Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2000, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2000
Préttir
DV
Patreksfjörður:
Of mikið gert ur
unglingadrykkju
- segir bæjarstjóri
Þótt lítið sé um
að vera fyrir ung-
linga á Patreks-
firði er of mikið
gert úr vandræð-
um vegna drykkju
þeirra. Þetta segir
Jón Gunnar Stef-
ánsson, bæjar-
stjóri á Patreks-
firði, og bætir þvi
við að margt ungt
fólk á Patreksfírði
sé áhugasamt ....................
íþróttafólk og verður unglingaí-
þróttamót haldið um verslunar-
mannahelgina á Tálknafirði, Patreks-
firði og Bíldudal.
„Allur aðbúnaður miðast við það
að fjölskyldan geti komið hér og haft
það gott þessa helgi. Menn leggja
áherslu á að þetta sé vínlaus og
vímuefnalaus hátíð,“ sagði Jón
Gunnar. „Menn hafa verið að gera
mikið til þess að hafa aðstöðu
Sigurbjörn
Sævar
Grétarsson
unglingaráöglafí.
DV-MYND SIGURBJORN
Patreksfjöröur
íþróttamót unglinga veróur haldið á Patreksfiröi um verslunarmannahelgina.
íþróttamanna sem besta, bæði velli
og annað. Mikil vinna hefur verið
lögð í að gera þetta þokkalega úr
garði,“ segir Jón Gunnar. Búist er
við að á milli 4000 og 5000 manns
komi, þar af um 800 keppendur.
Þeirra á meðal er Vala Flosadóttir
sem mun keppa við erlendan stang-
arstökkvara.
í grein í DV í síðustu viku kom
fram að mikil drykkja meðal ung-
menna á Patreksfirði í sumar ylli lög-
reglumönnum þar áhyggjum. Jón
Gunnar tekur undir það með lög-
reglumönnunum að lítið sem ekkert
sé fyrir fólk á aldrinum 16 til 20 ára
að gera á Patreksfirði. Þó eru íþrótta-
útsendingar á breiðtjaldi á kvöldin á
veitingahúsi þar í bæ þar sem ungt
fólk safnast stundum saman.
Sigurbjöm Sævar Grétarsson, ung-
lingaráðgjafi á Patreksfirði, sagði i
viðtali við DV í síðustu viku að auð-
velt væri fyrir unglinga að nálgast
vín á svokölluðum „flöskuböllum"
eða dansleikjum þar sem ekkert vín-
veitingaleyfi er og fullorðnir mæta
með flöskur með sér. Þar sem ekkert
vínveitingaleyfi er á þessum dans-
leikjum er unglingum eldri en 16 ára
hleypt inn.
„Það má undirstrika það sérstak-
lega að það eru engin sveitaböll hér á
ferðinni. Þau eru ekki til í Vestur-
Barðastrandarsýslu og hafa ekki ver-
ið svo lengi sem elstu menn muna,“
segir Jón Gunnar. Aðspurður sagði
hann að reyndar væru dansleikir
haldnir nokkrum sinnum á ári í fé-
lagsheimilinu þar sem skemmtana-
leyfi er fengið en ekkert áfengisleyfi.
Hins vegar hefur lögreglan ekki
kvartað undan þessum dansleikjum
við bæjarstjórann.
-SMK
Drekka, hitna, svitna, roðna og dökkna.
Þegar fariö er í sundiaugina á Akureyri minnir stemningin óneitanlega á hótelgaröa eöa sundlaugar í sólarlöndum. Er þetta bara ekki dásamlegt?
Akureyri:
Ovenju mikill hiti
skemmir vegi
- tjaran verður fljótandi
25 stig á mælinum
Ekki amalegt aö vera frá Reykjavik
og baöa sig í Akureyrarhitanum á
Ráöhústorgi. Mæöurnar Brynja og
Lilja meö Viktoríu og Inga Má.
Veðurblíða noröan heiða að
undanfórnu á bæði sínar björtu og
dökku hliðar.
Hitinn hefur laðað fólk hópum
saman að sundlauginni á Akureyri
svo þar hafa færri komist að en
vilja. Hin hliðin á málinu er sú að
malbik verður deigt í hitanum og
vegir skemmast.
Vegurinn við Svalbarðseyri í
Eyjafirði skemmdist þannig í hita-
svækjunni sem verið hefur á Akur-
eyri upp á síðkastið en sá gríðarlegi
hiti sem verið hefur veldur því að
tjaran verður fljótandi og rennur til.
