Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2000, Síða 11
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
E»-V
Fréttir
Lerki og ösp eiga ekki samleið.
Ryðsveppura ospum
um allan Selfossbæ
- tilraunir til að hefta útbreiðslu sveppsins hafa engan árangur borið.
DV, SELFOSSI:
„Það er búin að vera ör útbreiðsla
á ryðsveppnum á öspinni í sumar,
hann er komin út um allan bæ og
þær aðgerðir sem við reyndum gegn
honum hafa ekki skilað neinum ár-
angri,“ sagði Snorri, garðyrkjustjóri
Árborgar, við DV. Ryðsveppsins
varð fyrst vart á öspum í Árborg í
fyrrasumar. Sveppurinn sást fyrst í
Hveragerði sumarið áður en hans
var vart á Selfossi. Nú hefur ryð-
sveppsins að auki orðið vart í Þor-
lákshöfn og Grímsnesi, svo ljóst er
að útbreiðsla hans er enn talsverð.
í vor var gerð tilraun í samvinnu
við RALA með að úða tiltekinn hóp
af lerkitrjám á Selfossi til að hefta
útbreiðslu ryðsveppsins. „Við úðuð-
um lerkitré í hálfum bænum til að
reyna að brjótast inn i feril ryð-
sveppsins því hann fer af asparlauf-
unum á vorin yfir á lerkið og þaðan
aftur á öspina yfir sumartímann en
þessi aðgerð virðist því miður ekki
hafa borið árangur,“ sagði Snorri.
Ösp hefur verið vinsæl í garð-
rækt Selfyssinga og er ríkjandi trjá-
tegund í bænum. Snorri segir að á
Selfossi séu milli 6 og 8000 aspir,
hins vegar sé miklu minna um lerki
á Selfossi eða um 700 tré. Garðrækt-
endur og skógræktarmenn hafa litið
til útbreiðslu ryðsveppsins með
ótta. Ösp er mikið notuð í skógrækt
i uppsveitum Ámessýslu og er ein
þeirra trjátegunda sem nota á í Suð-
urlandsskógaverkefninu.
„Það er enn ekki vitað hver áhrif
ryðsveppurinn hefur á aspirnar,
hvort hann hefur til dæmis þau
áhrif á trén að þau ná ekki að klára
undirbúningsstarf sitt fyrir vetur-
inn. Það getur haft þau áhrif að þau
kali eða hreinlega hafi veturinn
ekki af. Nú getum við ekki annað en
beðið til næsta vors til að sjá hversu
mikinn skaðvald um er að ræða
þegar við sjáum hvernig trén koma
undan vetrinum," sagði Snorri. Ef
niðurstaða vetrarins verður sú að
þetta sé skaðvaldur á trjánum er
Verkfræðingar, tæknifræðingar, hönnuðir!
.., ...... , .. smmmmæss ~
..þio getio sott honnunarrornt ___ 1
fyrir múrfestingar á heimasíðu
okkar sem er www.isol.is
jgsr/r
Ártnúii 17, lOB Reykjavik
sími: 533 1334 fax.- 5GB 0499
__
WWW.ISOl.IS
DV-MYNDIR NJORÐUR HELGASON
Asparlauf sýkt af ryðsveppi.
ljóst að aðgerða verður þörf til að
reyna að koma í veg fyrir að hann
eyði miklum hluta stærstu trjáa Sel-
fyssinga. „Ef svo reynist bíða okkar
veruleg vandamál, hvað getum við
gert? Hjá okkur eru aspir margar og
háar. Það er ekki útilokað að hægt
sé að úða trén en það er ekki hlaup-
ið að því þegar um svona stór tré er
að ræða. En lífsferill þessa svepps
er háður því að lerki og aspir standi
saman og þess vegna verðum við að
velta fyrir okkur hvort þessar teg-
undir eigi yfir höfuð samleið ef um
skaðvald verður að ræða,“ sagði
Snorri.
-NH
Formaður Landssambands kúabænda:
Menn orðnir
óþolinmóðir
- að bíða eftir ákvörðun landbúnaðarráðherra
DV. SELFOSSI:
„Við vorum þarna 20 til
30 aðilar sem landbúnaðar-
ráðuneytið taldi að hefðu
eitthvað fram að færa sér til
aðstoðar við úrlausn verk-
efnisins varðandi umsókn-
ina um NNF-fósturvísana,“
sagði Þórólfur Sveinsson,
formaður Landssambands
kúabænda, við DV.
Landbúnaðarráðuneytið
boðaði til umræðufundar á
Selfossi í fyrradag um til-
raunir með norska kúafóst-
urvísa með fulltrúum landbúnaðar-
ins, vísindamönnum og fulltrúum
þingmanna. Viða er farið að gæta
óþolinmæði varðandi niðurstöðu
málsins og menn eru farnir að bíða
þess með óþreyju að landbúnaðar-
ráðherra komi undan feldinum og
tilkynni hvað hann hefur hugsað
þar frá því á miðju sumri. Þórólfur
sagði að á aðalfundi Landssam-
bands kúabænda á Selfossi i sumar
hefði það komið fram að ráðuneyt-
inu hefði ekki unnist tími til að
kynna sér öll gögn sem hefðu komið
fram varðandi málið. Þau gögn
hefðu verið til umfjöllunar á fundin-
um i gær. Þórólfur segir að ekki eigi
Eldhúsið komið
heim og saman
fyrir jól
Frá fundi kúabænda meö
landbúnaðarráöherra á Selfossi.
að þurfa að vefjast lengi enn fyrir
mönnum að taka ákvörðun í mál-
inu. „Ég er reyndar búinn að vera
að segja það dálítið lengi, eins og ég
sagði í ágúst, að nú væri þetta að-
eins spurning um úrvinnsluna, ég
er enn þeirrar skoðunar. Guðni
lýsti því yfir í ágúst að hann tæki
þessa ákvörðun í haust og hann ít-
rekaði það á fundinum í gær. Miðað
við hans eigin yfirlýsingar hlýtur
að fara að styttast i að hann ljúki
málinu. Nú eru fjallatoppar farnir
að hvitna og er það ekki merki um
haustið," sagði Þórólfur Sveinsson,
formaður Landssambands kúa-
bænda. -NH
FJÖLBREYTT ÚRVAL - STUTTUR
AFGREIÐSLUTÍMI
Úrval HTH-innréttinganna er mjög fjölbreytt, þar
sem útfærslur geta verið margvíslegar.
Afgreiðslutími á HTH-innréttingum erfjórar vikur,
en getur farið í sex vikur ef um sérsmíði er að
ræða.
ÖLL TÆKI í ELDHÚSIÐ
Auk eldhúsinnréttinga er boðið upp á öll
tæki, sem þarf í nútímaeldhús, svo sem
margvísleg eldunartæki, viftur, háfa,
kæliskápa, frystiskápa, vaska,
blöndunartæki, Ijós o.fl. Ef raftækin eru
keypt með eldhúsinnréttingunni, bjóðast
þau með 20% afslætti.
HÖNNUN OG RÁÐGJÖF
Við veitum fólki ráðgjöf og leggjum fram hugmyndir
um hvernig best er að haga innréttingunni, þar
sem þarfir fjölskyldunnar eru hafðar í fyrirrúmi.
Líttu inn í glæsilegan sýningarsal að
Lágmúla 8, 3 hæð og kynntu þér málið.
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
u i ru i hm i —•j.ii.Trfíjæ