Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2000, Side 24
Biógagnrýni
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000
I>V
Tilvera
■ LIZ GAMMON A NAUStiNU Liz
Gammon leikur fyrir matargesti
Naustsins öll kvöld.
■ MILES DOWLEY OG RÓMANTÍK-
!N Enski píanósnillingurinn Miles
Dowley slær vart feilnótu á Café
Romance. Ef þú ert í rómantískum
hugleiöingum þá er þetta eitthvaö
fyrir þig.
■ PALU Á PRIKI Palli, alias Sweet
Chilli, var ábyggilega skírður Páll en
þaö er ekki kúl þegar maður á aö
troöa uþþ á Priklnu a.k.a Da Stick, I
kvöld. En þaö er verst að þaö viröist
þjóna duttlungum dyravaröarins
ófríöa, alias Da ugly doorman hvort
menn eiga inngöngu vísa eöur ei. En
hann átti góða spretti síðasta laug-
ardag.
■ STEFNUMÓT UNDIRTÓNA Eftir
smásumarfri hefur göngu sína á ný
Stefnumót Undlrtóna. Pottþétt dag-
skrá á Gauknum í kvöld.
Klassík
■ TVILEIKUR I SALNUM i Salnum í
Kópavogi munu Peter Tompkins,
óbó, og Guöríður Sigurðardóttir, þí-
anó, flytja verk eftir Poulenc, Bozza,
Saint-Sáens, Britten, Vaughan-Willi-
ams og Oliver Kentish. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.Miðsala er opin virka
daga frá kl. 13.00-18.00 tónleika-
daga til kl. 20.00 og um helgar
klukkustund fyrir tónleika.
Fundir
■ BUDDAMUNKUR MEÐ FYRIR-
LESTUR Hfnn heiövirði Kelsang
Lodrö er enskur búddamunkur og
einn af reyndustu kennurum
' Kadampa-búddisma. Hann mun
halda kynningarfyrirlestur I dag um
Eight Steps to Happiness, nýjustu
bók Geshe Kelsang Gyatso, sem út-
skýrir hvernig nota má búddíska
heimspeki til aö þróa og viöhalda
djúþri innri ró og ánægju. Fyrirlestur-
inn verður kl. 20.00-21.30 í stofu
101 í Odda, Háskóla íslands. Aö-
gangseyrir er kr 1.000 en kr. 500
fyrir námsmenn og öryrkja.
■ HÁDEGISFUNDUR Hádegisfund-
ur veröur haldinn í Norræna húslnu
á vegum Sagnfræöingafélags ís-
lands í dag. Jón Ólafsson. heim-
spekingur og framkvæmdastjóri Hug-
v vlsindastofnunar, mun velta fyrir sér
hvaö stjórnmálasaga sé í erindi
sínu, „Hvernig stýra ríkjandi stjóm-
málahugmyndir sagnaritun?“ Fund-
urinn hefst kl. 12.05 og lýkur kl. 13.
Hann er opinn öllu áhugafólki um
sögu og menningu.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Kirkjusaga:
Vegkrossar og álagablettir
1 í f i fS
Samfok heldur
ársþing í kvöld
Árspng SAMFOKS verður
haldið f félagsmiðstöðirmi Fjörg-
yn í Foldaskóla í kvöld frá kl. 18
til 22. Á þinginu mimu Sesselja
Snævarr flytja erindi um aðal-
námskrána, Arthur Morthens
flytur erindi sem hann kallar
Sérúrræði - hvert stefnum við?
Að loknu matarhléi fjallar Haf-
steinn Karlsson um upplýsinga-
tækni og hið nýja Skólatorg. Að
erindum loknum gefst foreldrum
kostin- á að kynna sér málin bet-
ur og ræöa þau í hópum. Þingið
er opið öllum foreldrum grunn-
skólabama í Reykjavik og þátt-
taka þeim að kostnaðarlausu.
Krár
Ride with the Devil
Erindisleysa
★★ Það er súrt að horfa á Ride With
the Devil. Myndin ber vitni fantamikl-
um hæfileikum leikstjórans Ang Lee.
Hann er frábær sögumaður og getur
nánast látið söguna stöðvast um tima
en hleypt henni siðan óspjallaðri á
skeið aftur. Hann dregur smáar per-
sónur fáum öruggum dráttum svo
áhorfandinn þekkir þær. Og hann á í
engum vandræðum meö að setja sam-
an falleg atriði, dramatísk, sársauka-
fuH, glettin, tilfmninganæm - hvað-
eina. Samt er Ride With the Devil er-
indisleysa - bæði þeirra sem stóðu að
henni og okkar i salnum.
Sagan hefst þegar æskufélagamir
Jake Roedel (Tobey Maguire) og Jack
Bull Chiles (Skeet Ulrich) taka ákvörð-
un um að slást í lið með skæruliðum
Suðurríkjamanna í Kansas í upphafi
borgarastyrjaldarinnar i Bandaríkjun-
um. Hún rekur síðan hnignandi áhrif
hemaðarins á mannskepnuna og end-
ar með því að Jake kýs lífið, hjóna-
bandið og Kalifomíu; það sem hann
taldi sig vera að berjast fyrir er glatað
og hann á þann eina kost að byrja nýtt
líf. Kunnugleg saga í sjálfu sér.
