Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2000, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000
DV
Fréttir
Formaður vélstjóra ævareiður vegna afstöðu útvegsmanna til auðlindagjalds;
Nýr gráttenór ÚÚ telur
samtökin æðri ríkisstjórn
- útgerðin gaf fordæmi fyrir auðlindaskatti með braski
„Nýi tenórinn hjá LÍÚ tekur starf
sitt greinilega alvarlega og vill feta í
fótspor forverans af svo miklu öryggi
aö maður veltir því fyrir sér hvort með
nýrri ásýnd samtakanna sé verið að ná
þeim markmiðum sem að var stefnt í
upphafi," segir Helgi Laxdal, formaður
Vélstjórafélags íslands, um viðbrögð
stjómar Landssambands islenskra út-
vegsmanna við áliti auðlindanefhdar
sem kveður á um að sameiginlegar
auðlindir skuh vera skilgreindar í
stjómarskrá sem sameign þjóðarinnar
og að hægt sé að láta þá sem þær nýta
greiða sérstakt gjald til þjóðarinnar..
Helgi segir að varla hafi blekið þom-
að á blöðum skýrslunnar þegar stjórn
LÍÚ boðaði til blaðamannafundar.
„Nýi gráttenórinn gerði grein fyrir
því að stjóm LÍÚ væri reiðubúin að
taka upp viðræður við stjómvöld um
það sem hann kallaði hóflega gjaldtöku
af greininni. Hann ætlaði greinilega að
ákveða hana einhliða enda er
það búið að vera svo um lang-
an aldur að LÍÚ er í augum
bæði núverandi og fyirverandi
íramkvæmdastjóra LÍÚ langt-
um æðra stjómvald en ríkis-
stjóm landsins sem á að bugta
sig og beygja þegar hinir raun-
verulegu stjómendur láta í sér
heyra,“ segir hann.
Helgi segir það hafa vakið
sérstaka athygli sina að LÍÚ er
tilbúið að samþykkja hóflega
gjaldtöku fyrir aðgang að
veiðiheimildunum en gjaldið
ætluðu þeir ekki að greiða
nema að hluta til vegna þess að taka
eigi það af óskiptum aflahlut, þ.e. sjó-
menn eigi að greiða um 40% af heild-
inni.
„Mér þykir það stórkostlegt að fram-
kvæmdastjóri LÍÚ skuli leyfa sér að
ávísa þessum kostnaði beint til sjó-
manna án þess að hafa rætt
um það við þá og því hefúr
hann enga heimild til þess að
bjóða slíkt fram,“ segir Helgi
og bendir á að forsenda gjald-
töku séu látlausar deilur á
milli sjómanna og útvegs-
manna vegna þess að útgerð-
in hafi komist upp með að
láta sjómenn taka þátt í
kaupum á kvóta. Útgerðin sé
i reynd að lækka hlut sjó-
manna sem annars er ákveð-
inn í kjarasamningi.
„Þetta svindl útgerðar-
manna er búið að viðgangast
alltof lengi og er þegar búið að leiða til
þriggja verkfallsátaka á milli sjó-
manna og útgerðarmanna. Annað er
það sem leitt hefúr til þess að þjóðin
telur sig eiga að fá arð af þessari eign
sinni en það er þegar einstakir útgerð-
armenn hafa verið að hverfa úr grein-
inni og taka með sér hundruð milljóna
sem andvirði veiðiréttar sem þeir eiga
ekkert í. Skemmst er að minnast þess
þegar einn Samheijafrændinn seldi
sinn hlut eftir um 17 ára útgerðar-
rekstur. Þá tók hann með sér góða 6
milljarða," segir hann og telur að í því
tilviki hafi hann ekki aðeins verið að
selja fastafjármuni heldur einnig veiði-
réttindi sem auðlindanefnd hafi nú
skilgreint sem sameign þjóðarinnar.
„Krafa samfélagsins um gjaldtöku
vegna fiskveiðiheimilda er fyrst og
fremst tiikomin vegna þess fordæmis
sem útgerðin hefur sjálf gefið með sinu
braski með heimildimar þar sem fjár-
munir hafa verið fluttir frá sjómönn-
um til útgerðarinnar og síðan út úr
greininni sem gerir stöðu hennar sem
heildar lakari en hún i raun og veru
er. Þess vegna er það út úr öllum kort-
um að sjómenn taki þátt i greiðslu auð-
lindagjalds," segir Helgi Laxdal. -rt
Helgi Laxdal
Svindl útgerðar-
manna hefur við-
gengist of lengi.
