Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
Fréttir
Nýr björgunarbúnaður brást þegar Ingimundur gamli HU-65 fórst:
Sleppibúnaður reyndist
hálfgerð dauðagildra
- og björgunarbáturinn kom aldrei upp, segir vélstjórinn í einkaviðtali við DV
DV-MYND BIRGIR ÁRNASON
Sveinn Garöarson stígur á land á Skagaströnd
Honum var bjargaö ásamt félaga sínum um borð í Sæbjörgu ST-7.
„Hann kora aldrei upp, stjómborðs-
báturinn. Það vom ekki nema tíu eða
tólf dagar frá þvi endanlega var gengið
írá nýjum sleppibúnaði samkvæmt
kröfum Siglingamálastofhunar," segir
Sveinn Garðarsson, vélstjóri á Ingi-
mundi gamla HU-65 sem sökk í blíð-
skaparveöri í Húnaílóa þann 8. októ-
ber. „Við losuðum sjálfir bát úr fest-
ingum uppi á stýrishúsi."
Sjóprófum og rannsókn á sjóslysinu
þegar Ingimundur gamli sökk á
Húnaflóa 8. október er ekki lokið og
ekki heíúr geflð á sjó til að kanna flak-
ið með neðansjávarmyndavél. Bátur-
inn liggur nú á 116 faðma dýpi í mynni
Húnaflóa. Þegar báturinn sökk voru
aöeins liðnar um tvær vikur frá því
nýr og að því er menn héldu „ömgg-
ari“ sleppibúnaður björgunarbáta var
settur um borð í skipið. Sá búnaður
virkaði ekki og tveir skipverjar björg-
uðust í bát sem þeir losuðu sjálfir við
illan leik af brúarþakinu.
Einn maður af þrem í áhöfn fórst í
slysinu, Friðrik Þór Friðriksson skip-
stjóri, og leit að honum hefur ekki bor-
ið árangur. Tveimur
skipverjanna, Sveini
Garðarssyni vélstjóra
og Haraldi Friðriki
Arasyni, bamabami
skipstjórans, tókst að
komast i flotgalla og í
björgunarbát og var
þeim síðan bjargað
um borð i Sæbjörgu
ST-7 sem var á veiðum
á sömu slóðum. Skip-
stjórinn komst aldrei í
flotgalla.
- Má þá rekja
manntjón til þess að
báturinn losnaði ekki?
„Það má alveg segja það. Ef hann
hefði verið til staðar er ekki útilokað
að Friðrik hefði komist í hann.
Menn treysta auðvitað á þetta og
Frá Ólafsvík.
Ólafsvík:
Hús skemmdist
mikið í eldi
Eldur kom upp í norðurenda par-
húss við Sandholt í Ólafsvík um ellefu-
leytið í gærmorgun og skemmdist hús-
iö mikið í eldinum. Ekkert fólk var
innandyra þegar eldurinn kom upp og
urðu engin slys á fólki. Nýr eigandi
hússins, sem er frá því um miðbik ald-
arinnar, hefúr verið að láta gera húsið
upp og ætlaði sér að flytja inn i það á
næstu vikum. Fyrr um morguninn
hafði maður verið að sjóða saman rör
í miðstöðvarofni í húsinu og er talið
líklegt að eldurinn hafi kviknað út frá
því. Lögreglan er með málið í rann-
sókn. -SMK
Búðardalur:
Jeppi ónýtur eftir
veltu
Ökumaður jeppa missti stjóm á bíl
sínum í lausamöl rétt norðan við Búð-
ardal á fjórða tímanum á mánudag,
með þeim afleiðingum að bíllinn valt.
Tvennt var í bOnum og var fólkið með
bílbeltin spennt. Fólkið meiddist lítið
en bíllinn er ónýtur. -SMK
það er hálfgerð dauðagildra ef sleppi-
búnaðurinn virkar ekki.
Þetta gerðist, að ég tel, á innan við
tíu mínútum frá því við urðum fyrst
varir við að eitthvað væri að. Annars
gerir maður sér ekki vel grein fyrir
tímanum en ég held að það hafl ekki
verið lengri tími þar til báturinn var
farinn," segir Sveinn Garðarsson vél-
stjóri.
Gúmbáturinn dróst niöur
„Þá var líflínan í hinum bátnum það
sterk að hann dróst niður með skip-
inu. Ég sat á stjómborðssíðunni og var
ekki almennilega kominn í flotgallann
þegar báturinn fór niður. Gúmbátur-
inn fór á bólakaf og hvarf áður en
hann slitnaði frá. Síðan skaut honum
upp en hann skutlaðist dálítið frá. Þá
var ekkert í honum, hvorki austurs-
trog né árarbleðill. Við urðum aldrei
varir við það í brakinu en allir aðrir
hlutir vora í gúmbátnum sem bundnir
vora niður. Ég tók umbúðimar utan af
loftdælunni og jós úr honum,“ segir
Sveinn og fljótlega eftir þetta kom Sæ-
björg frá Hólmavík á staðinn.
