Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
DV
5
Fréttir
Niðurskurður hjá lögreglu stingur í stúf við loforð yfirvalda:
Hafnarborg í Hafnarfirði:
Lofaði meiru en
flugeldasýningu
- dómsmálaráðherra rak upp heróp fyrir bættri umferðarlöggæslu í sumar
Raddir hafa verið uppi um að yfir-
lýsingar dómsmálaráðherra, Sólveigar
Pétursdóttur, um bætta umferðar-
menningu séu í ósamræmi við sam-
drátt í fjárlögum til lögregluembætt-
anna. Eins og kunnugt er gerir fjár-
lagafrumvarpið 2001 ráð fyrir flötum
1,7 prósenta niðurskurði á öll ráðu-
neytin og fmna lögregluembættin ekki
síst fyrir þvi. Auk þessa samdráttar er
litlum sýslumannsembættum úti á
landi gert að vinna upp halla undan-
farinna ára. Landssamband lögreglu-
manna telur að þessi niðurskurður
muni óhjákvæmilega leiða til skertrar
löggæslu. Lögregluembættin hafa grip-
ið til þess ráðs að ljósmynda lögreglu-
þjón í fúllum einkennisbúningi og
setja myndimar upp þar sem mrnna
þarf ökumenn á að fylgja umferðarlög-
um.
Ekki flugeldasýning?
Dómsmálaráðuneytið fer með yfir-
umsjón umferðaröryggismála og boð-
aði Sólveig Pétursdóttir til blaða-
mannafundar í júlí þar sem hún
kynnti átak fyrir bættri umferðar-
menningu.
„Snar þáttur átaksins er að auka
umferðareftirlit og gera iögregluna
sýnilegri. Ríkislögreglustjóri og lög-
regluembættin taka þátt í átakinu og
hafa nú þegar skipulagt öflugt umferð-
areftirlit. í hverjum landshluta munu
lögregluembættin taka sig saman um
að forgangsraða
með markviss-
um hætti með
það að mark-
miði að menn og
tæki nýtist sem
best til að draga
úr umferðarslys-
um,“ sagði Sól-
veig.
„Þetta er ekki
í fyrsta skipti
sem blásið hefur verið til átaks um
gott mál. En við hugsum í stærra sam-
hengi en svo að þetta verði flugelda-
sýning sem skíni skært en standi stutt.
Til þessa átaks er blásið til að hafa var-
anleg áhrif, bæði með langtímastefnu-
mótun og með eflingu löggæslu, en
ekki síst með því að hafa áhrif á öku-
venjur landsmanna."
Rúmum tveimur mánuðum eftir að
Sólveig mælti þessi orð var niður-
skurðurinn sem fjárlagafrumvarpið
gerir ráð fyrir hjá lögreglustjórum og
sýslumannsembættum tilkynntur.
Landssamband lögreglumanna sendi
nýverið frá sér yfirlýsingu þar sem
sambandið undraðist þann niðurskurð
á fjárveitingum til öryggis- og lög-
gæslumála sem gert er ráð fyrir í
frumvarpi til fjárlaga á næsta ári og
telja að hann munu koma niður á lög-
gæslu i landinu.
„Stjómvöld hafa undanfarin ár sett
fram háleit markmið um stórfellda
fækkun alvarlegra umferðarslysa,
vímuefnalauss lands og fækkun af-
brota. Þau markmið verða að engu sé
starfsemi lögreglunnar lömuð vegna
íjárskorts. Fjárframlög til öryggis- og
löggæslumála hafa undanfarið ekki
endurspeglað að hugur fylgi máli,“ seg-
ir í tiikynningunni.
Lélegri umferðatiöggæsla
Á sama tíma og lögregluembættun-
um er skipað að draga saman er þeim
gert að auka til muna vegalöggæslu.
„Fyrir 15 árum var miklu öflugri
umferðarlöggæsla í landinu. Hún hef-
ur á engan hátt fylgt þeirri þróun sem
hefur orðið á fjölgun ökutækja, betri
vegum og öflugri bílurn," sagði Jónas
Magnússon, formaður Landssambands
lögreglumanna, í viðtali við DV. „Fyr-
Ekki flugeldasýning?
Frá fundi Sðlveigar Pétursdóttur dómsmáiaráðherra í sumar, þar sem hún boöaöi til umferöar-
átaks, skömmu áöur en kynntur var niðurskuröur á fjárlögum til lögregluembættanna í fjárlaga-
frumvarpinu fyrir næsta ár.
Innlent fréttaljós
Sigrún María Kristinsdóttir
blaðamaður
ir 15 til 20 árum hafði ungt fólk yfir-
leitt ekki efhi á nýjum bílum. Núna er
unga fólkið komið á mjög öflug öku-
tæki og fer ógætilega með þau. Þetta
kallar á meira aðhald."
í ágúst efndi lögreglan í Reykjavík
til slysalauss dags þar sem lögreglubíl-
ar og lögregluþjónar voru sýnilegri en
aðra daga ársins, enda voru 20 fleiri
lögregluþjónar á
dagvakt heldur en
aðra daga. Árang-
urinn lét ekki á sér
standa - mun færri
slys urðu þann dag
heldur en aðra
sambærilega daga.
