Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Síða 3
j Hljómsveitin Stolið gefur út sína fyrstu breiðskífu í byrjun nóvember en meðlimir j hennar eru kjarninn úr Soma sem gerði það gott hér um árið. Þeir piltar segjast ; hættir í ballspilamennskunni, nú verði þetta gert á þeirra forsendum og þeir kunni miklu betur við málin þannig. Titillagið fékk að fjúka Stoliö er fjögurra manna sveit og þar af eru þrír sem voru í Soma sem hætti 1998. Meðlimimir eru Guð- mundur Annas Árnason söngvari, Snorri Gunnarsson gítarleikari, Kristinn J. Arnarson bassaleikari og Huldar Freyr Arnarson trommu- leikari. Þeir segjast hafa verið að vinna að þessum diski alveg síðan Soma lagði upp laupana. Enginn huge-hittari „Við gátum einhvern veginn ekki gert neitt meira í þessu formi sem við ýorum í með Soma og svo virkaði þkkert þetta ballspilunardrasl sem yið vorum að gera. Það var oröið leið- inlegt og við vildum frekar koma okk- iir fyrir i húsnæði og semja góða tón- íist og fullvinna hana - sleppa öllu Svona rugli,“ segir Kristinn í upphafi. ■ Hefur tónlistin þá breyst mikið? „Já, hún hefur breyst til batnaðar allavega," segir Guðmundur. „Það er auðvitað rétt að þegar maður er hætt- ur að spila á böllum og svona getur maður einbeitt sér meira að músík- inni sjálfri. Svo emm við líka færri núna þannig að við höfum getað dúll- að okkur við þetta í tvö ár. Ja, dúllað okkur og ekki dúllað, það tekur auð- vitað tíma að þróa sig með nýtt band og þó að við séum þrír úr Soma þá breytist ýmislegt við að við séum bara fjórir. Fyrir utan það að hafa verið að velta sér meira upp úr þessu þá breytast lagasmíðarnar auðvita líka.“ Þiö fenguó nokkra útvarpsspilun meó Soma, búist þið viö einhverju sliku núna? „Sumt af þessu er alveg útvarps- vænt en það er enginn huge-hittari, allavega ekkert sem maður sér fyrir," segja þeir. Tónlistin núna virðist vera nokkuð fjölbreytt; í það minnsta segj- ast þeir vera með brass í þremur lög- um og selló í öðrum þremur og svo pí- anó. Fórna sér fyrir áhugamálið Aðspurðir segja drengirnir að vinna í stúdíói hafi tekið um þrjá mánuði með einhverjum hléum og alls hafi þetta verið um 200 stúdiótím- ar sem þeir segja mikið miðað við hvað þeir hafi gert áður. En ætla þeir að reyna að fylgja plötunni vel eftir? „Eins og við vorum að tala um áðan þá spiluðum við auðvitað ansi mikið með Soma en það sem við erum búnir að vera að gera tvö síðustu ár er alveg þveröfugt við það. Ég held að við höfum bara spilað á einum tón- leikum. Núna er allavega kominn tími á að við fórum að láta í okkur heyra aftur. Það er náttúrlega stefnan núna að láta fólk vita að við séum að gera eitthvaö," segir Guðmundur. „Nú er komið að því að maður verður að gera það sem maður hefur verið að forðast, það er ekki hægt að skorast undan því að fara í viðtöl og svoleiðis. Munurinn núna er auðvitað að við erum að fara að gera þetta á okkar forsendum," segja þeir. En er stefnt aó einhverju takmarki í sölutölum? „Nei, við höfum aldrei verið að velta okkur upp úr þvi. Við reiknum allavega ekki með því að við förum að fá allan þann kostnað sem við höfum lagt í þetta til baka.