Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2000, Side 14
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjölfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aóstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plótugerö: isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Óþarfi embœtti
íslendingar eru samfélag almúgamanna og eiga erfitt með
að beygja sig undir vald. Krafturinn og seiglan sem ein-
kenna þjóðina hafa gert henni kleift að standa sjálfstæð og
koma í veg fyrir að lögbundin yfirstétt fengi að festa rætur.
Allt frá stofnun lýðveldisins hafa íslendingar talið nauð-
synlegt að halda úti virðulegu embætti forseta íslands,
jafnt sem sameiningartákni og fulltrúa á erlendri grund
fyrir litla þjóð - stjómskipulega gegnir forsetinn í raun
hins vegar veigalitlu hlutverki. Lítil sem engin umræða
hefur verið um hvort þetta sé eðlileg skipan mála og þeir
fáu sem sett hafa fram gagnrýni á embættið og varpað
fram spurningum um nauðsyn þess hafa verið litnir horn-
auga. Gagnrýnislítil umfjöllun fjölmiðla allt fram á síðustu
ár iim forsetann, athafnir, orð og æði hefur myndað varn-
arhjúp um embætti sem ætti að heyra sögunni til.
Sá tími er einnig að baki þegar forsetinn var sameining-
artákn íslendinga. Ástæðan er að hluta til gagnrýnni og
opnari umfjöllun fjölmiðla um forsetann og hans nánustu
en áður. Einnig skiptir miklu sú staðreynd að núverandi
forseta hefur ekki tekist að sameina landsmenn að baki sér
með sama hætti og forverum hans auðnaðist og þar skipt-
ir fortíðin miklu.
Draga verður í efa nauðsyn þess að halda úti dýru emb-
ætti forseta til þess að koma fram sem fulltrúi þjóðar á er-
lendum vettvangi, hvort heldur það er til að kynna land og
þjóð eða stuðla að landvinningum íslenskra fyrirtækja. Ár-
angur margra íslenskra fyrirtækja í öðrum löndum verður
ekki skýrður með „markaðsstarfsemi“ forsetans heldur
með markvissu starfi, skipulagi og hugviti stjómenda og
starfsmanna fyrirtækjanna.
Hugmyndin að baki embætti forsetans er andstæð þjóð-
areðli íslendinga þar sem allir eru jafnir og engir eiga að
vera jafnari en aðrir. Sem betur fer eiga flestir erfitt með
að sætta sig við tildur og prjál við æðstu stjóm ríkisins. Sá
hégómi sem fylgir embætti þjóðhöfðingja þjónar engum til-
gangi öðrum en að skemmta fáeinum útvöldum. Slikt eiga
íslendingar ekki auðvelt með að sætta sig við. Því miður
hefur látleysi og hógværð ekki einkennt embætti forseta
íslands undanfarin ár.
Eftir nokkra daga verður formleg embættistaka Ólafs
Ragnars Grímssonar forseta í annað sinn. Á slíkum tíma-
mótum er ekki óeðlilegt að staldrað sé við og leitað svara
við áleitnum spurningum um forsetaembættið, tilgang eða
tilgangsleysi þess. Vonandi verða svörin til þess að þetta
verði síðasta embættistaka forseta íslands.
Staðreyndin er sú að íslendingar þurfa ekki á forseta-
embættinu að halda - það er sóun á fjármunum að halda
úti óþörfu embætti.
Önnur lögmál
Stangaveiði er ein vinsælasta íþrótt og dægradvöl lands-
manna. Á liðnu vori voru flestir bjartsýnir á að gott veiði-
sumar væri fram undan en þær vonir hafa enn sem kom-
ið er ekki ræst. Laxveiði er víðast döpur en siltmgsveiði
gengur betur.
Undanfarin ár hafa laxveiðileyfi stöðugt hækkað í verði
og nú er svo komið að laxveiði er varla á færi nema sæmi-
legra efnaðra manna eða þeirra sem geta sent öðrum
reikninginn. Að líkindum er ekkert við þeirri þróun að
gera. Merkilegt er hins vegar að lítið eða ekkert samhengi
er á milli verðs og veiði. Það gilda önnur efhahagsleg lög-
mál um laxveiði en í þjóðfélaginu almennt.
