Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2000, Qupperneq 5
MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2000
21
DV
Sport
15. Norðurlandamóti í körfu kvenna lauk í gær:
Stór stund í Bergen
- 5. sætið hlutskipti íslands en sigur á Dönum stendur upp úr
12. ágúst verður minnst sem tíma-
mótadags í íslenskum kvenna-
körfuknattleik eftir að íslenska
landsliðið lagði Dani, 62-61, í næst-
síðasta leik sínum á Norðurlanda-
mótinu sem fór fram í Bergen í Nor-
egi og lauk um helgina.
Fram að þeim leik hafði íslenska
landsliðið tapað tíu landsleikjum í
röð á Norðurlandamótinu, öllum
með stórum mun en á því varð
breyting í þessum leik.
Tap í síðasta leiknum gegn Nor-
egi þýddi þó að íslenska liðið varð
að sætta sig við fimmta
og síðasta sætið á mót-
inu en frammistaða
liðsins á þessu móti
bendir ekki til annars
en að íslenska liðið sé í
framför og eigi eftir að
stríða nágrannaþjóðum
sínum á næstu árum.
Það var gaman að
fylgjast með íslenska
liðinu á mótinu. Þær
lögðu allt í leikina og
gáfu stærri og sterkari
stelpum hinna þjóð-
anna ekkert eftir. Fyrir
mótið höfðu menn tölu-
verðar áhyggjur af því
að i liðið vantaði þrjár
stúlkur, þær Lindu
Stefánsdóttur, Önnu
Maríu Sveinsdóttur og
Guðbjörgu Norðfjörð,
sem hafa verið lykil-
leikmenn undanfarin
ár, en stelpumar bættu
það upp með fráhærri
baráttu og sterkri liðs-
heild og náðu besta ár-
angri sínum frá upp-
hafi.
Endasleppt gegn
Noregi
íslenska landsliðið
lék síðasta leik sinn í
mótinu gegn Noregi og
tapaði, 58-69. Liðið
lenti undir strax í byrj-
un og var i eltingarleik
við norska liðið nánast
allan leikinn. Eftir að
Noregur komst yfir,
19-18, skoraði íslenska
liðið ellefu stig í röð og
var yfir eftir fyrsta
fjórðung en missti síð-
an norska liöið fram úr
sér aftur og höfðu
Norðmenn þriggja
stiga forystu í hálfleik,
33-30.
Norsku stúlkumar
byrjuðu síðan seinni
hálfleikinn mjög sterkt
og náði íslenska liðið
ekki aö halda í við þær. íslensku
stúlkumEU' náðu oft að jafna leikinn
en hleyptu Norðmönnum ailtaf fram
úr sér aftur. Best í íslenska liðinu
var Signý Hermannsdóttir sem var
mjög ógnandi í sókninni og skoraði
14 stig. Flestar aðrar íslensku
stúiknanna áttu dapran dag og vom
kannski enn hátt uppi eftir sigurinn
á Dönum daginn áður.
Stig islenska liðsins: Signý Hermanns-
dóttir 14 (7 fráköst, 3 stoðs.), Erla
Reynisdóttir 8 (4 stoðs.), Lovísa Guð-
mundsdóttir 8 stig (6 fráköst), Gréta
María Grétarsdóttir 7 (6 fráköst, hitti
úr öllum sínum skotum), Bima Val-
garðsdóttir 6, Erla Þorsteinsdóttir 6,
Kristin Blöndal 5, Alda Leif Jónsdótt-
ir 4 (6 fráköst, 5 stoðs.).
Sigurkarfa Erlu gegn Dönum
Erla Reynisdóttir tryggöi íslenska
kvennalandsliðinu fyrsta sigur sinn
á Norðurlandamótinu frá upphafi
þegar hún skoraði sigmkörfu með
ótrúlegu skoti tveimur sekúndum
fyrir leikslok.
íslenska liðið byrjaði leikinn
gegn Dönum frábærlega og kom
Dönunum, sem höföu búist við létt-
um leik, i opna skjöldu. íslenska lið-
ið var með tveggja stiga forystu eft-
ir fyrsta fjórðung, 18-16, en setti sið-
an í fluggír í öðrum leikhluta og
náði þrettán stiga forystu í hálfleik,
40-^27.
íslenska liðið hélt áfram góðum
leik í þriðja fjórðung og þegar hon-
um var lokið hafði það enn þrettán
stiga forystu, 51-38. Liðið lenti í
villuvandræðum i fjórða leikhluta
og náðu dönsku stúlkumar að saxa
á forystuna. Þegar ein mínúta var
eftir komust dönsku stúlkumar yf-
ir. íslenska liðið gafst þó ekki upp,
náði boltanum og fór upp í sókn.
