Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
IOV
Fréttir
Stríðið í Frjálslynda flokknum:
Þessi maður þarf að
leita sér lækninga
- segir Sverrir Hermannsson um fyrrverandi varaformann sinn
„Þessi maður þarf að leita sér
lækninga," sagði Sverrir Her-
mannsson, formaður Frjálslynda
flokksins, eftir að hafa lesið frétt
þess efnis i DV í gær að flokkur
hans hefði staðið að baki ófræging-
arherferð gegn Framsóknarflokkn-
um fyrir síðustu kosningar. Gunn-
ar Ingi Gunnarsson, læknir og
fyrrverandi varaformaður Sverris,
staðhæfir að Valdimar Jóhannes-
son hafi látið prenta frægan
„óhróðursbækling" um Framsókn-
arflokkinn og kostað til þess 300
þúsund krónum. Hafi þetta verið
gert með velþóknun og samþykki
Sverris sem á móti hafi lofað að
Garðabær:
Okeypis fartölvur
handa öllum
kennurum
DV. GARDABÆ:
Garðabær undirritar í dag samning
við EJS um kaup á 119 fartölvum fyrir
skólastjómendur og kennara í grunn-
skólum Garðabæjar. Fyrstu tölvumar
verða afhentar skólastjómendum og
fulltrúum kennara við athöfn í Garða-
skóla í dag þar sem Ingimundur Sigur-
pálsson bæjarstjóri og Olgeir Krist-
jánsson, forstjóri EJS, kynna samning-
inn. Stefnt er að því að allir kennarar
fái tölvu afhenta á næstu dögum.
Jafnframt hafa netþjónar og lagnir í
skólunum verið endumýjuð til að auð-
velda aðgang að Netinu og tryggja
hraðari gagnaflutning, samkvæmt
samningnum við EJS.
Með tölvukaupunum vill Garðabær
auðvelda kennurum að nýta sér upp-
lýsingatækni i starfi og um leið er stig-
ið fýrsta skrefið að því að mæta aukn-
um áherslum í aðalnámskrá grunn-
skóla um notkun tölvu- og upplýsinga-
tækni í skólastarfi. Tölvukaupin vora
samþykkt á fundi bæjarráðs i vor þar
sem einnig var ákveðið að ráða
kennsluráðgjafa í tölvu- og upplýsinga-
tækni og tölvuumsjónarmann í hvem
grunnskóla. Þá var ákveðið að skipu-
leggja 20 kennslustunda endurmennt-
unamámskeið fyrir kennara í notkun
tölvu- og upplýsingatækni í námi og
kennslu. -DVÓ
endurgreiða
Valdimar prent-
kostnaðinn. Átti
að greiða Valdi-
mar útlagðan
kostnað vegna
prentunarinnar
úr sjóðum
flokksins undir
Gunnar Ingi ÞvI yfirskini að
Gunnarsson um væri að ræða
Veikur læknir aö styrk vegna
mati Sverris. málareksturs
““””Valdimars fyrir
Hæstarétti í
kvótamálum.
Gunnar Ingi Gunnarsson sagði af
sér varaformennsku í Frjálslynda
flokknum í kjölfar fundar sem hann
átti með Sverri Hermannssyni um
miðjan síðasta mánuð. Að sögn
Gunnars Inga tjáði Sverrir honum
þá að sjálfur hygðist hann láta af
þingmennsku sökum aldurs og
óskaði eftir því að dóttir sín og
Gunnar Ingi skiptu með sér þing-
setu til jafns. Að auki á Sverrir að
hafa lagt áherslu á að Gunnar Ingi
gæfi eftir þingfararkaup sitt þá
mánuði sem þing ekki sæti og
UV-MYNL) (iVA
„Tómt rugl, tómt rugl“
Sverrir Hermannsson les um átökin í flokki sínum í DV í gær.
