Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2000, Qupperneq 24
36 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 Tilvera DV 1 1 f i ft Djassöngur í Borgarleikhúsi I kvöld kl. 20.30 eru tónleikar undir yfirskriftinni „HANSA“ þar sem leikkonan Jóhanna Vig- dís Arnardóttir afhjúpar djass- drottninguna í sér og syngur uppáhaldslögin sín. Tónleikamir eru á Stóra sviði Borgarleik- hússins. Á efnisskrá tónleikanna eru einkum lög eftir Cole Porter og Thomas „Fats“ Waller, eins kon- ar úrval af uppáhaldslögum leik- og söngkonunnar, og eiga þau það flest sameiginlegt að fjalla um ástina. Óskar Einarsson útsetti lögin og eru þau flest í hinum gamla en ávallt ferska djass-stíl. Gesta- söngvari á tónleikunum er Sehna Bjömsdóttir en hljóm- sveitina skipa Óskar Einarsson píanóleikari, Sigurður Flosason saxófónleikari, Birgir Bragason kontrabassaleikari og Halldór Gunnlaugur Hauksson sem spil- ar á trommur. Auk þess taka dansarar frá íslenska dans- flokknum þátt í tónleikunum, þær Hildur Óttarsdóttir, Hlín Diego Hjálmarsdóttir og Katrín Johnson. Klassík ■ SALURINN. KOPAVOGI Píanótón leikar í kvöld kl. 20.00. Hólmfríöur Siguröardóttir leikur verk eftir Bach- Busoni, Mozart, Liszt, Grieg, Rak- hmanínov og Kabalevsky. Sveitin ■ TODMOBILE A HOTEL HUSAVIK Todmobile leikur á Hótel Húsavík kl. 21.00. Leikhús ■ LOMA Lóma eftir Guðrúnu As- mundsdóttur sýnd í Möguleikhúsinu T dag kl. 10. Uppselt. ■ HORFDU REIÐUR UM ÖXL Horföu reiöur um öxl eftir John Os- borne á Litla sviði Þjóðleikhússins T kvöld kl. 20. Uppselt. Myndlist I BUBBI OG JOHANN Bubbi (Guö- björn Gunnarsson) myndhöggvari og Jóhann G. Jóhannsson myndlistar- maöur sýna um þessar mundir í Sparisjóönum í Garöabæ, Garöa- torgi 1. Sýningin er opin á af- greiðslutímum bankans og lýkur 21. desember. ■ MÓÐIRIN Í ÍSLENSKUM UÓS- MYNDUM Nú stendur yfir sýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Grófar- húsl, sem kallast Móöirin T íslensk- um Ijósmyndum. Mæöur hafa alla tíö veriö í miklu uppáhaldi hjá Ijós- myndurum og á þessari áhugaveröu sýningu birtist sögulegt yfirlit yfir ímynd móöurinnar í íslenskri Ijós- myndasögu. Sýningin samanstendur af uþprunalega prentuöum myndum og samtíma prentuöum Ijósmyndum og stendur til 3. desember. ■ GUNNAR ÓRN Um helgina opnaöi Gunnar Orn myndlistarmaður sýningu í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjaröar. Listamaö- urinn kallar sýninguna „Sálir". Gunn- ar Örn hélt stna fyrstu einkasýningu 1970 og hefur síöan haldiö 42 einkasýningar. Sýningin stendur til 27. nóvember. Opiö er daglega kl. 11 til 17. Lokað þriðjudaga. Verkfall kennara í framhaldsskólum: Móðgun að bjóða þessa hækkun - ljósi punkturinn er sá að menn eru að tala saman og það er ekki búið að slíta viðræðunum. Það er mikið að gera í verk- fallsmiðstöð framhaldsskólakenn- ara við Stakkahlíð þessa dagana. Verkfallsmiöstööin er samkomu- staöur framhaldsskólakennara þar sem þeir koma saman, ræða málin og skipuleggja aðgerðir. í gærmorg- un, þegar blaöamann DV bar aö garði, var þar fundur kennara við Kvennaskólann í Reykjavík. Kenn- ararnir voru að ræða gang samn- ingaviðræðnanna og greinilegt að hiti var í mönnum og þeim fannst lítið ganga. Fundarmenn voru allir á því að ríkið væri að bjóöa skammarlega litlar hækkanir og það drægi lappirnar í samningun- um. Engar ákvarðanir enn Hrefna Amalds, trúnaðarmaður Verkfalismiöstöö framhaldsskólakennara viö Stakkahlíö