Sveinn segir að þegar þetta gerðist
hafi félagar hans báðir verið komnir í
sjóinn. Haraldur gat synt að gúmbátn-
um og komist um borð. Hann var þá
um 50 til 60 metra frá Sveini sem
einnig tókst að svamla að björgunar-
bátnum.
„Flotgailinn er algjört lykilatriði til
að menn komist af. Menn eiga að byrja
á því að fara í hann áður en nokkuð
Vitundarvakning 2000, nýtt þver-
faglegt átaksverkefni með það
markmið að hefla skipulegar for-
varnir gegn algengum sjúkdómum í
meltingarvegi, var kynnt á frétta-
mannafundi í gær í Þjóðmenningar-
húsinu. Það er Félag sérfræðinga í
meltingarsjúkdómum(FSM) sem
hefur undirbúið hinn fræðilega þátt
fræðsluátaksins i samráöi við
heilsugæslulækna, skurðlækna,
hjúkrunarfræðinga og fleiri. Fyrsta
verkefni átaksins er vélindabak-
flæði og mun það standa yfir til 15.
nóvember næstkomandi.
Meltingarlæknamir Ásgeir Theo-
dórs og Ásgeir Böðvarsson kynntu
verkefnið fyrir hönd FSM og í máli
þeirra kom fram að samkvæmt
nýrri athugun hafa 48,5 prósent ís-
lendinga einkenni bakflæðis árlega
og flórðungur einu sinni í mánuði
eða oftar. Þeir flölluðu einnig um
einkenni sjúkdómsins en nábítur
(súrbragð í munni) og brjóstsviði
(hita- eða brunatilfinning undir
bringubeini) eru algengustu ein-
kenni bakflæðis. Því fylgja oft ýmis
önnur einkenni og er sjúkdómurinn
annað er gert. Maður hefur aldrei far-
ið í flotgalla fyrr en þetta gerðist. Fyr-
ir rest komst ég í gallann þó ég hafl
ekki verið búinn að reima honum að
mér og blotnaði því eitthvað - en gall-
inn skipti sköpum.“
Lestin fúll af sjó
- Hafa menn eitthvað getað áttað sig
á því af hveiju báturinn sökk?
„Nei, við voram að toga en það er
ekki hægt að láta sér detta annað í hug
en að hann hafl opnað sig einhvers
staðar. Það var enginn sjór frammi í
og enginn aftur í. Það var sáralítill sjór
í vélarrúminu, rétt byijað að ausa upp
á öxulinn. Ég hélt að botnstykkið hefði
farið en það var ekki því það vora
bæði höfuðlínumælir og dýptarmælir
irrni. Lestin var hins vegar orðin full af
sjó. Hann byijaði að leggjast á bak-
borðshliðina, þá slökkti ég á sjálfstýr-
stundum vandgreindur við fyrstu
skoðun. Sjúkdómurinn getur einnig
leitt til alvarlegra sjúkdóma, eins og
krabbameins í vélinda. Þrátt fyrir
að bakflæði sé einn algengasti kvilli
sem sem hrjáir landsmenn er al-
menningur illa upplýstur um sjúk-
dóminn og þær meðferðir sem boðið
er upp á við honum.
Markmiðið með átakinu er að gera
fólk meðvitað um einkenni og afleið-
ingar sjúkdómsins og hvefla það til að
ingunni og beygði í stjómborð, þá rétti
hann sig af um stund. Síðan datt hann
aftur og þá mikið lengra. Hann var þá
á hliðinni og við héldum að honum
myndi hvolfa. Þá rétti hann sig við aft-
ur og datt niður að aftan. Líklega hef-
ur þá sprungiö þil eða plata á keðju-
kassa aftur í lest. Þetta gerðist mjög
snöggt, hann kastaðist til, datt niður
að aftan og hvarf.“
Við gáfum lögreglunni skýrslu. Það
kom líka maður frá rannsóknanefnd
sjóslysa með spumingar sem ég svar-
aði. Ég bað um að fá afrit af skýrslunni
en hann neitaði mér um það og reif af-
ritið í tætlur fyrir framan mig.“ sagði
Sveinn Garðarsson vélstjóri. Þetta var
þriðji túr hans með nýjum eiganda en
áður hafði hann verið á bátnum á skel
og segir að hann hafl verið mjög góður
sjóbátur. -HKr.
leita sér aðstoðar við honum og losna
þannig við vanlíðan og áhættu. Með-
ferðin getur verið allt frá einfoldum
breytingum á lifsháttum, til að mynda
varðandi mataræði, en sumir þurfa á
læknishjálp að halda. Hún getur verið
fólgin í lyflameðferð eða skurðaðgerð.
