Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2000, Blaðsíða 10
10
Útlönd
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 2000
x>v
Lögmaður greinir frá
Lögmaöur fangelsaðs rússnesks
fjölmiölakóngs talar viö fréttamenn.
Heimta skýringar
á fangavist fjöl-
miðlakóngsins
Stjórnmálamenn, kaupsýslumenn
og blaöamenn í Rússlandi kröfðu
stjómvöld í gær um skýringar á þvi
hvers vegna fjölmiölakónginum
Vladímír Gúsinskí var stungið í
fangelsi. Um leiö vöruðu þeir við
herferð gegn tjáningarfrelsinu.
Fjölmiðlar Gúsinskís hafa oft
gagnrýnt stjórnvöld í Kreml harð-
lega. Vladímír Pútín forseti gerði
hins vegar lítið úr fuUyrðingum um
að handtaka Gúsinskís hafi veriö
pólitísk. Forsetinn ætlar að skoða
málið þegar hann kemur aftur heim
til Moskvu.
Yfirvöld sögðu að Gúsinskí væri
grunaður um fjárplógsstarfsemi.
Hann dúsir í Bútírskaja-fangelsinu
þar sem allt er morandi í rottum.
Bandaríkjastjórn hefur hvatt
Moskvuvaldiö til að tryggja að rétt-
arhöld yfir Gúsinskí verði réttlát.
Levy svartsýnn á
friðargerð við
Palestínumenn
David Levy, utanrikisráðherra
ísraels, sagðist í morgun vera af-
skaplega svartsýnn á að takast
muni að gera endanlegan friðar-
samning við Palestínumenn fyrir
september, eins og stefnt hefur ver-
ið að.
„Ég tel að bilið milli Palestínu-
manna og okkar sé mjög mikið,“
sagði Levy við ísraelska útvarpið í
morgun.
Háttsettur ráðgjafi Yassers
Arafats, forseta Palestínumanna,
sakaði ísraela um að taka friðar-
samningagerðina ekki alvarlega.
Arafat ræðir friðarferlið við
Clinton Bandarikjaforseta í Hvíta
húsinu í dag. Clinton ræddi við for-
sætisráðherra ísraels í síma í gær.
Leiðtogar kóresku ríkjanna ljúka sögulegum fundi:
Stefnt að samein-
ingu Kóreuskaga
Leiðtogar Norður- og Suður-
Kóreu skáluðu i kampavíni í nótt
þegar þeir höfðu komist að tíma-
mótasamkomulagi um að vinna aö
endursameiningu Kóreuskagans.
Fullur fjandskapur hefur verið með
ríkjunum tveimur frá lokum Kóreu-
stríðsins 1953.
í Seoul var samkomulaginu fagn-
að mjög og sagt að það gæti orðið til
þess að stalínistamir í norðri kæmu
úr sjálfskipaðri einangrun sinni til
að endurreisa bágborið efnahagslíf
landsins.
Embættismenn frá Norður- og
Suður-Kóreu koma saman á næst-
unni til að ræða hvemig hrinda eigi
í framkvæmd samkomulaginu sem
Kim Dae-jung, forseti Suður-Kóreu,
sagðist vona að myndi „hrekja
stríðsóttann á brott úr landinu."
Leiðtogar þjóða heims lýstu yfir
ánægju sinni með samkomulag leið-
toga kóresku ríkjanna. Bandarísk
Glösum kllngt
Leiötogar kóresku ríkjanna skáluöu í
kampavíni fyrir góöum þriggja daga
fundi sem lauk í morgun.
stjórnvöld sögðu það jákvætt skref
en Japanir gengu skrefinu lengra og
líktu þvi við fall Berlinarmúrsins.
Engin viðbrögð hafa borist frá Pek-
ing.
„Ég er mjög ánægður og ég tel að
yfirlýsingin sé full vonar,“ sagði
Bill Clinton Bandaríkjaforseti.
Aðrir bandarískir embættismenn
voru varkárari í yfirlýsingum sín-
um og sögðu að Kóreuríkin þyrftu
nú að hrinda af stað formlegu sátta-
ferli. Þá bentu embættismennimir á
að enn væru engin teikn á lofti um
að dregið hefði úr ógnuninni sem
stafaði af flugskeytum Norður-
Kóreumanna.
Á þriggja daga fundi sínum, sem
lauk í morgun, urðu Kim Dae-jung
og Kim Jong-il meðal annars ásáttir
um að draga úr spennu milli ríkj-
anna með því að halda samkomur
þar sem fjölskyldur sem hafa veriö
aðskildar í hálfa öld geti hist.
Tll heiðurs spámanninum
Hermenn í Yogyakarta í Indónesíu skjóta upp í loftiö á hátíö til minningar um fæöingu Múhameös spámanns. Hátíöin,
sem kölluö er Sekaten, stenduryfir í viku.
Mafían stýrði verðbréfa-
viðskiptum í New York
David Levy
Utanríkisráöherra ísraeis líst illa á
gang friöarviöræönanna.
Bandaríska alríkislögreglan
handtók í gær 120 manns, þar á
meðal 10 manns úr maflufjölskyld-
Nauðungarsala
A nauðungarsölu sem fram á að fara föstudaginn 23. júní 2000,
kl. 16.00, við Blfreiðaskemmu v/Flugvallarveg hefur, að kröfu ým-
issa lögmanna og sýslumannsins í Keflavík, verið krafist nauðung-
arsölu á eftirtöldum bifreiðum:
AJ-479 JB-784 LM-271
BU-980 JS-972 MA-032
FF-542 KT-024 MV-231
GY-165 KT-986 OG-390
IJ-888 LA-199 OJ-532
J-407 LD-795 PB-896
JA-337 LF-250 PG-685
Gmðslaáskilir^viðhamarshögg.
