Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2000, Side 24
36
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2000
Tilvera I>V
Fjölleikahús í
Laugardalnum
Norska fjölleikahúsið Circus
Agora er með daglegar sýningar
í risastóru sirkustjaldi í Laugar-
dalnum. Alls koma 25 listamenn
fram í sýningu fjölleikahússins.
Þeirra á meðal eru loftfimleika-
menn, línudansari, boltalista-
menn, trúðar og eldfjörug hljóm-
sveit svo eitthvað sé nefnt.
Circus Agora yfirgefur Reykja-
vík eftir sýninguna á föstudags-
kvöld og verður næsti viðkomu-
staðiu' Selfoss.
Klúbbar
■ DJUPHUS A THOMSEN Deep
house með Tomma White og Herb
Legowitz er matseðillinn á Thomsen
í kvöld. Þessi kvöld eru farin að
verða ómissandi þáttur I tilverunni
hjá miðvikugrúvurunum. Tónlist verð-
ur ekki mikið betri en þetta og ekki
skemmir fyrir að rauðvínið er alltaf á
kostakjörum.
■ GAUKUR Á STÖNG í kvöld verður
rosalegt stuð á Gauknum eins og
venjulega. Hljómsveitin Dúndur-
fréttir heldur stórtónleika og nokkuö
víst að um dúndurfréttir er að ræða.
Krár
■ DJ GUÐNY A 22 Þaö verður
sannkölluö miövikudagsstemning á
Café 22 í kvöld enda er það snilling-
urinn Dj Guðný sem er á bak við
plötuspilarana, Staðurinn hefur svo
sannarlega tekið stakkaskiptum að
undanförnu og ekki skemmir Guöný
þá stemningu.
Klassík
■ BLAA KIRKJAN I kvöld kl. 20.30
verða haldnir tónleikar í Bláu kirkj-
unni á Seyöisfiröi. Þá mun Margrét
Kristjánsdóttir fiðluleikari og Þor-
steinn Gauti Sigurðsson píanóleikari
flytja tónlist eftir Ludwig von Beet-
hoven, Johannes Brahms og César
Franck. Allir á svæðinu eru hvattir til
að mæta. Eftir tónleikana er auðvit-
að hægt að skella sér á Kaffi Láru
eða í Menningarmiðstöðina Skaft-
fell en þar er veitingastofa og net-
kaffi. Miða má fá á skrifstofu Bláu
Kirkjunnar, Ránargötu 3, Seyöisfiröi,
og í kirkju fyrir tónleikana. Síminn er
472-1775 og tölvupóstfangið er
muff@eldhorn.is. Aðgangseyrir er
þúsundkall.
Opnanir
■ nybyggíng FLUGSTÓÐVAR
LHIFS EIRIKSSONAR. I dag verður
haldin kynning á niðurstöðum
dómnefndar í samkeppni um
listskreytingu nýbyggingar
Flugstöövar Leifs Eirikssonar.
Kynningin fer fram í Háskóla
íslands, 2. hæð, Odda, og hefst kl.
15. Um leið verður opnuð sýning á
tillögum þeirra níu llstamanna sem
valdir voru til að gera tillögur um
listaverk í bygginguna. Sýningin
verður opin almenningi frá deginum I
dag til og með 8. ágúst
næstkomandi.
Sjá nánar: LJflð eftir vinnu á Vísi.is
Anna Heiöa Pálsdóttir bókmenntafræðingur:
Barnabækur kenna okkur
reglur þjóðfélagsins
- Barbara Cartland selst vel þótt bækur hennar teljist ekki til heimsbókmennta
Bíógagnrýni
V>.
SBS8&
^ Háskólabíó - Bleeder:
I bakgarði tilverunnar
J um kvikmyndir
Anna Heiða Pálsdóttir bók-
menntafræðingur er áhugamann-
eskja um ævintýrabókmenntir og
hún hefur gefíð út eina bók sem
nefnist Galdrastafir og græn augu.
