Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2000, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2000 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjölfsson Framkvsmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aóstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.ís. - Dreifing: dvdreif@>ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Filmu- og plötugeró: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viömælendum fýrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Lögum ekki breytt Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur tekið af öll tvímæli um að samkeppnislögum verði ekki breytt til að samruni Landsbanka og Búnaðarbanka standist lög og regl- ur. í utandagskrárumræðum á Alþingi um sameiningu rík- isviðskiptabankanna síðastliðinn mánudag var hart sótt að ráðherranum og ríkisstjórninni vegna stefnunnar í banka- málum. Yfirlýsing ráðherra um að lögum verði ekki breytt er ánægjuleg og nauðsynleg til að eyða óvissu og tortryggni. í umræðunum ítrekaði Valgerður Sverrisdóttir að hún hefði sett fyrirvara við samruna Landsbanka og Búnaðar- banka, enda yrði til mjög stór banki á íslenskan mæli- kvarða. „Úrskurður samkeppnisráðs þarf því að liggja fyrir áður en endanleg ákvörðun er tekin um samruna,“ voru skýr skilaboð ráðherra. Efasemdir viðskiptaráðherra eru þær sömu og Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og for- maður Framsóknarflokksins, setti fram í sumar. Hugmynd- in um samruna ríkisbankanna er því athyglisverðari en ella. Sú spurning stendur eftir sem áður hvort það verði talið hlutverk viðskiptaráðherra og yfirmanns samkeppnismála að fækka leikendum á markaði með þeim hætti sem nú er stefnt að. DV benti á þetta í leiðara í liðinni viku og undir- strikaði hvert meginverkefni ráðherra og ríkisstjórnar er i raun: „að draga ríkið fyrir fullt og allt út úr rekstri á fjár- málamarkaði en um leið að tryggja að eðlileg samkeppni fái að njóta sín.“ Athugasemdirnar sem gerðar hafa verið á þessum stað við störf ríkisstjómarinnar og Valgerðar Sverrisdóttur við- skiptaráðherra snúast fyrst og fremst um hvemig staðið er að málum. Flest ef ekki öll rök benda til þess að eðlilegra hefði verið að halda óbreyttri stefnu og einkavæða bankana og láta nýja eigendur hafa áhyggjur af framtíðinni. Undir þetta sjónarmið tekur Valur Valsson, forstjóri íslandsbanka- FBA, í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn laugardag en fáir einstaklingar hafa meiri reynslu af sameiningu fjár- málastofnana en Valur: „Ég held hins vegar að skynsam- legra hefði verið að einkavæða ríkisbankana fyrst og láta bankana og markaðinn um sameiningu. Það gefur augaleið að kostnaðarlækkun og hagræðing er erfiðari en ella ef rík- ið á stóran hlut í bönkunum. Pólitísk sjónarmið munu að mínu mati þvælast nokkuð fyrir mönnum í því starfi.“ Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON, tekur í svipaðan streng og Valur Valsson og segir samruna ríkis- bankanna óheppilegan, enda gæti hann truflað samkeppni á markaði. Ríkisstjórnin, og viðskiptaráðherra sérstaklega, hlýtur að taka þessi orð reyndra bankamanna alvarlega. Enn í útrás Hátæknifyrirtækið Össur hf. hefur undirritað viljayfir- lýsingu um kaup á tveimur sænskum fyrirtækjum sem eru meðal stærstu dreifingarfyrirtækja í stoðtækjaiðnaði á Norðurlöndunum. Þannig heldur útrás Össurar hf. áfram en fyrr á þessu ári keypti fyrirtækið bandaríska stoðtækjafyrirtækið Flex-Foot Inc. Útrás Össurar hf. er aðeins eitt dæmi um þá nýju hugs- un sem náð hefur að skjóta rótum meðal íslenskra at- hafnamanna og ber vitni um aukið sjálfstraust. Auknar erlendar fjárfestingar íslenskra fyrirtækja eru besta sönn- un þess hve langt er hægt að ná á stuttum tíma þegar at- vinnulífinu er búin umgjörð stöðugleika og frjálsræðis. Óli Bjöm Kárason DV ______4ÍU Skoðun S Alit auðlindanefndar - fyrningarleiðin, rétta leiðin Álit Auölindanefndar hef- ur að vonum vakið athygli og umræður. Enn hefur Jóhann- es Nordal unnið athyglisvert verk fyrir þjóðarheildina. Nefndin leggur til útboðsleið sem almenna lausn til að út- deila takmörkuðum gæðum í þjóðareign. Þar með er lagt til að markaðurinn verði lát- inn ákveða aðgang að hinum takmörkuðu auðlindum, enda úthlutunarleið illfær og í ætt við skömmtunarleið. Markaðsleið er mjög að vinna á 1 svona tilvikum. Nágrannaþjóðir okkar, Bandaríkin, Þýskaland, Bretland, beita útboði til úthlutunar á farsímarásum og fréttir herma að Norðmenn muni beita útboði við úthlutun leyfa til laxeldis. Af einhverjum ástæðum, sem nefnd- in skýrir ekki, nefnir hún tvær leiðir þegar kemur að úthlutun fiskveiði- kvóta, veiðigjaldsleið og fyrningarleið. Það er reyndar þekkt i nefndastarf- semi, ef samkomulag er ekki að nefna tvo kosti og taka ekki afstöðu til þeirra. Þetta bendir því til að ekki hafi verið full samstaða í nefndinni. Fyrningarleið Fyrningarleiðin sem er uppboðsleið fellur mjög að til- lögum og frumvarpi Áhuga- hóps um auðlindir í almanna- þágu. Hún hefur marga kosti. Til lengri tima litið tryggir hún jafnræði landsmanna til nýtingar auðlindarinnar, hún auðveldar nýliðun, gerir nýjum aðilum kleift að byrja i útgerð og tryggir sanngjama greiðslu til eig- anda auðlindarinnar, þjóðarinnar. Hún ætti jafnframt að tryggja að út- gerðin greiði ekki hærra gjald en hún ræður við. Þessi leið felur í sér lág- marksáhættu á ójöfnuði við úthlutun. Veiðigjaldsleið Veiðigjaldsleiðin er mjög gölluð. Fram hefur komið að ríkið greiðir um 3 milljarða kostnað vegna sjávarút- Guðmundur G. Þórarinsson verkfræöingur „Þessi leið minnir svolítið á nafn á leikriti Shake- spears, Sem yður þóknast. Líklegt er að ekki verði ákveðið veiðigjald nema sem er útgerðinni þóknanlegt. Veiðigjaldsleiðin er því skyld hinni gömlu skömmtun- araðferð og aðferðum verðlagseftirlits. “ Siðfræðiprófið mikla Árið 1998 var lagt mikilvægt og margslungið siðfræðipróf fyrir ís- lensku þjóðina. Á nokkrum mánuðum var tekist á um grundvallarréttindi og reisn manneskjunnar í blaðagreinum og umræðum manna á meðal. Og loka- prófið var þreytt af þjóðþinginu á að- ventunni það sama ár. Prófið snerist um það hvort verjandi væri að taka persónulegar upplýsingar að fólki forspurðu og gefa þær öðrum til þess að þeir geti gramsað í að vild og grætt á þeim. Stundum tóku menn þannig til orða hér áður fyrr ef