Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2000, Blaðsíða 7
Ruth Reginalds er að koma aftur fram á sjónarsvið lands-
manna með glænýja plötu sem lagahöfundar Whitney Houston,
Christinu Aguilera og Celine Dion eiga þátt í. Platan kemur út í
haust en lagið Nowhere and Everywhere hefur vakið verð-
skuldaða athygli í útvarpi síðustu daga. Fókus tók Ruth á tal
og spurði hana um það sem stefnir í að vera heitasta kombakk
íslandssögunnar.
Ruth Reginalds með
nýja spútnikplötu
Ruth Reginalds er snúin aftur
með nýja og ferska plötu. Hún
vakti fyrst athygli á áttunda ára-
tugnum þegar hún söng sig inn í
hug og hjörtu landsmanna á
barnsaldri en síðan þá hefur
hún látið lítið á sér bera í fjöl-
miðlum.
Nýja platan kemur út í haust
og er fyrsta sólóplata hennar í
tuttugu ár og það er einvalalið
alþjóðlegra tónlistarmanna sem
kemur að þessari plötu. Meðal
þeirra sem vinna að plötunni
eru miklir spámenn eins og
Gunnlaugur Briem tónlistar-
gúrú og Jonn Savannah sem
meðal annars hefur unnið með
Van Morrison og Tinu Turner.
Þeir sem frumsömdu lög fyrir
plötuna eru til dæmis lagahöf-
undur Christinu Aguilera og
Diane Warren sem hefur samið
fyrir Aerosmith (Armageddon
lagið), Celine Dion og Whitney
Houston.
„Þetta er frábært fólk og ég er
mjög heppin að vinna með því.
Þau pikkuðu mig í rauninni upp
en ég hef verið að spila á ýmsum
stöðum hér og þar um landið. Ég
gat bara ekki sagt nei við þessu
tækifæri því söngur er mín
draumavinna og ég hef alltaf
sungið. Þau buðu mér í upphafi
að flytja út en ég vildi vera á ís-
landi en hef haft annan fótinn
úti í London frá síðasta hausti
en þar er platan unnin. Hún er
reyndar mixuð í Stúdíó Sýrlandi
en öll önnur vinna fer fram í
London. En ég hef í raun engan
áhuga á því að búa í London því
ísland er frábært land og það er
líka mikið af hæfileikafólki
hérna og hingað liggur straum-
urinn,“ segir Ruth Reginalds
söngkona sem hefur verið að
vinna að sinni fyrstu plötu í 20
ár.
Tónlistin á plötunni verður að
hluta til popp en einnig ægir þar
saman R & B og blústónlist.
Ruth segir tvö lög líkjast því
vinsældapoppi sem hefur náð
sér á strik með styrk Britney
Spears og fleiri en persónulega
hallast hún frekar að Christinu
Aguilera.
12 lög verða á plötunni og hafa
10 þegar verið fullunnin en öll
eru þau á ensku. Lagið
Nowhere and Everywhere hef-
ur verið í spilun i útvarpi á
landinu en engin smáskifa er
enn komin út. Ruth gefur plöt-
una út sjálf á íslandi en segir
planið ekki endilega vera að
meika það í útlöndum.
„Markaðurinn á íslandi er
auðvitað ekki jafn fjölbreyttur
og hann er í fjölmennari löndum
en ég tel íslendinga hafa mjög
góðan smekk á tónlist, þeir gera
jafnvel meiri kröfur en aðrir.
Sumir spyrja af hverju lög séu á
ensku en ég held að það sé
miklu auðveldara að koma sér á
framfæri í tónlistinni ef maður
gerir það. Enskan er eins og
ítalskan í óperusöng og það set-
ur enginn út á að óperur séu
alla jafnan sungnar á ítölsku.
Auk þess er ég hálfensk og því
er þetta móðurmálið mitt líka,“
segir Ruth Reginalds, eitt
stærsta kombakk Islands ef ekki
það stærsta.
Kúlutýald
2ja manna
Allt í útileguna
Ferða-
matar-
sett
fyrir fjóra
Tjalddýnur
p Vatnspuki
5 gallon
Ferða-
svefnpoki
úr flísefni
Áttaviti
2ja manna tjald
Fjölnuta
skæri
Olíufélagiö hf
www.esso.is
28. júlí 2000 f Ó k U S