Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Qupperneq 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000
r»v
Vojislav Kostunica
Júgóslavíuforseti heimsótti Svart-
fjallaiand í gær.
Svartfellingar
hafna aðild að
sambandsstjórn
Nýr forseti Júgóslavíu, Vojislav
Kostunica, lofaði í gær leiðtogum
Svartfjallalands að deila þeirra um
samband við Serbíu yrði leyst á
friðsamlegan hátt. Kostunica fund-
aði í gær í fyrsta sinn með leiðtog-
um Svartfjallalands. Svartfellingar
vilja helst sjálfstæði. Serbar vilja
hins vegar halda rikjasambandinu.
Samkvæmt stjórnarskrá Júgó-
slavíu verður forsætisráðherrann
að vera Svartfellingur sé forsetinn
Serbi. Milo Djukanovic, forseti
Svartfjallalands, hafnaði í gær þátt-
töku í nýrri sambandsstjóm. Svart-
fellingar eru tilbúnir til viðræðna
um jafna stöðu landanna í rikjasam-
bandi.
Efni til sprengju-
gerðar fannst í
íbúð í Jemen
Bandariskir lögreglumenn stað-
festu í gær að efni til sprengjugerð-
ar hefði fundist í íbúð í Jemen. Lög-
reglumenn sögðu jafnframt að nú
væri verið að rannsaka í Bandaríkj-
unum sýni úr bandaríska herskip-
inu sem sprengjuárás var gerð á síð-
astliðinn fimmtudag í Aden í Jemen
með þeim afleiðingum að 17 sjóliðar
létu lifið og 39 særðust.
Embættismenn í Aden í Jemen
segja að fjöldi manns hafl verið
handtekinn og yfirheyrður. Meðal
hinna handteknu eru meintir félag-
ar i herskáum samtökum múslíma.
Yfir 60 bandarískir rannsóknar-
menn eru nú í Jemen.
íslendingur segir
Færeyinga þjóð
Islenski þjóðréttarfræðingurinn
Guðmundur Alfreðsson við háskól-
ann í Lundi í Svíþjóð hefur úrskurð-
að að Færeyingar uppfylli þau skil-
yrði að vera þjóð í skýrslu sem
hann gerði fyrir færeysku land-
stjórnina. Þeir hafa því fullan rétt á
að snúa sér til alþjóðastofnana eins
og SÞ og NATO án þess að dönsk
stjórnvöld hafi þar milligöngu um.
Þetta kemur fram í Jyllands-Posten
í morgun.
Það var Hogni
Hoydal, sem fer
með sjálfstæðis-
málin í landstjóm-
inni, sem óskaði
eftir áliti Guð-
mundar. Hogni
hefur nú í hyggju
að greina alþjóða-
stofnunum frá
greinargerð Guðmundar Alfreðs-
sonar.
Færeyska landstjómin ritaði bréf
til NATO fyrr á þessu ári um örygg-
ismál eyjanna eftir að þær fengju
sjálfstæði. Niels Helveg Petersen,
utanríkisráðherra Danmerkur, neit-
aði hins vegar að koma bréfmu til
skila, eins og um var beðið, og sagði
að Færeyingar hefðu ekki leyfi til
að semja um öryggismál sín við Atl-
antshafsbandalagið. Bréf til SÞ fékk
sömu örlög.
Hogni Hoydal.
Leiðtogar lofa að binda enda á átökin í Mið-Austurlöndum:
I
í páfagarð eftir 20 ár
Elisabet Englandsdrottning og Jó-
hannes Páll páfi ræddu í gær ósk
sína um einingu rómversk-kaþólsku
kirkjunnar og ensku biskupakirkj-
unnar. Tuttugu ár voru liðin frá því
að drottningin heimsótti páfagarð
siðast.
Köfun að Kúrsk frestað
Skipið sem flytja átti norska og
rússneska kafara að kafbátnum
Kúrsk í þessari viku er enn í höfn
vegna óveðurs í Barentshafi.
Valdabarátta kristiiegra
Deilur um inn-
flytjendur hafa
hleypt af stað valda-
baráttu í Kristilega
demókrataflokkn-
um í Þýskalandi.