Óli Björn Kárason
+
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2000
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2000
27
Skoðun
Algildi eða þjóðhverfa?
Það er orðið að viðtekn-
um sannindum að ný öld sé
í dögun, öld alþjóðavæðing-
ar þar sem mennimir búa
allir saman í einu heims-
þorpi, hafa svipaðan lifsstíl
og aðhyllast sömu gildi.
Þessa þróun beri að styðja ef
menn vilji verða „nútíma-
legir“ og stuðningsmenn
hennar sannir „umbótasinn-
ar“ en andstæðingar „harð-
línumenn".
Þessi trú einkennir þá
umfjöllun um heimsmál sem
fólk rekst á dagsdaglega. Við fáum
fréttir af viðureignum umbótasinna
við harðlínumenn um allan heim og
yfirleitt eru hinir fyrmefndu í sókn.
Þeir sem kallast harðlinumenn geta
verið af ýmsum toga, klerkar í íran,
kommúnistar í Rússlandi eða þjóð-
emissinnar í Evrópu. Umbótasinn-
arnir eru hins vegar þeir sem styðja
þróunina í átt að alheimsþorpinu,
þar sem mannkynið getur sameinast
um einn sið og ein lög. Sérviska er
ekki á dagskrá um þessar mundir.
Eigin siöir það eina rétta
Þeir sem aðhyllast þessa þróun
Sverrir
Jakobsson
sagnfræöingur
kenna sig gjaman við al-
gildi (universalisma) af
einhverju tagi. Menn eiga
að sameinast um tiltekin
gildi sem eiga að hafa jafn-
mikla þýðingu hvarvetna i
heiminum. Viðhorf sem
em andstæð algildum kall-
ast þjóðhverf
(etnósentrismi). í þjóð-
hverfu sjónarhorni felst
einnig trú á almenn gildi
sem allir skulu aðhyllast,
með þeirri mikilvægu und-
antekningu að hinir þjóð-
hverfu líta á það sem sjálfsagðan
hlut að þeirra eigin siðir og gildi séu
það eina og rétta. Alit annað sé frá-
vik.
Sá tvískinnungur sem hefur ein-
kennt íjölmiðlaumræðu um
Júgóslaviu var að hluta til mótaður
af þjóðhverfu sjónarhomi. Harðstjór-
inn Tudjman var okkar maður, þar
sem hans þjóð notar latínuletur (eins
og við). Svipaður þjóðemisseggur frá
Serbíu, Milosevic, var hins vegar
undirrót alls ills á þessu svæði, enda
nota Serbar kyrillískt letur (eins og
Rússar). Hér snýst málið ekki um al-
menn giidi (s.s. lýðræði eða mann-
réttindi) heldur þjóð-
hverf (að allir séu eins
og við).
Sumir sem hugsa á
þjóðhverfum nótum eru
ekki feimnir við að við-
urkenna það. Þannig líta
íhaldsmenn í Englandi á
grimman einræðisherra
frá Chile sem gæðablóð,
enda studdi hann þá í
Falklandseyjastríöinu.
Englendingar eigi að
hugsa um það sem hent-
ar bresku krúnunni, en
ekki hafa áhyggjur af því
hvort einhverjir hafi
verið pyntaðir úti í lönd-
um. Þeir eru þó fleiri
sem kjósa að líta á þjóð-
hverf gildi sín sem al-
gildi sem allur heimur-
inn eigi að taka upp.
Enn langt í land
Flest ríki Evrópusam-
bandsins hafa miklar
hömlur á því hverjir
megi flytja til þeirra og
hverjir ekki. Lögreglan í
þessum löndum má nota
„Þannig líta íhaldsmenn í Englandi á grimman
einræðisherra frá Chile sem gæðablóð, enda
studdi hann þá í Falklandseyjastríðinu. Englend-
ingar eigi að hugsa um það sem hentar bresku
krúnunni, en ekki hafa áhyggjur af því hvort ein-
hverjir hafi verið pyntaðir úti í löndum. “
Öfugmæli upplýsingaþjóðfélags
Okkur er sagt átján sinnum á dag
að við lifum í upplýsingaþjóðfélagi
og sjálfsagt halda flestir að það þýði
að aiiir geti fengið að vita allt sem
þeir vilja fljótt og fyrirhafnarlítið.
