Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Blaðsíða 28
32
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000
Tilvera jov
?
Harrison Ford mun ekki leika
Jack Ryan framar
Þrjár kvikmyndir hafa verið gerð-
ar eftir spennubókum Toms Clancys
um njósnarann
Jack Ryan sem
risið hefur til
æðstu metorða. í
fyrstu kvik-
myndinni, The
Hunt for Red
October, lék
Alec Baldwin
kappann. Harri-
son Ford tók við
Harrison Ford af honum í Pat-
Búinn aö fá nóg j-jot Games og
af Jack Ryan. ciear and Pres-
ent Danger.
Nú er undirbúningur hafinn við
gerð fjórðu kvikmyndarinnar, sem
gerð er eftir skáldsögunni The Sum
of All Fears. Talið var víst að
Harrison Ford myndi leika Ryan
eina ferðina enn. Nú hefur snurða
hlaupið á þráðinn og Ford hefur
dregið sig til baka. Samkvæmt frétt-
um mun ástæðan vera sú að hann
og leikstjórinn Phillip Noyce voru
ekki sammála um breytingar á
handriti. Þetta er í annað skiptið á
stuttum tíma sem Ford dregur sig
til baka. Áður hafði hann hætt við
að leika í TrafHc sem Steven Soder-
bergh leikstýrir.
Bíladellustúlkan Sway.
Angeline Jolie leikur stúlku sem elskar Ferrari i Gone in 60 Seconds.
Robin Williams í fótspor Al-
ecs Guinness
Ein klassíkin úr kvikmyndaheim-
inum er breska gamanmyndin Kind
Hearts and Coronets sem gerð var
1949. Nú er áformað að endurgera
hana og er ekki um neina smáút-
gerð að ræða.
Leikstjóri hefur
verið ráðinn
Mike Nichols
(Primary Colors,
The Birdcage) og
í aðalhlutverk-
um verða Robin
Williams og Will
Smith. Robin
Robin Williams Williams mun
/ breska endur- leika hlutverk
gerö. sem Alec
Guinness lék og
fékk mikið lof fyrir og Will Smith
leikur hlutverk sem minna þekktur
leikari, Jack Price, lék. í þeirri
mynd lék Guinness átta meðlimi í
sömu fjölskyldu sem allir voru
inyrtir á snilldarhátt af Price.
Nichols segir að fyrirmyndin hafi
verið um ríg á milli þjóðfélagshópa,
hann muni láta sína mynd vera um
rig á milli kynþátta: „Þá mun mín
mynd enda öðruvísi." Tökur munu
hefjast seint á þessu ári.
Woo vill fá Cage og Slater
Hong Kong-leikstjórinn John
Woo, sem nú síðast leikstýrði
Mission: Impossible 2 er búinn að
tilkynna að hans næsta kvikmynd
verði Windtalkers. Woo hefur valið
tvo leikara, sem hann hefur unnið
með áður, i aðalhlutverkin, Nicolas
Cage, sem hann leikstýrði í
Face/Off, og Christian Slater sem
lék í Broken Arrow. Mótleikari
Cage og Slaters í fyrmefndum
myndum var
John Travolta en
það sýnir að Woo
er ekki mikið
fyrir að skipta
um leikara í
Bandaríkjunum
frekar en í Hong
Kong þar sem að-
alleikari hans
var Yun-Fat
Chow. í Wind-
talkers leika
Cage og Slater
hermenn í síðari
heimsstyrjöldinni sem fengnir eru
til að gæta nokkurra Navajo-indíána
sem eru dulmálssérfræðingar og vit-
að er að óvinurinn sækist eftir. Ef
líkur benda til þess að indíánarnir
náist eiga þeir að drepa þá. Áætlað
«r að tökur hefjist á Hawaii í ágúst.
Christlan Slater
nýrri John Woo-
mynd.
Aðeins viku eftir að Gone
in 60 Seconds var frumsýnd í
Bandaríkjunum, þar sem hún
var vinsælasta
kvikmynd
helgarinnar,
er hún kom-
in á hvíta
tjaldið í
Sam-bíóun-
um og er
það sjálfsagt
mörgum að
dáunarefni,
sérstaklega bíla-
áhugamönnum, því
nóg er um flotta og
sjaldgæfa bOa ásamt elt
ingarleik úti um allar
trissur.