Friedrich Merz
þingflokksformaður
sagði takmörkun
Qölda innflytjenda geta orðið að
kosningamáli. Angela Merkel
flokksleiðtogi segir óviturt að ræða
um kosningamál nú.
Skotbardagar á
Vesturbakkanum
Til skotbardaga kom milli ísra-
elskra hermanna og Palestínu-
manna á Vesturbakkanum og Gaza
í nótt, þrátt fyrir að leiðtogar þeirra
kæmust að samkomulagi í gær-
morgun um að binda enda á ofbeld-
isaðgerðir undanfarinna vikna.
ísraelski herinn sagði að tveir
hermenn hefðu særst lítillega þegar
Palestínumenn vörpuðu hand-
sprengju og skutu að hermönnum
nærri þorpi einu suður af Maale
Adumin, landnemabæ gyðinga á
Vesturbakkanum.
Þá var einnig skotið á hermenn
annars staðar á Vesturbakkanum
og svöruðu þeir í sömu mynt.
Á Gaza köstuðu Palestínumenn
grjóti og bensínsprengjum að ísra-
elskum eftirlitssveitum.
Innan tveggja sólarhringa
Þeir Yasser Arafat, forseti Palest-
inumanna, og Ehud Barak, forsætis-
ráðherra ísraels, féllust í gær á
fundi með Bill Clinton Bandaríkja-
forseta, Mubarak Egyptalandsfor-
seta og fleirum að binda enda á
óeirðir síðustu vikna sem hafa orð-
ið rúmlega eitt hundrað manns að
bana. Margir voru þó efins um að
ofbeldinu myndi linna.
Deilendur segja báðir að það sé
undir hinum komið að hrinda sam-
komulaginu, sem náðist í egypska
strandbænum Sharm el-Sheikh, í
framkvæmd.
„Báðir þurfa að binda enda á of-
beldisverkin innan tveggja sólar-
hringa," sagði Shlomo Ben-Ami,
starfandi utanríkisráðherra ísraels,
í viðtali við ísraelska sjónvarpsstöð.
Ehud Barak sagði í yfirlýsingu
sem hann sendi frá sér að hann
hefði fyrirskipað öryggissveitum að
gera allt sem í þeirra valdi stæði tO
að hrinda samkomulaginu í fram-
kvæmd.
Yasser Arafat sagði við heimkom-
una til Gaza í gær að hann vildi að því
sem um hefði verið samið yrði hrint í
framkvæmd á heiðarlegan hátt. Hann
á hins vegar erfltt verk fyrir höndum
að sannfæra reiða Palestínumenn um
að leggja niður vopn sín og hætta að
grýta ísraelska hermenn.
Öll heistu ríki í Evrópu og fram-
kvæmdastjóm Evrópusambandsins
fógnuðu samkomulaginu en ríki ís-
lamskra harðlínumanna á borð við
fran, írak og Líbanon fordæmdu
það og kölluðu hraksmánarlegt.
Ekkert undirritaö
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði að loknum fundinum í Sharm
el-Sheikh í gærmorgun að deilendur
hefðu fallist á að binda enda á of-
beldisverkin og hefðu jafnframt
samþykkt að nefnd undir forsæti
Bandaríkjanna myndi rannsaka
upptök átakanna og kanna hvort
grundvöllur væri fyrir að hefja frið-
arviðræður á ný. Yflrlýsing Clint-
ons var munnleg þar sem deilendur
voru ófáanlegir til að gera skriflegt
samkomulag.
Leiðtogi skæruliðasamtakanna
Hamas sagði í viðtali við sjónvarps-
fréttastofu Reuters í gærkvöld að
samtökin myndu halda árásum sín-
um á ísrael áfram, þrátt fyrir sam-
komulagið í gærmorgun.
Vill meiri áhrif erlendis
Hillary Clinton,
forsetafrú Banda-
ríkjanna, sem sæk-
ist eftir sæti í öld-
ungadeild Banda-
ríkjaþings, lagði í
gær til að herferð
yrði hafln til að
auka hlutverk
Bandaríkjanna erlendis. Samkvæmt
skoðanakönnun, er birt var í gær,
nýtur Hillary fylgis 51 prósents
kjósenda en keppinautur hennar,
Rick Lazio, er með 45 prósenta fylgi.