Bensínverð í nokkrum Evrópulöndum:
Bensínverð án skatts
er langhæst á íslandi
*
- fákeppni hluti af skýringunni, segir framkvæmdastjóri FIB
Sandkorn
Reynir Trausiason
netfang: sandkorn@ff.is
Eiga vel saman
Það er örugglega
misgaman að vera
ráðherra hér á landi
sem erlendis og það á
örugglega við um
Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra
eins og aðra ráð-
herra. Oft þykir Hall-
dór nokkuð brúnaþungur eins og for-
ustumenn Framsóknarflokksins hafa
reyndar átt vanda til á undanfórnum
áratugum, en svo léttist brúnin á
milli eins og gengur. Þannig virðist
brúnin á Halldóri alltaf vera mjög
létt ef hann kemst í námunda við
Madeleine Albright, utanrikisráð-
herra Bandaríkjanna, og virðist fara
einstaklega vel á með þeim starfs-
systkinunum. Frúin á það reyndar til
að vera afundin og brúnaþung á
stundum en ekki ef Halldór er ná-
lægt. Það er eins og Halldór nái
ávallt að laða allt það besta fram í
fari frúarinnar með sinni léttu lund
og kossum á kinn af og til. Það er
eins og þau eigi að „vera saman“.
Sögulegt lágmark
En eflaust hefúr
brúnin sigið á Hall-
dóri þegar hann sá
skoðanakönnun DV
i gær um fylgi
stjómmálaflokk-
anna þar sem
Framsóknarflokk-
urinn mældist í
sögulegu lágmarki með rétt um 11%
atkvæða. Annar frammámaður í
flokknum, sem á einnig til að vera
brúnaþungur, er Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra en sögur segja
að hann vilji verða varaformaður
flokksins til að geta látið síga meira í
brýrnar en hingað til, enda maðurinn
frá Brúnastöðum. Guðni sagði niður-
stöðu skoðanakönnunarinnar valda
sér vonbrigðum og „ákveðnum
áhyggjum" en forkólfar Framsóknar-
flokksins hafa átt vanda til að taka
þannig til orða undanfarin fjöldamörg
ár hafi á móti blásið, ég verð að segja
það.
Samanburður á bensínverði 1. september 2000
verð án skatts á 96 oktana bensíni
)6,80 ,
29,70 29,30 29,00
28,10 27,90
25,50 25,30
23,00
i s ca
Belgia Lúxemborg Danmórk j Frakkland | Spánn Þýskaland Bretland
I: Fréttir Búnaöarbankans Verbbréf
Samkvæmt
samanburði á
bensínverði í
nokkrum Evr-
ópulöndum þann
fyrsta september
kemur fram að
bensínverð án
skatts er lang-
hæst á íslandi en
lægst í Bretlandi.
Þetta kemur fram
í Fréttum Búnað-
arbankans Verðbréfa en samanburð-
urinn er byggður á gögnum frá
Reuters, íslensku olíufélögimum og
fjármálaráðuneytinu.
Að sögn Reynis Guðlaugssonar,
innkaupastjóra hjá Olíufélaginu
Skeljungi, eru nokkrar skýringar á
því af hverju bensínverð er hærra á
íslandi en víða annars staðar i Evr-
ópu. Helsta ástæðan er fjarlægð ís-
lands frá markaðinum og vegna þess
verður flutningskostnaður mun
Um 100 metra langur nýlagður
kantsteinn við Norðfjarðarveg á Eski-
flrði var skemmdur aðfaranótt mið-
vikudagsins. Verktakar hjá Fjarðar-
byggð höfðu nýlokið við að steypa 20
cm háan kantsteininn með sérstakri
kantsteinasteypuvél þegar skemmdar-
vargar réðust á blauta steypuna, stigu
á hana, spörkuðu í hana og skrifúðu
nöfn og fangamörk i hana. Verktakinn
lauk við verkið um klukkan 20:30 á
þriðjudagskvöldið og telur lögreglan á
Eskifirði að skemmdarvargarnir hafi
verið á svæðinu um þremur til fjórum
tímum síðar.
Lögreglan á Eskifirði, sem hefúr
málið í rannsókn, biöur fólk sem hef-
hærri hér en annars staðar. Þrátt fyr-
ir að lönd eins og Þýskaland þurfi að
flytja bensín langar leiðir er flutn-
ingskostnaður þar ekki eins hár og á
Skemmdarverk.
Nýlagður kantsteinn var eyöilagöur á
Eskifiröi aöfaranótt miðvikudagsins.
ur upplýsingar um skemmdarverkin
að hafa samband við sig. -SMK
íslandi. Hann bendir á að það taki
tankskip fimm daga að sigla til Is-
lands.
