Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Qupperneq 6
22 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 Vigdís og Vilmundur tekin í gegn: Breyttir blaðamenn Blaðamannastéttin hefur hingað til ekki verið talin meðal þeirra stétta sem til fyrirmyndar eru í útliti og klæðaburði. Það voru því hæg heimatökin þegar DV ákvað að fara á stúfana og finna fólk sem væri til í að gangast undir algera umbreytingu. Fyrir val- inu urðu þau Vigdís Stefánsdóttir og Vilmundur Hansen sem bæði starfa sem blaðamenn DV Til að aðstoða við breytinguna var leitað til Hönnu Krist- ínar Guðmundsdóttur, eiganda hárgreiðslustofúnn- ar fCristu í Kringlunni, og Margrétar R. Jónas förð- unarfræðings. Þær stöllur tóku málaleitan okkar vel og sjást verk þeirra hér á síðunni. Þegar verki þeirra var lokið var haldið á vit tískubúðanna. Vilmundur fór í verslunina Donna Karan og Vigdís fékk góða aðstoð hjá Karen Millen. Við hjá DV erum hæstá- nægð með útkomuna en dæmi nú hver fyrir sig. Ahárgreiðslustofunni Kristu í Kringlunni tók Hanna Kristín Guðmundsdóttir hárgreiðslu- meistari á móti Vigdísi. Hún byrjaði á því að lita hárið með ljósum og frekar gylltum tónum sem þó voru aðeins dekkri en litur- inn sem Vigdís var með fyrir. Litimir eru settir þannig í hárið að þeir mynda flæði frekar en harðar linur og hom. Vigdís var með mjög stuttan topp og stutt hár í hnakkanum og því var Hanna Kristín töluvert bundin þegar kom að því að klippa hana. „Sem betur fer þá klæðir það Vigdísi vel að hafa stuttan topp og ég ætla að nýta mér það,“ segir Hanna Kristín. Fyrst var undirhárið klippt frekar stutt og síðan yfirhárið, en það var haft örlítið lengra, mjög skorið og hringlaga. Svona klipping hæfir mjög vel konu á Vigdísar aldri auk þess sem frekar auðvelt er að gera sig (Ina án mikillar fyrirhafnar. Lokaútkoman. „Þetta er mjögflott en þetta er ekki ég, “ segir Vigdis um nýja útlitið. DV-mynd Einar J. Margrét R. Jónas fórðunarfræðingur sá um forðunina. Á Vigdísi notaði hún farða frá Sebastian sem hún segir að sé í mjög góðum litum. I þeim er gulur undirtónn sem gefúr húðinni hlýlegan blæ. Margrét segir að íslenskar konur eigi það til að nota make með appelsínugulum og bleik- um tónum og þegar þær sjá að það kemur ekki nógu vel út þá fari þær út í að nota gráa tóna. Þeir hins vegar gera konumar fölar og litlausar. Þvi sé guli tónninn mjög hentugur. Yfir allt augnlokið var settur ljós augskuggi, Luminesse, sem gmnnur, og síðan var skyggt eftir kúnstarinnar reglum með fjórum öðrum litum, Evocative, Ficeile, In Pale og Shade. Varaliturinn var fallegur appelsínulitur, Bare, og yfir hann var sett gloss, Viva Ve- gas. „í haust verður mikið í tísku að vera með dökka augnmálningu, t.d. í mosa- grænum lit. Á varir em beijalitir ýmiss konar og appelsínulitir að verða ráðandi. hátt ef þœr eru slœmar. Hár- ið á mér er mjögfmt, þetta er meiri háttar upplifun. Ég er mjög sátt við þessa klipp- ingu og litinn. Þessi hár- greiðslustofa varyndisleg, þar voru greinilega fagmenn að verki og stúlkan sern mál- aði mig kann lika vel til verka þó hún sé hrifnari af haustlitum en ég. Stofan er ftn og ég og er til í að fara þangað aftur. Þetta tók langan tíma en útkoman er geysilega flott þannig að þetta var sennilega tim- ans virði. Eg á sennilega eftir að halda þessari klippingu en skipti örugglega um liti I andlitsmálningu og held mig við mina eigin. “ Hjá Karen Millen í Kringlunni tók Ragn- heiður Óskarsdóttir verslunarstjóri á móti Vigdísi. Þar var hún klædd í svarta kasmír- rúllukragapeysu, svart pils úr þægilegu stretch-efni og hálfsíða kápu. Pilsið er með rennilás að framan og hnésítt, en sú sídd er mikið i tísku um þessar mundir. Kápan er með dýramynstri en þau em áberandi í hausttískunni. Henni fylgir einnig leðurbelti sem nú eru að koma aftur með tísku níunda áratugarins. Stígvélin em frá italska fyrir- tækinu Stiller og fást I versluninni GS skór. Þau em támjó hnéstígvél, með háum hælum og passa mjög vel við kápusiddina. Punkt- urinn yfir i-ið er svo taskan frá Karen Mil- len en það fyrirtæki leggur mikið upp úr því að hanna bæði töskur og skó sem hæfa fatn- aði fyrirtækisins. „Svona fatnað myndi ég aldrei kaupa mér. ífyrsta lagi eru jotin svört og égfer ekki í svört föt, i öðru lagi er ég aldrei I stuttum pilsum og í þriðja lagi þá kann ég ekki að vera í svona tiskufatnaði. Lokaútlitið var þannig að ég þekkti ekki, sjálfa mig og vœntanlega gera aðrir það ekki heldur. Mér fannst þetta þó mjög flott en þetta er ekki ég, það var ekkert af mér þarna. Ég er frekar svona gamal- dags amma. “ Á hárgreiðslustofunni Kristu. Hanna Kristin Guðmundsdóttir með hendur i hári \rigdisar. DV-mynd E.Ól. |S P O R T ^»4 NANOQ+ * - lífið er áskomn! Vigdís Stefánsdóttir, blaðamaður DV: „Ég eyði engum tíma i útlitið. Égfer í sturtu og renni flngrunum i gegnum hárið og lœt það duga. “ Það er gaman að sjá aftur græna litinn því hann hefur ekki verið í tísku í töluverðan tíma,“ sagði Margrét að lokum. „ Útkoman kom á óvart. Ég er þó enn á þeirri skoðun að sumarlitir fara mér betur en haustlitimir. Þetta kom samt ágœtlega út. Ég á reyndar eftir að sjá myndirnar og mér segir svo hugur að þær eigi eftir að hvetfa á dulatfullan Vigdís: „Ég klæðist yfirleitt einhvetju helð- bundnu og þá oftast nær gallabuxum eða öðmm þægilegum buxum. Flest fotin mín em blá eða í bláum tónum, og græn- bláum, bleikum og stöku sinnum Ijósgul- um. Ég er aldrei i jarðlitum og því síður í svörtum fotum. Þegar ég mála mig, sem er afskaplega sjaldgæft, þá nota ég alltaf bleika og bláa tóna. Ég eyði nær engum tíma í útlitið heldur fer í sturtu og renni fingrunum i gegnum hárið og læt það duga. Mér fannst nokkuð gaman að taka þátt I þessari umbreytingu, ég er alltaf til I einhver ævintýr. Mig gmnaði reyndar ekki að það tæki átta klukkutíma og hefði kannski ekki verið alveg svona fljót að segja já ef það hefði legið fyrir og það er víst að fyrirsætustörf eiga ekki við mig.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.