Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2000, Blaðsíða 4
Indverska prinsessan Leoncie er komin aftur á klakann eftir langt heimshornaflakk. Hún segist hætt að fækka fötum fyrir peninga og er löngu orðin leið á íslenskum fordómum, kjaftasögum um nektardansferil sinn og keppinautum í tónlistarbransanum, sem hún segir illa þjakaða af öfundssýki eins og Margréti Frímannsdóttir hefur tekið undir. Stefnan er nú tekin á þátt Jay Leno því stelpan vill jú enn verða fræg. legur strippari „Ég haföi bækistöðvar í Dan- mörku og ferðaðist um heiminn, mikið um Indland og Arabíuskaga. Ég er komin aftur til að drekka nægju mína af íslensku vatni og borða saltfisk áður en ég held aftur út í heim,“ segir Leoncie um fjar- veru sína af klakanum og sýpur tignarlega á Egils Gulli úr röri og augljóst er hvernig viðurnefnið indverska prinsessan festist við hana. Hún er smágerð og tekur sig vel út, iklædd bleikum tískuflíkum frá toppi til táar. Á barmi heimsfrægðar Það eru rúm sautján ár síðan Le- oncie gerði fyrst strandhögg á ís- landi. Þá kom hún til Keflavíkur í fylgd eiginmanns síns. Fljótlega vakti tónlist hennar og frjálsleg framkoma mikla athygli. Fyrsta platan hennar hét „My Icelandic Man“. Á umslaginu var hún í fangi Jóns Páls, „og, guð minn góður, það vakti athygli," rifjar Leoncie upp. Snjóboltinn sem þá rúllaði af stað hleður enn utan á sig. Leoncie hefur dansað á barmi heimsfrægð- ar ansi lengi. Nafnspjaldið hennar birtist í hinum fræga þætti Entertainment Weekly 1994, hún fékk útgáfusamning i Tékklandi og ef byrinn hefði verið henni ögn hagstæðari hér heima fyrir hefði enginn þurft að undrast að það hefði verið indverska prinsessan, en ekki Björk, sem lék í Dancer in the Dark, hún Leoncie okkar. íslenskir fordómar Leoncie er af portúgölskum og indverskum uppruna en er íslensk- ur ríkisborgari. Hún segist hafa fengið væna sneið af kynþáttafor- dómum hér á landi og fannst tíma- bært að láta sig hverfa þegar mikil og neikvæð umræða spannst um hana i þjóðfélaginu. Þetta var fyrir þremur árum en Leoncie gengur um bein í baki og hefur samið lag til höfuðs lögfræðingum dóms- málaráðuneytisins, sem heitir „Fight them“ og fjallar um van- virðingu mannréttinda. Aðallega finnur listakonan þó fyrir fordóm- um hjá starfssystkinum í tónlistar- bransanum. „Tónlist hér á landi fer bara eftir pólitík. Tónlistar- mennirnir vilja allir losna við mig,“ segir Leoncie og liggur mik- ið á hjarta. „Ég kalla það minni- máttarkennd því ef þú ert svona hræddur við eina litla stelpu, Le- oncie, þá hjálpi þér guð á stóra markaðnum. Ef tónlistin yrði spil- uð í útvarpi myndi fólki finnast hún frábær. Ég veit að ég er góð og fólk kann að meta tónlistina þvi ég hef verið að skemmta í Dan- mörku.“ Þegar prinsessan söng dúett með Páli Óskari snerist dæmið við. „Þá var ég allt í einu beðin um að koma í sjónvarpið, með engum fyrirvara. Ég gerði það því ég er ekki hrædd við áhorfend- ur, ég elska þá. Við Palli komum,“ segir hún. „En svo eru nokkrir tónlistarmenn, svokallaðir píanó- leikarar, sem voru með alls konar blammeringar. Jón Ólafsson sagð- ist kunna illa við lagið. Ég sagði: hlustaðu á mig, kjánalegi serðirinn þinn (you silly fucker), ég skapaði þetta lag, spilaði á hvert hljóðfæri og ég söng, og þú gagnrýnir mig! Ef þú værir sæmilega vel kýldur (If you had the balls) þá myndir þú halda kjafti. Ég gagnrýni ekki fólk,“ segir Leoncie með reiðivipr- ur í vöngum. Frændur og frænkur Ekki hefur heldur gengið greið- lega að koma geisladiskum söng- konunnar í tónlistarbúðir. „Ég veit að fólki er vel við mig og það hef- ur komið heim til mín og keypt geisladiska af mér af því að þeir fást hvergi annars staðar; þeim er alltaf ýtt til hliðar svo þeir seljist ekki. Einu sinni hringdi maður minn í eina búð og spurðist fyrir um diskinn