Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Side 6
emn
und-
haf
Nei takk
við Duran
Airwaves-hátíöin
gekk glimrandi vel
um siöustu tielgi og ^H
viröist komin til aö —
vera. Hljómsveitin . ■ ,
Suede, eöa Slade •**«, Hm3
eins og mbl.is kall- w
aöi hana, var aöal-
númerið og stóö
hun sig vel Fokus
hefur af þvi fregnir VI
aö venjulega taki
sveitin u.þ.b. sjö milljónir fýrir tónleika sem
þessa en sökum áhuga á aö spila hérna var
hún tilbúin að lækka sig verulega. Brett And-
erson sást annars bregöa sér á tónleika Slg-
ur rósar í Háskólabíói á fimmtudaginn og seg-
ir sagan aö hann hafi látiö sig hverfa út um
miöja tónleikana. Hvort honum hefur leiöst
eöa innblásturinn komiö yfir hann er ekki vit-
að en fólk staröi allavega á eftir honum þegar
hann fór. Aö lokum getur Fókus upplýst aö
skipuleggiendur hátlöarinnar uröu að neita
boði á síðustu stundu frá Duran Duran sem
endilega vildi spila á hátíöinni. Ekki er vitaö
um ástæðurnar en allavega var þaö Nick Roa-
des sem hringdi sjálfur og bauð þjónustuna.
Skee-mo
Þaö er oröið löngu tímabært aö umheimur
skersins fái að heyra í Skítamóral og nú virö-
ist mikil vakning vera fyrir strákunum í útland-
inu. Á dögunum birtist
hér á síðum blaðsins við-
tal viö nokkra innanbúð-
armenn hjá poppgyðj-
unni Britney Spears
sem lýstu áhuga sínum
á Móralnum og mögu-
legum sóknarfærum
sveitarinnar I Bandarikj-
unum. Ekki hefur frést af fyrirhuguðum tón-
leikum eöa útgáfu ytra en Ijóst er aö strákarn-
irvita af því aö fylgst er meö þeim. í dagskrá
Airwaves-hátíðarinnar kusu þeir aö kalia sig
Skee-mo, útlenskum útsendurum fjölmiöla og
hljómþlötufyrirtækja til hægöarauka. Svo er
bara að bíöa og sjá hvaö setur og vona að
strákunum verði ekki ruglað saman við dverg-
vaxna rapparann Skee-lo
Til
heiðurs
Það dylst engum að
Ólafur Páll, umsjónar-
maöur Rokklands og
Popplands á Rás 2,
er góður útvarpsmað-
ur. En hann
legá meiri
fagna og dyggari aö-
dáendur en nokkur
skyldi ætla því
heyrst hefur af því aö nokkrir af hans helstu
hlustendum í gegnum árin hafi tekið höndum
saman um að skipuleggja tónleika til heiðurs
stráknum. Tónleikarnir veröa haldnir innan
skamms á Gauki á Stöng og meðal þeirra sem
talið er aö muni stíga á stokk eru 200.000
naglbítar, Margrét Eir og Bubbi.
Skemmtanamenning borgarinnar tekur sífelldum breytingum um þessar mundir. Eftir
að gefið var frjálst að hafa opið hefur viðhorfið breyst og við virðumst alltaf vera
að verða siðmenntaðri en áður. Það þekkist vart lengur að fólk hópist saman í mið-
borginni eftir lokun og virðast flestir vera ánægðir með þessa þróun. Raðirnar á
skemmtistöðunum virðast samt ekki vera að minnka en sumir hafa tekið upp á því
að erlendri fyrirmynd að hleypa sumu fólki fram fyrir aðra í röðunum. Er þetta
þróunin eða verður fólk að bíða í röð áfram? Við tókum púlsinn á nokkrum skemmti-
staðamógúl^m.
„Við erum með lista sem er
aður fastagestalistinn og á hc
er fjölmiölafólk, fyrirtæki, j
snúðar og starfsfólk sem við e
í samstarfi við auk fólks sem i
skilið," segir Agnar Tr. Le’m
framkvæmdastjóri Thomsens.
ar segir að þetta sé gert að br
fyrirmynd og í dyrunum sé s
maður með clipboard sem séi
að velja fðlk úr röðinni. „Þe
ekki nóg að þekkja dyravör
það er manneskja sem sér um
og þetta á að vera í hennar hön
Við gerum þetta bara eins og
er gert alls staðar annars staðc
Ná í lið í röðinni
Skuggabarinn hefur verið
af heitustu stöðum bæjarins
anfarin ár. Þar þarf fólk að bui&a
inn og myndast oft löng röð fyrir
utan. Þegar best hefur gengið segir
sagan að fólk hafi getað borgað
1500 kall til að komast beint inn.
„Fólk ræður hvað það borgar inn
hjá okkur, í aðaldyrunum er það
500 kall en fólk getur komist beint
inn í gegnum hliðardyr ef það
borgar 1000 kall,“ segir Nökkvi
Svavarsson, skemmtanastjóri á
Skuggabarnum. Hann segir að liðið
sem fer beint inn sé oft með
svokölluð VlP-kort frá staðnum. En
hverjir fá slik kort?
„Það er auðvitað lið sem stundar
staðinn mikið og fólk sem maður
viil hafa inni á staðnum," segir
Nökkvi. Hann segir þá ekki hafa
viijað fara út í að hafa mann sem
pikkar fólk út úr röðinni, það hafi
verið gert í árdaga staðarins en síð-
an núverandi eigendur tóku við
hafi það ekki veriö gert. „Reyndar
er óft mjög stappað við hliöardyrn-
ar og þá er oft náö í lið í röðinni og
það eru aðallega góðir gestir stað-
Stella Hauksdóttir trúbador.