Það sem er best gert í myndinni er
ef til vill megininntak hennar. Við sjá-
um forsendur útlagahópsins þróast frá
viðbrögðum við utanaðkomandi árás-
um yfir í skipulagðan skæruhemað
þar til hann festist í eins konar hefnd-
arlúpu þar sem grimmdin vex í tryllt-
um margfeldisstuðli. Loks em fymom
hugsjónadrengimir orðnir að úrhrök-
um sem sjá enga útkomuleið aðra en
ríða beint í flasið á óvinunum í von
um að þeir bindi enda á þetta helvíti
með heiðvirðri kúlu í hjartað.
Gallinn er hins vegar sá að þetta
gerist mest í bakgrunni. Höfundum
fmnst of vænt um þá drengi sem em í
forgrunni sögunnar til að hleypa svona
mannlegri hrömun að þeim. Þeir era
réttsýnir og trygglyndir - og svo fá-
dæma kurteisir og vandaðir að orðfæri
og framkomu aö það jaðrar við að það
hleypi myndinni upp í fáránleika. Þeir
æskufélagar og nánasti vinahópur
þeirra missir því af myndinni og
skyggja jafnframt svo á hana að áhorf-
andinn sér hana ekki heldur.
Leikarahópurinn er ekki eftirminni-
legur. Tobey Maguire, sem er svo geð-
ugur piltur að maður vill að hann leiki
vel, fer með hlutverk sögumanns í bók-
inni sem myndin er byggð á. Þetta er
maðurinn sem er íhugull áhorfandi
frekar en gerandi að atburðum sög-
unnar og stendur í lok hennar frammi
1 & \ * f\ 29. Mptwntoi - 12. októbar 2000
Kvikmyndahptíð
i Reykjavík
fyrir vali sem kristallar megininntak
hennar. Þessi persóna á vel heima í
bókum þar sem höfundur getur bæði
notað hana sem vitni og farveg fyrir
ályktanir en hún er alltaf jaftivand-
ræðaleg á hvíta tjaldinu. í fljótu bragði
man ég bara eftir einum leikara sem
tókst að gera svona sögumann að heilli
persónu; Allan Bates í Zorba. Tobey er
hér nýstiginn upp úr sömu rullu í
Cider House Rules og sýnir einnig hér
að hann er góður leikari sem á skilið
heillegri hlutverk. Hugsanlega losnar
hann undan því að vera geðþekk mál-
pípa höfúnda á næsta ári eða þvi
þamæsta þegar hann leikur Kónguló-
armanninn. Jeffrey Wright (Basquiat)
Rithöfundurinn og grúskarinn Ólaf-
ur H. Torfason sendi nýlega frá sér
bók sem nefnist Nokkrir íslandskross-
ar. Ólafur segir að á ferðalögum sín-
um um landið og erlendis hafi hann
oft velt fyrir sér örnefnum sem bera
orðið kross i sér.
Ólafur hefur áður gefið út bækurn-
ar Kaþólskur annáll íslands og Heim-
ildaskrá um Rómarkirkju á íslandi en
í henni eru gefnar upp heimildir um
dýrölinga, kirkjur, biskupa og fleira.
„í heimildaskránni er einn kafli sem
heitir Krossinn og segja má að ég hafi
skrifað heftið sem ég var að gefa út
núna í framhaldi af honum. Þegar
maður fer að rýna í söguna kemur
fljótlega í ljós að það hefur verið mik-
ið að krossum um allt land, bæði ut-
anhúss og innan og svo vora einnig
víða vegkrossar. Kirkjurnar áttu mik-
ið af krossum sem getið er um í mál-
dögum eða eignaskrám kirknanna.
Hver kirkja átti fimm til sex mismun-
andi krossa, sumir vora við altarið,
aðrir yfir kórdyrunum og enn aðrir
vora notaðir við skrúðgöngur. Al-
menningur notaði krossmarkið lika
mikið til vemdar og merkti verkfæri
eins og skóflur, orf og hrífur með
þeim. Krossmarkið var líka haft yfir
dyrum á íbúðar- og gripahúsum og
signingar vora líka mikið notaðar og
þær hafa varðveist allt fram á okkar
daga.“
Venjan hélt heföinni við
„Á ferðalögum mínum um Evrópu
hef ég oft séð vegkrossa og velt því
fyrir mér hvort gömlu vegkrossarnir
hér hafi ekki þjónað sama tilgangi og
þeir. Krossamir era oft hafðir við
hættulegar gönguleiðir, fjallvegi og
varasama slóða. Frágangurinn á er-
lendu krossimum er svipaður og hann
var hér. Krossinn var reistur og grjóti
hlaðið í kring til að styðja hann eins
og gert er við rafmagns- og síma-
staura í dag. Það er mikið af svona
hrúgum um allt land og kallast beina-
kemur einna best frá sínu í hlutverki
svarta mannsins, eins konar tákn-
myndar hliðarorsakar átakanna. Hann
nýtur þess að vera að mestu laus við
uppskrúfað málfar hvítu strákanna og
búningana sem minna á klæðnað
Allmans Brothers Band eða einhverr-
ar Suðurríkjahippasveitar frá sjöunda
áratugnum. Söngkonan Jewell leikur
einu kvenpersónuna sem markar spor
i söguna en tekst ekki að gera meira úr
henni en höfundunum; eins konar
neyðarútgang fyrir aðalpersónuna.