þeir vildu bregða fyrir sig fáránleikastíl að þeir töluðu um að þessi eða hinn væri reiðubúinn til þess að selja ömmu sína. Það var taliö hámark siðleysisins Fyrlr smáaura til málamynda Nú hefur þjóðin orðið þessum fá- ránleika að bráð. Áróðri hefur verið beitt til þess að telja fólki trú um að allt sé þetta gert af einskærri mann- gæsku og elsku á lífinu. Þá hefur því verið haldið fram að þiggjandinn, er- lent fyrirtæki, starfrækt hér á landi undir heitinu íslensk erfðagreining hf., játningar og skriftamál fólks til þess að einhver gæti grætt á þeim upplýsingum - og það án þess að spyrja fólk leyfis. En fyrst þetta er nú allt gert af manngæsku og jafnvel kristilegum kærleika, eins og látið er í veðri vaka, væri fróðlegt að vita hvort fyrirtækið sem hér um ræðir sé reiðu- búið til þess að starfa eftir gullnu regl- unni: allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra? Nokkrar spurningar Er fyrirtækið tilbúið, fyrst það fær að skyggnast inn í innstu leyndardóma einstaklinga, að opna almenningi aö- gang að innviðum fyrirtækisins á sama hátt? Eru stjórnendur þess reiðu- búnir til þess að láta islensku þjóðinni í té upplýsingar um hvort einhverjir læknar hafi hugsanlega afhent eða selt fyrirtækinu upplýsingar um einstak- linga án þess að spyrja hina raunveru- legu eigendur leyfis? Hafa sálfræðing- ar, geðlæknar, fjölskylduráðgjafar og aðrir fagaðilar sem vinna með per- sónulegar upplýsingar gert hið sama? Vill fyrirtækið upplýsa hvort það hef- ur gerst eða ekki? Og ef það hefur átt sér stað, er það reiðubúið að birta nöfn þeirra? Verði slíkar upplýsingar ekki opinberaðar neyðist margt fólk til þess að spyrja lækna, sálfræðinga, geð- lækna, félagsráðgjafa, presta og fleiri, sem það þarf að leita til, hvort þeir „leki“ upplýsingum og þiggi jafnvel greiðslur íyrir. Hér með er þetta siðfræðipróf lagt fyrir stjórnendur fyrirtækisins. Þegnar þessa lands eiga rétt á að slíkar upplýsingar liggi fyrir. Þjóðin féll á siðfræðiprófinu mikla sem lagt var fyrir hana á liðnu ári. Kirkjan (prestamir) sem á að standa vörð um manngildið þagði þunnu hljóði, þó með örfáum undantekningum sem taldar verða á fingrum annarrar handar. Læknafélagið hefur hins vegar barist hetjulega fyrir réttlætinu í þessu máli og er það þakkarvert. Og einstaka læknar hafa hætt atvinnuöryggi sínu af tryggð við læknaeiðinn. Samtökin Mannvemd ásamt hópi lækna og ann- arra áhugamanna berjast févana fýrir réttlæti og mannlegri reisn en á við of- urefli að etja þar sem um fyrirtæki er að ræða sem veður í peningum. Sið- heilsa þjóðarinnar skiptir ekki minna máli en líkamlegt heilbrigði. Þaö skiptir ekki minna máli að finna lækningu á hinu siöræna sviði en að lækning finnist á einhverju lfk- amlegu meini, því eins og ritað er: „ .. . það liggur fyrir mönnunum eitt sinn að deyja og eftir það að fá sinn dóm.