Möröur Árnason íslenskufræöingur.
Mörður Árnason og Stella Hauksdóttir eiga fleira sameiginlegt en
keimlíka andlitsdrætti. Bæði eru miklir áhugamenn um öll andans mál
og ástkæra ylhýra á hug þeirra beggja. Mörður er lærður maður í ís-
lenskum fræðum, þykir sérlega vel máli farinn og talar mikið fyrir vik-
ið. Kannski er engin vanþörf á þvi fyrir mann sem svarar fyrir Sam-
fylkingima og útvarpsráð og það stundum samtímis. Stella, sem er eins
konar Tina Tumer, rokkamma íslendinga, hefur ekki tapað kynþokkan-
um og lífsgleðinni með aldrinum. Hún kann líka að fá orðin í sina þjón-
ustu og beitir egg tungunnar í textasmíðum sínum sem trúbador. Þetta
hefur vafalítið nýst þeim báðum vel í þrásetum sínum á öldurhúsinu
Grand Rokk.
arins, viðskiptavinir okkar o.s.frv.
Það var nú meira að segja þannig á
dögunum að söngvarinn í Simply
Red borgaði 500 krónur inn en ég
held að Superman hafi fengið frítt
þegar hann var hérna.“
Respect fyrir
fastakúnnana
Um síðustu helgi hóf Kjallarinn
starfsemi sína í húsakynnum
gamla Þjóðleikhúskjallarans. Þar
eru við stjómvölinn reyndir menn í
skemmtanabransanum og þeir hafa
trú á þessum nýju starfsaðferðum.
„Við erum auðvitað með VIP i röð-
inni og svo verðum við með nokk-
uð sem mun heita Respect en það
er ekki enn farið í gang. Svo erum
við með yfirdyravörð sem er auð-
vitað hálfgerður útpikkari," segir
Ásgeir Kolbeinsson hjá Kjallaran-
um. Respect er nokkuð sem helstu
gestir staðarins geta fengið og veit-
ir það þeim ýmis fríðindi. Boðið
verður upp á Respect-herbergi og
kort til að komast inn auk þess að
fólk fær drykkina ódýrari en aðrir.
„Fólk sem er með Respect-skirteini
fær að fara inn bakdyramegin og
taka 2-3 gesti með sér.
Það er náttúrlega óhæft þegar
fólk er alltaf að fara á sama staðinn
og fær ekkert í staðinn. Hjá okkur
fær það drykkina á ca 35% lægra
verði og getur auðvitað verið fram
undir morgun á staðnum því við
erum með klúbbaleyfl,” segir Ás-
geir.
Kiddi Bigfoot á Astró heldur enn
í gamlar hefðir og segir að þær
gangi alltaf upp. Þær upplýsingar
fengust hjá honum að þar væri VIP-
röð auk venjulegrar raðar. Á Astró
kostar 500 krónur inn eftir mið-
nætti og 1000 krónur eftir 3. Þeir
sem fá VlP-kort hjá staðnum eru
annars vegar góðir kúnnar og fólk
sem stundar staðinn mikið og eins
einhverjir VlP-aðilar. Kiddi segir
að reynt sé að gera öllum til geðs en
það geti verið erfltt því alltaf skap-
ist vandamál þegar hreyfíng kemst
1. Agnar Tr. á Thomsen.
2. Nökkvi Svavars á Skuggabarnum.
3. Kiddi Bigfoot á Astró.
4. Ásgeir Kolbeins í Kjallaranum.
á mannskapinn upp úr miðnætti.
Hann segir að ekki standi til að
byrja með móttökustjóra til að
pikka fólk út úr röðinni. „Það
myndi flokkast undir hroka og ölv-
að fólk myndi ekki fila það. Þetta
hefur verið reynt hérna en gekk
ekki. Við reynum frekar að hafa
alltaf sömu dyraverði sem þekkja
fólkið, það komast allir inn, fólk
verður bara að sýna ró og þolin-
mæði.“
Þjónustum okkar fólk
„Það eru fjölmargir sem eru á
listanum hjá okkur og við erum
alltaf að taka fólk út og setja nýtt
inn í staðinn. Þess vegna er ég svo
á móti VlP-kortum því það er ekki
hægt að taka þau til baka. Á stór-
um kvöldum sem eru að kosta okk-
ur mikið erum við svo með niður-
skorinn lista,“ segir Agnar. Og
hann er sannfærður um að þetta sé
besta fyrirkomulagið.
„Þetta var eitt það fyrsta sem við
gerðum þegar við tókum við staðn-
um. Máliö er bara að þeir sem eiga
skilið að fá þjónustu fá hana. Það
getur verið alls konar rugl og
stjórnleysi í þessum venjulega röð-
um en þarna erum við bara að
þjónusta okkar helsta fólk.“
Það virðist ljóst vera að einhver
hreyfing sé komin í áttina að því
að skemmtistaðamenning hér
verði eins og hún er úti. Flestir
virðast vera á þeirri skoðun að
verðlauna eigi fastagesti staðarins
og þá sem stjómendumir vilja hafa
inni. Þessi þróun leiðir líklega til
aðeins dannaðra skemmtanalífs en
við Jón Jónsson-fólkið verðum
áfram að standa úti í kuldanum.
6
f Ó k U S 27. október 2000