Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2000, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2000, Blaðsíða 5
Þeir Frikki Fingaprint plötusnúðar og: Biggi Beatific rappari hafa lengi fengist við hip-hop af þrótti og voru með limir Team 13 klíkunnar áður en hún splundraðist og þeir sáu hag sínum betur borgið sem tvíeykið Ppetic Ref- lection. Bróðurpart síðustu tveggja ára hafa þeir varið í herbergi Bigga. í felagsskap ýmissa tækja, og ætia Á þeir að sörfa hina rísandi ' • hip-hop 'öldu í jólaplötu- flóðinu með nýkláraðri á9 skífu sinni, öþff | sl Moves. ^ Friðrik Helgason, Fingaprint, og Birgir Hafstein, Beatific, eru þelljósir ungir menn á uppleiö í rappheiminum. Spilum ekki á bensínstöðvum „Við vinnum fyrst taktana og finnum sömpl og svoleiðis. Svo kemur rappið yfir og eftir á klipp- um við allt til,“ segja strákarnir um vinnsluna. „Það er búið að fikta mikið við sömplin. Við tök- um yfirleitt bara eitt hljóð héðan og þaðan og setjum saman viö annað. Við reynum að fela þetta, en maður hefur heyrt alveg hræðilega rænd íslensk rapplög," segja þeir. „Við sömplum- líka að- allega úr eldgömlum jazzlögum og tónlistarmennirnir eru fiestir löngu dauðir," bæta þeir við, og eiga greinilega ekki von á lög- sóknum i bráð. Gefa sjálfir út Kapparnir fylgja slóð margra ungra tónlistarmanna og standa sjálfir fyrir útgáfu plötu sinnar. „Við sendum þetta út tii að þrykkja diskana. Við töluðum við eitt fyrir- tæki hér, en það var bara drasl,“ segja strákamir og eiga von á 500 eintökum í fyrstu lotu og ætla að sjá til með framhaldið. Poetic Reflect- ions á sig sjálf, í orðanna fyllstu... „Það er þægilegra fyrir okkur að gera þetta bara sjáifir. Ef við vær- um með samning og umboðsmann gætum við þurft að spiia á opnun einhverrar bensínstöðvar eða eitt- hvað álíka, sem við höfum engan áhuga á,“ tilkynna þeir ákveðnir, en hyggjast þó fylgja plötunni eftir með spilamennsku eins og þeim þýðst. Eins og stendur mæla þeir götumar og hafa nægan tíma fyrir tónlistina, því báðir era þeir at- vinnulausir menntaskólanemendur og eru ánægðir með timasetningu kennaraverkfallsins með tiiliti til útgáfunnar. Ekkert vesen Biggi rappar á ensku og finnst það ekki erfiðara en annað. „ís- lenskt rapp kemur bara illa út,“ seg- ir hann og aðspurður um textana segist hann hafa lítið um þá að segja, fólk verði bara að hlusta sjálft til að vega þá og meta. „Það er ekk- ert sérstakt þema á plötunni. Og engir stælar. Oft er ég bara að tala um daginn og veginn," segir Biggi. „En hann skilst alla vega,“ skeytir Frikki aftan við, félaga sínum til varnar, enda óskýrmælgi þrálátur faraldur hjá íslenskum röppurum, þó að það sé ekki skoðun tvíeykisins. Biggi segist ekki hnýta í aðra rappara og strákamir vilja minnst ræða um átök í hip-hop samfélaginu og segjast ekkert eiga sökótt við aðrar hljómsveitir. Strax eftir áramót ætla þeir aftur að leggj- ast undir feld og huga að vinnslu nýrrar plötu, en næst á dagskrá era útgáfutónleikar í Stúdentakjallaran- um 24. nóvember. Þeir sem láta sja sig á djamminu hafa kannski tekið eftir litlum og vinalegum staö í Austurstræti sem heitir Café Nobei. Þarna er um að ræða ekta karaokestað sem fleiri og fleiri virðast sækja með hverri helginni sem iíður. „Við erum búnir að vera með staðinn í tæpa fjóra mánuði og þetta hefur bara gengið mjög vel - byrjaði að vísu rólega en hefur aukist mjög ört að undanförnu," segir Gunnar Ólafsson sem rekur staðinn ásamt bróður sínum, Stef- ByT-'- .. K.r i ' ' - BGfe' - 1 - ] 118 1 áni Hrafni Ólafssyni. Þeir eiga auk þess hlut í staðnum í félagi við fóður sinn og fleiri í fjölskyld- unni. Sokkabuxurá klósettinu Eins og staðan er núna er Café Nobel bara opinn um helgar en að sögn Gunnars er planið að breyta tímanum og skoða aðra hluti. Lík- legast er þarna um að ræða eina karaokestaðinn í miðbænum og segir Gunnar að fólk mæti einfald- lega til að fá að syngja. „Hingað hefur komið þekkt fólk og sungið, fólk sem hefur sést í sjónvarpi og þar fram eftir götun- um,“ segir Gunnar en harðneitar að nefna einhver nöfn; það gangi gegn stefnu staðarins. Gengur ekki oft heilmikiö á þeg- ar fólk fer á flug í söngnum? „Jú, fólk hefur sleppt sér alger- lega í karaokeinu, ekkert alvar- lega samt, en það hefur komið fyr- ir að fólk hafi hreinlega afklæðst þegar stemningin náði hámarki. í framhaldinu hafa svo fundist sokkabuxur og fleira á klósettinu. Svo er fólk oft að reyna við bar- þjónana til að reyna að komast fram fyrir röðina til að fá að syngja en það þýðir ekkert.“ En þiö hljótiö aö fila athyglina? „Hver mundi ekki gera það?“ Aldrei fullir í vinnunni Á virkum dögum starfar Gunn- ar sem kokkur á öðrum veitinga- stað fjölskyldunnar í Mosfellsbæ. „Ég vinn alla daga vikunnar nema sunnudaga en þá sef ég. Þetta er auðvitað þrælahald en mjög skemmtilegt þrælahald," seg- ir hann. En afhverju vinna menn á bar? „Þetta er mjög gefandi starf því maður lærir margt af þessu. Mað- ur kynnist ótrúlega mörgu fólki og lærir að eiga samskipti við ólík- legustu týpur," segir Gunnar og harðneitar því að þeir séu nokkurn timann fuliir í vinnunni. Hljómsveitin Miðnes: Ekki týpískt pöbbaband Bob Sinclair: Sló í gegn á Ibiza Óttar Proppé: Power í Óskabörnunum 0 Fókus bvður á Art of War Moving Shadow á Gauknum Hjúkkan Bettv mætt i bíó Aaent Dan á Thomsen f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók Hilmar Þór af Miðnesi. 17. nóvember 2000 f Ó k U S 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.