Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2000, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2000, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2000 DV Fréttir Stefnt aö öðruvísi Halló Akureyri um verslunarmannahelgina: Unglingar krafðir um passa - til að komast inn á tjaldstæðin án fullorðinna - ella vísað frá Unglingar verða krafðir um passa við aðgang að tjald- stæðum á Akur- eyri um verslunar- mannahelgina ef vafi leikur á að þeir séu undir lög- aldri. Þá verður ekkert sérstakt tjaldstæði fyrr ung- linga í bænum eins og verið hefur. Stefnt er að því að útihátíðin Halló Akureyri verði með allt öðru sniði í ár heldur en áður. Sérstök verkefnisnefnd hefur lagt nýjar línur. í þeim felst m.a. að gæsla verði margfölduð gagnvart umferð, tjaldsvæðum og dansleikj- um, tjaldstæði verði áfengislaus og lágmarksaldur inn á þau 16 ár nema í fylgd með fullorðnum. Lögð verður áhersla á fjölskyldusamveru. Um- rædd útihátíð hafði fengið það orð á sig að vera drykkjuhátíð bama og unglinga. Nú hefur nefndin gefið út að öllu áfengi sem ungmenni undir lögaldri komi með til bæjarins verði hellt niður. „Við setjum engar reglur umfram landslög," sagði Kristján Þór Júlíus- son, bæjarstjóri á Akureyri. „Einu reglumar sem við getum sett er að við ætlum að reyna að framfylgja lögum í landinu. Við munum fylgja miklú strangar eftir aðgengi inn á tjaldsvæði bæjarins, að þar verði 16 ára aldursmörk virt. Unglingum undir lögaldri verður vísað frá. Ef útlit er fyrir að viðkomandi standist Flaug með Concorde: Eins og bundinn við rakettu - segir Hafliði „Concorde er minni að innan en fólk heldur. Eiginlga eins og Fokker,“ sagði Hafliði Guðmunds- son lyfjafræðingur sem flaug með Concorde-þotu í eigu British Airwa- ys frá New York til London fyrir nokkrum mánuðum. Hafliði fékk farið á sérkjörum en venjulega kost- ar farseðill á þessari leið með Concorde eina milljón króna. „Það er ofsalegur kraftur í vélinni þegar hún tekur sig á loft og maður er eins og bundinn við rakettu. Siðan flýgur hún í 60 þúsund fetum og blámi himinsins er þannig að engu er líkara en maður sé kominn hálfa leið til himna.“ Þó þröngt sé í farþegarými Concorde þá er mikið lagt upp úr þjónustu og kampavínsveitingum. Flugfreyjurnar þekkja alla farþega með nafni og er stjórnað af enskum „butler" sem gengur um og sér til þess að allir fái nægju sína. Þá er salemi mjög stórt og klætt marm- aralíki. „Flugið frá London til New York tók aðeins þrjá tíma en venjuleg þota er átta tíma að fljúga þetta. Með mér voru rúmlega hundrað far- þegar og ég held að Concorde taki ekki fleiri. Merkilegast þótti mér þó þegar mér var sagt að vélin lengdist um allt að því hálfan metra eftir að ljóshraða væri náð. Ég náði aldrei að skilja það almennilega," sagði Hafliöi Guðmundsson. -EIR ekki aldursmörk verður hann vænt- anlega að sýna passa til að komast inn á tjaldsvæði. Þá er ljóst að það er lögregluyfirvalda að hafa eftirlit með því hvort drukknir ólögráða unglingar eru á ferðinni. Ástandið hér undanfamar versl- Engin formleg athugasemd barst á kynningartíma um fyrirhugaða framkvæmd við endurvinnslu álgjalls og brotaáls, Als, álvinnslu ehf., í Þorlákshöfn eöa Reykjavík en Skipulagsstofnun samþykkti um- hverfismat framkvæmdaaðilans á dögunum. „Það er ekkert sem bendir til þess að það verði umtalsverð óaftur- kræf umhverfisáhrif af verk- smiðjunni,“ segir Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins. Valið stendur annars vegar á milli Gufuness eða Esjumela í Reykjavík, þar sem mögulegt er að notast við hauggas sem orkugjafa, og hins vegar Þor- lákshafnar, en þar yrði notuð dísilolía. Skipulagsstjóri kemst að þeirri niöurstöðu að aUar staðsetningamar samræmist skipulagi og muni ekki hafa umtalsverð áhrif á náttúru og íbúöabyggðir. í umsögn borgarverkfræðings kemur hins vegar fram að hann ef- ast um að starfsemi endurvinnslu- stöðvar álgjalls og brotaáls á fyrir- huguöum staðsetningmn í Reykja- vík samræmist skipulagi og að erfitt sé aö vita hug íbúa nærri fyrirhug- uðum staðsetningum þegar ekki hefur verið fastákveðiö hver þeirra er valin. Auk þess bendir borgar- verkfræðingur á að erfltt sé að sjá hvemig rekstur endurvinnslu á álgjalli samræmist annarri starf- semi. Það er mál manna að Þorláks- unarmannahelgar hefur verið með þeim hætti að fólki hefur verið um og ó. Því ætlum við nú að