Vitundarvaking 2000 er framlag ís-
lands í flölþjóðlegu átaki samtaka evr-
ópskra meltingarsérfræðinga til að efla
almenna vitund um sjúkdóma, ein-
kenni þeirra og meðferð. -MA
Jafntefli
í gær tefldu
Kasparov og
Kramnik sjöttu ein-
vígisskák sína.
Kramnik var með
frumkvæðið en eftir
ónákvæman leik hjá
hans náði Kasparov
jafntefli. - Bls. 49.
Hættu við að hætta
Fimmtán mjólkurfræðingar sem
sögðu upp hjá Mjólkursamlagi Kaupfé-
lags Eyfirðinga á Akureyri i ágúst hafa
dregið uppsagnir sínar til baka. - RÚV
segir frá.
Vatnajökull rýrnaði
Bráðnun á Vatnajökli var mjög mik-
il á sumrinu sem er að liða og hefúr
bráðnun á norðanverðum jöklinum
ekki mælst meiri frá því mælingar
hófust árið 1991. - Mbl. segir frá.
KEA selur 60% í Sjöfn
Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri
hefur selt 60% hlut í Efhaverksmiðj-
unnni Sjöfn en áður átti KEA 100%
hlut í fyrirtækinu. Salan var tilkynnt
starfsfólki á fúndi i gær og jafhframt
að Baldur Guðnason, framkvæmda-
sflóri Samskipa í Hamborg, væri hinn
nýi kaupandi. - Dagur segir frá.
Innfjarðarækjuveiðin bönnuð
Engin inntjarðarækjuveiði verður
leyfð fyrir Norðurlandi í ár ef sjávarút-
vegsráðuneytið fer að tillögu Hafró
sem byggist á niðurstöðum rannsókn-
arleiðangurs Drafnar á Húnaflóa,
Skagafirði, Skjálfanda og öxarfirði. -
Dagur segir frá.
SáHtæðiaðstoð
Tilraun sem gerð var við sýslu-
mannsembættið í Reykjavik á þessu
ári, þ.e. að bjóða foreldrum í umgengn-
isdeilu vegna bama viðtöl hjá sálfræð-
ingum, gaf miklu betri raun en reikn-
að var með. - RÚV segir frá.
Davíð í Kanada
Opinber heimsókn
Daviðs Oddssonar
forsætisráðherra og
Ástriðar Thoraren-
sen, eiginkonu hans,
til Kanada hefst í
dag, en í gær var
hann viðstaddur há-
tíðarhöld vegna
landafúndaafmælisins í Minneapolis í
Bandaríkjunum. - Mbl. segir frá.
Aðför gegn stéttarfélögum
Svo virðist sem þróunin hjá mörg-
um flármálafyrirtækjum sé að þrýsta
starfsmönnum sínum til að vera ekki í
stéttarfélögum. Friðbert Traustason,
formaður Sambands íslenskra banka-
manna, segir aö þetta sé hrein og klár
aðfór að stéttarfélögum og lögbrot. -
Dagur segir frá.
Biskup biðjist afsökunar
Prófasturinn á
Kjalamesi telur að
biskup íslands eigi
að biðja fyrrver-
andi sóknarprest í
Holti í Önundar-
firði afsökunar.
Hann telur að bisk-
up hafi auðmýkt
prestinn og ekki
farið að lögum og reglum kirkjunnar. -
RÚV segir frá.
ísland í forystu
Á aðalfundi Ferðamálaráðs Norður-
landa, sem haldinn var í Kaupmanna-
höfn 12. október sl„ tók ísland við for-
mennsku í ráðinu í fyrsta sinn. - Mbl-
segir frá.
Dýrt fræðihús
Náttúrufræðihúsið í Vatnsmýrinni
verður 400 milljónum króna dýrara en
áætlað var. Formaður bygginganefnd-
ar Háskóla íslands segir skýringuna að
stórum hluta þenslu á byggingamark-
aði. - RÚV segir frá.
-HKr.
DV-MYND JÓSEF STEFÁNSSON
Ingimundur gamli
Skipið var 103 brúttólestir aö stærð og sökk í
Húnaflóa 8. október.
Vitundarvakning 2000:
Þverfaglegt átaksverkefni
- vélindaflæöi fyrsta verkefnið
DV-MYND PJETUR
Timamótaátak
Nýtt þverfaglegt átaksverkefni með þaö markmið að hefja skipulegar forvarn-
irgegn algengum sjúkdómum í mettingarvegi var kynnt á fréttamannafundi í
gær en fyrsta verkefniö er vélindabakflæði.