Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Qupperneq 18
í f ó k u s JólavertíSin er svo sannarlega í fókus um þessar mundir. Þó að þessi geðveikasti tími ársins sé ekki enn hafinn er þess ekki langt að þíða að hann skelli á. Eftir nokkrar vikur má bú- ast við því að verslanir í miðborginni skrýðist jólaskrauti og þó snjórinn sé enginn kominn getur ekki verið annaö en notalegt að vita til þess að þessi tími sé fram undan. Nú fyllast ~®feóka- og plötuverslanir af nýjum vörum og fátt er eins gleðjandi að geta gengið inn í þær versl- anir og týnt sér í því hvað maður eigi nú að kaupa. Þótt fólk eigi það til að sleppa sér alger- lega í innkaupunum geta allir glaðst þegar að- fangadagur rennur upp og fólk sameinast um að slappa af og gera ekki neitt. Gleðileg jól. ú r f ó k u s Hver hefur áhuga á að sitja í Wgr~ rólegheitum fýrir framan sjón- W0 varpið að horfa á góðan þátt Sp? og vera svo allt í einu truflað- M' ur af einhverju auglýsinga- .Jjléi? Þetta er nokkuð sem Stöð 2 hefur allt i æinu tekiö upp á aö gera undanfariö, væntan- lega og vonandi viö litla hrifningu áhorfenda. Á besta tíma á laugardagskvöldum hafa sjón- varpsþættirnir Friends og síðan Simpson ver- ið rifnir í sundur með einhverri leiðinlegri aug- lýsingu en slíkt hefur ekki þekkst áöur f ís- lensku sjónvarpi um 20 mfnútna þætti. Ekki nóg með að fólk sé að borga morð fjár í hverj- um mánuði til þess eins að sjá þessa þætti heldur þarf stöðin að fara að troða auglýsing- um inn f þá. Fyrirmyndin er væntanlega komin úr bandarisku sjónvarpi en þar borgar fólk alla jafna ekki 5000 kall á mánuði fyrir eina stöö. Auglýsingar f sjónvarpi eru sjálfsagður hlutur en þetta er fulllangt gengið, sérstaklega í Ijósi þess að það er ekki eins og dagskráin á Stöð 2 sé eitthvað til að hrópa húrra fyrir. Nei/ stjórnendurnir eiga nokkra aðalpósta og þegar á að fara aö troða auglýsingum inn í þá fer maður alvarlega að hugsa um að stinga J^reiðsluseðlinum I ruslið. Þó að flestir foreldrar þekki afkvæmi sín í sjón og sumir hverjir á lykt eða öðrum einkennum og lýtum er þeim gert að klína viðurnefni á börn sín, embættismönnum og öðrum til hægðarauka - og það ekki síðar en sex mánuðum frá fæðingu þess - og sæta dagsektum frá Hagstofu íslands að öðrum kosti. Það er mikill höfuðverkur ný- bakaðra foreldra að finna nafn á barn sitt. Á að skíra í höfuðið á einhverjum eða leyfa frumleikan- um að ráða ferðinni? Ekki er þó sama hvað bamið heitir. Það er Mannanafnanefndar að ákveða hvaða nöfn eru gild og hver eru ekki íslendingi sæmandi. í nefnd- inni eiga sæti þrír menn, skipaðir af dómsmálaráðherra til fjögurra ára i senn. Reglurnar um það hvemig nafnið má vera eru útli- staðar í fjórum liðum á netsíðu nefndarinnar. Þær eru eftirfarandi: - Nafniö þarf að geta tekið ís- lenskri eignarfalisendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. - Það má ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfí. - Það skal ritað i samræmi við íslenskar ritvenjur nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. - Það má ekki vera þannig að það geti orðið þeim sem ber það til ama. - Stúlku má aðeins gefa kven- mannsnafn og dreng aðeins karl- mannsnafn. Hefð og ami Þaö tvennt sem helst vefst fyrir fólki eru ákvæðin um hefð nafns og þaö að nafnið valdi ekki þeim sem það ber ama. Hjá Mannanafna- nefnd fengust þær upplýsingar að hefðin miðaðist við fjölda nafn- bera. Nafn þykir gott og gilt til skímar ef 15 núlifandi islenskir ríkisborgarar bera það þegar, ef 10-14 bera það og