Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
Fréttir
Þingflokkur Framsóknarflokks kallaði ASÍ-fulltrúa á sinn fund:
Óánægðir með
framboð Ara
- stjórnvöld hafa ekki óskað nærveru minnar, segir Ari Skúlason
Þingílokkur Framsóknarflokks-
ins boðaði valda þingfulltrúa sem
sitja á þingi Alþýðusambands ís-
lands á fund sinn í fyrrakvöld.
Samkvæmt heimildum DV kom
m.a. fram í máli Halldórs Ásgríms-
sonar, formanns Framsóknar-
flokksins, á fundinum óánægja
með að starfandi framkvæmda-
stjóri Alþýðusambandsins, Ari
Skúlason, skyldi fara fram gegn
sitjandi forseta, Grétari Þorsteins-
syni, og þá án þess að segja af sér
sem framkvæmdastjóri. Nær allur
þingflokkurinn sat fundinn en
tveir ASÍ-fulltrúanna sem til hans
voru boðaðir eiga sæti í kjömefnd
á ASÍ-þingi. Auk þeirra voru alÞ
nokkrir frámsóknarmenn úr hreyf-
ingunni viðs vegar af landinu.
Skoðun flokksforystunnar á fram-
boðsmálum innan ASÍ mun hafa
fengið mismunandi hljómgrunn
meðal þingfulltrúa.
Samkvæmt heimildum DV mun
lítil ánægja í herbúðum Framsókn-
arflokksins með að Samfylkingin
sé jafnvel að fá fram á sjónarsviðið
mun hávaðasamari talsmann en
þann sem verið hefur, þ.e. Ara.
„Það er hefð fyrir þessu að þing-
flokkurinn hitti sína menn, þeir
fari yfir stöðuna, pólitísk áherslu-
aötriði og spjalli," sagði Hjálmar
Árnason, alþingismaður Fram-
sóknar, við DV í morgun. „En það
var alls ekki verið að gefa neinar
linur heldur heyra ofan í menn.“
„Ég vil ekki trúa þessu," sagði
„Það eru hörkuátök um völd á
þinginu,“ sagði Magnús L. Sveins-
son, formaður Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur, við DV j gær-
kvöld um 39. þing Alþýðusambands
íslands sem fram verður haldið í
dag.
Þingið hefur fram til þessa verið
undirlagt af kosningabaráttunni til
forseta. í gær voru línur heldur
farnar að skýrast. Svo virtist sem
stór hlutifólks utan af landi, sem er
í starfsgremasambandinu, ætli að
styðja Grétar Þorsteinsson. Þannig
séu komin upp átök milli þess hóps
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
og frambjóðandi ASÍ, um þessi
fundahöld við DV. „Hins má geta,
að það hefur komið fyrir á þessu
ári að stjórnvöld hafa sent þau
skilaboð til ASÍ að ekki væri óskað
annars vegar og Flóabandalagsins
hins vegar, sem stendur að stórum
hluta á bak við Ara Skúlason. Þetta
þykir dýpka enn þann ágreining
sem verið hefur með þessum hópum
eftir átökin í samningunum í vor.
Þá höfðu allmargir þingfulltrúar
verið að gefa sig upp í gær og virt-
ust fleiri af þeim ætla að styðja
Grétar heldur en Ara. Viðmælendur
DV voru sammála um að erfitt væri
að meta styrk frambjóöendanna í
gær, en skjálfti væri kominn í her-
búðir Ara. Þá herma heimildir DV
að meginhluti fulltrúa verslunar-
nærveru minnar á fundum með
þeim.“
Aðspurður um orðróm þess efnis
að hann myndi hætta hjá Alþýðu-
sambandinu ef hann næði ekki
kosningu sagði Ari að sér væri eng-
manna muni styðja Grétar. Þeir
hafa hins vegar haldið sig til hlés á
þinginu.
Ekki hafði í gærkvöld náðst sam-
staða innan kjörnefndar um eitt
framboð til miðstjórnar. Engin nöfn
eru komin upp á borðið varðandi
hugsanlegan varaforseta. Þá hafði í
morgun ekki verið gengið endan-
lega frá skiptingu fulltrúa í mið-
stjórnina. Samkvæmt fyrirliggjandi
hugmyndum myndi Starfsgreina-
sambandið, með Eflingu og Einingu-
Iðju á Akureyri innanborðs, fá sjö
fulltrúa en verslunarmenn ijóra. Þá
in launung á þvi að hann hefði ver-
ið ósáttur við margt varðandi starfs-
hætti forystunnar. „Ef ég tapa kosn-
ingunni mun ég skoða mína hluti í
rólegheitum en það er ekki tíma-
bært að ræða þetta núna.“ -JSS/gk
var eftir að ganga endanlega frá
fjórum sætúm. Þá er útlit fyrir að
kjörnefnd klofni um forsetafram-
bjóðendurna og geri tvær tillögur.
Eins og DV hafði greint frá höfðu
verslunarmenn haft veður af því
fyrir þingið að þeir ættu ekki að fá
nema þrjá fulltrúa í miðstjórn. Þeir
settu hnefann í borðið og virðast
hafa náð fjórða fulltrúanum inn. Á
bak við fjóra fulltrúa hafa verslun-
armenn tæp 30 prósent félagafjölda,
Starfsgreinasambandið hefur um 50
prósent félaga á bak við sína sjö
fulltrúa. -JSS
Ný uppgötvun ÍE
íslensk erfðagrein-
ing tilkynnti í gær að
vísindamönnum fyr-
irtækisins hefði tek-
ist að flnna svæði á
litningum erfðavísa
sem tengjast bein-
þynningu og slag-
æðaþrengingum í út-
limum. Þetta eru fimmti og sjötti
áfangi rannsókna sem lyfjafyrirtækið
Hoffman La Roche og Islensk erfða-
greining greina frá.
