Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
I>V
9
Fréttir
Öryggismálum víöa ábótavant í byggingariðnaði:
Iðnaðarmenn sem
fljúgandi englar
- sem öryggistæki skipta engu, segir framkvæmdastjóri Sunniönar
„Ég hef um árabil verið að sinna
þessum málaflokki, nú undanfarið
hafa menn úr greininni verið að
hafa samband við mig vegna ófull-
nægjandi öryggismála en dropinn
sem fyllti mælinn var forsíðumynd
Sunnlenska fréttablaðsins í síðustu
viku þar sem iðnaðarmenn voru að
vinna á þaki ráðhúss Árborgar,
þriggja hæða húss, hjálmlausir og
engin fallvörn sjáanleg á þakbrún-
inni,“ sagði Ármann Ægir Magnús-
son, formaður Sunniðnar, Sunn-
lenska iðnfélagsins, viö DV. Haustið
er mesti slysatíminn i byggingar-
iðnaðinum og Ármann Ægir segir
að þörf sé á átaki í byggingariðnað-
inum til að koma málunum í lag.
„Við höfum ítrekað komið til félags-
manna aðvörunum í fréttabréfum
okkar um hvaða afleiðingar það get-
ur haft að vera ekki með fullnægj-
andi öryggisbúnað. Það virðist ekki
duga og menn eru alltof víða eins og
fljúgandi englar sem virðist ekkert
koma við þeir öryggistækisem
menn eru skyldir til að nota/‘ sagði
Ármann Ægir.
Starfmenn ótryggöir
Ármann Ægir segir að noti starfs-
menn ekki þau öryggistæki sem at-
vinnurekendum er skylt að leggja til
geti menn staðið uppi slasaðir fyrir
lífstíð bótalausir. Hann segir að at-
vinnurekendum sé skylt að leggja
starfsmönnum til þann öryggisbúnað
sem við á til að tryggja fyllsta öryggi
þeirra. „Ef viðeigandi öryggisbúnaður
er til og starfsmaður notar hann ekki
er hann ótryggður. Ef vinnuveitand-
inn skaffar ekki öryggisbúnað getur
starfsmaðurinn neitað að vinna verkið
og á að neita því ef réttur öryggisbún-
aður er ekki tU staðar. Fari starfsmenn
samt og vinni án
öryggisbúnaðar-
ins, og ef menn
eru hvattir til að
vinna án hans, þá
er vinnuveitand-
inn ábyrgur fyrir
skaðanum. Trygg-
ingafyrirtækin
Ármann Ægir geta neitað að
Magnússon, for- borga tjónið reyn-
maður Sunniðnar. js(- g^j veríð
farið eftir viðeig-
andi öryggisreglum,“ sagði Ármann
Ægir. Oft þurfa öryggistækin ekki að
vera af flókinni gerð. „Almennt eru
hjálmur og skór með stáltá og þynnu í
sóla lágmark. Þegar menn eru að
vinna yfir ákveðinni hæð eiga að vera
til staðar verkpallar af viðurkenndri
gerð, öryggisbelti og á þakbrúnum eiga
að vera fallvamir til að tryggja öryggi
starfsmanna sem vinna á þeim,“ sagði
Ármann Ægir.
Vinnueftirlitiö brugöist
skyldum sínum
Armann Ægir telur að Vinnueftirlit-
ið hafi brugðist skyldum sinum í þess-
um málum. „Mér finnst þætti Vinnu-
eftirlitsins í fyrirbyggjandi aðgerðum í
fyrirtækjum hér á Suðurlandi vera
mjög ábótavant. Ég hringdi í Vinnueft-
irlitið vegna nýbyggingar hér á Sel-
fossi. Þar var mér sagt að þeir hefðu
ekki tíma til að sinna því erindi sem
ég bar undir þá næstu daga vegna
tímaskorts og bent á aö leita til
lögeglu. Hjá lögreglunni töldu menn að
þetta væri hlutverk Vinnueftirhtsins
en ætluðu samt að kanna málið,“ sagði
Ármann Ægir. „Ég hef kynnt mér
þetta á Suðumesjum hjá iðnsveinafé-
laginu þar, þeir segja að þar sé öryggi
starfsmanna í byggingariðnaði fylgt
mjög strangt eftir. Þar heyrir það til
undantekninga að sjá menn vinna án
öryggistækja," sagði Ármann Ægir
Magnússon, formaður Sunniðnar.
Búum við fjársvelti og veröum
aö forgangsraða
„Við hjá Vinnueftirlitinu búum við
við mikinn fiárskort í starfsemi stofn-
unarinnar og verkefni eftirlitsins em
mörg. Fjárveitingar til Vinnueftirlits-
ins hafa dregist saman um helming
síðan stofnunin var sett á laggimar
fyrir 20 árum. Skylduverkefnin sitja
fyrir og þegar hrúga verkefna liggur á
borðinu verðum við að forgangsraða
þeim,“ sagði Gisli Rúnar Sveinsson,
forstöðumaður Vinnueftirlitsins á Suð-
urlandi. Hann segir að mikill uppgang-
ur í atvinnulífmu á Suðurlandi hafi
gert það að verkum að Vinnueftirlitið
í fiórðungnum komist ekki yfir sin
verkefni á viðeigandi hátt. „Við erum
skyldugir að gera svo margt. Við reyn-
um að þjóna þeim sem hjálpa sér sjálf-
ir, við erum í úttektum hér og þar en
komumst ekki yfir allt. Maður horfir
daglega upp á ýmis mál sem mættu
betur fara, ekki síst í byggingariðnað-
inum eins og uppgangurinn er þar,“
sagði Gísh Rúnar.