Þetta er hættuleg blekking vegna
þess að fólk í sakleysi sínu gerir ekki
ráð fyrir því að sterk öfl og þungir
hagsmunir vinna jafnt og þétt að því
að koma í veg fyrir að almenningur
fái að vita það sem þau kæra sig ekki
um að berist út.
Skógareyðing fer leynt
Vísindamenn frá Auðlindastofn-
uninni WRI í Washington og Nátt-
úruverndarsjóðnum WWF tóku sam-
an skýrslu um eyðingu regnskóga í
þriðja heiminum og var hún kostuð
af WWF og Evrópusambandinu. Þeir
komust að því að öflug alþjóðleg fyr-
irtæki hafa beitt mútum og þvingun-
s
Kjallari
um til að afla sér ieyfa til
að höggva skóga í fátækum
ríkjum. Síðan nýta þau sér
þessi leyfi eins og þeim sýn-
ist til frekrar rányrkju því í
þessum ríkjum er löggjöf
gloppótt, allt eftirlit af hálfu
stjórnvalda í molum sem og
skattheimta og auðvelt að
auki að kaupa sig með mút-
um undan ábyrgð á stór-
felldum náttúruspjöllum.
Höfundar skýrslunnar saka
helstu iðnríki heims sem og
Alþjóðabankann og Alþjóð-
lega gjaldeyrissjóðinn, IMF, um með-
sekt í þessu máli. Ríkin hafa ekki
fylgt eftir eigin reglum um verndun
skóga og IMF og
Alþjóðabankinn gera illt verra
með því að neyða hin fátæku skóga-
ríki til að hleypa inn „alþjóðlegum
Arní Bergmann
rithöfundur
fjárfestum" og selja skógana
Árir reiðufé til að greiða
upp skuldir.
En þeir sem borguðu fyr-
ir vinnuna að skýrslunni
sem svarar 40 miljónum
króna urðu svo hræddir við
niðurstöður hennar að þeir
fóldu hana í þrjú ár. Síðan
létu þeir útvatna hana - og
tóku þá út öll nöfn á fyrir-
tækjum sem þar eru sótt til
ábyrgðar. Þetta tilbrigði var
til í 5000 eintökum - en upp-
lagið var eyðilagt og þriðja
útgáfa, enn meinlausari, var búin til
og þá prentuð í aðeins 2000 eintök-
um.
Þoka og reykur
Þetta er eitt dæmi af ótal mörgum:
vissulega er safnað gífurlega miklu
„/ sakleysi sínu halda menn að allir geti fengið að vita allt sem þeir vilja
fljótt og fyrirhafnarlítið. “
af upplýsingum um allt mögulegt -
ekki síst um það sem litlu máii skipt-
ir. En í hvert skipti sem komið er að
þeim sem eiga fjármagn og fyrirtæki
þá þrengist aðgengi að upplýsingum
jafnt og þétt.
Því þora menn ekki að birta nöfn
þeirra fyrirtækja sem verst ganga
fram í að eyðileggja lungu heimsins,
regnskógana. Því hótar breskur auð-
kýfmgur og vinur Tonys Blairs máls-
sókn dagblaði sem ljóstraði því upp
að hann borgi aðeins fimm þúsund
pund í skatta: tekjur ríkra manna
eru í vaxandi mæli leyndarmál. Með-
an bankastjórar starfa við ríkis-
banka mega allir heimta gögn um
tekjur þeirra og bitlinga - en um leið
og sömu bankar breytast í hlutafélög
þá eru slíkar upplýsingar orðnar að
heilögum persónulegum
upplýsingum eins og sjúkraskýrsl-
ur eiga víst að vera. Og því er alit
gert sem hægt er til að íslendingar
vaði í villu og þoku um það hve
miklu „besta fiskveiðistjórnunar-
kerfi heims“ hendir af fiski í sjóinn.
