Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Qupperneq 8
8
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000
DV
Talningu atkvæða úr forsetakosningunum ekki lokið í Flórída:
Kjörstjórnir geta
fengið meiri tíma
endurtalningunni á Flórida hefur
George W. Bush, forsetaefni
repúblikana, þrjú hundruð atkvæða
forskot á A1 Gore varaforseta, for-
setaefni demókrata.
Sigurvegarinn í Flórída fær alla
kjörmenn ríkisins og verður þar
með 43. forseti Bandaríkjanna.
Handtalning atkvæða var enn í
fullum gangi í Palm Beach-sýslu en
ákvörðun verður tekin um það í dag
hvort eins verði gert í Broward-
sýslu. Endurtalningu í Volusia-
sýslu er lokið og þar bætti Gore við
sig 98 atkvæðum.
Kjörstjórn í Miami-Dade-sýslu
ákváðu í gærkvöld að ekki yrði end-
urtalið þar í höndunum eftir að
handtalning á nærri sex þúsund at-
kvæðum úr þremur kjördeildum
leiddi í ljós að Gore bætti við sig sex
atkvæðum en Bush engu.
Svartir þingmenn í Washington
fara fram á að kannað verði hvort
blökkumenn hafi sætt mismunun.
Niðurstaða forsetakosninganna í
Bandaríkjunum er enn á huldu
vegna hugsanlegrar endurtalningar
í höndunum í sumum kjördeildum í
Flórida, talningar utankjörfundarat-
kvæða frá Flórídabúum erlendis og
vegna harðnandi baráttu fyrir dóm-
stólunum.
Kjörstjórnir í Flórída hafa frest
til klukkan sjö í kvöld að íslenskum
tíma til að fara fram á meiri tíma til
aö endurtelja atkvæði úr forseta-
kosningunum fyrir átta dögum.
Katherine Harris, innanríkisráð-
herra Flórídarikis, tOkynnti í gær
að hún myndi skoða skriflegan rök-
stuðning frá kjörstjómum einstakra
sýslna fyrir beiðni um meiri tíma til
endurtalningar atkvæðanna. Þá var
einnig gefinn lokafrestur til klukk-
an fimm á laugardagsmorgun að is-
lenskum tíma fyrir talningu utan-
kjörfundaratkvæða sem koma frá
útlöndum.
Samkvæmt opinberum tölum úr
_________,___________________________________________________________1
Katherine Harris
Innanríkisráöherra Flórída gaf
sýslum frest til kvölds til aö fara
fram á meiri tíma til endurtalningar.
Frá slysstaö
Björgunarmenn á leiö inn í göngin
viö Kaprun.
Eldur í lestinni
áður en hún fór
inn í göngin
Lögreglan í Austurríki sagði í
gær að eldur hefði líklega brotist út
í skíðalestinni áður en hún fór inn í
göngin við Kitzsteinhorn nálægt
Kaprun. Nokkrir þeirra tólf, sem
komust lífs af úr eldsvoðanum í
skíðalestinni á laugardaginn, segj-
ast hafa séð reyk stíga upp frá gólf-
inu áður en lestin fór inn í göngin.
Tíu tólfmenninganna segjast hafa
heyrt tvær sprengingar í göngunum
þegar þeir voru komnir í um 200
metra fjarlægö frá lestinni á leið
sinni niður göngin.
Lestin stöðvaðist eftir 3 mínútna
akstur í göngunum en ferðin í gegn-
um þau tekur átta og hálfa mínútu.
Richard Nlxon
Forsetinn fyrírskipaöi aögeröir til aö
grafa undan efnahag Chile eftir aö
Salvador Allende var kjörinn forseti.
Örvæntingarfull móðir
Móöir fimmtán ára drengs sem skotinn var í átökunum í Ramailah á Vesturbakkanum reynir örvæntingarfullt aö kom-
ast inn á sjúkrahúsiö þar sem lík sonar hennar liggur. Dóttir konunnar var meöal þeirra sem reyndu aö stööva hana.
Sonur konunnar var skotinn tveimur skotum. Annaö hæföi hann í brjóstiö en hitt í kviöinn.
Þrír palestínskir unglingar drepnir í gær:
ísraelar verði hraktir burt
Bandaríkin:
Viðurkenna þátt í
valdaráni Augusto
Pinochets
Bandaríkin hafa viðurkennt að
hafa átt þátt í að skapa pólitískan
glundroða fyrir og eftir valdarán
hersins í Chile 1973 sem kom
Augusto Pinochet til valda. Aðildin
var viðurkennd samtímis því sem
leynd var aflétt af 16 þúsund skjöl-
um utanríkisráöuneytisins, alríkis-
lögreglunnar, leyniþjónustunnar og
vamarmálaráðuneytisins á mánu-
daginn. Upplýsingar í skjölunum
þykja benda til aðildar Pinochets að
morðinu á fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Chile, Orlando Letelier, í
Washington 1976.
Palestínumenn minnast þess í
dag að tólf ár eru liðin frá tákn-
rænni yfirlýsingu um stofnun sjálf-
stæðs palestínsks ríkis. Þrír ung-
lingar sem ísraelskir hermenn
drápu í átökum i gær verða bomir
til grafar í dag og næsta víst þykir
að þar verði mjög heitt í kolunum.
