Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2000, Blaðsíða 12
♦ vikuna 8.12-14.12 2000 49. vika Já, ungu mennirnir í Coldplay halda efsta sætinu á fslenska listanum aðra vikuna I röð með lagið Trouble. Sannarlega ágætis lag þar á ferð. Heilmiklar róteringar eiga sér stað í næstu sætum fyrir neðan, elskurnar í Destiny’s Child skjótast upp í annað sætið með Independent Woman og Westlife og Sugarbabes fylgja skammt á eftir. Neðar á listanum vekja tvö lög sérstaka athygli, Aldrei með Smjördallinum og She Bangs með snillingnum Ricky Martin. Allt að gerast á listanum. Topp 20 (01) Trouble Coldplay (02) Independent Women Destiny’s Child (03) My Love Westlife (04) Overload Sugarbabes 05 My Generation Limp Bizkit (06) Again Lenny Kravitz (07) Kids Robbie Williams& Kylie Minogue 08) Don’t mess with my man Lucy Pearl (09) Body II Body Samantha Mumba (lÖ) Ekki nema von Sálin hans Jóns míns (77) Cruisin’ Gwyneth Palthrow & Huey Lewis (72) Shape of my heart Backstreet Boys ( 73) Sigurjón Digri Land & Synir og Stefán Karl (74) Get along with you Kelis 75 Spanish guitar (remix) Toni Braxton (76) Give me just one night 98 Degrees (77) Aldrei Buttercup (76) On a night like this Kylie Minogue 75 Why does my heart... Moby (20) She Bangs Ricky Martin •íí. Sætin 21 til 40 Q topplag vikunnar J hástökkvari vikunnar nýttá listanum stenduristað yK hækkarsigfrá 1 síðustu viku X lækkarsigfrá * siðustu viku fall vikunnar Body Groove Architecs feat. Nana Með þér Skítamórall Come on over Cristina Aquilera 1 Stronger Britney Spears Yellow Coldplay 1 With arms wide open Creed La Fiesta Club Fiesta | Orginal Prankster Offspring Hollar Spice Girls j Let the music play Barry White feat When 1 dream... Marc Anthony Beautiful Day U2 Every little thing Selma You’re God Vertical Horizon Music Madonna | 1 wonder why Tony Touch feat Lady Modjo [ Pollýana Bubbi Morthens Fiesta (Houseparty) Dj Mendez j Ég hef ekki augun af þér Sóldögg Ifókus íslenski listinn er samstarfsverkefni DV og FM 957 og birtist vikulega í Fókus. Listinn er fluttur á FM i umsjá Einars Ágústs Víðissonar. f Ó k U S 8. desember 2000 Eitt af því sem hefur einkennt tónlistarárið 2000 er mikill fjöldi af áhugaverðum hip- hop-plötum. Ein af þeim flottustu er nýja platan með OutKast, Stan- konia, sem kom út fyrir skemmstu. Trausti Júlíusson kynnti sér feril og viðhorf þeirra félaga. OutKast er skipuö þeim Andre Benjamin (oftar kallaöur Dre) og Antwan Patton (Big Boi). Þeir eru báðir frá Atlanta og kynntust þegar þeir voru 17 ára nemendur í Tri-Cities-menntaskólanum. Þeir ákváðu einn daginn, þegar þeir voru að horfa á MTV í eldhúsinu, að stofna hljómsveit. Þeir röppuðu yfir instrúmental útgáfu af laginu Scenario með A Tribe Called Quest fyrir pródúserinn Rico Wade þar sem þeir hittu á hann úti á bílastæði. Hann varð svo hrif- inn að hann fór rakleiðis með þá i stúdíó og nokkrum mánuðum seinna fóru þeir á fund L.A. Reid hjá LaFace Records. Eftir tvær til- raunir fengu þeir samning. Láta hugmyndaflugið ráða Fyrsta lagið sem OutKast gaf út var „Player’s Ball“ sem notaðist við stef frá Curtis Mayfield og fimm mánuðum seinna kom fyrsta stóra platan út. Hún hét því stór- skemmtilega nafni Southemplaya- listicadillacmuzik og var pródúseruð af Organized Noise Productions. Platan, sem kom út árið 1994, fékk