„Það sem gerist er að tjaran hitn-
ar við lofthitann og sólina og fer að
renna. Þetta veldur því að hún fest-
ist í dekkjum og malbikið getur
slitnað þegar mest er,“ segir Guð-
mundur Svavarsson, umdæmis-
verkfræðingur hjá Vegagerð ríkis-
ins á Akureyri.
Guðmundur segir ástæðu þess að
skemmdir urðu á veginum mega
rekja að hluta til þess að bíll Vega-
gerðarinnar var of seinn á staðinn.
„Við kölluðum út menn til þess
að setja fina möl yfir veginn en
þetta gerðist svo snöggt að það urðu
smávægilegar skemmdir. Nú er
búið að kalla út aukavakt sem sér
til þess að þetta gerist ekki aftur,“
sagði Guðmund Svavarsson um-
dæmisverkfræðingur í hitasvækj-
unni á Akureyri í gær. -jtr
Stöðumælavörður á stuttum
Leiöbeinir erlendum feröamanni.
- Umsión:
Hör&ur Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
náð hjá Clinton-hjónum
íslendingar
virðast heldur
betur vera
komnir í náð
Bandaríkjafor-
seta og frú Hill-
ary Clinton.
Nýverið var
greint frá því
að flugfélagið
Atlanta hafi
leigt eina Boeing 747 risaþotu til
að að gegna hlutverki „Airforce
Two“ í samfloti með hinni einu og
sönnu forsetavél „Airforce One“
sem er sömu tegundar. Þá hefur
forsetafrúin sent ríkislögreglu-
stjóra þakkir og lýsir hrifningu
með frammistöðu íslenskra lög-
reglumanna við móttöku frúarinn-
ar á kvennaráðstefnu hér á landi
fyrir nokkru. Þykir einsýnt að
þessi kveðja muni duga löggunni
til að bera höfuðið hátt, allavega í
nokkrar vikur...
Fiskbúð strax!
Orri Vigfús-
son, laxavernd-
arinn mikli,
hefði betur tek-
ið tillit til
ábendinga
Sandkoms í
gær um að [
setja upp fisk-
búð við helstu |
laxveiðiár ‘
landsins og selja veiðimönn-
um þíddan lax. Samkvæmt heim-
ildum rannsóknarblaðadeildar
Sandkoms, þá situr Orri nú sjálf-
ur í súpunni. Hann mun vera bú-
inn að berja Laxá í Aðaldal lát-
laust í tvo daga, án þess að verða
svo mikið sem var við nart. Útlit
er því fyrir að kappinn verði einn
þeirra mörgu veiðimanna sumars-
ins sem komi fisklaus og með öng-
ul i rassinum úr veiðitúrnum...
Án menningarborgar
Súludansstað-
urinn Maxim’s í
Reykjavík hefur
sannarlega vak-
ið athygli fyrir
þátttöku sína í
uppfærslu á
Með fullri reisn
í Tjarnarleik-
húsinu. Það
mun hins veg-
ar hafa farið mjög í taugar sið-
prúðra að Ásgeir Þór Davíðsson
skuli hafa verið bendlaður við
menningarborgarbrölt Reykjavik-
ur. Þeir hinir sömu vilja ekkert
kannast við nána samvinnu við
Geira og sverja af sér öll menning-
artengsl. Þó Reykjavík menningar-
borg hafl tekið þátt i viðburði á
súlustaðnum Vegasi fyrir nokkru,
þá þýði það ekki að búið sé að
setja menningarstimpil á alla súlu-
staði. Geiri mun hins vegar
ótrauður styrkja menninguna í
Tjamarleikhúsinu þótt Reykjavík-
urborg vilji ekkert af því vita. Gár-
ungar telja liklegt að Geiri bjóði
þess í stað upp á eigin menningar-
hátið...
Klámið tamt
Fregnir af
því að Hrafn
Gunnlaugsson
kvikmynda-
leikstjóri hafl
verið að gera
það gott í
Kóreu með
mynd sína j
Myrkrahöfð-1
ingjann, hafa'
vakið athygli margra. Góðkunn-
ingi Sandkoms fannst þetta kjörið
tilefni til vísusmíða:
Klámið er okkar Krumma tamt
krunkar það allt of mikið.
Svo iandanum verði í geði gramt
hann geldur þessfyrir vikió.
Kóreumenn þeir klámió þrá
sem Krumma er tamt að lýsa.
Á buxurnar kemur bunga á
er bikiní fellir skvísa.