Erla Þorsteinsdóttir skaut þriggja
stiga skoti sem geigaði en Erla
Reynisdóttir náði frákastinu af
miklu harðfylgi og skoraði sigur-
körfuna með glæsilegu stökkskoti
þegar leiktímanum var að ljúka.
Stig íslenska liðsins: Erla Þorsteins-
dóttir 14 (7 fráköst), Alda Leif Jóns-
dóttir (7 stoðs., 6 fráköst, 3 stolnir og
hitti úr öllum sínum fimm skotum),
Erla Reynisdóttir 11 (4 stoðs.), Signý
Hermannsdóttir 6, Gréta María Grét-
arsdóttir 6 (5 fráköst), Lovísa Guð-
mundsdóttir 6, Kristín Blöndal 6 (6
fráköst, 3 stoðs.).
Góðar og slæmar hliðar
gegn Svium
íslenska kvennalandsliðið sýndi á
sér bæði góðar og slæmar hliðar í
leiknum gegn Svíum í öðmm leik
sínum á mótinu. Svíar unnu að lok-
um með 33 stiga mun. Sigurinn var
alltof stór miðað við gang leiksins
en það má segja að íslenska liðið
hafi hrunið í síðasta fjórðungnum.
íslenska liðið haföi forystu mestan
hluta fyrri hálfleiks og leiddi 20-17
eftir fyrsta fjórðung. Svíarnir náðu
að komast yfir í öðrum leikhluta en
forysta þeirra var þó aðeins tvö stig
í hálfleik, 31-33. Það mátti sjá á
sænsku stúlkunum að þær voru
hissa á mótspymu íslensku stúlkn-
anna. Þriðji fjórðungur var ekki
slæmur hjá stúlkunum en Svíar
voru þó komnir með ellefu stiga for-
ystu eftir þriðja leikhlutann. Þá
kom versti kafli íslenska liðsins á
mótinu. Sænska liðið brunaði yfir
það íslenska sem sá aldrei til sólar.
íslensku stúlkurnar hittu úr einu af
ellefu skotum og töpuðu tólf boltum
í þessum síðasta fjórðungi.
Stig íslenska liðsins:
Signý Hermannsdóttir 13 (12 fráköst,
3 stoðs.), Kristín Blöndal 9 (öll í þriðja
fjórðungi), Erla Þorsteinsdóttir 6,
Gréta Maria Grétarsdóttir 5, Alda Leif
Jónsdóttir 5, Helga Þorvaldsdóttir 4,
Erla Reynisdóttir 3, Bima Valgarðs-
dóttir 2.
Sáttur meö leik íslenska
liösins
Jón öm Guðmundsson landsliðs-
þjálfari var mjög sáttur við leik ís-
lenska liðsins á mótinu þó að endir-
inn hefði mátt vera betri.
„Það var margt gott hér í Bergen
og greinilegt að íslensku stúlkumar
sýndu að ákvöröun KKÍ að senda lið
á Norðurlandamótið eftir fjórtán
ára fjarveru var hárrétt. Finnar og
Svíar era reyndar töluvert betri en
við í dag en við erum komnir í svip-
aðan styrkleikaflokk og bæði Norð-
menn og Danir. Það var margt gott
í leikjunum gegn Finnum og Svium.
Fyrri hálfleikimir í báðum leikjun-
um vora vel spilaðir en liðið missti
kannski dampinn í lokin. Danaleik-
Kelfvíkingurinn Erla Þorsteinsdóttir stóð sig frábærlega á Norðurlandamótinu f Bergen og
gaf hærri og sterkari stúlkum hinna liðanna ekkert eftir i baráttunni undir körfunni.
DV-mynd Hilmar Þór
urinn var að sjálfsögðu stærsta
stundin. íslenska liðið spilaði frá-
bærlega í fyrri hálfleik og þrátt fyr-
ir aö Danir næðu að jafna tókst því
að klára leikinn sem er frábært.
Versti kafli mótsins kom gegn Sví-
um í fjórða leikhluta en liðið var
annars á uppleið i gegnum allt mót-
ið. Ég var mjög ánægður með Erlu
Þorsteinsdóttur og Signýju Her-
mannsdóttur sem léku saman í
fyrsta sinn og þær skiluðu því sem
ég bjóst við og gott betur. Þær unnu
vel saman þrátt fyrir að þær væru
að spila sína fyrstu leiki og stóðu
sig vel í baráttunni við stórar og
sterkar stelpur í hinum liðunum.
