Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
Fréttir
7
DV
________Sandkorn
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkorn®ff.is
Stjórnmálasamband rofið
Kristján
Þór Júlí-
usson,
bæjarstjóri
á Akur-
eyri, lét
þau boð út
ganga fyr-
ir nokkru að hann byði allar sveit-
arstjómir við Eyjaíjörð velkomnar
tii viðræðu um eina allsherjar sam-
einingu. Eitthvað mun Kristján Þór
uppskera öðmvísi en til var sáð
því undirtektir voru vægast sagt
dræmar. Talsverð samvinna hefur
verið með sveitarfélögunum á ýms-
um sviðum en talið er víst að bæj-
arstjóri sendi nágrönnum sínum
tóninn vegna þessa. Þá heyrist
hvíslað í pottum sundlaugarinnar
að girðingar frá „Ekki halló Akur-
eyrarhátíðinni" i sumar verði sett-
ar upp að nýju og tekið upp strangt
landamæraeftirlit. Einnig sé líklegt
að stjórnmálasamband verði rofið
við nágrannabyggðirnar...
Stjáni glottir
Og meira að
norðan. Kristján
Þór er sagður
nokkuð brattur
þrátt fyrir synj-
un nágrann-
anna um við-
ræður. Segir
sagan að ástæð-
an sé sú að ört
fjölgi nú á Ak-
ureyri þrátt fyrir allt tal um flótta
af landsbyggðinni. Til Akurcyrar
streymir helst fólk úr nágranna-
byggðunum. Sagt er að Kristján
Þór glotti því út í annað, neitun
nágrannanna um sameiningarvið-
ræður skipti engu máli. Þegnar
sveitarfélaga við Eyjafjörð verði
hvort sem er allir fluttir inn á Ak-
ureyri áður en langt um líður...
Líka pappakennarar
Pappalöggurn-
ar sem settar
hafa verið upp
á Reykjanes-
braut í nýju
mnferðaátaki
Sólveigar Pét-
ursdóttur
dómsmálaráð-
herra eru
orðnar aðhlát-
ursefni um all-
ar sveitir. Sagt
er að þetta
slái út alla
gömlu Hafnarfjarðarbrandarana. í
ofanálag er þessum pappírspésum
stolið í löngum bunum. Ólyginn
heimildarmaður segir að þar séu
starfsmenn menntamálaráðuneytis
á ferð. Ætlunin muni vera að stæla
hugmynd Sólveigar og búa til
pappakennara sem komið verður
fyrir í framhaldsskólunum. Þannig
sé hægt að fækka kennurum til
mur.a, enda eru þeir sífellt að rífa
kjaft og vilja svo laun í þokkabót...
Steini Páls á Moggann?
I Pressunni í
strik.is segir af
ekki berist enr
teikn úr Morg
unblaðshöllinni
um hver taki
við sem ritstjóri
af Matthíasi
Johannessen
um áramótin.
Ýmsir hafa ver-
ið nefndir til sögunnar, allt frá
Ólafi Jóhanni Ólafssyni til Þor-
steins Pálssonar. Segir Pressan að
nú hallist kunnugir einna helst að
því að það verði - eftir allt saman
- hinn geðþekki sendiherra í Lund-
únum sem verði ritstjóri við hlið
Styrmis Gunnarssonar. Þeir
deildu löngum hart um sjávarút-
vegsmál en nú er að skapast
þverpólitísk sátt um þau við-
kvæmu mál svo tæpast þyrftu þeir
að byrja hvem dag á því að þrasa
um efni forystugreinarinnar...
^ Rústir frá 11. öld grafnar upp í Norðfirði:
Ottast að vekja upp við-
sjárverðan klerk
DV, NESKAUPSTAD: ~
Nú hafa farið fram fornleifarann-
sóknir á Ásmundarstöðum í Norð-
flrði sem er forn kirkjustaður innan
við Kirkjuból í Norðfjarðarsveit.
Þar eru mjög greinilegar fornar
rústir, túngarður og bæjarrústir, og
hafa þær Guðný Zoéga, minjavörð-
ur Austurlands, og Mjöll Snæsdóttir
fornleifafræðingur séð um verkið.
Þarna eru taldar vera rústir frá 11.
öld eða frá frumkristni.
Á Ásmundarstöðum átti sér stað
ein rammasta draugasaga íslenskra
sagna og er þá mikið sagt. Maður
einn varð ástfanginn af prestsdóttur
en fékk ekki. Hann hét því að kom-
ast yfir stúlkuna dauður eða lifandi.
Síðan dó maðurinn og komst yfir
hana dauður og gerði henni harn.
Barn þetta lærði til prests og fékk
brauð á Ásmundarstöðum og átti
kirkjan að sökkva með manni og
mús þegar prestur blessaði yfir
söfnuðinum. Er menn komust að at-
ferli þessu var ungur ofurhugi feng-
inn til að reka prestinn í gegn með
sveðju. Varð þá ekkert eftir annað
en herðablaðið og sjö blóðdropar.
Eftir þennan atburð var kirkjan
flutt að Skorrastað, eftir að þar
hafði heyrst klukknahringing.
Núna óttast sumir að við frekari
uppgröft kunni menn að vekja upp
viðsjárverðan klerk.
-KAJ
á® W'
íslenskt viðskiptalif
- 500 stærstu
%x %%
* <■
§ | m
flíÍHS
■ B
ii
|S...
i m
Geisladiskur með ítarlegum
upplýsingum um nærrí
600 islensk fyrirtæki.
Upplýsingar eru m.a. um veltu,
afkomu, efnahag, stjórn
og lykilstarfsmenn,
upplýsingar um starfsemi og fréttir af
Viðskiptavefnum á Vísir.is.
íslenskt viðskiptaiif - 500 stærstu er
samstarfsverkefni
Viðskiptablaðsins og
Lánstrausts hf.
Verð 4.950 kr.
Tekið er á móti pöntunum
í símá 5116622,
í fax 5116692 og
á netfangið mottaka@vb.is.