rynnu þeir peningar beint í flokks-
sjóð Frjálslynda flokksins. Um þetta
segir Sverrir Hermannsson: „Tómt
rugl, tómt rugl. Það var einhver bú-
inn að koma því inn hjá aumingja
lækninum að ég þyrfti að hætta
vegna aldurs en það er af og frá. Ég
er ekki að hætta.“ -EIR
Þekktir viðskiptajöfrar:
Stofna saman nýja
ferðaskrifstofu
Ómar Kristjánsson,
fyrrum forstjóri Flug-
stöðvar Leifs Eirikssonar,
og Jóhann Óli Guðmunds-
son, eigandi Securitas, eru
í fararbroddi nokkurra
fjárfesta sem hyggjast
stofna nýja ferðaskrif-
stofu. Goði Sveinsson,
fyrrum markaðsstjóri Úr- Omar
vals-Útsýnar, hefur verið Kristjánsson
fjárfestunum innan hand-
ar varðandi ráðgjöf og staðfesti
hann við DV að undirbúnings-
vmna vegna
stofnunar ferða-
skrifstofunnar
væri í gangi.
Ómar Krist-
jánsson var
staddur erlendis
er DV hafði sam-
hand við hann í
gær, að öllum
líkindum að
semja við væntanlega
viðskiptavini nýrrar ferða-
skristofu og Jóhann Óli Guð-
Jóhann Öli
Guömundsson
mundsson var í London
þar sem hann hefur verið
búsetttur undanfarin ár
og stundað viðskipti af
ýmsum toga.
Undirbúningsvinna
mun vera langt komin en
Ómar og Jóhann Óli
munu ætla sér stóran
hlut af íslenska ferða-
markaðnum og ekki láta
sér nægja hefðbundnar sumarleyf-
isferðir landsmanna.
-EIR
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Barn sent
úr landi
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði í síðustu viku að senda
tveggja ára gamalt stúlkubarn aftur
til síns heimalands, Noregs, en móð-
ir þess kom með barnið til íslands í
maí síðastliðinum án þess að hafa
samþykki bamföður síns fyrir ferð-
inni. Ef barnið kemur ekki til Nor-
egs á næstu þremur mánuðum er
foðurnum heimilt að fá bamið tekið
úr forsjá móðurinnar.
Foreldrarnir hafa sameiginlegan
forræðisrétt yfir telpunni. Móðirin
og barnið eru danskir ríkisborgarar
en móðuramma telpunnar býr á ís-
landi. Faðir barnsins er norskur
ríkisborgari og hafa foreldrarnir
sameiginlegt forræði yfir telpunni.
Móðirin yfirgaf sambýlismann sinn
í vor og flutti með bamið til íslands
án vitundar barnsföður síns en
norsk lög banna slíkar ferðir þegar
foreldrar hafa sameiginlegan for-
ræðisrétt yfir barni sínu.
Málið heyrir undir alþjóðlegan
samning sem ísland og Noregur,
ásamt fleiri löndum, eru aðilar að
og fjallar um lög um viðurkenningu
og fullnustu erlendra ákvarðana um
forsjá barna, afhendingu brottnum-
inna bama og fleira.
Forræðismál telpunnar verður
væntanlega tekið fyrir í Noregi eftir
að barnið er komið þangað og þarf
barnið að vera í Noregi þar til úr-
skurðað hefur verið hvort foreldrið
fær forræði yfir því. -SMK
Mótel Venus.
Borgarnes:
Maður datt
aftan úr bíl
Kalla þurfti á lækni aðfaranótt
sunnudagsins að Mótel Venusi í
Borgarnesi þar sem maður, sem
hafði verið að hanga aftan í bíl á
ferð, missti takið og datt. Bíllinn
var að fara frá veitingastaðnum þeg-
ar maðurinn ákvað að fá sér far
með honum á þennan hátt. Maður-
inn var vankaður eftir atvikið og
kom læknir og skoðaði hann. Að
skoðun lokinni fékk maðurinn að
fara heim þar sem hann reyndist
ekki alvarlega meiddur. Hann er
grunaöur um ölvun. -SMK
Veöríó í Ikvöld
Æ/?