í Gone in 60
Seconds leikur
Nicolas Cage Randall
„Memphis“ Raines,
fyrrum bílaþjóf sem
var fremstur meðal
jafningja í þeirri
stétt. Mörg ár eru
liðin frá því hann
hætti þeirri starf-
semi. En eftir að
gamall vinur heim-
sækir hann á hann
ekki um neitt annað
að velja en að fara að
stela bOum aftur tO
að bjarga lifi yngri
bróður síns. Þessi
bflþjófhaður er upp á
fimmtíu bfla og
háð þvi skilyrði
að það verður
að stela öU-
um bflun-
um á
einni
nóttu.
Þótt
Randall
Gone in 60 Seconds frumsýnd á morgun:
Er hægt að stela
50 bílum á einum
sólarhring
sé hættur í fag-
inu þekkir
hann vel til
bilaþjófa auk
þess sem
hann er
með
ólækn-
andi
bíla-
dellu
sjálf-
ur
veit
hvar
hann á að leita að aðstoðarmönnum.
Fær hann alla fremstu bflaþjófa tfl liðs
við sig og brátt hefst atburðarás þar sem
margt óvænt skeður og er stanslaus
kappleikur við tímann.
Framleiðandi Gone in 60 Seconds er
Jerry Bruckheimer, sem segja má að i
dag sé konungur spennumyndanna.
Hann var löngum í félagi með Don
Simpson, sem fyrir fáum árum dó úr
ólifnaði og saman gerðu þeir nokkrar af
vinsælustu spennumyndum síðari ára.
Fyrstu milljónimar græddi Bruck-
heimer þegar hann framleiddi Flashd-
ance. Upp frá því var hann óstöðvandi
og eftir því sem árin hafa liðið eru
myndir hans dýrari og íburðarmeiri.
Eftir að Don Simpson dó hefúr Bruck-
heimer upp á eigin spýtur framleitt Con
Air og Ármageddon ásamt Gone in 60
Seconds og meðal verkefna hans þessa
dagana er Pearl Harbour sem verður
ein dýrasta kvikmynd sem gerð hefur
verið. Segja sumir að þegar upp er stað-
ið muni kostnaðurinn vera nálægt 200
milljónum dollurum.
Auk Nicolas Cage leika í Gone in 60
Seconds Angeline Jolie, sem nýverið
fékk óskarsverðlaun, Robert Duvall,
Giovanni Ribisi, Vinnie Jones,
Christopher Eccleston og Will Patton.
Leikstjóri er Dominic Sena sem stofh-
aði á sínum tíma Propaganda Fihns
ásamt Sigurjóni Sighvatssyni. Hann
hefur síðustu ár verið að reyna fyrir
sér í kvikmyndum eftir farsælan feril í
auglýsinga- og tónlistarmyndbanda-
gerð, en hefur ekki haft erindi sem erf-
iði og óvist er að hann græði nokkuð á
Gone in 60 Seconds þar sem myndin
hefur verið gagnrýnd á neikvæðum
nótum.
Nicolas Cage
Fær þaö verkefni aö stela fimmtíu bílum á
einum sólarhring.
Ekki bara
einhver bíll...
Bílaþjófar
Nicolas Cage og Vinnie Jones leika tvo úr stórum hópi þrautreyndra bílaþjófa.
í Gone in 60 Seconds þurfa Cage
og félagar að ræna fimmtíu bílum
og það ekki bara venjulegum bilum
heldur fær Cage lista yfir þá bíla
sem hann á að skila af sér og þar
kennnir ýmissa grasa. Leikstjórinn,
Domenic Sena, og framleiðandinn,
Jerry Bruchmeier, ásamt aðstoðar-
fólki eyddu drjúgum tíma í að
ákveða hvaða bílar þetta skyldu
vera og voru límdar upp á vegg yfir
hundrað bílamyndir sem síðan var
valið úr. Þetta urðu að vera bílar
sem voru til og einnig þeir bílar
sem snerta atburðarásina. Listinn
inniheldur miklar lúxuskerrur, allt
frá sjaldgæfum safngripum á borð
við Chevrolette Corvette, 1953,
Mercedez Benz, SL/Gullwing, 1957,
Ferrari 265 GTB4 og Mercury
Custom, 1950, upp i nýjar lúxuskerr-
ur á borð viö Roll Royce, Strecth
Limousine, Volvo Turbo Wagon, R,
2000, Cadillac E1 Dorado, STS, 2000,
Porsche Boxter, 2000 og Ferrari 550
Maranello, 1999.