„Mörg Evrópulönd eru lika með
sínar eigin hreinsunarstöðvar," segir
Reynir. Hann segir að nálægð þeirra
við markaðinn geri það líka að verk-
um að þau geti verið með verðbreyt-
ingar á næstum hverju degi.
Hefur áhrif
Hann segir að í Bretlandi og Nor-
egi sé bensínverð einnig í hærri
kantinum og megi rekja það til þess
að bensínskattar séu mjög háir í
þeim löndum en það er hlutfall
vörugjalds, bensíngjalds og virðis-
aukaskatts. í löndum eins og Spáni,
Portúgal og Grikklandi séu bens-
ínskattar hins vegar I lægri kantin-
um sem leiðir til þess að bensínverð
er mun lægra þar.
„Smæð markaðarins hér hefur
lika mikið að segja því ísland er
eins og smáborg í Evrópu,“ segir
Reynir. Reynir telur að verðið væri
mun hærra hér ef bensínskattinum
hefði ekki verið breytt og þá væri
lítraverðið yfir 100 krónum. Einn
ókosturinn við bensínskattinn sé að
hann sé föst tala þannig að ef bens-
ínverð lækkar helst hann jafnhár og
þar af leiðir að það er kostur þegar
verðið er hátt. Reynir segir að erfitt
sé að bera saman verð í mismun-
andi löndum á eðlilegan hátt vegna
ólikra aðstæðna á hverjum stað.
Dýrari flutningar
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, segir að íslendingar borgi eitt-
hvert hæsta verð sem þekkist í Evr-
ópu vegna dýrari flutninga og minna
magns. íslenskir neytendur þurfi
þannig að borga það dýrum dómum
að búa í fámennu og dreifbýlu landi.
Þeir þurfa þess vegna að greiða auka-
gjald, fyrir utan bensínskatt, upp á
rúmlega 60 prósent.
„Það er fákeppni á þessum mark-
aði hér á landi og því hefur ekki
komiö fram verðsamkeppni og það
getur verið hluti af skýringunni,"
segir Runólfur og bætir við að hér
séu ekki nema þijú olíufyrirtæki og
tvö þeirra séu í ákveðnu samstarfi
með eignatengingu þannig að það
hái þessum markaði. Að hans mati
getur verið erfitt að bera saman
verð milli landa og það verði því að
koma skýrt fram hvort miðað er við
afgreiðslu eða sjálfsafgreiðslu.
-MA
Mikið reiknað
Það vakti talsverða
athygli í fréttum um
helgina þegar sagt var
frá síðustu oliuverðs-
hækkunum hér á landi
að tilkynnt var um
verðhækkun tveggja
olíufélaganna en þess
getið að verið væri að
vinna að útreikning-
um hjá einu þeirra varðandi það
hversu mikil hækkunin þyrfti að vera.
Þetta eiga neytendur án efa auðvelt
með að skilja, enda alkunna að hvert
olíufélaganna leggur í það mikla og
tímafreka vinnu að reikna út olíu-
verðshækkanir með nokkurra daga
jöfnu millibili. Ekki hvarflar að
nokkrum manni að olíufélagið sem átti
útreikningana eftir hafi litið á hækk-
unartölur hinna fyrirtækjanna, vegna
þess að menn vita að þannig vinna
menn ekki. Olíufélögin hér hafa ekki
samráð um verð, það er einungis ná-
kvæmni reiknimeistara þeirra sem
veldur því að þau fá alltaf nákvæmlega
sömu niðurstöður þegar um hækkanir
er að ræða, svo ekki skeikar eyri.
Skorað á „Kúta“
Nú er mikið
„plottað" um for-
ustusætin i hinu
nýja landssambandi
verkafólks sem
stofna á innan tíðar
og á örugglega eitt
og annað eftir að
ganga þar á áður en
staða fæst. Eitt af þvi sem menn á
landsbyggðinni hafa áhyggjur af er
að Flóabandalagsmenn muni leggja
undir sig öll forustusætin en því
vilja menn ekki una. í Verkalýðsfé-
lagi Húsavíkur tóku menn sig til og
skoruöu á formann sinn, Aðalstein
Baldursson, að gefa kost á sér til
trúnaðarstarfa fyrir nýja sambandið.
„Kúti“, eins og Aðalsteinn er oft kall-
aður af þeim sem hann þekkja, mun
ekki hafa svarað opinberlega, enn
sem komið er a.m.k.
Eskifjörður:
Kantsteinn
skemmdur