“ (Heb 9.27). Öm Bárður Jónsson „Þjóðin féll á siðfrœðiprófinu mikla sem lagt var fyrir hana á liðnu ári. Kirkjan (prestamir), sem á að standa vörð um manngildið, þagði þunnu hljóði, þó með örfá- um undantekningum, sem taldar verða á fingrum ann- arrar handar. “ hafi brotið blað í rannsókn- um með starfsemi sinni. í hófsamri og skarpri blaða- grein 27. júlí sl. benti Hrafn Tulinius læknir á hið gagn- stæða. Eina nýmælið er við- skiptahugmyndin sjálf, það að græða á öllu saman. Upplýsingamar sem ríkið seldi fyrir smáaura, svona til málamynda, eru það persónu- legasta af öllu persónulegu. Það má líkja þessu við að kirkjan léti af hendi synda- Orn Bárður Jónsson prestur Með og á móti Til hagsbóta fyrir þjóðina í álveri Norðuráls á Grundartanga? Ekki bætandi á mengunarálagið j „Ég tel að leyfa JC eigi Norðuráli að I athuga möguleik- Vr ana á því að ál- ver fyrirtækisins á Grundartanga verði stækkað ef farið verður eft- ir öllum tilskildum reglum, þar á meðal varðandi um- hverfismat. Að mínu mati hefur Norðurál stundað fyr- irmyndarrekstur og starf- semi og aukning á starfsemi og framleiðslu fyrirtækisins er til Magnús Stefánsson, varaþingmaöur þess fallin að auka atvinnu og þjóðartekjur. Það hefur allt gengið vel hjá fyrirtæk- inu og því ætti að taka því vel ef það vill stækka fyrir- tækið. Það skapar fleiri störf og meiri tekjur og er þannig til hagsbóta fyrir þjóðina til framtíðar. Fyrir- tækið hefur verið atvinnu- skapandi fyrir íbúa bæði á Vesturlandi og á höfuðborg- arsvæðinu." „Ég tel að upp- |sðS|Íj| bygging stóriðn- aðar í Hvalfirði jr sé þegar allnokk- ur og það er gríð- arlega mikilvægt að íbúum í Hvalfirði séu kynntar mengunarmælingar og það mengunarálag sem fyrir er í Hvalfirði áður en ráðist er í frekari uppbyggingu. Það er ljóst að stækkun úr 240 þús- und í 300 þúsund tonn eða meira verður að fara í um- Olafur A. Magnússon, fyrrum formaöur samtaka um óspillt land í Hvalfiröi hverfismat. Við teljum að mengunarálag í Hvalfirði sé þegar orðið það mikið að ekki sé á það bætandi. Áður en menn fara í hugleiðingar um stækkun verða þeir að sýna fram á hvert mengun- arálagið er og hvernig mönnum hefur tekist til við þær mengunarvarnir sem þar eiga að vera.“ Forsvarsmenn Noröuráls hafa sent íslenskum stjórnvöld bréf þar sem þau fara þess á leit aö hafnar veröl viöræöur um stækkun á álverinu um 150 þúsund tonn. Ef af því veröur mun þaö leiöa til þess aö framleiöslugeta fyrirtækisins fimmfaldist og álveriö veröl meö framlelöslugetu upp á 300 þúsund tonn á ári. vegs. Eðlilegt er að sjávarútvegurinn greiði þetta auk arðs af auðlindinni. Megingalli þessarar leiðar er að hún tryggir engan veginn nýliðun, hún við- heldur misrétti og forréttindum. Hætta er á að deilur um fiskveiðistjórnina haldi áfram og ákvörðun veiðigjalds býður upp á makk milli sjórnmála- manna og öflugra hagsmunaaðila í stað þess að nýta farvegi markaðarins. Þessi leið minnir svolítið á nafn á leikriti Shakespears, Sem yður þókn- ast. Liklegt er að ekki verði ákveðið veiðigjald nema sem er útgerðinni þóknanlegt. Veiðigjaldsleiðin er því skyld hinni gömlu skömmtunaraðferð og aðferðum verðlagseftirlits. Öll þró- un nútímaþjóðfélags bendir í átt til markaðslausna. Segja má að Auðlinda- nefnd hafi afmarkað leikvöllinn. Búið er að einangra lausnina við tvær aö- ferðir, báðar leggja til að útgerðin greiði fyrir afnot af auðlindinni. Ákvörðunin er eftir. Nú fer málið væntanlega inn í endurskoðunarnefnd- ina og þaðan í þingið. - Málaloka er beðið með mikilli eftirvæntingu. Guömundur G. Þórarinsson Ummæli Siðlaust réttarástand? „Ég fæ ekki varist þeirri hugsun, að eitt- hvað sé athugavert við réttarástand sem leyfir, að maður sé af handhöfum ríkisvalds sviptur frelsi sínu um nær 9 mánaða skeið, án þess að hafa sannanlega til saka unnið, og síðan synjað um bætur vegna frelsissviptingarinnar. Þetta gerðist í síðustu viku, þega Hæstirétt- ur synjaði þekktum sakborningi, Kio Briggs, um bætur.“ Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttar- lögmaöur í Mbl. 17. október. Samræmd samgönguáætlun „Eins og ástatt er í fluginu hefur ríkis- valdið blandað sér í máli, og boðið út rík- isstyrkt flug til nokk- urra staða sem svo háttar til um að eru mjög háðir flugsam- göngum, en flutningar hafa dregist saman ... Þeir sem aka á áætlunarleið- um njóta endurgreiðslu af þungaskatti og takmarkaðra ríkisstyrkja. Það er nauðsynlgt fyrir ríkisvaldið við þessar aðstæður að leggja málið niður fyrir sér með samræmdri samgönguáætlun, þar sem reynt yrði að kortleggja sam- göngukerfi fyrir landið allt, og sam- ræma samgöngur á landi og í lofti frekar en orðið er.“ Jón Kristjánsson alþm. í Degi 17. októ- ber. Sameining ríkisbanka „Takist samningar um sameiningu Landsbanka og Búnaðarbanka munu forráðamenn hins sameinaða banka standa frammi fyrir állt að því risa- vöxnu verkefhi. Markmiðið með sam- einingunni er að ná fram stóraukinni hagræðingu, miklu minni tilkostnaði og öðrum ábata, sem komi m.a. við- skiptavinum bankanna til góða. Það er einfaldlega óhugsandi að ná þessum markmiðum án þess að teknar verði sársaukafullar ákvarðanir." Or forystugrein Mbl. 17. október. Hagræðing með sameiningu „Sameining (ríkis- bankanna) á að þýða hagræðingu. Því ætti þetta að koma neyt- endum til góða og það er auðvitað grundvall- arkrafa okkar að svo verði. Ég hef hins veg- ar því miður nokkrar efasemdir um að þetta gangi eftir, enda verður fákeppn- in enn meiri á þessum markaði en ver- ið hefur.“ Jóhannes Gunnarsson, form. Neytenda- samtakanna, i Degi 17. október. Kristinn H. Gunn- arsson og evran betur sett en hinar Norðurlandaþjóð- imar að halda sig utan við ESB hvað varðar sérstöðu sína á alla vegu. Hér býr ein þjóð í eylandi, allfjarri þeim löndum sem hcifa gengið í Evrópu- sambandið. Margir vilja halda því fram að með aukinni tæknivæðingu og betri samgöngum sé heimurinn alltaf að minnka. Þetta á ekki við um ísland. Að vísu búum við í tæknivæddum heimi og viljum halda sem bestri vináttu og sambúð við allar þjóðir. Þá viljum við halda góðu sambandi við eina bestu og stærstu viðskipta- þjóð okkar, Bandaríki Norður-Amer- íku. Og við viljum halda í aldagaml- ar venjur okkar, siði og menningu ólíka menningu flestra annarra þjóða, sem við erum stolt af. Nú má enginn taka orð mín svo aó- að ég sé hlynntur því að við hverfum' aftur til gamla moldarkofabúskapar- ins. En fyrr mætti nú vera. Sérstaða okkar aldagömlu menningar verður aldrei varðveitt nema við forðumst að láta stóra bróður, risann í Evrópu (ESB), gleypa okkur með húð og hári. Karl Ormsson Gallarnir meiri en kostirnir Þar sem Kristinn sækir alla sína kjósendur í nokkur