„Slysalausi dag-
urinn tókst vegna
þess að þama
sannaði lögreglan í
eitt skipti fyrir öll að sýnileg löggæsla
virkar. Þá má spyija af hverju þessi
löggæsla er ekki upp á hvem einasta
dag?“ sagði Ragnheiður Davíðsdóttir,
forvama- og öryggisfúlltrúi Vátrygg-
ingafélags íslands, í viðtali við DV eft-
ir slysalausa daginn. „Þessi dagur er
allra góðra gjalda verður en ég og aðr-
ir Reykvíkingar spyrjum hvort við
megum búa við hættuástand vegna
skertrar löggæslu alla aðra daga árs-
ins. Og að hinu sama geta aðrir lands-
menn reyndar spurt sig.“
Notast við gervilöggur
Embætti víða um land efna til um-
ferðarátaka þessa dagana. Sýslumenn
utan Reykjavíkur og Reykjaness hafa
boðað umferðarátak á fóstudag sem
nær yfir Vesturland, Vestfirði, Norður-
land, Austurland og
Suðurland. Lögregl-
an ætlar að halda
úti auknu eftirliti
en einnig ræða við
ökumenn. í síðustu
viku efhdu lögreglu-
stjórar i Kópavogi,
Reykjanesbæ, Hafn-
arfirði og á Kefia-
víkurflugvelli til
umferðarátaks þar
sem þeir meðal ann-
ars tóku til þess
bragðs að láta
hanna gervilög-
regluþjóna, mynd af
lögreglumanni í
fullri stærð, sem
komið var fyrir eftir
endilangri Reykja-
nesbrautinni. Ár-
angurinn var sá að
nokkrum þessara
lögregluþjóna var
stolið og hinir voru
settir í geymslu eftir
að umferðarátakinu lauk. Þó huga
önnur lögregluembætti úti á landi að
því nú að fá myndimar lánaðar þar
sem fjárskortur kemur í veg fyrir
nauðsynlega löggæslu lifandi manna.
14 milljóna lag-
færing á leka
Unnið er að endurbótum á þaki
Hafnarborgar - menningar- og lista-
stofnunar Hafharfjarðar við Strand-
götu. Þakið hefur lekið talsvert en með
framkvæmdunum á að stöðva lekann
og er ráðgert að þeim hluta fram-
| kvæmdanna ljúki í nóvember. Þakið
; verður allt dúklagt með asfaltdúk og
| láréttar lektur settar á þökin og stál-
, klæðning fest ofan á þær.
Nánast engin útlitsbreyting verður
á þakinu þegar framkvæmdum verður
að fullu lokið en óvíst er um endanleg
verklok. Það era KS-verktakar sem
vinna verkið en þeir áttu lægra tilboð-
ið af tveimur sem bámst. Tilboð þeirra
hljóðaði upp á rúmar 14 milljónir
króna. -DVÓ
Tilfæringar hjá vegalögreglunni
/ mörg ár var rekin svokölluö vegalögregla þar sem sérstakir menn frá lög-
reglunni í Reykjavík sinntu löggæslu á þjóövegum og hálendinu. Sú löggæsla
var síðan færö yfir á sýslumannsembættin fyrir nokkrum árum, meö viöeig-
andi fjárveitingatilfærslu. I ár var bætt viö lögregluþjónum til þess aö sinna
löggæslu á þjóövegum landsins en bílar þeira eru reknir á kostnaö Vegagerö-
arinnar, sem fellur undir samgönguráðuneytið en ekki lögreglu.
Frá kirkjuþingi.
Kirkjuþing:
Fjölga þarf kon-
um á öllum svið-
um kirkjunnar
Á kirkjuþingi, sem hófst í gær, af-
henti dr. Amfríður Guðmundsdóttir,
formaður jafhréttisnefndar kirkjunn-
ar, skýrslu nefhdarinnar fyrir síðasta
starfsár og minnti á jafnréttisáætlun
kirkjunnar sem samþykkt var á
kirkjuþingi fyrir tveimur árum.
Að sögn Arnfríðar hefúr nefndin
lagt mikla áherslu á að kynna jafnrétt-
ismálin úti í kirkjunni. Mikilvægt sé
að kynna innihald áætlunarinnar til
að hægt sé að hrinda henni í fram-
kvæmd. Nefndin lét meðal annars gera
bækling og plakat sem bar yfírskrift-
ina Guð fer ekki í manngreinarálit.
„Við höfum líka verið að vinna að því
að minna fólk á ákvæði jafnréttisáætl-
unar um máifar í kirkjunni en þar
stendur að unnið skuli að því að end-
urskoða málfar í boðun og starfi kirkj-
unnar. Það teljum við mjög mikilvægt
og þar er um að ræða endurskoðun á
málfari í handbók kirkjunnar og við
1 þýðingu á Gamla testamentinu sem nú
stendur yfir,“ segir Arnfríður.
.Nefndin leggur áherslu á að á þing-
inu núna fari í gang ákveðið átak varð-
andi fjölgun kvenna í stjórnum og
nefndum kirkjunnar. „Við viljum
gjaman sjá það gerast á öllum sviðum
( kirkjunnar og ekki síst hér á kirkju-
þingi því það er mjög mikilvægt að
konur deili ábyrgð og valdi innan
kirkjunnar," segir Amfríður og bætir
við að nefndin hvetji þetta kirkjuþing
til að gera ailt sem í þess valdi stendur
til að fá fleiri konur inn á næsta
kirkjuþing sem verður eftir tvö ár.
Konum hafi fækkað á síðasta kirkju-
þingi og séu núna minna en fimm pró-
sent. -MA
CHAIRMAN (Forysta)
Tæknilega vel hönnuð
Vönduð og sterk hjól
Örugg og sterk bremsa
1 árs ábyrgð
íslenskar leiðbeiningar
Hjólin eru tæknilega vel hönnuð
úr hágæða-flugvélaáli
CHAIRMAN (Forysta)
er fremsta hjólið á markaðnum í dag.
Ymsir aukahlutir:
Glær dekk
Lituð dekk
fpf** Ljósadekk
Höldur
Höldur í lit
Töskur
AHJOLAAUKAH