PR-809 RR-218 XJ-931
PT-073 RT-114 XN-819
PY-321 SD-623 0-11869
R-143 SJ-136 0-11451
R-55442 TN-577 0-653
R-76247 UF-277
R-9316 VV-921
Sýslumaðurinn 1 Keflavik
unum fimm í New York, vegna um-
fangsmesta verðbréfasvindls sem
uppgötvast hefur í Bandaríkjunum.
Talið er að það nemi um 5 milljörð-
um íslenskra króna. Handtökumar
fóru fram í New York, Dallas og
Salt Lake-borg. Meðal hinna grun-
uðu er fyrrverandi lögreglumaður í
New York, fjármálaráðgjafi, verð-
bréfasalar og háttsettir menn í
mörgum stórfyrirtækjum í New
York.
Hinir handteknu eru sakaðir um
að hafa náð yfirráðum yfir vissum
verðbréfaviðskiptum með mútu-
greiðslum og fjárkúgunum, ofbeldi
og meira að segja morðum. í fimm
ár græddu hinir handteknu millj-
ónir dollara á ólöglegum viðskipt-
um sem meðal annars komu niður
á lífeyrissjóðum margra stéttarfé-
laga. Svindlið gekk út á að fá eig-
endur lítils sparifjár til að kaupa
hlutabréf í vissum, oft verðlausum,
litlum fyrirtækjum.
Þegar hlutabréfin hækkuðu í
verði seldu verðbréfasalarnir, sem
voru undir hæl mafíunnar, leyni-
legan hlut sinn og högnuðust vel
áður en hlutabréfin hrundu aftur í
verði. Mafíósarnir reyndu að gabba
fjárfesta til að setja fé i fólsk netfyr-
irtæki.
Saksóknarar eru þeirrar skoðun-
ar að Bonanno- og Colombo-mafíu-
íjölskyldumar hafi gengið í banda-
lag við hinar mafíufjölskyldurnar
þrjár í New York til þess að hrinda
í framkvæmd sameiginlegri áætlun
um svindl á verðbréfamarkaðnum.
Glæpimir þykja þeir svakaleg-
ustu sem sést hafa undanfarin ár.
mmw
Bætt samskipti
Vladímír Pútín,
forseti Rússlands,
fundar í dag með
Gerhard Schröder,
kanslara Þýska-
lands. Ætla leiðtog-
amir að reyna að
blása nýju lífi í
samskipti rikja
sinna sem urðu erfið fyrir einu og
hálfu ári þegar Rússar gátu ekki
greitt skuldir sinar til Þjóöverja.
Æfir vegna týndra gagna
Öldungadeildarþingmenn
repúblikana réðust í gær á embætt-
ismenn orkumálaráðuneytis Banda-
ríkjanna vegna hvarfs tveggja
harðra diska úr kjamorkustöðinni
Los Alamos. Á diskunum eru kjarn-
orkuleyndarmál.
Drukku af stút
Sænskri þingkonu Evrópuþings-
ins, Inger Schörling, ofbauð í veislu
fyrir þingmenn í Portúgal. Þing-
mennimir drukku rauðvín af stút
og gengu svo illa um að matur lá á
gólfinu eftir þá. Að veislunni lok-
inni ræddu þingmennirnir áfengis-
vandann í Evrópu.
Biðja um endurskoðun
Ættingjar kúbverska drengsins
Elians Gonzalez ætla að biðja um
endurskoðun á úrskurði dómstóls
fyrir tveimur vikum um að þeir geti
ekki beðið um hæli fyrir drenginn í
Bandaríkjunum.
Árásir á Gore
Tom Ridge, ríkis- ,
stjóri í Pennsylvan-
íu, sakaði í gær A1
Gore, varaforseta
Bandaríkjanna, um
að eigna sér heiður-
inn af góðum efna-
hag landsins. Á
kosningafundi í
Pennsylvaníu hvatti Gore til að
heilbrigðiskerfið yrði bætt í góðær-
inu. Kaþólskur biskup fékk sjúkra-
hús til að aflýsa kosningafundi Gor-
es vegna stuðnings hans við fóstur-
eyðingar.
Kvikasílfurseitrun
46 þorpsbúar í Perú fengu kvika-
silfurseitrun eftir að kvikasilfur frá
gullnámu féll af vörubílspalli. Höfðu
þorpsbúar farið með kvikasilfrið
heim f hús sín.
Hvíta húsinu
Upplausn ríkti í
Hvíta húsinu í gær.
Bill Clinton Banda-
rikjaforseti fór út á
golfvöll, blaðafull-
trúi hans aflýsti
enn einu sinni
fundi meö frétta-
mönnum og nokkr-
ir aðstoðarmenn
forsetans tilkynntu að þeir væm að
hætta störfum.
Neyðarástand í Chile
Neyðarástand ríkir í Santiago,
höfuðborg Chile, og umhverfi vegna
gífurlegrar úrkomu. Götur borgar-
innar hafa breyst í fljót, umferð
liggur niðri og skólum hefur veriö
lokað. Fjöldi íbúa kemst ekki úr
húsum sínum vegna flóðanna. Rignt
hefur í um það bil viku á svæðinu.
Skemmdir hafa orðið á heimilum
tuga þúsunda.
Upplausn i