Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 Utlönd 9 I>V Fjöldamoröinginn frá Boston með sjö morð á samviskunni: Sagði fátt og hélt sig frekar til baka Meintur fjöldamorðingi, Michael McDermott, 42 ára uppgjafahermað- ur sem starfaði sem rafvirki um borð í kjarnorkukafbát, hélt sig til baka og vakti engar grunsemdir meðal nágranna sinna. McDermott var á miðvikudag ákærður fyrir sjö morð eftir að hann skaut sjö samstarfsmenn sína í veffyrirtækinu Edgewater Technoligy Inc. á annan í jólum. Sagði saksóknari af því tilefni að morðin hefðu verið framin að yfir- lögðu ráði og á skipulegan hátt. „Það vissi enginn neitt um einka- hagi hans,“ sagði Marjorie Richard- son, sem bjó á hæðinni fyrir neðan hann í þriggja hæða húsi í Haver- hill rétt utan við Boston. „Hann sagði hæ og bæ og það var nokkum veginn allt og sumt,“ sagði nágranninn. Fram hefur komið að ástæður verknaðarins séu hugsanlega þær að til stóð að lækka McDermot í Michale McDermot Lögregla lagði m.a. hald á 37 skothylki úr hálfsjálfvirkum riffli. launum til að mæta ógreiddum sköttum sem fyrirtækið átti útistandandi. McDermot mun hafa verið ósáttur við þessa fyrirætlan. Þegar lögreglan gerði húsleit hjá McDermot kom í ljós að hann hafði komið sér upp ágætu vopnabúri í ibúð sinni og efnum til sprengju- gerðar. McDermot kvaðst saklaus þegar hann var leiddur inn í réttarsalinn í Malden en þar var hann úrskurð- aður í áframhaldandi gæsluvarð- hald til 31. janúar næstkomandi. Verði McDermot fundinn sekur á hann yfir höfði sér 25 ára til lífstíð- arfangelsi. Hann er ákærður fyrir að hafa myrt fjórar konur og þrjá karlmenn í skotárásinni á þriðju- dag. Lögmaður hins grunaða sagði umbjóðanda sinn vera á lyfjum og að hann væri í umsjá geðlækna. Með atvikinu á þriðjudag er McDermot kominn í hóp verstu raðmorðingja Bandaríkjanna. Mótmæla bankasamruna Starfsmenn tveggja banka í Suöur-Kóreu mótmæltu í gær sjötta daginn í röð fyrirhuguðum samruna bankanna. Átök urðu milli verkfallsmanna og óeirðalögreglu skammt fyrir utan Seoul í gær. Tólf handteknir vegna eldsvoðans í diskótekinu Kínverska lögreglan handtók í gær tólf manns sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á eldsvoðanum í diskótekinu í Luoyang í Henanhéraði þar sem 309 manns létu lífið á jóladagskvöld. Rekstur diskóteksins, sem var á fjórðu hæð verslunarmiðstöðvar, var ólöglegur. Samkvæmt óopinberum heimildum voru eigandi diskóteksins og verslunarmiðstöðvarinnar meðal hinna handteknu. Lögreglan er sögð rannsaka hvort um íkveikju hafi verið að ræða en sennilegast er talið að kviknað hafi í við logsuðu í kjallara hússins. Fréttastofan Nýja Kína greindi frá því að iðnaðarmenn hefðu fyrst rejmt að slökkva eldinn með vatni en síöan flúið af vettvangi. Þeir voru gripnir morguninn eftir. í gær voru settar upp myndir af Með myndir af fórnarlömbunum Ættingjar með myndir af þeim sem létust í eldsvoðanum á diskótekinu. þeim sem létu lífið í brunanum í fjórum hótelum í Luoyang þar sem yfirvöld tóku á móti syrgjandi ættingjum hinna látnu. Ættingjarnir fengu ekki að sjá líkin. „Við ættum að fá að sjá son okkar en við fáum ekki einu sinni sjálf að staðfesta að hann sé látinn,“ sagði faðir í uppnámi. Gagnrýni ættingjanna á lélegar brunavamir fer nú vaxandi. Samkvæmt ríkissjónvarpinu í Kina hefur Jiang Zemin forseti áhyggjur af atburðinum og Zhu Rongji forsætisráðherra hét því að þeim sem bæru ábyrgð á harmleiknum yrði refsað harðlega. Lélegar brunavarnir kosta þúsundir Kínverja lífið á hverju ári. Samkvæmt opinberum tölum létust 900 manns í eldsvoðum á fyrsta fjórðungi þessa árs. Fæst í Apótekinu, Lyfju, Lyf og heilsu, Heilsuhúsinu og apótekum landsins. Morning Fit* timburmannataflan dregur úr og getur komið í veg fyrir hin þekktu heilsufarslegu eftirköst áfengisneyslu og slegið „timburmennina"af. í töflunni er auk vítamína, sérstök gertegund sem nefnist KR9 og er einungis þekkt af framleiðanda Morning Fit*. Gleðilegtár ''wt með Morning Aotö^Smáauglýsingar ertu að kaupa eða selja? 550 5000 ///•(//Hf/llU* 24. c/e&emðer^ 2000 ameins- félagsins Volkswagen Bjalla. Verðmæti 1.800.000 kr. 27114 Bifreið eða greiðsla upp í íbúð, 1.000.000 kr. 82117 Úttekt hjá verslun eða ferðaskrifstofu, 100.000 kr. 844 14470 29919 43617 56595 69283 93858 104566 118185 139128 1791 16600 29957 43714 57064 72600 94248 104668 118892 139950 2343 17316 30523 44164 57972 75361 94823 104880 120727 141651 3640 18272 30573 48217 60200 77667 95537 107041 122339 143251 4053 18317 31950 48663 63414 78952 95595 110371 126581 143407 4484 19012 32194 49085 64032 79273 95884 110674 127625 144155 4556 19245 32539 49862 65357 81006 95904 110861 128903 144437 6282 19397 34283 50064 65800 82699 96330 111308 129657 144651 7882 20451 35263 50562 67373 83167 96607 112250 129879 145617 8895 20686 36043 50843 67796 86205 97177 112625 130039 146209 9968 22305 37285 53870 67861 89464 97984 113140 133607 146381 10390 22739 38568 54096 67911 89930 99389 114310 133743 146486 11979 26406 39450 54159 67936 90155 101467 115751 133831 146894 13178 26593 40121 54162 68142 90269 102234 115789 134645 147433 13290 26699 42551 54776 68708 91112 103017 116050 134698 14214 29603 42851 56134 69087 91736 103240 116634 137474 4 f/i'raóóa/nevtvifé/qgúf/HiÁÁa/1 ía/ic/smö/i/ium oeitta/i/ítiuf/ii/uj Krabbameinsfélagið S Handhafar vinningsmiöa framvísi þeim á skrifstofu Kraþbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, simi 540 1900.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.