Og svo eru það fyrirtækin sem
alltaf eru að gleypa hvort annað. Hér
á landi sem annars staðar sjáum við
í hverri viku uppörfandi forstjóra
brosa fram í sjónvarpsvélar og lofa
því að sú mikla hagræðing og efling
og styrking sem nú er í vændum þeg-
ar fyrirtækin sameinast muni alls
ekki leiða til þess að fólki verði sagt
upp og því síður til þess að fram-
leiðsla og önnur starfsemi verði flutt
frá einu byggðarlagi til annars eða
úr landi. Og allir þykjast taka þessar
„upplýsingar" góðar og gildar þótt
allir viti að eftir tvær vikur, tvo
mánuði eða tvö ár verði búið að
svíkja öll þessi loforð.
Árni Bergmann
Með og á móti
Hættulegt lýðræðinu
og viðskiptanefnd niður?
Pólitískur ágreiningur
* „Ummæli
• Péturs H. Blöndal
um tilgangsleysi
■111' starfs efnahags- og
viðskiptanefndar,
hefur vakið mikla athygli.
Eðlilega eru ekki allir
þingmenn tilbúnir að skrifa
upp á þessi orð, en Pétur
stendur fastur á sínu.
„Ég hef fyrst og fremst ver-
ið að gagnrýna störf nefndar-
innar en ekki leggja til að það eigi að
leggja hana niður. Ég tel það hættu-
legt fyrir lýðræðið og hættulegt fyrir
almenning í landinu að sami aðili sé
að semja lög og breyta þeim.
Pétur H.
Blöndal,
Sjálfstæöisflokki.
nefndar
angri.“
Það eru oft sömu stofanim-
ar og embættismennirnir
sem eiga að semja lögin og
framfylgja þeim.
Ég er alls ekki að leggja til
að það eigi að leggja niður
efnahags- og viðskiptanefnd,
ég er eingöngu að gagnrýna
þau vinnubrögð sem er í
gangi.
í þessu tilfelli liggur of
mikO vinna á bak við störf
í skilar of litlum
ar-
„Ég veit ekki
i hvað vakir fyrir
alþingismanni
sem leggur til að
leggja niður nefnd
Alþingis. Mér sýnist sá hinn
sami hafa lagt niður eigin
dómgreind. Hann er að gera
lítið úr störfum nefndar sem
verðskuldar annað og meira.
Að minum dómi hefur efna-
hags- og viðskiptanefnd starf-
að vel. Menn eiga að fara var-
lega í að gera lítið úr störfum Alþing-
is nema það séu fyrir því ríkar ástæð-
ur og svo tel ég ekki vera í þessu til-
felli. Við eigum að sameinast um að
Ogtnundur
Jónasson,
Vinstrihreyfingu -
grænu framboöi.
efla störf þingsins og gera það
sjálfstæðara gagnvart fram-
kvæmdavaldinu og þar hafa
ekki síst hlutverki að gegna
stjórnarþingmenn á borð við
Pétur H. Blöndal. í gegnum
þingið hafa runnið mál sem
hefðu þurft miklu betri um-
fjöllun eins og t.d. gagna-
grunnsmálið og kvótakerfið.
Ég tel þessa hugmynd til
komna vegna pólitísks ágrein-
ings en ekki vegna faglegra
vinnu einstakra nefnda. Gagnrýni
þingmannsins tel ég vera fyrst og
fremmst pólitíska og hitta fyrir þá
ríkisstjóm sem hann styður."
Undanfariö hafa veriö nokkrar deilur vegna ummæla Péturs H. Blöndals um gagnsleysi efnahags- og viöskiptanefndar.
Að breyta ruglinu...
..vegna þess að ég
hafði þar engin áhrif
og því skipti það
engu máli hvort ég
sat í nefndinni eða
ekki. Það er í þessari
nefnd eins og i öllu
öðru á Alþingi, þingið
sjálft ræður engu. Það getur komið
fram með einhveijar smábreytingar
ef það getur sýnt fram á að eitthvað
í frumvarpinu sé algert rugl. Þá geta
menn knúið fram breytingar á rugl-
inu en öðru ekki. Stefiiumörkunin
fer fram hjá þeim sem semja frum-
varpið. Og það eru engin frumvörp
sem þingmenn semja sjáifir, afgreidd
sem lög, nema þá eitthvað mjög
ómerkilegt.“
Pétur H. Blöndal, alþingismaöur,
í Degi 25. júll 2000.