Sagan fjallar um strák sem fer í
bíltúr með foreldrum sínum suður
með sjó, þar sem hann finnur stór-
an stein með undarlegum rúnum á.
Þegar strákurinn nuddar rúnirnar
og fer með galdraþulu er hann allt í
einu kominn til ársins 1713 og þar
kynnist hann séra Eiríki, presti í
Strandarkirkju.
Um þessar mundir vinnur Anna
að doktorsritgerð um barnabók-
menntir sem nefnist Landslag, saga,
menningar- og þjóðernisvitund:
Fræðilegur samanburður á enskum
og íslenskum barnabókmenntum
1968-1998. Anna segir að markmiðið
með ritgerðinni sé að fá svör við
ýmsum spurningum varðandi
tengsl æsku landsins við sögu þess
og landslag. „Ég tel þetta mjög
merkilegt efni því að barnabækur
gegna svipuðu hlutverki og þjóðsög-
ur í gamla daga, þær kenna okkur
reglur og siði þjóðfélagsins og þær
endurspegla menningarvitund okk-
ar.“
Barnabækur fyrir fullorðna
„Ég er eins og er að þýða þríleik
eftir Philip Pullman sem heitir His
Dark Materials. Þetta eru fantasíur.
Sú fyrsta heitir Northem Lights eða
The Golden Compass í bandarískri
útgáfu, önnur bókin heitir The
Subtle Knife og sú þriöja The Am-
ber Spyglass. Pullman er þekktur
bamabókahöfundur og hefur vakið
mikla athygli fyrir þessar bækur.
Þetta eru strangt til tekið ekki
barnabækur því þær höfða jafnt til
fullorðinna og ekki síst til þeirra
sem hafa gaman af vísindaskáld-
skap. Það má segja að þessar sögur
séu næsta stig fyrir ofan Harry Pott-
er þar sem þær krefjast meiri hugs-
unar og gera meiri kröfur til lesand-
ans.
Hetjan í fyrstu bókinni er tíu eða
ellefu ára gömul stelpa sem heitir
Lyra, i annarri bókinni er það
strákur sem fer með aðalhlutverkið
og svo eru þau saman í síðustu bók-
inni.
Anna Heiða Páisdóttir bókmenntafræðingur.
Pullman byggir sögurnar töluvert
á norrænni goðafræöi. Hann hefur
sagt mér að hann hafl lesið íslend-
ingasögumar og notfæri sér ýmsi-
legt úr þeim. Fyrsta bókin gerist að
hluta til á Svalbarða og í Noregi
þannig að í henni eru bæði orð og
staðir sem eru okkur kunnugleg.
Það stendur tii að fara að kvik-
mynda His Dark Materials fljótlega
en ég man ekki hvað leikstjórinn
heitir.“
Harry Porter
„Ég er búin að fylgjast með Harry
Potter frá upphafí og það sem vekur
mesta furðu við bækumar er að
þær bæði seljast vel og fá góða
dóma. Hingað til hefur það nánast
verið regla að ef bækur seljast vel fá
þær slæma dóma og góö gagnrýni
þýðir yfirleitt lítil sala. Barbara
Cartland hefur til dæmis selst gríð-
arlega vel en bækur hennar teljast
seint til heimsbókmennta.
Bækumar um Harry Potter hafa
sópað til sín verðlaunum. Þrjá
fyrstu bækurnar hiutu bresku
Smarties-verðlaunin og þriðja bókin
hlaut einng Whitbread-verðlaunin.
Fjórða bókin, sem var að koma út
núna fyrir skömmu, er 743 blaðsíð-
ur og hún hefur verö gagnrýnd fyr-
ir það hvað hún er löng og sumum
finnst að útgefandinn hefði átt að
halda aðeins í við höfundinn í
fyrstu köflunum. En hún þykkir
mjög góð þrátt fyrir það.