sá elsti þeirra er skriðinn yfir þrítugt, 5-9 bera það og elsti er orðinn sextugur eða að síðustu ef 1-4 bera nafnið og það kemur fyrir í manntali 1910. Hvaö amaákvæðiö varðar mun því víst lítið sem ekkert beitt síöustu ár og áratugi en tilgangur þess upphaf- lega var sá að bægja því frá að fólk yrði nefnt gælunöfnum. Önnur ákvæði em til dæmis að ekki megi heita fleiri en þremur eiginnöfn- JodL Agða, Albína, Blíða, Aðils, Aspar, Bekan, Brák, Drótt, Egedía, Berent, Bersi, Bjólan, { Eggrún, Gjaflaug, Blængur, Dómaldi, | Gissunn, Grélöð, Dósóþeus, Dufgus, Irpa, Ísdís, Jóngerð, Dufþakur, Enok, Kaðlín, Konkordía, Fabrisíus, Gamalíel, 1 Kristvina, Lóreley, Háleygur, Hemmert, > Læla, Ljótunn, Mörk, ísidór, Játgeir, Júrek, Njóla, Petrúnella, Kaleb, Kaprasíus, Randalín, Runný, Kjallakur, Líni, Lýting- Senía, Sía, Sylgja, ur, Ljótur, Mekkinó, i Todda, Tóka, Ugla, Mýrkjartan, Parmes, Úndína, Þrá, Ægileif, Vorm. Örbrún. um, ekki fleiri en einu millinafni og að enginn megi taka upp nýtt ættarnafn hér á landi. í höfuðið á skáldsögu Einkennilegast við ákvæðin er kannski það að öll sú vitleysa sem fólki hefur dottiö í hug að láta skíra börn sín fyrir manntaliö 1910, og áður en eftirlit hófst með nöfnum, lifir enn góðu lífl. Vest- firðir koma sérstaklega sterkir inn þegar rætt er um furðulegar nafn- giftir og þar voru til dæmis ófá stúlkubömin skírð í höfuðið á að- alpersónu samnefndrar ástarsögu, Kapítólu, fyrir 1910. Mannanafna- nefnd birtir árlega lista þeirra nafna sem leyfilegt er að skíra og sömuleiðis þau sem hún hefur hafnað nýlega, og þar kennir ým- issa grasa. Meðal þeirra millinafna sem nefndin hefur hafnað að und- anfórnu eru Jámsíða, Kap, Kort, Vídó og Zeppelin. Strákanöfn sem ekki hafa hlotið náð fyrir augum nefnarmanna eru til dæmis Antorn-Gabríel, Fryolf, Ká, Kosmo, Lorenzlee, Lusifer og Vídó. Meðal stúlkunafna sem hafa farið sömu leið eru Satanía, Ýrí, Naomi og Cathinca. Að ofan er svo listi með nokkrum sérkennilegum nöfnum drengja og stúlkna sem leyfilegt er að nefna islensk börn en eru fæst í mikilli notkun. hverjir voru hvar SkjárEinn fagnaöi árs afmæli sínu um allan bæ um helgina og var Prikið auövitað þéttskipaö af þeim sökum. Meöal þeirra sem létu leiða sig út á djammið voru Björn Jör- undur Friöbjörnsson, Vil- hjálmur Goöi, Dóra Takefusa, Helgi Eysteins- son, Björk Guðmunds- dóttir, Chloe Ophelia og Kjartan Vilhjálmsson flug- þjónn. Stórtónleikar lceland Airwaves voru haldnir í ''feaugardalshöll á laugardagskvöld og það var sko vettvangur fýrir fræga fólkiö til aö hittast. Meöal viöstaddra voru Teitur Þorkelsson og Brynja X. Vífilsdóttir frá Sjáðu, Helðar úr Botn- leöju og Unda GK, Ámi Sveinsson plötusnúöur og sjónvarpsmaöur, Elíza úr Bellatrix með crewiö frá Bretlandi og Karl Óttar bróðir henn- ar, Ólafur Páll Gunnarsson rokkhundur, Raggi úr Botnleöju, Franz úr Ensími, Páll Banine með baksviðspassann sinn, Sigmar Guðmundsson fréttamaður á Stöð 2 og fyrrverandi útvarps- maður á X-inu, Þossi útvarpskóngur, Úlfur stjörnukisi, Hemmi feiti af Radíó-X, Beggi rót úr Buff, Friðrik Weishappel at- hafnamaður, Einar Örn , Penediktsson sykurmoli, Ragnhlldur Gísladóttir tónlistarmaður, Finnur Vil- hjálmsson sjónvarps- stjarna, Nonni í Quest og Erik Hirt á Vegamótum. Stundin rokkar. Þaö ervitað að Keli eryfirlýstur hatursmaður Suede, en Ásta taldi það ekki eft- ir sér að mæta sem fulltrúi Stundarinnar. Svo sást auðvitað til skipuleggjendenna Þorsteins Stephensen og Magnúsar frá Flugleiðum. Eftir tónleikana var svo eftirpartí