Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2000, Side 10
10
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000
DV
Arafat nær drepinn
af eigin liðsmönnum
2 ára fórnarlamb
Sarah Hassan viö lík dóttur sinnar sem varö fyrir kúlu úr byssu ísraelsmanna
seint á sunnudagskvöld. Litla telpan sat í aftursæti bifreiöar foreldra sinna
sem óku fram hjá ísraelsmönnum.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefur boðað
Ehud Barak, forsætisráðherra Isra-
els, og Yasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínu, til fundar í París á morgun til að
ræða óeirðir undanfarinna daga.
Fundurinn er sagður svar við aukn-
um kröfum um íhlutun alþjóðasamfé-
lagsins til að stöðva ofbeldisölduna í
ísrael og á herteknu svæðunum þar
sem á sjötta tug manna, flestir Palest-
ínumenn, hafa látið líflð undanfama
daga.
Samkvæmt heimildarmanni
Palestínumanna náðist í morgun
samkomulag um vopnahlé. ísraelsk-
ur herforingi kvaðst hafa heyrt af
samkomulaginu en sagðist ekki geta
ábyrgst að það héldi.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
fundaði í nótt um ástandið. Ekki
tókst að ná samkomulagi um álykt-
un.
Yfir eitt þúsund Palestínumenn
hafa særst í átökunum. í gær særðust
um 50 Palestínumenn þegar skotið
var úr ísraelskum árásarþyrlum á
tvö íbúðarhús. Meðal þeirra sem létu
lífið voru 7 börn og unglingar undir
17 ára aldri, samkvæmt frásögn
palestínskra sjúkrahússtarfsmanna.
Yngsta fómarlamb átakanna er
Sarah Abdelhaq sem varð bara 2 ára.
Hún sat í aftursæti bíls foreldra
sinna er varð fyrir kúlu úr byssu
ísraelsmanna.
Jarðarfarirnar, sem fram fóru í
fjölda palestínskra bæja og borga í
gær, breyttust í mótmæli gegn ísrael.
Þúsundir Palestínumanna veifuðu
fánum. Grímuklæddir herskáir liðs-
menn Fatah-samtaka Arafats skutu
upp í loftið með sjálfvirkum riflum
og byssum. Ræðumenn hvöttu til að
gengið yrði að eftirlitsstöðvum ísra-
elsmanna sem reyndu að bæla niður
óeirðirnar með því að skjóta á mót-
mælendur.
Litlu munaði að Arafat sjálfur yrði
drepinn af eigin mönnum í gær.
Jórdanir höfðu sótt hann til Amman
til viðræðna við Abdullah konung.
Er þyrlumar voru á leið heim skutu
Palestínumenn á þær þar til einhver
hrópaði að þyrlumar væm jórdansk-
ar og að Arafat væri um borð.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
sagði heimsókn hægri sinnaða
stjómmálamannsins Ariels Sharons
til Musterishæðarinnar í Jerúsalem i
síðustu viku hreina ögran við Palest-
ínumenn. Múslímar og ísraelar hafa
lengi deilt um yfirráð yfir þessum
helga stað og reiddust Palestínumenn
ákaflega heimsókninni og hófú grjót-
kast á gyðinga við grátmúrinn. Síðan
hafa þeir gripið til skotvopna.
Schröder fagnar
Gerhard Schröder Þýskalandskansl-
ari fer fyrir fríöum flokki fyrirmenna á
tíu ára afmæli sameinaös Þýska-
lands í Dresden í dag.
Tíu ár frá samein-
ingu Þýskalands
Þjóðverjar halda upp á tíu ára af-
mæli sameiningar þýsku ríkjanna í
dag. Ríkin höfðu þá verið aðskilin í
hartnær hálfa öld.
Sameining austur- og vesturhlut-
ans varð að veraleika tæpu ári eftir
að rofið var gat í Berlínarmúrinn.
Hátíðahöld í tilefni afmælisins í
dag verða ekki jafnmikil og í nóv-
ember í fyrra þegar falli múrsins
var fagnað. Tugþúsundir manna
tóku þó þátt f fagnaði við Branden-
borgarhliðið og í borginni Dresden í
austurhluta Þýskalands og víðar í
gærkvöld.
Prestur frelsaður
Estrada forseti ræöir viö prest
sem var bjargaö.
Gíslum bjargað
Tólf félögmn í kristinni trúar-
hreyfingu var bjargað í gær á fil-
ippseysku eyjunni Jolo þar sem
þeir höfðu verið í gislingu i yfir 3
mánuði. Gíslamir og mannræn-
ingjarnir höfðu verið á flótta í 10
daga eða frá því að stjómvöld
gripu til hemaðaraðgerða gegn
uppreisnarmönnum. Einum
gíslanna tókst að flýja og vísaöi
hann á dvalarstað hinna.
Bensínhækkun mótmælt
íbúar Makasar í Indónesíu veltu í gær bifreiö hins opinbera áöur en þeir kveiktu í henni. íbúarnir efndu til mótmæla
vegna hækkunar á eldsneyti. Yfírvöld tilkynntu á laugardaginn aö þau hygöust hækka verö á eldsneyti um 12
prósent. Hækkuninni hefur veriö mótmælt víöa um Indónesíu.