frábæra dóma (4 1/2 hljóðnema i The Source) og seldist í milljón eintökum. Næsta plata, ATLiens, kom út árið 1996 og seldist enn þá betur. Þriðju plötunni, Aquemini, sem kom út fyrir tveimur árum, var fljótlega hampað sem meistara- verki. Á henni sýndu þeir félagar á sér nýjar hliðar. Þeir hafa reyndar alltaf verið sér á báti, aldrei hugs- að um það hvað er í tísku hverju sinni eða hvemig tónlist er í gangi heldur bara gert það sem þeim dettur i hug og látið ímyndunar- aflið ráða ferðinni. Aquemini, sem skartaði gestainnkomum frá nöfn- um á borð við Raekwon, George Clinton og Erykah Badu, inni- hélt m.a. smáskífuna Rosa Parks sem sló rækilega i gegn. OutKast- félagar eru hálfgerðir sérvitringar og fara sínar eigin leiðir. Þeir af- sanna kenninguna um að það borgi sig að gera eins og allir hin- ir því að eftir því sem þeir búa til furðulegri tónlist þeim mun betur selst hún. Stankið lifi! Margir voru að velta því fyrir sér hvort OutKast gæti fylgt eftir jafn framúrskarandi góðri plötu og Aquemini. Þeir félagar tóku sér tvö ár í verkið og nú er gripurinn OutKast: frjóir og fönkí. Þjóðfélagspæl- iitgar, kynlíf og splallir orðaleikir kominn. Nýja platan heitir Stan- konia og er víða hampað sem þeirra bestu plötu. Hún er mjög fjölbreytt og inniheldur fjölda af lögum sem eru langt frá því að vera gerð eftir dæmigerðri hip- hop-uppskrift. Fyrsta smáskífulagið, „B.O.B“, eða Bombs Over Baghdad, er t.d. hratt keyrslulag sem þeir sömdu undir áhrifum frá breskri drum & bass tónlist í anda Roni Size og Photek. „Við vorum í partíi í London og það var verið að spila drum & bass,“ segir Dre. „Það náði ekkert almennilega til mín í hip- hoppinu en þetta varð algjört dúndur.“ Lagið er kannski ekki al- veg drum & bass en krafturinn og hraðinn minnir á þá tónlist. „Okk- ar dót er harðara en hítin eru ekki eins flókin," segir Dre. Önnur smáskífan, „Mrs Jackson", er mun ljúfari en text- inn í laginu fjallar um samskipti Dre við bamsmóður hans, Erykah Badu. Textinn er ávarp til móður barnsmóðurinnar, einhvers konar útskýring á því af hverju þau hafl hætt saman. „Við erum hætt sam- an en við erum enn vinir. Við töl- umst við daglega i sambandi við uppeldið," segir Dre. Erykah Badu syngur líka eitt lag á Stankonia, lagið „Humble Mumble". Aðrir gestir eru t.d. B-Real úr Cypress Hill og meðlimir „hinnar" Átlanta hip-hop-sveitarinnar, Goodie Mob. Stankonia er nafn á ímynduðum stað þar sem fönkið ræður ríkjum, eða stankið öllu heldur. Stank er nafn sem OutKast notar yfir fönk- ið. Stankonia er líka nafnið á stúd- ióinu þeirra félaga. Fönktónlist framtíðar- innar Þó að OutKast sé hip-hop- hljómsveit þá er mjög margt i tónlist hennar sem minnir á fönkið. Viðfangsefni OutKast er sambland af þjóðfélagspæling- um, kynlifi og snjöllum orða- leikjum í anda George Clint- ons. í tónlistinni má lika heyra áhrif frá fönkinu. Gitarleikur- inn minnir á Jimi Hendrix, Isley Brothers og P-funk gítar- gúrúinn Eddie Hazel. Á plöt- unni eru líka ekta sýru-harm- óníur. Platan þykir minna á „Maggot Brain“ með Funka- delic en stundum líka á Dr. Octagon, Prince og Sly Sto- ne... Svo er Dre líka oft klædd- ur upp í anda fönksins, hann skartar stundum platínuhár- kollu, loðfrökkum, hermanna- fötum og öðrum fönkí og dólgs- legum fatnaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.