Mér finnst vanta íslenskar
fantasíur þar sem höfundar ganga í
sagnaarfinn og nýta sér t.d. goða-
fræðina. Við erum stundum að þýða
bækur yfir á íslensku þar sem höf-
undar hafa notfært sér norrænar
sagnir og það viil ýmislegt fara úr-
skeiðis þegar efnið er i raun þýtt
tvisvar á þennan hátt.“
-Kip
Vonleysi, skynsemisskortur, inn-
byrðis tjáskiptaerfiðleikar, grimmd,
fordómar og lífsleiði einkenna fjóra
félaga sem era aðalpersónumar í
dönsku kvikmyndinni Bleeder, félaga
sem fá visku sína mestmegnis úr of-
beldisfúllum b-myndum. Leo (Kim
Bodnia) tekur fréttum um að unnusta
hans Louise (Rikka Louise Anderson)
sé ófrísk illa, hverfur inn í skel sína,
telur sér trú um að hann geti ekki tek-
ist á við fóðurhlutverkið og getuleysi
hans snýst upp í grimmd gagnvart
unnustunni. Bróðirinn Louis (Levino
Jensen), sjálfskipaður gangster í und-
irheimum Kaupmannahafnar, leitar
hefnda fyrir systur sína og þá er ekki
spurt um vinskap sem orðið hefur til
vegna sameiginlegs áhuga á ofbeldis-
kvikmyndum. Utan við átök Leo og
Louis standa svo Lenny (Mads Mikk-
elsen) og Kitjo (Zlatko Buric), sem
báðir starfa á myndbandaleigu. Lenny
er innhverfur og getur ekki tjáð sig
nema með því að vitna í kvikmyndir.
Þegar Lenny kynnist Leu (Liv Corf-
ixen), stúlku sem hann hefur áhuga á,
getur hann ómögulega komið á varan-
legu sambandi því hún hefur meiri
áhuga á bókum en kvikmyndum.
Lenny er þó sá fjórmeiminganna sem
virðist hafa löngun til að lifa betra
lífi, lífi sem kannski kemst best til
skila í tilraunum Louise til að stofna
fjölskyldu, tilraun sem hefur alvarleg-
ar og dramatískar afleiðingar.
Það er ekki faileg veröld sem
Nicolas Winding Refn dregur upp af
lífi þeirra sem lifa í skúmaskotum
stórborgarinnar. Þetta era einstak-
lingar sem hafa orðiö undir í lifsbar-
áttunni, konur og karlar sem vilja
betra líf en era að mestu leyti ófær
um að skapa sér aðstæður til að láta
drauma sína rætast. Winding Reíh
dró upp álíka mynd, en þó dekkri, í
sinni fyrstu kvikmynd, Pusher, sem
verður að teljast betri mynd. Bleeder
kemur sem mynd númer tvö í tríólóg-
íu hans sem hefur yfirskriftina, trú,
vinátta og ást. Það verður nú að segj-
ast eins og er að undir þessari yfir-
skrift fer Refn frekar þrönga leiö.
Persónurnar í Bleeder era áhuga-
verðar. Það er kannski helsti galli
myndarinnar hversu mikla áherslu
Refn leggur í að koma hugsunum og
tilfinningum þeirra til skila, að vísu
fyrir utan Kitjo sem virkar eins og
áhorfandi án tilfinninga. Mikið er um
nærmyndatökur af persónunum og oft
á tíðum fylgir kvikmyndavélin þeim
eftir i langan tíma. Fyrir vikið verður
myndin döpur og langdregin á köflum
þar sem í raun ósköp lítið er að gerast
utan við hugarheim þeirra. Leikarar
með þann frábæra Kim Bodnia í
broddi fylkingar eru vel í takt við
hlutverk sín, vonleysið skín úr hverj-
um svip en þó er smávonarglæta í lok-
in þegar Lenny og Lea ákveða að
reyna ná sambandi hvort við annað.
Leikstjóri og handritshöfundur: Nicolas
Winding Refn. Kvlkmyndataka: Morten
Soborg. Aðalhlutverk: Kim Bodnia, Mads
Mikkelsen, Rikke Louise Andersen, Liv
Corfixen og Levino Jensen.