sjávarpláss og dreifðar sveitir er ég hræddur um að hann eigi sér fáa talsmenn ef hann ætlar að halda þessu til streitu. Að ganga í ESB er fráleitt fyrir okkur, eyþjóð langt úti í hafi sem fær mest- an sinn gjaldeyri fyrir sjávarafla, „Sumir stjómmálamenn hálda að þeir afli sér ein- hverra vinsælda með svona vitleysu en það er alveg öf- ugt. - í eina þessa ímynduðu vinsœldagryfju fellur þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Kristinn H. Gunnarsson, nýlega. “ Það er alveg furðulegt hvað sumir stjómmála- menn geta látið hafa eftir sér mikla vitleysu sem virð- ist eingöngu gert til að aug- lýsa sig og kynna. Það er eins og gamla máltækið sé alltaf í gildi, „Betra er illt að gera en ekkert“. Sumir stjómmálamenn halda að þeir afli sér einhverra vin- sælda með svona vitleysu en það er alveg öfugt. - í eina þessa ímynduðu vin- ......... sældagryfiu fellur þingflokksformað- ur Framsóknarflokksins, Kristinn H. Gunnarsson, nýlega. Það er jafn víst og að dagur kem- ur á eftir nóttu að ef þjóðin fær að ráða og henni verða vel kynntir kost- ir og gallar þess að ísland gerist að- ili að ESB lifum við Kristinn hvorug- ur þá vitleysu að það gerist að ísland taki upp evruna í staðinn fyrir gömlu krónuna. Og sem betur fer. Helilbrigði og hollusta Það er alltaf að koma betur og bet- ur í ljós að þjóðir veraldar vantar fisk og annað sjávarfang. Heilbrigði fólks er ofarlega á baugi um allan heim. Hvergi í veröldinni er fólk heilbrigðara en þar sem það lifir sem mest á þessum afurðum. Áratugum saman hafa farið fram kannanir viða um heim og allar sýna að einmitt það sjávarfang sem við ísland veiðist er hollara en annað, enda ekki að furða þar sem ekkert haf er ómeng- aðra en Norður-Atlantshafið. Kristinn H. Gunnarsson veit vel að ef ísland gengi í ESB yrði enginn fiskur hér á boðstólum eftir fáein ár. Því er það afar mikill bamaskapur hjá honum að hcdda því fram að landsbyggðin og sjávarplássin væru betur stödd með því að við gengjum í ESB og tækjum upp evruna sem gjaldmiðil. Einfaldlega yrðu hér eng- in sjávarpláss né fiskveiðar þegar úlendingar væru búnir að þurrausa miðin. Þetta getur hvert mannsbam sagt sér. ferðamannaþjónustu og út- flutningsiðnað. Við yrðum að búa við frjálsan og óheftan innflutn- ing á ferskum matvælum í samkeppni við okkar smáa og heilbrigða matvælaiðn- að. Landbúnaður yrði að búa við frjálsan markað sem aðrir og við yrðum að sitja og standa eins og stóri Karl Ormsson bróðir (ESB) segði hverju deildarfulltrúi sinni. Alltaf er að koma betur og betirn í ljós að þær Norðurlanda- þjóðir sem gengið hafa í ESB finna æ meira hvað gallarnir eru miklu meiri en kostirnir og sem sannaðist best í kosningunum í Danmörku nú síðast um upptöku evrunnar. Finnar og Svíar telja sig hafa skaðast á inngöngu sinni í Evrópu- sambandið, það væri ekki ótrúlegt að Danir höfnuðu aðild ef kosið yrði nú. Það eru margir sem hafa sett fram þá kenningu að Danir hafi hafnað aðild að evrunni vegna til- finningatengsla við gömlu krónuna. Þetta er út í hött. Til þess voru úr- slitin í þjóðaratkvæðagreiðslunni allt of afgerandi. Og ísland er enn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.