Kennararnir voru aö ræöa gang samningaviöræðnanna og greinilegt var aö hiti var í mönnum og þeim fannst lítiö ganga. Fundarmenn voru allir á því aö ríkiö væri aö þjóða skammaríega litlar hækkanir og drægi lappirn- ar í samningunum. kennara við Kvennaskólann, sagði að á fundinum væri verið að ræða tillögur sem Félag framhaldsskóla- kennara heföi lagt fram um nýtt launakerfi. „Tillögumar em enn í lausu lofti þar sem ekki hafa komið fram neinar tölur enn þá. Samn- inganefnd ríkisins hefur tekið ágæt- lega í hugmyndirnar en vandamálið snýst um krónutölurnar. Ríkið býð- ur lægstu viðmiðunina frá því í samningunum í vor, auk þriggja prósenta. Samanlagt gerir það um fimmtán prósenta hækkun með öllu. Samninganefndimar eru búnar að fara yfir öll atriðin sem á að ræða en ekki er búið að taka ákvörðun um neitt enn þá þannig að mjög erfitt er að segja nokkuð á þessari stundu." Ekkert að gerast „Samningarnir ganga afskaplega hægt. Varaformaður Félags fram- haldsskólakennara kom hér 1 gær og sagði að hreinlega ekkert væri að gerast og því ekkert nýtt að frétta. Eini ljósi punkturinn er að menn eru enn að tala saman og það er ekki búið að slíta viðræðunum. Eitt af því sem kennarar hafa lagt áherslu á er að fá hluta af endur- menntuninni flutta yfir á starfstíma skólanna en hingað til hefur hún fyrst og fremst verið á sumrin. Gall- inn er bara sá að mikið af tölvu- námskeiðum sem kennarar þurfa að fara á til að geta fylgst með eru á vetuma. Við viljum að gert sé ráð fyrir tíma fyrir námskeið af þessu tagi á starfstíma skólanna. Það á að vera hægt að taka tíma fyrir þetta af því sem kallað er vinna undir stjórn skólameistara, en það eru alls 115 Bókvitið verður ekki í askana látið Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is Á fyrri öldum þegar mannfellir vegna hungurs og fátæktar var algeng- ur héma á íslandi þótti bókvit ekki mikils virði og bókalestur lítið annað en fánýt töf frá harðri lífsbaráttu. Á þeirri tíð þegar helst mátti hafa gagn af gömlum handritum með því að éta þau, varð til hinn sér-íslenski máls- háttur „bókvitið verður ekki í askana látið“. Þessi málsháttur lýsir vel hugs- unarhætti hjá þjóð sem átti í miklum vanda og var í raun og vera á barmi þess að þurrkast út eins og við öll vit- um. Þá var baráttan um brauðið upp á líf og dauða og enga mátti missa í bókalestur og aðra tímasóun. í dag era breyttir tímar og islenska þjóðin ein af þeim ríkustu í heiminum. Við erum löngu hætt að éta handritin. Og framtíðin byggir á „bókviti" eða menntun í öllum skilningi þess orðs. Því menntun er svo margbreytileg og getur verið bæði bókleg, verkleg og tæknileg, þó að það vilji nú oft gleym- ast. Ef við viljum halda áfram að byggja upp nútímalegt þjóðfélag og standa okkur í samkeppninni við önn- ur lönd, þá þurfum við að etla mennt- un og skóla í landinu. Tala nú ekki um þegar menntaðasta vinnuaflið sest orð- ið að í útlöndum vegna þess að þar era margfalt betri kjör í boði. Þetta hafa nágrannaþjóðir okkar löngu uppgötv- að enda era það töluvert tleiri þar sem ljúka framhaldsnámi en hér á landi. Og stjórnmálamennimir okkar eru líka duglegir að tala um gildi bókvits- ins á hátíðarstundum eða fyrir kosn- „Samkvæmt skoöanakönnunum vill meirihluti Islend- inga aö laun kennara á öllum skólastigum verði hækkuö og staða skóla og menntunar í landinu þar meö styrkt,“ segir Þórhallur í pistli sínum. ingar þegar heilla þarf