Ekki gerræðisleg
vinnubrögð
„Það er auðvitað
ekki auðvelt að sitja
undir ásökunum um
það að ég hafi beitt
gerræðislegum virmu-
brögðum og ég get
ekki fallist á það. Ég
vona bara að þetta
þurfi ekki að koma í veg fyrir gott
samstarf allra í miðborginni en það
er meginmarkmið miðborgarstjórnar
að efla miðborgina fyrir alla og við
vorum að vona að þetta væri einn
liðurinn í því.“
Kristín Einarsdóttir, frkvstj. miöborgar-
innar, I Morgunblaðinu 25. júll 2000.
ISDN til Eþíópíu?
„Leiðtogar átta helstu iðnrikja
heims hafa komist að stórmerkri nið-
urstöðu í málefnum þriðja heimsins.
Þróunarlöndin þurfa að verða þátt-
takendur í upplýsingabyltingunni til
að auka hjá sér hagvöxtinn og bæta
þannig lífskjör íbúanna ... því fleiri
baud því meiri velmegun og albest
er auðvitað að fá ISDN-tengingu, t.d.
á ruslahaugana i Manila og þurrka-
svæðin í Eþíópíu."
murinn.is 24. júll 2000.
Stúdentar í vanda
„Mjög margir stúd-
entar eiga í húsnæðis-
vanda og hann fer
vaxandi. Þrátt fyrir
hraða uppbyggingu
Stúdentagarða undan-
farin ár anna þeir
ekki hinni miklu eft-
irspum. Ástandið á hinum almenna
markaði er afar slæmt, lítið er um
laust húsnæði og verðið mjög hátt.“
Eiríkur Jónsson, formaöur Stúdenta-
ráös, I Degi 25. júll 2000.
hvers kyns hrottaskap við
að koma ólöglegum innflytj-
endum úr landi og reglu-
lega berast fréttir af fólki
sem látist hefur við slíkar
aðgerðir. Þetta kallast ekki
þjóðremba. Innflytjenda-
stefna Haiders er það hins
vegar, enda er hann frá
Austurríki eins og Hitler og
talar vel um hann. Eins er
það ógnun við heimsfriðinn
ef ríki á borð við Líbýu
eignast kjarnorkuvopn,
enda þótt Bandaríkin eigi
allar stærstu sprengjurnar.
Samt hefur Líbýustjórn
aldrei staðið að loftárásum
á Bandaríkin, en Banda-
ríkjamenn hafa verið iðnir
við að sprengja um allan
heim.
Það er því miður enn
langt í land með að stjórn-
mál í heiminum fari að
stjómast af algildum. Hin
þjóðhverfa sýn á heiminn
dafnar hins vegar eins og
púkinn á fjósbitanum um
þessar mundir.
Sverrir Jakobsson
Heimatilbúin verðbólga
Þessa dagana er nokkuð
rætt um verðbólguna sem
blasir við öllum. Líklega
hefur hún verið opinber-
lega samtals um 10% sein-
asta hálfa annað árið ef allt
tímabilið er lagt saman.
Kunnur erlendur hag-
fræðingur hefur þessa
stundina rætt þetta hér i
dagblöðum og gert lítið úr.
Þetta sé ekki til að hafa
áhyggjur af. Það má rétt
vera að hluta. Himinn og
jörð munu ekki farast. Á
hinn bóginn er aumt þegar stjóm-
völd láta efnahagslífið fara svona úr
böndum og allt er látið reka áfram,
oft jafnvel stjórnlaust. Þessi erlendi
hagfræðingur er því frekar að verja
og afsaka ríkisstjórnina en að tala
um góða og ábyrga hagstjóm. Hann
vill vera kurteis en gerir illt verra.
Þessa 10% verðbólgu samtals síðasta
eina og hálfa árið er ekki hægt að af-
saka. Það veit þessi kunni hagfræð-
ingur best sjálfur.