breyta. Og ég hef fulla trú á því að það séu fleiri en Akureyringar sem vilja breytingu á því ástandi sem skapast hefur víða á landinu," sagði bæjar- hafnarbúar hafi sýnt fyrirætlunum um rekstur endurvinnslustöðvar mikinn velvilja en undirtektir aðila Reykjavíkurborgar séu dræmar, en þrátt fyrir að umræddar staðsetn- ingar séu flokkaðar sem iðnaðar- svæði í deiliskipulagi hefur komið fram að borgin hefur hug á að reisa þama ibúðahverfi í framtíðinni. Sesselja Jónsdóttir, sveitarstjóri ölfushrepps, segist spennt fyrir mögulegri starfsemi verksmiðjunn- ar til Þorlákshafnar. „Við teljum okkur bjóða þær að- stæður að þeir muni koma hingað en málið er skammt á veg komiö og ég þori lítið að spá um það,“ segir Sesselja. í umsögn sinni um mögu- legar framkvæmdir gerir ölfus- hreppur þá kröfu að mengun af völdum verksmiðjunnar verði hald- ið í algera lágmarki. Helgi Þór Ingvarsson, fram- kvæmdarstjóri Als, álvinnslu ehf., stjórinn sem kvaðst jafnframt vilja undirstrika ábyrgð hinna fullorðnu á uppeldi barna og unglinga. Það væri ekki verkefni eins bæjarfélags að útrýma unglingadrykkju heldur sameiginlegt verkefni þeirra sem eiga böm og ala þau upp. -JSS segir ákvörðunar um staðsetningu verksmiðjunnar að vænta í ágúst. „Málið er á viðkvæmu stigi og ég vill sem minnst um það segja en við vorum ánægðir með úrskurð skipu- lagsstjóra og það vora góðar fréttir en við bjuggumst ekki við neinu öðru,“ segir hann. Áætlað er að vinnslumöguleikar verksmiðjunnar veröi allt að 12 þús- und tonn af brotaáli og álgjalli ár- lega en tilfallandi álgjaU og brotaál á landinu nemur rúmlega 5600 tonn á ári. Álgjall myndast í álverum þegar yfirborð bráðarinnar oxast við andrúmsloftið en með stækkun á álveri Norðuráls og væntanlegri tilkomu álvers í Reyðarfirði er reiknað með að endurvinnslustöðin nálgist það magn hráefnis sem upp- fyllir framleiðslugetuna. Einnig kemur til greina að flytja inn brota- ál til endurvinnslu frá nágranna- löndunum í framtíðinni. -jtr Kristján Þór Kallar forráöa- menn til ábyrgðar. Endurvinnsla á álgjalli og brotaáli í Þorlákshöfn eöa Reykjavík: Borgarverkfræðingur vill ekki endurvinnsluna - dræmar undirtektir í Reykjavík. Máliö á viökvæmu stigi Forvörður óhræddur Málverk það sem er í eigu Jónasar Freydals Þorsteins- sonar sem átti að seljast sem verk eft- ir Ásgrím Jónsson, en Ólafur Ingi Jóns- son forvörður telur vera falsað, hefur enn ekki verið afhent lögreglunni til rannsóknar. Dagur greindi frá. Varað við afbrotamanni Börn og fullorðnir urðu óróleg þegar fréttist að alræmdur kynferð- isafbrotamaður hefði tjaldað í af- skekktri laut við tjaldstæði Egils- staða í lok siðustu viku. Dagur greindi frá. Stálu sígarettum Tveir ungir piltar voru teknir í Þingholtunum í nótt, þar sem þeir höfðu farið inn í marga bíla og leit- að að ránsfeng. Þá var brotist inn í bensínstöð á Miklubraut. Þjófarnir höfðu á brott með sér sígarettur. Nýir smokkar Á föstudag kemur á íslenskan markað ný tegund af smokkum. Smokkurinn er eins og spírall í lag- inu og þykir vera góður til síns brúks. Dagur greindi frá. Hitaveita í Grafningi Borgaráð hefur samþykkt tillögu stjómar Veitustofnana um að Orku- veita Reykjavíkur hefji undirbúning að lagningu hitaveitu i Grímsnesi og Grafningi. Dagur greindi frá. Laxveiði glæðist Laxveiði í EHiðaám hefur heldur glæðst í sumar samanborið við sl. tvö ár. Að sögn Alfreðs Þorsteins- sonar, stjómarformanns Veitustofn- ana, hafa göngur verið mjög kröft- ugar í ánum 1 sumar. Stangveiðifé- lag Reykjavíkur ákvaö áður en veiði hófst í vor að takmarka veiði í ánum við fjóra laxa á stöng og fækka stöngum um tvær í ágúst. Morgunblaðið greindi frá. Suðurlandssláttur Sláttur er hafinn hjá bændum á Suðurlandi. Sprettan þykir hafa verið góður og leggja menn nú nótt við nýtan dag til þess að notfæra sér tímann á meðan ekki rignir. Morg- unblaðið greindi frá. Laun forseta ákveðín Kjaradómur úr- skurðaði í gær að laun forseta íslands skyldu vera 1.250 þúsund krónur á mánuði frá og með l. ágúst nk. Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar afnáms skattfrelsis forsetans á vordögum Alþingis. i úrskurðinum segir að ný lög Alþingis um laun forseta íslands séu ekki skilin sem svo að verið sé að reyna lækka laun hans. Úrskurð- ur kjaradóms miðast því að því að halda kjörum forsetans óbreyttum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.