Og talandi um konur: Hvemig
stendur á því að höfundar þessa verks
vilja sýna okkur menn myrða með-
bræður sína i einhverri glórulausri
geggjun en sleppa því að nauðga kon-
unum? Og heiðra ávallt minningu
mæðra sinna og sýna ungum ekkjum
fágaða kokkteilboðakurteisi? Sýn
myndarinnar á konur og áhrif borg-
arastyijaldarinnar á þær era eitthvert
þrástagl gamalla striðssagna. Konum-
ar fá rétt aðeins að væla eitthvað þeg-
ar eiginmenn þeirra era drepnir og
senda síðan sonum sínum grátklökk
bréf á vígstöðvamar. Það sem situr í
huganum eftir Ride With the Devil er
spumingin: Hvers vegna var þessi
mynd gerð? Er þetta enn ein myndin
sem ekki er ætlað annað en að vera
gömul bók í-myndum fyrir þá sem
nenna ekki að lesa? En sú skýring fell-
ur þegar maður áttar sig á að bókin
var gefin út 1987 - ekki snemma á þess-
ari öld eða þeirri síðustu. Af hverju
þurfti Ang Lee að velja þessa bók af
öllum í heiminum? Getur góður Guð
ekki gefið honum skynbragð, inntak
og erindi sagna í jaftíríkum mæli og
hæfileika til að segja þær? Eða vilja og
kjark til að vinna með öðum handrits-
höfúndi en James Schamus.
Gunnar Smári Egilsson
Leikstjóri: Ang Lee. Handrit: James Schamus
eftir sögu Daníels Woodrell. Leikarar: Tobey
Maguire, Skeet Ulrich, Jeffrey Wright, Jewel,
Jonathan, Rhys-Meyers o.fl.
- mikiö af beinakerlingum um allt land.
kerlingar eða dysjar og ég imynda
mér að mikið af þeim séu gömul
krossastæði. Við vitum að krossarnir
vora viða og hrúgumar geta gefið vís-
bendingu um staðsetninguna. Það er
t.d. ein á Ferstikluhálsi í Hvalfirði og
önnur á Kaldrananesi á Ströndum.
Það er einnig merkilegt hvað það eru
oft spýtur í hrúgunum og ég tel það
vera leifar úr katólsku. Lúterstrúar-
menn létu fjarlægja krossana en venj-
an hélt hefðinni við og almenningur
hefur sett spýturnar í staðinn. Grjót-
hrúgan á Kaldrananesi er kölluð
kross og merkt þannig inn á kort. Það
era einnig mörg örnefni eins og kross-
hóll og kross innst í dölum áður en
menn leggja á fiallveg."
Rómveijar voru með Merkúrsaltari
við fjallvegi þannig að siðurinn er lík-
lega mjög gamall því Merkúr er fom
ferðamannaguð.
Það er vitað að menn höfðu krossa
eða lítil dýrðlingalíkneski við bæina
hjá sér og mig er farið að gruna að
það séu í mörgum tilfellum gömlu
álagablettirnir sem við þekkjum í dag.
Siðimir í kringum álagabletti eru
sennilega þeir sömu og við krossa-
stæðin í gamla daga,“ segir Ólafur að
lokum.
Ólafur hefur greinilega lagt mikla
vinnu í bókina Nokkrir íslandskross-
ar enda er hún bæði skemmtileg og
fróðleg og kærkomið innlegg í ís-
lenska kirkjusögu. -Kip
Olafur H. Torfason rithöfundur
Dysjar og álagablettir hugs-
anlega gómul krossastæði
„Ég hallast reyndar að því að sum-
ar dysjamar séu gömul krossastæði.
Þjóðsögumar í kringum staðina eru
oft alþýðuskýringar og geta verið al-
veg ferlega vitlausar. Það er t.d. grjót-
hrúga í Grindavík og þjóðsagan segir
að þar sé dysjaður Tyrki en þegar hún
var grafm upp fundust engin manna-
bein. Það hafa aftur á móti fundist
ýmsir smáhlutir, eins og tölur,
hófiaðrir og jafnvel smásteinar í og
við dysjamar. Þetta eru svipaðir mun-
ir og fólk leggur við vegkrossa erlend-
is. Dysjamar eru oft á miðri leið milli
áfangastaða eða þar sem útsýni er gott
til kirkjustaða."
Djöflarelð
gerist í upphafi borgarastyrjaldarinnar í Bandaríkjunum.
/
/