Austlæg átt í flestum landshlutum
Norðaustan 10 til 15 m/s á Vestfjörðum.
Rigning í fyrstu en síöan skúrir. Austlæg átt 5
til 10 m/s í öörum landshlutum. Skúrir um
sunnan- og austanvert landið en þurrt á
Noröur- og Vesturlandi.
Sólarlag í kvöld
Sólarupprás á morgun
Sí°isflóð
Árdegisflóö á morgun
17.57
08.31
21.51
10.22
17.35
07.27
02.24
02.55
Skýrfngar á veöuvtállaiiun
^'*~-.VINDÁTT -Þú *—Hm -%''h
-10°
^VVINDSTYRKUR V-onor HHÐSKlRT
5 nietrum á sekúrxfu r 1
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
SKÝJAÐ
m 'Sí S?
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- ÞOKA
VEÐUR RENNINGUR
rnsmm
Greiðfært um helstu þjóðvegi
Helstu þjóðvegir eru greiöfærir. Þó er
hálka á Mývatnsöræfum og hálkublettir
í Ljósavatnsskarði og á Víkurskaröi. Á
Vestfjörðum er hálka á Hálfdáni og
hálkublettir á Hrafnseyrarheiði. Á
hálendisvegum er víða ekki vitað um
færð en þó er talið ófært um
Fjallabaksleið syðri og nyöri, í Laka og
Dyngjufjallaleið.
hAlt
□ SNJÖR
■ ÞUNGFÆRT
ófært
Norðaustan- og sunnanátt
Á morgun verður norðaustan 8 till 13 m/s og skúrir á Vestfjörðum en
hæg suðlæg eöa breytileg átt og úrkomulftið í öðrum landshlutum. Hiti 4
til 9 stig yfir daginn.
Vindur:
5—10 in/s
£
Vindur;
5-8 m/a
Hiti 2” «1 T Wi'
Norólæg átt, 5 tll 10 m/s
vestan tll, en annars
hægarl. Skúrir eóa
slydduél noróanlands,
stöku skúrlr meb
suðausturströndlnnl.
Hiti 2" tii T V-X'
Breytlleg átt, 5 tll 8 m/s,
skúrir elnkum vestan tll,
annars skýjað meb köflum.
Fremur svalt.
Vindur:
5-8 m/9
Hiti 2° til 7
Breytlleg átt, 5 tll 8 m/s,
skúrlr elnkum vestan tll,
annars skýjað með köflum.
Fremur svalt.
AKUREYRI léttskýjaö 3
BERGSSTAÐIR léttskýjaö 2
BOLUNGARVÍK rigning 4
EGILSSTAÐIR 6
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 5
KEFLAVÍK léttskýjaö 5
RAUFARHÖFN léttskýjaö 7
REYKJAVÍK léttskýjað 5
STÓRHÖFÐI þokumóöa 7
BERGEN skýjaö 10
HELSINKI alskýjaö 8
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 9
ÓSLÓ skýjaö 11
STOKKHÓLMUR sandbylur 11
ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 9
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað 11
ALGARVE heiöskírt 14
AMSTERDAM skýjaö 9
BARCELONA léttskýjaö 10
BERLÍN rigning 10
CHICAGO
DUBLIN skýjaö 9
HALIFAX léttskýjaö 7
FRANKFURT þoka 6
HAMB0RG þoka 4
JAN MAYEN rigning 1
LONDON rigning 13
LÚXEMBORG . skýjaö 6
MALLORCA léttskýjaö 10
MONTREAL skýjaö 9
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -3
NEW YORK
ORLANDO
PARÍS skýjaö 8
VÍN skúrir 13
WASHINGTON
WINNIPEG heiöskírt 2
■A7tH*iibJvamiiii;',ia;mjj.iiraTiTSiiaESEa