Verulegar launahækkanir
Launahækkanir allra starfshópa
landvinnufólks í Alþýðusambandi ís-
lands eru verulega umfram umsamdar
launahækkanir á rmdanfómum tveim-
ur áram vegna launaskriðs, að því er
fram kemur í þingskjali um efiiahags-
og verðlagsmál sem dreift hefur verið
á þingi Alþýðusambands Islands sem
nú stendur yflr í Kópavogi.
Ekkí auglýsingahlé
Útvarpsráð felldi tillögu á fúndi sín-
um í gær um að stutt auglýsingahlé
verði tekin í sýningum kvikmynda á
dagskrá Sjónvarpsins um helgar.
Beiðni um þetta kom frá markaðsdeild
Ríkisútvarpsins og átti þetta að vera
gert til reynslu fram að áramótum.
Hærri skatttekjur, lægri skuldir
Skatttekjur Reykjavíkurborgar
hækka úr 21 milljarði í ár í 24 millj-
arða á næsta ári samkvæmt fjárlögum
Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár.
Rekstur borgarinnar kostar 18,4 millj-
arða á næsta ári en kostar 17 milljarða
í ár. Skuldir lækka um 2,8 milljarða.
Framlög til menntamála hækka um
41%.
Ekki í nafni verkalýðshreyfingar
Einar Oddur Krist-
jánsson, alþingis-
maður og fyrrver-
andi formaður VSÍ,
og Ögmundur Jónas-
son, foi-maður BSRB,
mótmæla því sem
fram kemur í vænt-
anlegu þriðja bindi
ævisögu Steingríms Hermannssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra, að Einar
Oddur hafi talað í nafni forystumanna
launþegasamtaka þegar hann krafðist
þess að samningar BHMR yrðu numd-
ir úr gildi með bráðabirgðalögum sum-
arið 1989.
Tölvuormur hrellir landann
Fjölmargar tölvur hér á landi smit-
uðust af svokölluðum tölvuormi eða
vírus í gær. Tölvuvírus þessi gengur
undir nafninu NAVIDAD. Hann er
•þeim eiginleikum gæddur að geta sent
sjálfan sig sem viðhengi í tölvupósti og
heitir skráin NAVIDAD.EXE. Getur
hann valdið miklu tjóni og er mikil-
vægt að fólk opni ekki tölvupóst með
þessu heiti.
Frá þingi SÍ
Rólegt er á yfirboröinu en undir niöri ólgar og sýöur. Hörkuátök eru milli Ara Skúlasonar og Grétars Þorsteinssonar og
nú hefur Framsókn blandað sér í átökin. Þessi kona lét sér þó hvergi bregöa.
Allt á suðupunkti á ASÍ-þinginu:
Hörkuátök um völd
- dýpkar enn þann ágreining sem fyrir var
Svipaður fjöldi manns-
hvarfa hér og annars staðar
Helgi Gunnlaugsson, dósent í af-
brotafræði við Háskóla Islands, tel-
ur fjölda mannshvarfa á íslandi
svipaðan og í nágrannalöndunum.
Á fimmta tug manna hafa horfið á
íslandi síðan árið 1950, og þá eru
frátaldir þeir sem farist hafa á sjó.
Fjöldi manns hverfur tímabundið
á íslandi á ári hverju en flestir
finnast fljótlega aftur.
„Mín tilfinning er að ekki sé
meira um þetta hér en erlendis,"
sagði Helgi.
Hann vissi ekki til þess að nein-
ar samanburðartölur væru til, þar
sem miðað er við önnur lönd, en
taldi þó að líklega væru fleiri
mannshvörf miðað við höfðatölu í
löndum eins og Bandaríkjunum,
þar sem mun auðveldara er að
hverfa í fjöldann. „En við búum
héma á eyju með hafið í kringum
okkur og hafstrauma alls staðar
þannig að ekki á aö koma á óvart
þótt stundum hverfi menn,“ sagði
Helgi.
Þrjú þessara mannshvarfa sið-
astliðin 50 ár hafa verið rannsökuð
Helgi^únn- slikíi morOranii-
laugsson dósent gókn án vísbend-
inga,“ sagði
Helgi. Hann nefndi Geirfinnsmálið
sem dæmi þegar ungur maður,
Geirfinnur Einarsson, hvarf seint
á árinu 1974.
„Menn höfðu ekkert í höndun-
um og mér finnst ólíklegt að mál
af því tagi hefði getað náð eins
langt til dæmis í Bandaríkjunum
og það gerði hér hjá okkur,“ sagði
Helgi. Því máli, sem talið var
tengjast hvarfi Guðmundar Ein-
arssonar, sem hvarf snemma sama
ár, lauk með umdeildum fangelsis-
dómi fimm karlmanna og einnar
konu.
-SMK
Reikna út skattinn á Netinu
Gert er ráð fyrir að á eyðublaði
skattframtals fyrir þetta ár, sem skila
þarf eftir áramót, verði skráðar upp-
lýsingar um launagreiðslur, fasteignir
og fleira, auk upplýsinga um trygg-
ingabætur og lífeyri sem byrjað var að
forskrá á síðasta framtalseyðublaði.
Efling friðargæslu
Halldór Ásgríms-
son utanríicisráð-
herra sagði í ræðu
sinni um utanrikis-
mál á Alþingi i gær
að ríkisstjómin hefði
ákveðið að efla þátt-
töku Islands í alþjóð-
legri friðargæslu.
Stefnt verður að því að á næstu 2-3
árum geti allt að 25 íslendingar starfað
við friðargæslu. Stefnt er að flölgun í
50 manns í íslenska friðargæsluliðunu.
-H.Ki'.