóli fyrir heyrnarlausa. Ég er nú reyndar bara búin að fá munnlegt vilyrði fyrir því að mér verði hleypt inn. Það er samt ekkert að stoppa mig. Ég er búin að selja íbúðina og kærastinn minn er bú- inn að segja upp vinnunni sinni þannig að það er eins gott að þetta gangi nú allt saman upp.“ Að sögn Elsu er þetta í fyrsta skipti sem heymarlausu fólki af Norðulöndunum er boðin innganga í skólann. Hefur þetta vakið mikla athygli úti. Sérstaklega finnst fólki forvitnilegt að það sé íslendingur að koma að læra leiklist. Elsa er ekki alls óvön leikhúsi. Hún tók þátt í leikritinu Ég sé sem sett var upp af Draumasmiðjunni í leikstjórn Margrétar Péturs- dóttur. En aðspurð um hver markhópurinn sé fyrir slikar leik- sýningar svarar Elsa því til að það séu hinir heyrandi jafnt sem heymarlausir. „Það er nú bara þannig að samfélag heymarlausra hér á landi er svo fámennt að það tekur þvi varla að setja upp leikrit eingöngu fyrir heyrnarlausa. Það eru vandamál tengd því að setja upp leikrit fyrir heyrandi fólk en það er hægt að leysa með þvi að setja upp textaskjá líkt og gert er í óperunni eða hafa sögumann.“ Heyrði nafnið sitt einu sinni Elsa er fædd og uppalin í Háaleit- inu og er hún dóttir fyrrverandi tryggingasölumanns og kvenna- leikfimikennara. Hún fæddist ekki heynarlaus heldur varð hún fyrir því óhappi að fá heilahimnubólgu 2 1/2 árs og varð það til þess að taug- in frá eyranu til heilans skemmdist sem leiddi svo til þess að hún missti heymina. Mansíu eftir aó hafa heyrt ein- hvern tímann? „Já, ég man eftir því að á jóla- skemmtun einu sinni, 1975 að mig minnir, var nafnið mitt kailað. Það er það eina sem ég man, bara það að það hafi verið kallað, ekki hvemig það hljómar eða neitt svo- leiðis. Þetta er aðeins hljóðlát minning, án hljóðs. Fyrir utan þetta man ég ekki neitt.“ Þrátt fyrir heymarleysið getur Elsa líka tjáð sig á töluðu máli. „Það má eiginlega segja að ég eigi mér tvö móðurmál, íslensku og táknmál. Ég nota talað mál frekar mikið, sérstaklega þegar ég er með vinum minum, sem eru flestir heyrandi, og fólki sem ég þekki vel. Hins vegar þegar ég þekki ekki fólk finnst mér þægilegra að hafa túlk þar sem fólk á stundum í erfiðleik- um með að skilja mig.“ Getum allt nema heyrt Þar sem heyrandi fólk er oft ekki að spá í annað en að komast af í dagsins amstri þá leiðir það hugann lítið að heimi hinna heym- arlausu. „Það getur verið svolitið þreytandi að svara spumingunum sem maður fær. Eins og þegar maður er spurður að því hvort maður fái bílpróf eða hvemig mað- ur fari að því að heyra í krakkan- um símnn þegar hann vaknar á kvöldin. Málið er nú bara það að við getum gert nokkum veginn allt það sem heyrandi fólk getur nema auðvitað heyrt. Sérstaklega á þetta við í dag þar sem það eru komin alls konar tæki og tól sem hjálpa okkur. Vekjaraklukkan mín er t.d. tengd í titrara undir koddanum mínum og síöan erum við með tölvur og GSM-sima sem einnig hjálpa okkur mikið, þannig að það er ekkert sem við ráðum ekki við orðið.“ Aó.htwm eöa heyra ekki, þaö skiptir ekki rnali, gæti Elt ^mfobjörg Björns$óttir sagt. Hún er heyrnarlaus og erl leið tíl samkeppn|saöila okkar um Leií heppna, Norö- manna, aö sfúctpra leiklist. Hacidi Thor hitti Elsu og spjalfa-öi við h^ha urn lífið og leiklistina meö hjálp Mar grétar Auöar fþhannesdóttur táknmálstúlks. JÁ CEIBL MAFA AU.TAF VERlfo 6Ót>IR 'l ROKtNU, kR." INöARNt R ... f Ó k U S 26. maí 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.