kjósendur. Þá era þeir ósparir á stóra loforðin um betri menntun og nútímalegri skóla til hagsbóta fyrir komandi kynslóðir og fjölskyldumar í landinu. En það er eitthvað skrýtið í kýr- hausnum, svo við rifjum nú upp ann- an málshátt úr bændasamfélaginu. Þegar kemur að því að gera eitthvað raunhæft í málunum til þess að efla menntun og skóla, þá er eins og rifjist upp fyrir stjómvöldum gamli máls- hátturinn „bókvitið verður ekki í ask- ana íátið“. Þetta höfum við fengið að sjá með ótrúlega skýrum hætti á und- anfómum dögum eftir að kennai-a- verkfall hófst í framhaldsskólunum. Allt í einu era allar ræðumar gleymd- ar og öll loforðin um bættan hag mennt- unar komin ofan í skúffu. En þó er málið svo einfalt og tært. Allir vita hvað amar að í skólakerf- inu og hvað þarf til þess að hægt sé að taka höndum saman um að byggja upp sómasamlegt menntakerfi í þessu landi. Laun kennara era allt of lág. Svo einfalt er það. Og þau era of lág á öll- um skólastigum. Þau era of lág í framhaldsskólun- um. Þau era of lág í grunnskólanum. Þau era of lág í leikskólanum. Þess vegna gengur svona illa að ráða fólk til starfa i leikskóla, grannskóla og fram- haldsskóla. Og þess vegna gengur svona illa að halda í kennara i skólun- um. Þess vegna er líka svo erfitt að koma af stað öllum þeim breytingum sem þarf að koma á til þess að gera skólakerfið nútímalegra, skilvirkara og fjölskylduvænna. Þetta ástand kem- ur síðan niður á fjölskyldunum í land- inu. Ekki bara þegar verkfóll skella á í tíma og ótima, heldur líka frá degi til dags eins og þegar ekki er hægt að fá leikskólapláss vegna skorts á leik- skólakennurum, þegar ótímabær sum- arfrí skila krökkum hér á landi tveim- OV-MYND HILMAR ÞÓR Langt og strangt verkfall Hrefna Arnalds, trúnaöarmaöur kennara viö Kvennaskólann, segir samstarfsfóiki sínu frá gangi mála í samningunum. tímar sem eru til ráðstöfunar." Hækkun á tveimur árum „Á þessu stigi málsins er ég hrædd um að þetta verði langt og strangt verkfall. Hækkunin sem fjármálaráðherra er að tala um er á tveimur árum, vel að merkja, en ekki frá upphafi. Það er ekki einu sinni umræðugrundvöllur fyrir þessu hjá stétt sem er að minnsta kosti 32,4% frá því að ná meðallaun- um viðmiðunarstétta." Hrefna segir það beinlínis móðg- un að bjóða kennurum þessa hækk- un en að hún voni að verkfallið taki fljótt af. -Kip Þórhallur Heimisson skrifar um fjölskyldumál á miövikudögum Laun kennara eru allt of lág. Svo einfalt er það. Og þau eru of lág á öllum skólastigum. Þau eru of lág í framhaldsskólun- um. Þau eru of lág í grunnskólanum. Þau eru of lág í leikskólanum. Þess vegna gengur svona illa að ráða fólk til starfa í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. ur árum siðar úr skólakerfmu en í Evrópu og þegar góðir kennarar flýja framhaldsskólana. Þessu þarf að breyta. Laun kennara þurfa að hækka og verða sæmandi starfi þeirra og menntun. Við höfuín falið þeim að undirbúa bömin okkar undir framtíðina. Og er það ekki ein- hvers virði? Samkvæmt skoðanna- könnunum vill meirihluti íslendinga að laun kennara á öllum skólastigum verði hækkuð og staða skóla og mennt- unar í landinu þar með styrkt. Því eitt höfúm við lært af nútímanum og það er sú staðreynd að það er bókvitið sem verður í askana látið í framtíðinni, hvort sem það er á sviði tæknimennt- unar, bóklegra frceða eða verkmennt- unar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.