Annars var ég mjög ánægður með
Lovísu Guðmundsdóttur sem kom
mjög sterk inn í í síðustu tveimur
leikjunum. Alda Leif Jónsdóttir,
Erla Reynisdóttir og Gréta María
Grétarsdóttir skiluðu hlutverkum
sínum vel og loks kom Kristín Blön-
dal sterk inn af bekknum ásamt því
að skila fyrirliðahlutverkinu með
sóma. Næsta verkefni okkar er smá-
þjóðaleikarnir i San Marínó næsta
sumar og stefnan er að undirbúa
liðið vel fyrir það verkefni. Við
munum koma til með æfa saman í
vetur og spila nokkra æfingaleiki.
Sumarvinnan skilaði sér í mót-
inu. Stelpurnar lögðu gífurlega hart
að sér og það kom á daginn að þær
voru vel í stakk búnar til aö takast
á vel þjálfaðar stöllur þeirra á Norð-
urlöndum. Við getum nálgast bæði
Svía og Finna en til þess að það geti
orðið að veruleika þurfum við að
æfa allt árið um kring og hlúa betur
að deildarkeppninni hér heima. Það
er nefnilega sterk tenging á milli
landsliðsins og deildarinnar,“ sagði
Jón Örn Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari kvenna í körfuknattleik, í
samtali við DV-Sport í Bergen í gær.
-ÓÓJ
Alda Leif Jónsdóttir gaf flestar
stoösendingar.
Signý Hermannsdóttir var
stigahæst íslensku stúlknanna.
NM-Molar
Finnar urðu Norðurlanda-
meistarar. Finnsku stúlkurnar
sigruðu þær sænsku með 41 stigs
mun í hálfgerðum úrslitaleik.
Norðmenn tryggðu sér fjórða
sætið með sigri á íslendingum
sem urðu í fimmta sæti með
jafnmörg stig og Norðmenn en
verri innbyrðisárangur.
Danska /iðið reif sig heldur
betur upp eftir tapið gegn ís-
lenska liðinu og vann óvæntan
sigur á Svíum í næsta leik og
tryggðu sér í raun annað sætið.
Finnska liðið er mjög leik-
reynt. Þrjár stelpur í liöinu hafa
spilað yflr 100 landsleiki og það
var gaman að sjá til liðsins. Sam-
vinnan var mikil og liðið virkaði
eins og ein sterk vél.
íslenska liðið bætti sig eftir
því sem leið á mótið og náði
alltaf betur og betur saman.
Skotnýtingin batnaði með hverj-
um leik. íslenska liðið hitti að-
eins úr 10 af 53 skotum sínum í
fyrsta leik sem er 18% hittni.
Hittnin var 32% í næsta leik á
eftir gegn Svíum og gegn Dönum
var hún 38,7%. Gegn Noregi hitti
liðið 42% eða 24 af 56 skotum.
Þjálfari Noregsmeistaranna í
kvennakörfu, Gimle frá Bergen,
var mjög hrifinn af nokkrum ís-
lensku stelpunum. Það lið er að
missa þrjá sterka leikmenn og
ætla forráðamenn félagins að
bjóða nokkrum leikmönum
íslenska liðsins samning fyrir
næsta tímabil. Þetta er mikil
viðurkenning fyrir íslensku
stelpumar og sýnir hversu vel
þær stóðu sig á mótinu.
Besti árangur
íslensku
stelpnanna á
mótinu:
Stigahæstar
Signý Hermannsdóttir ........39 stig
Erla Þorsteinsdóttir ........38 stig
Alda Leif Jónsdóttir ........28 stig
Erla Reynisdóttir................25 stig
Gréta María Grétarsdóttir .. .24 stig
Kristín Blöndal .............23 stig
Flest fráköst
Signý Hermannsdóttir.............32
Alda Leif Jónsdóttir .............22
Gréta María Grétarsdóttir .......22
Erla Þorsteinsdóttir .............20
Erla Reynisdóttir................15
Stoðsendingar
Alda Leif Jónsdóttir .............15
Erla Reynisdóttir................14
Signý Hermannsdóttir..............9
Stolnir boltar
Alda Leif Jónsdóttir ..............9
Gréta María Grétarsdóttir..........6
Signý Hermannsdóttir..............5
Erla Þorsteinsdóttir..............4
Varin skot
Signý Hermannsdóttir ............11
Gréta María Grétarsdóttir..........3
Alda Leif Jónsdóttir ..............2
3ja stiga
Erla Reynisdóttir ..............4/10
Erla Þorsteinsdóttir ...........3/4
Víti
Erla Þorsteinsdóttir ..........9/10
Erla Reynisdóttir ..............8/10
Skotnýting
Alda Leif Jónsdóttir . . . .9/14, 64,3%
Lovísa Guðmundsdóttir .8/18, 44,4%
Kristin Blöndal ........9/24, 37,5%
Signý Hermannsdóttir . .16/47, 34,1%
-ÓÓJ