tyrir allan mannskapinn á Thomsen þar sem fjölmenni var, undir lok nætur mátti glitta í fólk eins og djammhundana í Thie- very Corporation, með- limi Suede, ýmsa erlenda blaðamenn, Úlf Eldjárn og Guðjón í Oz auk frönsku barpíunnar Fanny Mercier. Guðjón í Oz sást reyndar fyrr um kvöldið á Vínbarnum þar sem Björk Guðmunds- dóttir spókaði sig einnig. Það var gífurleg stemmning aö vanda á Klaustr- inu og þar voru meðal annarra Hannes Hólm- steinn sem fagnaði nýrri bók sinni með stjórn- málafræðinemum Háskólans í kjallaranum, Er- lingur Ijósmyndari, Kjartan Sturluson, mark- maður Fylkis, vinkonurnar Hind og Birna voru heillandi á dansgólfinu, og þá var Heiða Val- mikistúlka ekki siðri frekar en Eiríkur Önundar sem var í vatninu og sýndi snildar r&b-takta eins og venjulega. Steini og Sölvi í Quarashi sötruðu kokteila á kantinum með Heiðu og Kollu Topshop stelpum, Pétur Jésú sást á sveimi eins og allir helstu torfærukallarnir sem fögnuðu mismikið eftir lokakeppnina. meðal þeirra vor Haraldur Pétursson íslandsmeistari og Gísli G. Jóns og svo voru allir vel tryggöir í návist starfsfólks Sjóvá Almennra. Astró hélt sínu um helgina og var nóg af fólki bæði kvöldin. Þar mátti meðal annars sjá Simba klippara, Svavar Örn tískulöggu, Yas- mine og vinkonur, skutlunar Elínu og Önnu dansara og Kollu frá lcelandic Models ásamt Jóni Kára og Christine Allied Domec. Ivan Burkni stilisti mætti, Gísli Jóhanns flugmaður, Valdi Valhöll, Gummi Gonzales og Ásgeir Kol- beins sátu í tjatti í rólegheitum, Gumml Ben úr KR mætti ásamt sinni heittelskuðu og vinkort- um hennar eftir góða máltíð á Óperu þar sem þau voru að fagna nýja samninginum við KR- sport, FM-mennirnir Kalli Lú, BJarki, Haraldur Daði, Maggi Magg, Halli Kristins og Rúnar Ró- berts voru ferskir við barinn, Eva frá Salon Ve, Linda Ásgeirs leikkona og vinkonur voru glæsi- legar aö vanda eins og Arna Playboy og vinkon- ur og Berglind fegurðardrottning og vinkonur. Fjölnir lét sig ekki vanta og með honum var Marín Manda, Aggi og ísi af Thomsen komu brosandi út að eyrum enda staöur þeirra fullur aö vanda, Björn Nike mætti ásamt félögum og einnig sást til Einars Kristjáns Pizza 67 manns. Módelpariö Vignir og Halldóra, Phillipe Dreamworld, Þurý Onix, Villi Vill sem lagt hefur stjórnmálaferlinum, Halla úr Gullsól, Þór Jósefs módel og Halli einkaþjálfari, Stöð 1 mennirnir Biggi og Hólmgeir, Árni í xl8, Gunna frá In- Wear og skvísunar, strákarnir úr Hr. Suöurland sýndu sig og sáu aðra. Valtýr Björn mætti meö Gulla Keflavíkurmarkveröi og voru bara í appel- sínudjúsi, Kolla og Top Shop gengiö, Sigurður Kári SUS maður og ívar Guðmunds af Bylgjunni og frú. Á Skuggabarnum var haugur fólks að vanda og sáust meðlimir Flaming Lips reka þar inn nefið eftirtónleikana. Lúövík Jónasson fótbotamaður leit við, Antonio frá lcelandic Models, Snorri Birgir hjá Sticks’n’Sushi, Valtýr Björn og Grétar Miller af Stöð 2. Gummi flugmaður, Bjarni Brands, KK, Gummi Th, Siggi Sveins, Guðmundur Páll og Hannes Jón Jónsson, Gunnar Berg og Dagný Skúla úr handboltanum, Sumarliði (eða Slummi) frá Vínbarnum.Tómas frá Café Victor, Krissi Brooks fótboltakappi og frú og eftir sýningu Strákanna á Borginni klkti Ed Bradley á Skugga í c.a. 60 mínútur! Á Mannsbar var góö stemning á föstudags- kvöldiö, maður við mann hringinn í kringum bar- borðið. Hæst bar á Felixi Bergssyni og félögum hans, en nokkur önnur kunnugleg andlit sáust. Tíska• Gæði* Betra verð f Ó k U S 27. október 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.