Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Page 22
i4 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 Ættfræði___________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartan&son ‘ 95 ára____________________________________ Kristbjörg Jónsdóttir, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavlk. 90 ára_________________________________ Quörún A. Jónsdóttir, Stangarholti 4, Reykjavlk. 80 ára_________________________________ Herbert Guöbrandsson, Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík. 75 ára_________________________________ Bjami Júlíusson, Efstalandi 18, Reykjavík. María H. Guömundsdóttir, Lindargötu 61, Reykjavík. 70 ára_________________________________ Gunnar Guðbjörnsson, Skúlagötu 40b, Reykjavlk. Hjálmar Jóhann Níelsson, Garöarsvegi 8, Seyöisfiröi. 60 ára_________________________________ ——| Guöbjörg Bryndís ■ Siguröardóttir, húsmóöir, Rjúpufelli 29, Reykjavik. H4HI Hún veröur á Gran Canaría } á afmælisdaginn. Halldór Bjarnason, Leirutanga 33, Mosfellsbæ. Hann veröur aö heiman. Hulda Kristinsdóttir, Æsufelli 4, Reykjavík. Siguröur G. Sigurösson, Kirkjubraut 2, Njarövík. 50 ára_________________________________ Einar Þór Jónatansson, Smyrlahrauni 42, Hafnarfirði. Guölaugur Gunnþórsson, Lundi, Grenivík. Hilmar Guöbjörnsson, ’■ Fitjasmára 3, Kópavogi. Hlynur Þór Ingólfsson, Grænuási 1, Raufarhöfn. Þórdís Klara Ágústsdóttir, Ósabakka 3, Reykjavlk. 40 ára_________________________________ Birna Björnsdóttir, Laufvangi 1, Hafnarfirði. Bóthildur Sveinsdóttir, Tunguvegi 23, Reykjavík. Guöfinna Jóna Árnadóttir, Bæjargili 17, Garöabæ. Hermann Hrafn Guðmundsson, Grundargerði 4d, Akureyri. Jón Rúnar Pálsson, Meöalholti 8, Reykjavlk. Kristinn Hilmarsson, Kambsvegi 16, Reykjavlk. Kristín Viöarsdóttir, Baldursgötu 30, Reykjavlk. Siguröur Páll Pálsson, Stigahlíö 89, Reykjavík. Smáauglýsingar Þjónustu- auglýsingar ►I550 5000 Aðalsteinn Jónsson, fyrrv. bóndi og odd- viti, Ormsstööum, Norðfirði, lést á Sjúkrahúsinu I Neskaupstaö 12.11. Kristín Jónsdóttir, Njálsgötu 31a, lést aðfaranótt laugard. 11.11. á elliheimil- inu Grund. Kristjana Hákonía Sturludóttir, elliheim- ^ ilinu Grund, lést föstud. 10.11. Svanhildur Sigriður Valdimarsdóttir, Hólshúsi, Sandgerði, lést á Heilbrigöis- stofnun Suöurnesja sunnud. 12.11. Árni Guðmundsson frá Vestmanneyjum, Reynigrund 81, Kópavogi, andaöist á Líknardeild Landspítalans 12.11. Guörún Benediktsdóttir, Baldurshaga, Akureyri, lést föstud. 10.11. María Indriöadóttir, Borgartúni, Ljósavatnshreppi, andaöist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnud. 12.11. DV Hjálmar Árnason alþingismaöur Hjálmar Waag Árnason, alþingis- maður Reykjaneskjördæmis, Faxa- braut 62, Reykjanesbæ, er fimmtug- ur í dag. Starfsferill Hjálmar fæddist í Reykjavík, ólst þar upp til átta ára aldurs en síðan í Kópavogi. Hann lauk stúdentsprófi frá MH 1970, kennaraprófi frá KHÍ 1979, BA-prófi í íslensku frá HÍ1982 og M.Ed.