Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 7 I>V Fréttir Umsjón: H________ Hörður Kristjánsson netfang: sandkorn@ff.is Sást ekki á milli augna Guðbjartur Jónsson á Flat- eyri stofnaði og rak um skeið hið ágæta öldur- hús Vagninn. Guðbjartur, sem i ævinlega var ; nefndur Vagn- I stjórinn, var hinn mesti dugnaðar- forkur, segir í nýrri bók Gísla Hjartarsonar á ísafirði sem ber heitið 101 vestfirsk þjóðsaga. Guð- bjartur var frægur fyrir mismæli og málshætti sem vildu taka breyt- ingum í meðförum kappans. Sem dæmi má nefna: „Margt smátt ger- ir lítið eitt. - Þegar neyðin er stærst þá verður hún ekki stærri,“ og svo þessi: „Sá vægir sem veit ekki meira.“ Eitt sinn var Guð- bjartur að lýsa ökuferð í blindbyl, þar sem sá ekki út úr augum. Varð hann að hafa hausinn út um opna hliðarrúðu því að ekkert sást út um framrúðuna. Guðbjartur lýsti þessu svona: „Það var svo mikill bylur að það sást ekki á milli augna og ég varð að keyra með op- inn hausinn út um gluggann..." Fótbolti stórhættulegur! Mikilvæg- ir fótbolta- leikir geta bókstaflega valdið dauða fólks, þeg- ar það deyr úr spennu, sagði á fréttavefnum vlsir.is i gær. Hollenskir visindamenn hafa kom- ist að því að dauðsföll vegna hjartaáfalla jukust um 50% daginn sem hollenska knattspyrnulandslið- iö var slegið út úr Evrópukeppni landsliða af Frökkum árið 1996. Ástæðumar segja þeir vera tilfinn- ingalegt álag, óhófleg meðferð mat- ar, drykkjar og miklar reykingar. Anti-sportistar munu hafa gripið þessi tíðindi feginshendi og gárung- ar telja víst að reynt verði að koma því í gegn að framvegis verði límd- ur miði á alla selda fótbolta með áletruninni: Varúð! - Sparkíþróttir geta valdið hjartaáfóllum... Slóðar og sluddmenni? Vefur ungra framsóknar- manna, Maddaman, er ekki að skafa utan af afstöðu sinni til stjórn- arandstöðunnar í ríkisbanka- sameiningar- málinu og seg- ist ekki sammála í einu og öllu því sem fram kemur í úrskurði sam- keppnisráðs. Maddaman segir úr- skurðinn þó vandlega unninn eftir leiðum sem ríkisstjómin valdi að fara og beri þvi að hlíta honum. Enda hafi Valgerður Sverrisdótt- ir viðskiptaráðherra gert það og hafði hún þó lagt hvað mest undir. Maddaman likir hins vegar Össuri Skarphéðinssyni og öðrum með- limum stjórnarandstöðu í þessu máli við fleyga mannlýsingu góða dátans Svejk: „slóðar og sludd- menni, fretkallar og fjörulallar..." Úldna rjúpu étur Vandræði Ein- ars Þorsteins- sonar, forstjóra íslandspósts, og starfsfólks hans við að koma jólapökkum á leiðarenda, sér í lagi matarsend- ingum utan af landi, urðu Ólafi Stefánssyni á Syðri Reykj- um í Biskupstungum að yrkisefni. íslandspóstur út úr hól, ástandið vitlaust metur. Svo aumingja fólkið eftirjól, úldna rjúpu étur. Góöur afkoma í veiðum á utankvótafiski: Aron ÞH meö fjórðung skötuselsaflans Veiðar á skötusel í botntroll hafa dregist saman um 35 prósent á þessu ári ef miðað er við árið í fyrra. Það vekur athygli að eitt togskip, Aron ÞH er með 25 prósent alls skötuselsafla í botntroll en um síð- ustu helgi var skráður skötuselsafli skipsins kominn í 84,4 tonn. í yfir- liti Fiskistofu um skötuselsaflann á árinu kemur fram að veiðin í botn- troll hefur minnkað úr 519 tonnum í 336 tonn á milli ára og í humartroll úr 286 tonnum í 191 tonn. Samdrátturinn er um 35% í báðum tilvikum. Hins vegar hefur netaaflinn aukist mikið. Heildarskötuselsafli ársins er kominn í tæp 1300 tonn á móti tæp- um 990 tonnum í fyrra og er aukn- ingin um 31% á milli ára. Ef neta- bátarnir eru undanskildir er Aron ÞH með mesta skötuselsafla ársins en næst þar á eftir kemur Hafnarey SF með rúmlega 46 tonna afla. Sá afli fékkst hvort tveggja í botntroll og humartroll. Jón á Hofi