Kappræður forsetaframbjóðendanna í Boston í kvöld:
Sjötíu og fímm milljónir munu
fylgjast þeim með Gore og Bush
taka þátt í þessum kappræðum þar
sem þeir náðu ekki 15 prósenta fylgi
í opinberum skoðanakönnunum.
Stuðningsmenn þeirra eru æfir sök-
um þessa og halda því fram að um
samsæri stóra flokkanna sé að ræða.
Bush og Gore hafa undirbúið sig
vikum saman og búist er við því að
útkoma kappræðnanna geti haft
meiriháttar áhrif á skoðun óákveð-
inna kjósenda - sem eru taldir munu
hafa úrslitaáhrif á niðurstöðu kosn-
inganna þann 7. nóvember. Undan-
famar skoðanakannanir benda til
þess að Gore og Bush séu hnífjafnir,
báðir með 45 prósenta fylgi í nýrri
könnun CNN sjónvarpsstöðvarinnar.
Meðal málefna sem verða rædd er
heilbrigðiskerfið, skattar, mennta-
kerfið, réttur til fóstureyðinga og sið-
fræði.
ÓRV
DV. BOSTON:______________________
Fjölmiðlafárið í kringmn kapp-
ræður forsetaframbjóðendanna er
hafið í Bandaríkjunum. í gærkvöld
buðu rikisstjóri Massachusetts-fylki,
Paul Cellucci, og aðstoðarkona hans,
Jane Swift, blaðamönnum í opinbera
móttöku í þinghúsinu á Beacon Hill
í Boston. Um 800 erlendir blaðamenn
eru komnir til borgarinnar til þess
að fylgjast með ræðuhöldunum.
Búist er við því að 75 milljónir
Bandaríkjamanna muni fylgjast með
beinum sjónvarpsútsendingum
stærstu sjónvarpsstöðvanna þegar
þeir A1 Gore og George W. Bush
takast á í U.Mass-háskólanum í
Boston í kvöld. Hinir tveir frambjóð-
endurnir í kosningunum, Pat
Buchanan, forsetaefni Endurbóta-
flokksins, og Ralph Nader, forseta-
efni Græna flokksins, munu ekki
Al Gore vel undirbúinn
Al Gore, varaforseti Bandaríkjanna,
hefur búiö sig vel undir kappræöurn-
ar viö George W. Bush í Boston.
Stuttar fréttir
Fujimori ánægður með sig
■PPRÍP forseti Perús, var
Jj benti á áframhald-
i M inu. Ný skoöana-
Jgl könnun bendir hins
i vegar til þverrandi
vinsælda forsetans sem fann sig
knúinn til að boða til nýrra forseta-
kosninga vegna hneyklismáls og
verður sjálfur ekki í framboði.
Námumenn snúi aftur
Yfirmaður júgóslavneska hersins
fór fram á það við kolanámumenn í
verkfalli að þeir sneru aftur til
vinnu, að sögn útvarpsfréttamanns
í námubænum í morgun. Yfirvöld
og námumenn ræddust við í nótt.
Mótmæli í Bólivíu
Athafnalíf í Bólivíu var lamað í
gær, fimmtánda daginn I röð, vegna
verkfallsaðgerða kennara og mót-
mæla bænda. Mótmælendur komu
upp vegartálmum.
Pútín í Indlandi
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
lofaði víðfeðmum umræðum um
efnahagssamvinnu, hryðjuverka-
starfsemi og aðra samvinnu við
upphaf heimsóknar sinnar til Ind-
lands í morgun. Indverjar tóku
Rússlandsforseta með kostum og
kynjum.
Leit að sjómönnum hætt
Irsk yfirvöld hafa hætt leit að átta
sjómönmnn af frönskum togara sem
sökk undan vesturströnd írlands á
sunnudag.
Varnir gegn hryðjuverkum
William Cohen,
landvarnaráðherra
Bandaríkjanna,
sagði í gær að
Bandaríkjamenn
þyrftu að fara að
búa sig undir
„heimavarnarlið"
gegn hryðjuverka-
mönnum og að upplýsingaöflun
þess vegna gæti brotið á friðhelgi
einkalífsins.
Archer fyrir rétt í dag
Rithöfundurinn og íhaldsstjórn-
málamaðurinn breski, Jeffrey
Archer, kemur fyrir rétt í dag vegna
ákæru um að hafa hindrað fram-
gang réttvísinnar og fleira í tengsl-
um við meiðyrðamál á hendur dag-
blaði sem hélt því fram að hann
hefði sængað með vændiskonu.
Havel veikur enn á ný
Vaclav Havel,
forseti Tékklands,
hefur þurft að af-
lýsa opinberum at-
höfnum næstu tvo
daga vegna bráða-
berkjubólgu, að því
er talsmaður forset-
ans greindi frá í
gær. Havel er rúmliggjandi heima
og gáfu læknar honum sýklalyf.
Havel hefur verið fremur heilsuveill
upp á síðkastið.
Trudeau kvaddur
Þúsundir syrgjenda, þar á meðal
Fidel Castro Kúbuforseti, gengu hjá
kistu Pierres Elliotts Trudeaus, fyrr-
um forsætisráðherra Kanada, sem var
sveipuð fána, í Montreal í gær.