-prófi í skólastjórnun frá Breska Kólumbíu-háskólaTmm i Kanada 1990. Hjálmar var kennari við Grunn- skóla Sandgerðis 1970-72 og 1977-78, við Fróðskaparsetur Færeyja 1972- 73, við Flensborgarskóla 1973- 77, Holtaskóla í Keflavík 1978-80, við Víðistaðaskóla og starf- aði í Fræðsluskrifstofu Reykjanes 1980-81, við Fjölbrautaskóla Suður- nesja frá 1981 og skólameistari þar frá 1985. Þá er hann alþm. Reykja- ness fyrir Framsóknarflokkinn frá 1995. Auk kennslustarfa hefur Hjálmar stundað þáttagerð í útvarpi, lög- gæslustörf, blaðamennsku og sjó- mennsku. Hjálmar sat í stjóm Félags ís- lenskra menntaskólakennara 1975-77, i stjórn Samtaka móður- málskennara 1980-82, sat í stjóm Skólameistarafélags Islands 1991-95 og var formaður þess 1993-95, sat í stjórn FH 1981-83, var fyrsti formað- ur íþróttabandalags Reykjanesbæj- ar 1996-99, ritstjóri tímarits SVFK 1993-96, sat í markaðs- og atvinnu- málanefnd Reykjanesbæjar 1994-98, var fulltrúi Álþingis á ÖSE-þingi 1995-99, fulltrúi íslands á þingi Evr- ópuráðsins 1995-99, er varaformað- ur Vestnorræna þingmannasam- bandsins, sat allsherjarþing SÞ 2000, er formaður iðnaðarnefndar Alþing- is, varaformaður samgöngunefndar og situr auk þess í sjávarútvegs- nefnd og í efnahags- og viðskipta- nefnd. Hann er formaður Lánasjóðs landbúnaðarins frá 1999. Hjálmar hefur þýtt sögur og ljóð og samið kennslubækur og leiðbein- ingarrit fyrir kennara. Fjölskylda Sambýliskona Hjálmars var Berg- ljót S. Kristjánsdóttir, f. 28.9. 1950, lektor. Þau skildu. Foreldrar henn- ar: Kristján Andrésson og k.h., Sal- björg Magnúsdóttir. Böm Hjálmars og Bergljótar eru Ragnheiður, f. 17.8. 1972, nemi við Hl, búsett í Reykjavík, og eru böm hennar María Kristína og Bergljót; Kristján, f. 3.12. 1975, nemi við HÍ, búsettur í Hafnarfirði, en dóttir hans er Þórhildur. Hjálmar kvæntist 6.1. 1978 Val- gerði Guðmundsdóttur, f. 3.6. 1955, menningarfulltrúa Reykjanebæjar. Hún er dóttir Guðmundar Rúnars Guðmundssonar og k.h., Bryndísar Ingvarsdóttur. Börn Hjálmars og Valgerðar eru Ingvar, f. 4.1. 1979, nemi við HÍ, en unnusta hans er Eva Ingimundar- dóttir nemi; Bryndís, f. 22.3. 1987, nemi. Uppeldisdóttir Hjálmars og dóttir Valgerðar er Dagmar Guðmunds- dóttir, f. 4.4. 1972, nemi við HA, en unnusti hennar er Óttar Már Yngvason, nemi við HA. Systur Hjálmars eru Svava, f. 1949, kennari í Reykjavík; Kristín, f. 1952, hjúkrunarfræðingur, búsett í Kópavogi; Soffia, f. 1964, ferðamála- og félagsfræðingur. Foreldrar Hjálmars eru Ámi Waag, f. 12.6. 1925, kennari í Kópa- vogi, og k.h., Ragnheiður Ása Helga- dóttir, f. 5.7. 1927, húsmóðir. Ætt Árni er bróðir Karinar, móður Hjálmars Waag Hannessonar sendi- herra. Árni er sonur Hjálmars Waag, skólastjóra í Klakksvík i Færéyjum sem lést ungur, bróður Einars Waag, stofnanda og forstjóra Föröjabjór. Móðir Árna var Kristín Árnadótt- ir, prófasts á Stóra-Hrauni, Þórar- inssonar á Eyrarbakka, Árnasonar. Móðir Þórarins var Jórunn, systir Tómasar Fjölnismanns, afa Jóns Helgasonar biskups og Tómasar læknis, afa Ragnhildar Helgadóttur, fyrrv. ráðherra. Jórunn var dóttir Sæmundar, b. í