Hann segir að hlutverk Vinnueftir-
litsins sé víðækt og þeir reyni að sinna
öhu sem th þeirra kemur. „En hvar er
forgangurinn? Það era úttektir á svæð-
inu sem þola enga bið, við reynum að
sinna þeim úttektum og þá verður því
miður annað að sitja á hakanum,"
sagði Gísli. Hann telur að það heyri
frekar th undantekninga en hitt að
menn sinni ekki öryggisþáttum í bygg-
ingariðnaðinum. „Það eru þvi miður
ahtof margir sem nota ekki thskhinn
öryggisbúnað og jafnvel ekki thskhdar
persónuhlífar. Vinnuveitendur era
skyldugir th að útvega þessa hluti og
það kemur í bakið á þeim sjálfum ef
þeir standa ekki sina plikt í þessum
málum og starfsmönnunum ef þeir
nota ekki það sem að þeim er rétt. En
við hjá Vinnueftirlitinu hvetjum
starfsmenn í byggingariðnaðinum og
öðrum starfsgreinum th að gæta að ör-
yggismálum og vinna við að reyna að
DV-MYNDIR NJÖRÐUR HELGASON
Algeng sjón
Fljúgandi englar, það er að segja
trésmiðir á bröttum og hálum
þökum, allt of algeng sjón á íslandi.
koma í veg fyrir slys eins og kostur
er,“ sagði Gísh Rúnar Sveinsson, for-
stöðumaður Vinnueftirlitsins á Suður-
landi. -NH
Helgin hjá lögreglu í Reykjavík:
Innbrotafaraldur
Rjúgandi englar.
Hér eru menn að slá upp mótum á þríðju hæð verslunarhúsnæðis á Selfossi, á
vinnupallli án handriöa eða annars viðeigandi búnaðar. Þarna eru um 8 metrar
niður á steypt plan. Á þennan vinnustað þenti Ármann Ægir Vinnueftirlitinu á.
Lögreglan í Reykjavík handtók á
sunnudag karlmann sem grunaður er
um aðhd að mörgum innbrotum í mið-
borginni undanfama daga. Að sögn
lögreglu hefur maðurinn langan brota-
ferh að baki, aðahega fyrir innbrot og
tilraunir th innbrota. Auk þessa
manns handtók lögreglan annan karl-
mann um helgina sem talinn er hafa
gert tilraun th innbrots i vesturbæn-
um.
Mikið hefur verið um innbrot síð-
ustu daga í Reykjavík. Tilkynnt var
um innbrot í verslun við Laugaveg á
fóstudagsmorgun. Þjófurinn eða
Lögregla að störfum
þjófamir komust á brott með skipti-
mynt. Brotist var inn í sölutum á
Njálsgötu og bakarí við Laugaveg og
var skiptimynt stolið á báðum stöðum.
Einnig var tilkynnt um innbrot í raf-
tækjaverslun í Borgartúni, þaðan sem
stolið var dýrum hljómtækjum. Úr bh
í Fossvogi var stolið myndavél og vél-
hjólagaha, og úr geymslum í Breiðholti
var verkfærum stolið. Auk þessa var
brotist inn i skóla í austurbænum og í
Grafarvogi og skemmdarverk unnin,
en ekki er tahð að neinu hafi verið
stolið. Þar að auki vora tveir tvítugir
phtar handteknir um helgina eftir að
lögreglan varö vitni aö skemmdar-
verkum þeirra á auglýsingaskhti í
vesturbænum. -SMK
SPENNANDIOG ÖÐRUVÍSI
HUSGAGNAAKLÆÐI!
Á K LÆ Ð I
SÍMI 555 3986 / 897 6666
HJALLAHRAUNI 8
HAFNARFIRÐI
OPIÐ MÁNUDAGA -
FIMMTUDAGA13 -18
FÖSTUDAGA13 -16
íslenskt viðskiptalíf
^ - 500 stærstu
Geisladiskur með itarlegum upplýsingum um nærrí
600 islensk fyrírtæki.
Upplýsingar eru m.a. um veltu, afkomu, efnahag, stjórn
og lykilstarfsmenn, upplýsingar um starfsemi og fréttir af
Viðskiptavefnum á Vísir.is.
íslenskt viðskiptalif - 500 stærstu er samstarfsverkefni
Viðskiptablaðsins og Lánstrausts hf.
Verð 4.950 kr.
Tekið er á móti pöntunum i síma 511 6622,
i fax 511 6692 og á netfangið mottaka@vb.is.