ÁR er með 34,5 tonn af skötusel í botntroll, humartroll og dragnót og Fróði ÁR er með tæp 27 tonn í sömu veiðarfæri. Fleiri skip eru ekki skráð með meira en 20 tonna afla. -DVÓ Margir vilja búa í Garöabæ: 593 sóttu um 45 lóðir Mikil eftir- spurn reyndist vera eftir lóðum i Garðabæ þegar 45 lóðir í Ása- hverfi voru aug- lýstar til úthlut- unar í síðasta Fra Garðabæ. mánuði. Alls bárust 593 umsóknir um lóðirnar. Listi yfir umsækjendur hefur verið lagður fram í bæjarráði en reiknað er með að lóðunum verði úthlutað í janúar 2001. Lóðirnar sem verður úthlutað eru við Eikarás, Furuás, Greniás og Grjótás. -DVÓ TIMASPREHGJA TILBOÐIN TIFA í TAKT VIÐ TÍMANN Komdu hagnaðinum haganlega fyrir með hagstæðum fjárfestingum í úrvals vörum, sem nú bjóðast á niðursprengdu verði AL-840 STAFRÆN LJÓSRITUNARVÉL & PRENTARI • Hraði: 8 eintök á mínútu • Frumrita/afritastærð: A4 stærst A6 minnst • Minnkun og stækkun: 50%-200% • Sjálfvirk lýsing afrita • Sérstök Ijósmyndastilling • Tvö prentaratengi FO-2950 6TÆKIÍEINU FAXTÆKI, PRENTARI, SKANNI, AFRITUN, PC FAX OG SÍMI • Leiserfaxtæki A4/14.400 bps • 200 blaða pappírsbakki. • 20 blaða frumritamatari. - • 2 Mb minni, u.þ.b. 130 síður. • LCD skjár með dags. og tíma. • 120 skammvalsminni FAXTÆKI UX-470 • Innbyggður simi. • Sjálfvirkur deilir fax / sími. • Símsvari • Prentar á A4 blöð. • 60 blaða pappírsbakki. • 10 blaða frumritamatari. • 512 kb minni, u.þ.b. 30 síður. • LCD skjár með dagsetningu og tíma. Listaverð 69.900 Tilboðsverð 59.500 Listaverð 74.900 Tilboðsverð 59.900 Listaverð 29.900 Tilboðsverð 23.500 SHARP AR-205 STAFRÆN LJÓSRITUNARVÉL SHARP AR-161 STAFRÆN LJÓSRITUNARVÉL SHARP ER-A310 SJÓÐVÉL PRENTARI* • Hraði: 20 eintök á mínútu • Frumrita/afritastærð A3 stærst A6 minnst • Minnkun & stækkun 50%-200% • Sjálfvirk lýsing afrita • Sérstök Ijósmyndastilling • 2 x 250 blaða pappírsskúffa • 100 blaða framhjámatari • Snúningsbúnaður afritafduplex) Listaverð 199.900 Tiiboðsverð 145.900 PRENTARI* • Hraði: 16 eintök á mínútu • Frumrita/afritastærð A3 stærst A6 minnst • Minnkun & stækkun 50%-200% • Sjálfvirk lýsing afrita • Sérstök Ijósmyndastilling • 250 blaða pappírsskúffa • 100 blaða framhjámatari Listaverð 149.900 Tilboðsverð 105.900 • 5 vöruflokkar, if/fff / Æ Jh stækkanleg í 30 / • Allt að 500 verðminni (PLU) Sjálfvirk dagsetning og tími. 4 afgreiðslumenn. 3 vsk stig INTIMUS 152 PAPPÍRSTÆTARI • Pappírsinntak 220 mm • Tætir 6-8 blöðíeinu • Skurðarstærð 3.8 mm • Hraði 2.4m/mínútu • Pappírsgeymsla 22 Itr. • Sjálfvirk ræsing SKJAVARPI ’&mm SSSp: XG-NV51XE • Birta 1000 Ansi lumen • Upplausn XGA • Þyngd 4,5Kg • Myndstærð 102-762 sm • Vörpunarfjarlægð 1,6-18,1 m • Video; PAL, NTSC, SECAM Listaverð 34.900 Tilboðsverð 27.900 Weffe WL-7014 SKRIFBORÐ 160x80 • Beikiáferð • Melamin Listaverð 11.300 Tilboðsverð 8.690 Tilboðsverð 385.000 Listaverð 10.500 Tilboðsverð 7.900 INTIMUS 250 PAPPÍRSTÆTARI • Pappírsinntak 235 mm • Tætir 8-10 blöð í einu • Skurðarstærð 4 mm • Hraði 8.4m/mínútu • Pappírsgeymsla 35 Itr. • Sjálfvirk ræsing SKJÁVARPI oð. * PG-M10S • Birta: 800 Ansi lumen • Upplausn: SVGA • Þyngd: 1,3Kg • Stærð: B23, H 4,8, D 17,7 sm • Myndstærð: 94 - 524 sm Vörpunarfjarlægð: 1,2-6,8 m Wdeo; PAL, NTSC, SECAM ROVOEC01045 SKRIFBORÐSSTÓLL • Stóll með háu baki. • Stillanleg seta og bak. • Bak geturfylgt hreyfingum. • Fáanlegur með örmum, föstum og stillanlegum • Litur; blár, svartur, vínráuður og grænn. • Áklæði 100% polyacrylic. ATH amiar á mynd ekki innifaldir i verði, Listaverð 19.600 Tilboðsverð 14.300 Tilboðsverð 330.000 Listaverð 16.800 Tilboðsverð 13.500 B R Æ Ð U R N I R Opnunartími: í dag og föstudag k\. 9-18 Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.