Eyvindarholti, Ög- mundssonar, pr. á Krossi, bróður Böðvars, afa Þuríðar, langömmu Vigdísar Finnbogadóttur. Ögmund- ur var sonur Presta-Högna Sigurðs- sonar. Móðir Sæmundar var Salvör Sigurðardóttir, systir Jóns, afa Jóns forseta. Móðir Árna prófasts var Ingunn, systir Helga, afa Ásmundar Guðmundssonar biskups. Ingunn var dóttir Magnúsar, alþm. í Syðra- Langholti, Andréssonar og Katrínar Eiríksdóttur, ættföður Reykjaættar, Vigfússonar. Móðir Kristínar var Anna Elísabet Sigurðardóttir, hreppstjóra í Syðra-Skógarnesi, Kristjánssonar. Ragnheiður er dóttir Helga, bróð- ur Bjarna, alþm. og ráðherra á Reykjum í Mosfellsbæ, afa Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur alþm. Systir Helga var Þórdís, móðir Gunnars Bjamasonar ráðunautar. Helgi var sonur Ásgeirs, b. í Knarr- arnesi, Bjamasonar og Ragnheiðar Helgadóttur, b. á Vogi, bróður Ingi- bjargar, langömmu Kristjáns Eld- jám forseta. Helgi var sonur Helga, alþm. á Vogi, Helgasonar. Móðir Ragnheiðar var Svafa, syst- ir Odds, föður Jóns hrl., og hálfsyst- ir Huldu, ömmu Jónasar Haralds- sonar, aðstoðarritstjóra DV. Svafa var dóttir Jóns, b. á Álftanesi, Odds- sonar og Mörtu Maríu, systur Har- alds prófessors. Systir Mörtu Maríu var Þuríður, móðir Níelsar Dungal. Marta María var dóttir Níelsar, b. á Grímsstöðum, Eyjólfssonar og Sig- ríðar, systur HaUgríms, biskups og alþm., og Elísabetar, móður Sveins Bjömssonar forseta. Sigríður var dóttir Sveins, prófasts og alþm. á Staðastað, Níelssonar og Guðrúnar, systur alþm. Halldórs á Hofi og Ólafs á Sveinsstöðum. Systir Guð- rúnar var Þórunn, móðir Jóns Þór- arinssonar alþm., afa Jóhanns Haf- stein forsætisráðherra. Önnur syst- ir Guðrúnar var Sigurbjörg, amma Jóns Þorlákssonar forsætisráð- herra. Guðrún var dóttir Jóns, pr. og alþm., Péturssonar. Hjálmar og Valgerður verða með opið hús á Flughótelinu í Reykjanesbæ laugard. 18.11. mUli kl. 17.00 og 20.00. Fímmtugur Ragnar R. Þorgeirsson yfirvélstjóri á Haftindi HF 123 Ragnar Rúnar Þorgeirsson, yfir- vélstjóri á Haftindi HF 123, Túngötu 22, Grindavik, er fimmtugur í dag. Starfsferill Ragnar fæddist í Reykjavík en ólst upp í Vesturbænum í Hafnar- firði. Hann fór til sjós eftir skyldu- námið en hóf nám við Vélskóla Is- lands 1984, lauk þaðan 1000 ha. vél- stjóraprófi, 200 tonna skipstjórnar- prófi og lauk þremur önnum í raf- eindavirkjun. Ragnar var mikið á togurum á ár- unum 1970-75 og síðan á dagróðra- bátum, lengst af með föður sínum. Fjölskylda Ragnar giftist 13.12. 1988 Kol- brúnu Pálsdóttur en þau slitu sam- vistum 1995. Ragnar giftist 4.7. 1998 Penbhae Phiubaikam, f. 4.3.1959, fiskvinnslu- konu hjá Vísi hf. í Grindavík. Hún er dóttir Kai Phiubaikam, sem lést fyrir fimm áraum, hrísgrjónabónda i Taílandi, og Gawee Phiubaikam, bóndakonu og húsmóður. Dóttir Ragnars og Halldóru Gunn- arsdóttur er Helena Lind, f. 23.1. 1975, búsett í Hafnarfírði og er dótt- ir hennar Hrafnhildur María Rík- harðsdóttir, f. 29.4. 1998. Stjúpbörn Ragnars eru Waraphorn Thatspong, f. 22.8. 1978; Ekasil Thasaphong, f. 8.8. 