Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Page 5
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 I>V 5 Fréttir DV-MYND INGÓ Naglabíll raöuneytisins BMW-bifreiö utanríkisráðherra fyrir framan Stjórnarráöiö. Á innfelldu myndinni má glöggt sjá naglana í dekkjunum. Ráðherra á nagladekkjum Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra lætur aka sér um götur höfuð- borgarinnar á BMW-bifreið á nagla- dekkjum. Með því eru brotin lög og reglur sem kveða á um að óheimilt sé að aka á nagladekkjum fyrr en 1. nóvember. Bifreið sú sem hér um ræðir er i eigu utanríkisráðuneytisins, BMW 728 ia, árgerð 1996. Naglamir eru óslitnir og, að sögn vegfarenda, hvin í bifreiðinni þegar hún á leið hjá með ráðherrann í aftursætinu. -EIR Meiðyrðamál í Héraðsdómi Reykjavíkur: Yfi r tryggi ngatannlækni r stefnir tannlækni fatlaðra - sakaði yfirtryggingatannlækni um að vera haldinn fordómum gagnvart vangefnum --------unnnnr wnnai' iimiui1 mi «BHrvunennBr I tiaiiwiuðimi uawutH:- Sakar tryggingatanniækni um fordóma hwimi Urttnii'.ii rtpii'n v in . ÍB rtMtMii ItWii..- •Iirt' taminr l«im* hMMwt <m. tlrthl «Wbr nch'inilli twto. UwM kamiMr ÍIKltlIM 'Ttll-ICJ tiMifijll. 1*1 Sclr llimrir t«fm*r iiÁ ritl mrrl Mjjm mnMnMlin "ra aMtti HtW n»'tl fltanó'jlM i* 1#Vin» i* »iMit fjTii 91 tnmniin iUfcii i itvTrii cnUn.m Htiitftlliit irtel. ..rtó j+ ttMM iitn iri pT.i tm knnlfr h|3 N-imrti TÍIHHii KiWI suHa uuklmcum artur rn rr S9 twro.- i»*ir Onlip»r ittiiW'. .BftWtuí M i-ui »rtl IW*t rt » WMfi Mfc .v3 tii ffc fcrwH á l+Wira fcl timnfrtiiitiifur Imxta ' --------3r*BltM nir fcrrttn m n t rmlrMii rlirtrtM! ratijhmilur Brttillr Hrtfi l|i*ihHimt.f«ir to(lt»Wl Jrt |M mfmr i4»*R vifitimffl fl HOn lartrtiirlClWth fcll i«*rtMrtn tM itrtr'HMl tut itiU* Ihrrrtlrtnti a»i iUwnífa i L+ifasl fctM t» int UBRntn tmiifOni Inriinri trrStt Atr* <n nWllitir isntfmlur Vtm Meiðyrðamál Greinin í DV sem Reynir Jónsson stefnir Gunnari A. Þormar fyrir. Reynir Jónsson yfir- tryggingatannlæknir hef- ur stefnt Gunnari A. Þormar tannlækni fyrir meiðyrði. Forsaga máls- ins er sú að Gunnar hafði uppi ummæli um Reyni í viðtölum við DV og Stöð 2 vorið 1999 og aftur í bréfi til lögmanns Reynis snemma veturs 1999. í máli sínu sagði Gunnar að yfirtryggingatann- læknir væri „haldinn fordómum gagnvart vangefnum", að Reynir væri að „beina tannlækningum van- gefinna í steinaldarhorf', og að Tryggingastofnunin hefði hlunnfar- ið fjölda þroskaheftra einstaklinga um endurgreiðslur vegna mistúlkunar á lögum. Eins hélt Gunnar því fram að Reynir hefði ákveðið að ekki mætti gera við tennur fjölfatlaðra fyrir hærri upp- hæð en 30.000 á ári hverju, nema fá til þess sérstakt leyfi, og ýjaði að því að Reynir hefði „beitt gjaldskrá TFÍ og TR sér í hag til að öðlast óeðlilega háar tekjur“. Reynir vill láta dæma þessi ummæli dauð og ómerk og vitnar í stjórnarskrána í stefnu sinni, en þar stendur að setja megi skorður á tjáningarfrelsi manna til verndar mannorði annarra. „Ummæli stefnda eru rakalaus ósannindi, höfð í frammi annað- hvort gegn betri vitund eða að minnsta kosti af fullkomnu skeyt- ingarleysi um réttmæti þeirra,“ seg- ir í stefnunni. Auk þess vill Reynir fá 600.000 krónur í miskabætur, málskostnað greiddan og 400.000 krónur til þess að kosta birtingu dóms í málinu í þremur dagblöðum. Aðalmeðferð málsins verður í Héraðsdómi Reykjavíkur í febrúar 2001. -SMK Vladimir Ashkenazy og Þórunn, eiginkona hans: Vilja íslenska fánann á lystisnekkjuna — bíða svars undir breskum fána við strendur Afríku „Okkur hefur borist beiðni frá pí- anósnillingnum um skrásetningu snekkjunnar hér á landi en málið hefur ekki verið afgreitt," sagði Páll Vladimir Ashkenazy Mikiö I mun aö fá aö sigla undir íslenskum fána. Hjartarson, verkefnisstjóri hjá Sigl- ingastofnun, um erindi sem stofnun- inni hefur borist frá píanósnillingn- um Vladimir Ashkenazy og Þórunni eiginkonu hans, en Ashkenazy er sem kunnugt er íslenskur ríkisborg- ari. „Mér skilst að Ashkenazy sé mjög í mun að sigla undir íslenskum fána en hann verður nú að láta sér duga breskan fána þar sem hann er á snekkju sinni einhvers staðar und- an strönd Afríku,“ sagði PáU. Lystisnekkja Ashkenazys og Þór- unnar er, samkvæmt teikningum sem borist hafa Siglingastofnun, 64 fet að lengd og 18 fet að breidd. í snekkjunni eru svefnálma, setustofa, eldhús og tvö snyrtiherbergi. „Við göngum frá þessari umsókn innan skamms. Okkur virðist ekkert því tU fyrirstöðu að Ashkenazy fái að sigla undir íslenskum fána og verði þannig að ósk sinni,“ sagði Páll Hjartarson hjá Siglingastofnun. -EIR Baleno Wagon er rúmgóður og mjög vel búinn fjölskyldubíll. Nú bjóðum við enn veglegri fjórhjóladrifinn bíl, Wagon 4x4 Limited á 1.725.000 kr.! 12.699,- á mánuöi Dæmi um meðalafborgun miðað við 950.000 kr. útborgun (t.d. bíll tekinn upp í), í 84 mánuöi. $ SUZUKI //------- SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ laufásgötu 9, sími 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 5S5 15 50. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 22 30. Isafjörður: Bilagarður ehf., Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG bllakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Auk þess er í 4x4 Wagon Limited: • Leöurklætt stýri • Leöurklæddur gírstangarhnúður • Viðaráferð á tnælaborði . Álfelgur • Geislaspilari . Silsalistar . Þokuljós . Samlitir speglar . Fjarstýrö samlæsing SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 ÖO. www.suzukibilar.is Er kominn tími til aö kaupa nýjan og stæm ? ^öAsV-yldunnar? i.v V BALENO WAGON 4x4 Limited Staðalbúnaður i Baleno Wagon er m.a.: . ABS-hemlar . Vökvastýri • 2 loftpúðar . 16 ventla 96 bestafla vél . Þakbogar . Rafmagn í rúðum og speglum . Vindskeið • Styrktarbitar i hurðum • Samlitir stuöarar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.