„Ástandið á átakasvæðunum var
mjög slæmt síðdegis í gær. ísraelar
skutu sleitulaust gúmmikúlum og
táragasi á Palestínumenn og Palest-
ínumenn svöruðu í sömu mynt,“
segir Þorvaldur Örn Kristmunds-
son, ljósmyndari DV, sem er i miðju
átakanna á heimastjómarsvæðum
Palestínumanna.
Þorvaldur var í bænum Ramallah
á Vesturbakkanum í gær og enn
fremur í Gazaborg á Gaza og viö
flugvöllinn í Jerúsalem þar sem til
átaka kom.
Fatah, samtök Yassers Arafats,
forseta Palestínumanna, hafa hvatt
til þess að ísraelar verði hraktir á
brott frá Vesturbakkanum og Gaza
á afmælisdegi sjálfstæðisyfirlýsing-
arinnar í Alsír áriö 1988.
ísraelski herinn hefur tekið ákall
Fatah alvarlega og eru hermenn við
öllu búnir, að sögn ísraelska út-
varpsins.
Ehud Barak, forsætisráðherra
Israels, sneri heim frá Bandaríkjun-
um í gærkvöld, nokkrum klukku-
stundum á undan áætlun, eftir að
fjórir ísraelar féllu í fyrirsát Palest-
ínumanna. ísraelar óttast að Palest-
ínumenn séu að taka upp blóðugri
baráttuaðferðir en áður.
Barak ætlaði að ræða við yfír-
menn hersins og öryggismálaráð-
gjafa sína fyrir fund með helstu ráð-
herrum ríkisstjómarinnar þar sem
ræða átti aðgerðir til að stemma
stigu við ofbeldisverkunum sem
hafa kostað 217 manns lifið undan-
famar sjö vikur.
Þorvaldur Örn segir að foringjar
uppreisnar Palestínumanna hvetji
menn til aö hætta að skjóta upp í
loftið úr byssum sínum við jarðar-
farir til að spara kúlumar.
Árshátíð
Vegna árshátíðar starfsfólks
Merkúrs hf. verður
fyrirtækið einungis með
neyðarþjónustu dagana
16. og 17. nóvember.
Við biðjum viðskiptavini
okkar velvirðingar á
þessu uppátæki okkar.
Sími 568 1044
Stuttar fréttir
Archer fyrir rétt
Breski rithöfund-
urinn Jeffrey
Archer kemur fyrir
rétt í næstu viku
vegna meints mein-
særis í tengslum
við meiðyrðamál
1987. Archer er sak-
aður um að hafa
beðið vin sinn um að ljúga til að út-
vega honum fjarvistarsönnun.
Tugir milljarða horfnir
Eftirlit með fjármálum Evrópu-
sambandsins, ESB, batnaði í fyrra.
Brestimir eru þó enn miklir og ekki
hefur verið gerð grein fyrir tugum
milljarða íslenskra króna, að því er
segir í ársskýrslu endurskoðenda
ESB.
Hungursneyð í Georgiu
Yfir 700 þúsund íbúa í Georgíu í
fyrrverandi Sovétríkjunum svelta
vegna uppskerubrests í kjölfar
þurrka.
Þjóðernissinnar sigra
Króatískir og serbneskir þjóðem-
issinnar voru með stórt forskot þeg-
ar búið var að telja 70 prósent at-
kvæða í kosningunum í Bosníu um
helgina.
Varnarmál í brennidepli
Vamar- og öryggismál skyggöu í
morgun á efnahagsmál og viðskipti
þegar leiðtogar Asíu- og Kyrrahafs-
rikja komu saman til árlegs fundar
í Brúnei.
Banna beinamjöl í fóðri
Lionel Jospin,
forsætisráðhyerra
Frakklands, til-
kynnti í gær að
frönsk yfirvöld
hefðu sett bann á
notkun kjöt- og
beinamjöls í dýra-
fóður. Fullyrti
Jospin að öryggi neytenda væri þar
með tryggt. Franska stjómin neydd-
ist til að grípa til aðgerða. Sala á
nautakjöti hefur snarminnkað
vegna ótta neytenda við kúariðu.
Nautakjöt hefur einnig verið tekið
af matseðlinum í skólum í mörgum
sveitarfélögum.
Réttað yfir bankastjórum
Fjórir háttsettir bankamenn
komu fyrir rétt í Mónakó á mánu-
daginn. Eru bankastjóramir sakað-
ir um að hafa ekki greint yfirvöld-
um frá innlögðu fé sem reyndist
vera tekjur af fikniefnasölu. Kaup-
sýslumaður frá Sikiley lagði féð inn.
Húsið tekið eignanámi
Indónesíska lög-
reglan gerði í gær
upptækt hús
Tommys Suhartos,
sonar fyrrverandi
Indónesíuforseta.
Lögreglan leitar
enn Tommys sem
er í felum. Hann
hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir
spillingu.
Kafarar segja frá björgun
Rússnesku kafaramir, sem unnu
viö að ná upp líkum sjóliðanna í
kafbátnum Kúrsk, sögðu í gær að
björgunarstarfið hefði veriö erfitt.
Sjóliðarnir hefðu verið félagar
þeirra.