minn. Svarið sem hann fékk hjá afgreiðslumannin- um var: „Það er ekkert varið í þetta, systir min er frábær,“ segir Leoncie sem dæmisögu um kliku- skap og þar kann hundurinn að liggja grafinn þegar dræm plötu- sala hennar hérlendis er brotin til mergjar og borin saman við söluna I Tékklandi. Frumkvöðull nektardansins Enginn éfast um fjölhæfni Le- oncie. Hún hefur sungið á sjö tungu- málum og viðtalið fer fram á þremur þeirra. Hún talar dönskuskotið sam- bland af ensku og íslensku. En það er sviðsframkoman sem hún er frægust fyrir á Fróni. Leoncie vann vanþakk- látt frumkvöðlastarf þegar hún ber- aði á sér barminn á skemmtunum sínum og margir muna aðeins eftir henni sem nektardansmey. í dag verður vart þverfótað fyrir strípi- klúbbum í miðborg höfuðstaðarins. „Það voru engir nektarstaðir þegar ég kom til landsins en hingað komu fatafellur frá Bretlandi, Danmörku og víðar. Ég var alls ekki fyrsta nekt- ardansmærin á íslandi en ég varð fyrir miklu skitkasti út af þessu. Mér er sama um þessa staði en mér er illa við hræsnina. Það er greinilega allt í lagi fyrir sumar konur að sýna á sér brjóstin en ekki fyrir mig. Mér er ekki um svoleiðis skit, bara alls ekki. Ég talaði einu sinni við Margréti Frí- mannsdóttur og hún sagði að þetta væri bara afbrýðisemi af því að ég væri listakona," segir Leoncie. Totta ekki fyrir 4000 kall Prinsessan bregst illa við þegar hún er spurð um verðlagningu á nektardansi sínum: „Ég tala ekki um verð, ég meina hvað er tala?“ svarar hún. „Ef ég yrði beðin um að dansa i dag þá segði ég strax klárt nei. Það er liðin tíð. Ég hef ekki áhuga á dansin- um lengur - þeir eiga ekki næga pen- inga til að bjóða mér. Ég er enginn örvæntingarfullur dópisti og ég hef mitt uppsetta verð sem ég fæ; líkt og ég gerði þegar ég dansaði fyrir Jón Baldvin í Grindavík. Ég var sérstak- lega fengin til að skemmta honum og hann gaf mér buxur,“ segir Leoncie og brosir sínu breiðasta. Hún segist hafa fengið á sig ákveðinn stimpil og lent í ýmsu vegna sviðsframkomu sinnar. „Þegar ég var að skemmta í Danmörku, á jólahlaðborði, komu nokkrir íslendingar, giftir menn. Þar var mikið af kampavíni og snöfsum og margir stripparar en ég var bara að syngja jólalög. Svo var ég spurð hvort ég væri ekki með neina þjón- ustu. Ég sagðist ekkert vita um hvað þeir væru að tala og þá svöruðu þeir að á Islandi gætu þeir fengið hvað sem er tottað fyrir 4000, typpið tottað. Ég spurði hvort þeir ættu við dansk- ar krónur því það væri 40.000 kall. Þeir sögðust eiga við íslenskar. „Oj,“ hugsaði ég. Hver vill gera svona lag- að fyrir svo lágt verð?“ segir hún og skellihlær. „Ef einhver opnar munn- inn á sér í sambandi við þetta þá segi ég þeim hinum sama hiklaust að halda kjafti. Ég er miklu meira en heimskur, kjánalegur strippari. Ég flyt mína eigin tónlist og er meðlim- ur STEF,“ bætir hún við. Hún hefur ekki áhuga á að ræða meira um þessi mál en bætir því við að hún myndi kannski gera það i Bandarikjunum, í þætti hjá Jerry Springer eða Jay Leno. Vill styrkja Blindravinafélagið Leoncie ætlar aðeins að staldra hér við í nokkra mánuði og heldur næst tU Bandaríkjanna og framtíðar- áformin eru nokkuð skýr: „Ég vU velgengni og peninga með henni. Að fólk geti séð að ég á svo og svo marga bíla með einkabUstjóra. Velgengni og auður haldast í hendur. Tökum Kristján Jóhannsson sem dæmi, heldurðu að hann eigi ekki finan bU? Ég vU ekki vera listamað- urinn sem aUar sögumar ganga um en á ekki bót fyrir rassgatið á sér,“ segir hún. Og þegar núllin bætast aft- an á bankainnstæðuna segist Le- oncie gjarnan vUja eiga hús á íslandi og i Kanada og hefur hug á því að styrkja Blindravinafélagið. rr f ó k u s 8. desember 2000 lifíi4tlHww4í tntWÍlríilliHi lÍI ÍÍiliii . • % s i; i S i) í í«í i í í'i'i i <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.