Blóðug átök í Lagos
Að minnsta kosti 100 manns hafa
látið lífið í átökum i Lagos undan-
farna daga milli múslíma og krist-
inna.
Föður leitað eftir líkfund
Danska lögreglan leitar nú Lí-
bana sem grunaður er um að hafa
fleygt ársgamalli dóttur sinni ofan
af Litlabeltisbrúnni. Lík stúlkunnar
fannst í fjörunni sunnan við Freder-
icia á mánudag.
Atök í Betlehem
Palestínskur unglingur miöar teygjubyssu sinni aö ísraelskum hermönnum þegar sló í brýnu meö Paiestínumönnum og
ísraetskum öryggissveitum í Bettehem í gær. Átökin brutust út eftir jaröarför ungs pilts sem lést í átökum viö ísraela.
Skuldir gefnar eftir
Alþjóðabankinn sagði í gær að 20
fátækustu löndum heims yrðu gefn-
ar eftir skuldir að miklum hluta fyr-
ir lok þessa árs.
Krefjast afsagnar forseta
Þingmenn stjóm-
arandstöðunnar á
Filippseyjum kröfð-
ust þess í gær form-
lega að Joseph
Estrada forseti yrði
látinn fara frá
vegna embættisaf-
glapa. Saka þeir for-
setann um að hafa þegið mútur frá
spilavítiskóngum og um aðra
glæpi. Mútuhneyksliö hefur valdið
verstu stjómmálakreppunni á Fil-
ippseyjum í mörg ár.
150 þúsund gegn ETA
Um 150 þúsund manns i Sevilla á
Spáni efndu í gærkvöld til mótmæla
gegn ETA, aðskilnaðarsamtökum
Baska. Talið er að hryðjuverka-
menn samtakanna hafl skotið til
bana lækni á mánudaginn. Tveir
hafa verið handteknir vegna
morðsins.
Fjórir fórust í lestarslysi norður af London:
Hryðjuverk útilokað
Breska lögreglan hefur útilokað
að hryðjuverkamenn hafi valdið því
að hraðlest fór út af sporinu fyrir
norðan London í gær með þeim af-
leiðingum að fjórir menn létu lífið
og á fjórða tug slasaðist.
Slysið hefur enn á ný vakið upp
umræður um öryggismál í lestar-
samgöngum á Bretlandi. Þetta var
þriðja stóra lestarslysið á rúmum
þremur árum.
Eftir að hryðjuverkalögreglan
hætti leit sinni í flaki lestarinnar
fóru rannsóknarmenn að beina
sjónum sínum að tæknibilun eða
skemmdarverkum.
Breska sjónvarpsstöðin Sky sagði
í morgun að verið væri að kanna
hvort annar járnbrautarteinanna
hefði verið í sundur.
Rannsókn á hugsanlegum þætti
hryðjuverkamanna í slysinu hófst
eftir að upplýst var um að á sunnu-
Flakið rannsakað
Björgunarsveitarmenn rannsaka flak-
iö af testinni sem fór út af sporinu
noröan viö London í gær.
dag hefðu borist sprengjuhótanir
vegna sömu járnbrautarlínu.
„Fyrstu viðbrögð sjónarvotta
voru að þeir heföu heyrt spreng-
ingu,“ sagði Paul Acres yfirlög-
regluþjónn á fundi með fréttamönn-
um í gær.
Ellefu vagna járbrautarlestin var
á leið til Leeds frá London þegar
hún fór út af sporinu nærri bænum
Hatfleld laust eftir hádegi að staðar-
tima. Hún var á rúmlega 170 kíló-
metra hraða á klukkustund þegar
slysið varð.
Lögreglan sagði að þegar sjúkra-
bifreiðar og björgunarsveitir komu
á vettvang hefðu fjölmargir farþeg-
anna ráfað um slysstað eins og í
leiðslu.
Þyrlur voru meðal annars notað-
ar til að koma hinum slösuðu á
sjúkrahús. Enginn hinna slösuðu
var í lífshættu.