1980; Rungrit Thasaphong, f. 6.12. 1982; Itthiphoh Sodnai. Fóstursonur Ragnars er Örn Francis Arnarson, f. 20.1. 1991. Systkini Ragnars: Lúther, f. 30.11. 1956, stýrimaður í Hafnarfirði, kvæntur Bryndísi Svavarsdóttur húsmóður og eiga þau fjögur börn; Ragnhildur Jóna, f. 23.3. 1948, hús- móðir i Reykjavík, og á hún fjögur böm með fyrrv. manni sínum, Ant- onio Corvettó; Haraldur, f. 30.9. 1952, skipstjóri og útgerðarmaður í Hafnarfirði, kvæntur Helgu Har- aldsdóttur húsmóður og eiga þau flögur böm; Sigurboði, f. 28.7. 1956, d. 19.2. 1974; Hafsteinn, f. 7.11. 1958, stýrimaður á Farsæli GK 62, búsett- ur í Garðabæ, kvæntur Áslaugu Jakobsdóttur húsmóður; Sverrir, f. 10.9.1960, netagerðarmaður, Grinda- vík, kvæntur Birnu Þorbjörnsdóttur sjúkraliða og eiga þau fiögur börn; Grétar, f. 23.4. 1962, skipstjóri á Far- sæli GK 62, búsettur í Grindavík, kvæntur Díönu von Axken sölu- manni og eiga þau fiögur börn. Foreldrar Ragnars eru Þorgeir Þórarinsson, f. 4.11. 1922, útgerðar- maður hjá Farsæli hf. í Grindavík, og Helga Haraldsdóttir, f. 6.1. 1927, húsmóðir. Merkir islendingar Finnur Jónsson myndlistarmaður fæddist á Strýtu við Hamarsfiörð 15. nóvember 1892, sonur Jóns Þórarinssonar, smiðs og bónda á Strýtu, og k.h., Ólafar Finnsdótt- ur húsfreyju. Meðal systkina hans var Ríkarður myndskeri. Finnur fór átján ára til Reykjavíkur í gullsmíðanám og Iðnskólann, fékk sveinsbréf i gullsmíði 1919, lærði teikningu hjá Ríkarði bróður sinum og Þórarni B. Þorlákssyni listmálara, var við list- og gullsmíðanám í Kaupmanna- höfn 1921 og í Dresden og Berlin 1921-1924. Hann rak myndlistarskóla í Reykjavík i mörg ár með Jóhanni Briem, var teiknikennari við Flensborg í Hafnar- firði 1933-1942 og við MR 1934-38 og 1939-50. Finnur Jónsson Finnur hélt fyrstu málverkasýningu sína á Djúpavogi 1921. Myndir eftir hann voru valdar á vorsýningu Der Sturm í Berlín 1925 og sýndar á alþjóðlegum sýningum víða um Bandaríkin en sama ár hélt hann fyrstu abstrakt-sýninguna hér á landi. Hann starfaði um skeið með ýmsum þekktum brautryðjendum nú- tímalistar en sneri sér síðar að raun- sæi og natúralisma. Hann var einn helsti frumkvöðull íslenskrar mynd- listar og i hópi víðkunnustu islenskra listamanna. Finni var sýndur margháttaður sómi, var í heiðurslaunaflokki Alþingis og heið- ursfélagi íslenskra og erlendra listfélaga. Hann lést 20. júlí 1993, hundrað ára að aldri. Jarðarfarir Jórunn Ármannsdóttir, Heiðargeröi 110, Reykjavik, verður jarðsungin frá Grens- áskirkju föstud. 17.11. kl. 13.30. Jarðarför Árnýjar Ólínu Ármannsdóttur, Grenigrund 24, Akranesi, fer fram frá Akraneskirkju mánud. 20.11. kl. 14.00. Eðvald Vilberg Marelsson, Bröttukinn 8, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafn- arfjarðarkirkju föstud. 17.11. kl. 15.00. Helgi Örn Frederiksen verður jarðsung- inn frá Digraneskirkju fimmtud. 16.11. kl. 15.00. Útför Stefaníu Þ. Árnadóttur, Ægisiðu 46, Reykjavík, fer fram frá Fossvogs- kirkju miövikud. 15.11. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.