“ „Maður er reyndar ekki að gera þetta til að græða á þessu, þá spilaði maður allt aðra tónlist. Þetta er bara áhugamálið og maður verður að fórna sér í það.“ Aó lokum: Hvaö heitir platan? „Allt tekur enda. Á henni eru níu lög en lagið Allt tekur enda komst ekki á plötuna og bíður betri tíma.“ Vondir menn bióöa I Viktor er heiti á nýrri íslenskri sjón- varpsmynd og fjall ar um ástir og undirferli í lífi stöðumælavarða. Mörgum þjóðfræg- um leikurum bregður fyrir, en þetta er fyrsta myndin sem Vil- hjálmur Ragnars- son leikstýrir, þó hann hafi verið í bransanum síðan ‘74. ■ jr Viktor vinnur sem stöðumælavörð- ur og er mjög óframfærinn en samt grimmur í sínu starfi. Annaðhvort er mælirinn á rauðu eða grænu og það er ekkert þar á milli," segir Vilhjálmur um aðalpersónuna. Öflugir leikarar „Viktor er líka rosalega skotinn í stelpu sem hann sér bara á plakötum og auglýsingaskiltum. Svo er önnur kona, Heiðdís, sem er hrifm af honum. Hún er líka stöðumælavörður, eða kannski frekar stöðumælavarða, og Viktor er bara með henni þegar hann er fullur. Á vinnustaðnum hefur störf óprúttinn maður, sem er svona „höstler". Hann er spilltur, vinnur fyrir búðareigendur en reynir að koma sökinni yfir á Viktor. Á endan- um er hann rekinn og býður sig fram í borgarstjórn, hækkar sig bara upp, eins og vondir menn gera,“ segir Vil- hjálmur. Leikarar myndarinnar eru ekki af verri endanum og meðal þeirra sem koma við sögu eru Baldur Trausti Hreinsson, Halldóra Geir- harðsdóttir, Steinn Ármann Magn- ússon, Sigurður Sigurjónsson, Ólaf- ía Hrönn Jónsdóttir, Vilhjálmur Goði Friðriksson og Pálmi Gests- son. Betra að gera sjónvarpsmyndir Vilhjálmur hefur komið að fram- leiðslu og fjármögnun 14 mynda á tæp- um tveimur áratugum. Nýlega fram- leiddi hann sjónvarpsmynd Júlíusar Kemp, Sjálfvirkinn. „Ég hef komið meira og meira inn í þróun handrits- ins og þekki auðvitað framleiðsluferl- ið og fólkið vel og þess vegna ákvað ég að snúa mér að handritsgerðinni og leikstjórn," segir Vilhjálmur og hefur hug á því að halda áfram á þessu sviði. „Mér finnst best að gera sjón- varpsmyndir. Það er eins og að klifra upp á litla hæð. Þú sérð alltaf allan hringinn, en bíómynd er stærri og þá ertu meira i hvarfi." Árni Ibsen skrif- aði handritiö að Viktori með Vil- hjálmi. „Við Árni höfum unnið saman í nokkuð mörg ár og samstarfið geng- ið vel. Við erum að vinna að kvik- mynd í fullri lengd, sem mun heita Veikara kynið og íjallar um líf karl- manna," segir Vilhjálmur að lokum, en Viktor verður sýndur í Ríkissjón- varpinu á sunnudagskvöld. e f n i Diskótekið Dollý: Erum stærstir og bestir Skemmtistaðir borgarinnar: Hvað þarftu til að komast inn? ■Jóhann og Cameron: Keppa oft um sama hlutverkið Hljómsveitin Mínus: Enga Rex- uppa á tónleika Þorsteinn Guðmundsson Er IAll Saints: Helmingur- inn athygl- issjúkur U2: Afturhvarf I tónlist- inni Islenskir djammarar: Hverjir voru oft- ast hvar? íslenskir karlmenn: Þeir best og verst klæddu 1* £ * 2L. 1 f X 0 Shaft fnimsvnir Orgazimo á Thomsen Stúdentaleikhúsið mætt aftur Bedazzied frumsvnd f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók ÞÖK af Jóhanni Frey Björgvinssyni og Cameron Corbett 27. október 2000 f ÓkUS 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.