Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000
I>V
7
Fréttir
Ónýt Græn kort valda fólki vandræðum:
Sleipnir sér Steini
Ármanni leikara
fyrir hreyfingu
- forstjóri Strætó íhugar endurgreiðslu korta
Nokkuð hefur verið um að fólk
sem fjárfest hefur í svokölluðum
Grænum kortum SVR hafi kvartað
yfir þvi að geta ekki notað kortin
ákveðnar leiðir á höfuðborgarsvæð-
inu og er jafnvel svo að sumir verði
að sitja heima með kortið sitt.
Steinn Ármann Magnússon leik-
ari ferðaðist mikið með strætó áður
en verkfall Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis varð en hann segir verkfali-
ið hafa verið lán í óláni fyrir sig
hingað til, enda Græna kortið hans
útrunnið.
„Ég hef notað tímann til þess að
gera meira heima og vinna í garðin-
um,“ segir hann.
Steinn segir blikur vera á lofti
þar sem hann þurfi að sækja mikið
til Reykjavíkur í næstu viku en að
úrræðin kunni að hafa kosti í for
með sér.
„Ég hjóla bara i bæinn ef veðrið
verður jafn gott og núna þótt hjól-
inu mínu, sem var mikið antíkhjól,
hafi verið stolið. Ég nota þá bara
hjól konunnar. Ég mætti losna við
nokkur kíló og þetta leiðir bara til
þess að ég grennist allur og stælist,“
segir Steinn Ármann og er þakklát-
ur vagnstjórum sem eiga allan hans
stuðning.
„Fyrst það á að fara að eyða millj-
ónum í Kristnihátíð þá held ég að
við getum borgað þessum mönnum
nokkrum þúsundum meira í laun,“
segir hann.
En það eru ekki allir jafn heppn-
ir og Steinn þvi margir sitja heima
með rándýrt Grænt kort sem er í
mesta lagi pappírsgagn.
Að sögn Lilju Ólafsdóttur, for-
stjóra SVR, verður tekið vel í allar
beiðnir um að fá kortin endur-
greidd.
„Það verður skoðað hvert mál fyr-
ir sig og athugað hvort ekki sé hægt
að leysa málið með því að nota þá
vagna sem nú eru starfandi en í ein-
hverjum tilfellum munum við end-
urgreiöa," segir Lilja. -jtr
Reiðhjól í stað strætó
Leikarinn góökunni, Steinn Ármann Magnússon, segir blikur vera á lofti
vegna Sleipnisverkfalls þar sem hann þurfi aö sækja mikiö til Reykjavíkur.
Hann hyggst þó hjóla í bæinn - á hjóli konu sinnar.
7 SÆTA HYUNDAI STAREX 4x4
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
VERÐ KR.
2.478.000
2500 cc DIESEL BEINSKIPTUR 4x4
Hyundai Starex býöur upp á fleiri notkunarmöguleika en nokkur annar bíll. Þú getur boðið
allri fjölskyldunni í ferðalag, komið farangrinum fyrir og það fer vel um alla. Hyundai Starex
státar af einstaklega vel hönnuðu innanrými; snúanlegum miðsætum og aftursætum sem
má fjarlægja en þannig má aðlaga Starex að hverri ferð fyrir sig.
> c rt í
HYunoni
meira
aföllu