Verðbólgan og kvótinn
Þegar rætt er um núverandi ár-
lega verðbólgu upp á 5-7% verður að
byrja á gjafakvótanum. Hann var
mjög til að auka verðbólgu en hún
var bara öll falin i bili með erlendum
lántökum. Það hefur alltaf verðbólgu
í for með sér þegar peningar em
prentaðir án þess að raunveruleg
verðmæti standi þar á bak við.
Gjafakvótinn var ekkert annað en
Lúðvík
Gízurarson
hæstaréttarlögmaöur
pappír eða bréf frá ríkis-
stjórninni þar sem hand-
hafi bréfsins fékk einokun-
arrétt til fiskveiða á
ákveðnu magni eða tonn-
um. Ekki er þetta annað en
innstæðulaus ávísun nema
litið sé á óveiddan fiskinn í
sjónum sem bankainn-
stæðu. Svo seldu viðtakend-
ur gjafakvótans þennan ein-
okunarrétt sinn útgerðinni
sem tók erlend lán til að
borga gjafakvótamenn út.
Nú voru fyrri eigendur
gjafakvótans komnir með tugi millj-
arða í hendumar í íslenskum krón-
um sem notað var í margvíslega
eyðslu.
Kvótamenn hafa t.d. verið að
kaupa seinustu árin hús og íbúðir
fyrir þetta gjafafé sitt úr ríkissjóði.
Hækkun á verði íbúða og húsa vega
kvótapeninga hefur svo valdið verð-
bólgu sem kemur fram í útreikningi
hennar. Þama er því augljóslega gott
dæmi um beint samband á milli
eyðslu og peningaframboðs frá við-
takendum gjafakvótans og hækkun-
ar íbúðaverðs. Þessi hækkun ibúða
hefur valdið verulegri kjararýrnun
hjá öllum þorra fólks sem ekki fékk
gjafakvóta og raunar ekki heldur
kauphækkun. Hún hefur verið tekin
til baka með núverandi dýrtið. Svo
hækka líka öll vísitölulánin vegna
hærra verðlags. Venjulegt fólk
skuldar því hærri fjárhæð en hefur
sama kaup. Það var ekki hægt að af-
henda takmörkuðum hópi fólks
gjafakvóta upp á tugi eða hundruð
milljarða nema skattleggja venjulegt
fólk um sömu eða svipaða fjárhæð.
Sá skattur er nú að koma fram í
verðbólgu sem er kjararýmun fyrir
allan almenning. Svo mun krónan
falla með þessari heimatilbúnu verð-
bólgu og vitleysu. Falli krónunnar er
frestað um stund með hókus pókus
aðgerðum, svo sem uppkaupum á
henni og miklum erlendum lántök-
um. Erlendi hagfræðingurinn, sem
hér dvaldi, benti réttilega á að miklu
hærri vextir á Islandi en í næstu ná-
grannalöndum sogi hingað lánsfé í
bili. Það veldur líka þenslu og verð-
bólgu. Allt er þetta heimatilbúinn
vandi.
Brottkastið
Ekki er svo hægt að tala um verð-
bólguna nema tala um mikið brott-
kast á fiski sem nú er orðin opinber
og viðurkennd staðreynd. Þar á
gjafakvótinn stóra sök. Menn vilja
aðeins koma með dýran fisk að landi
en fleygja öðru í sjóinn aftur. Vilja
ekki skerða dýran kvóta með verð-
minni fiski.
Þótt margt valdi verðbólgunni í
dag þá er gjafakvótinn þar mjög
áhrifaríkur. Með honum voru prent-
aðir peningar án annarrar innstæðu
en í óveiddum fiski í sjónum. Aö
fornu og nýju hefur verðlaus pen-
ingaprentun alltaf valdið verðbólgu.
Svo er enn.
Lúðvík Gizurarson
Ekki er þetta annað en innstœðulaus ávísun nema litið sé á óveiddan fiskinn í sjón-
um sem bankainnstœðu. Svo seldu viðtakendur gjafakvótans þennan einokunarrétt
sinn útgerðinni sem tók erlend lán til að borga gjafakvótamenn út.