Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 19 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Filmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. Línumar lagðar Samninganefndir framhaldsskólakennara og ríkisins hófu viöræður á ný í gær eftir að upp úr slitnaði fyrir jól. Eins og títt er í deilum sem þessum túlka málsaðilar ástæð- ur þeirra slita hvor með sínum hætti. Kennarar sögðu samninganefnd ríkisins óvænt hafa komið fram með tillögu um að fella brott nær öll ákvæði vinnutíma kjarasamninga framhaldsskólakennara og því hafi menn verið þrumu lostnir eins og Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, lýsti ástandinu. Björn Bjarnason menntamálaráðherra segir hins vegar á heimasíðu sinni að öllum sem sátu að viðræðunum undir stjórn ríkissáttasemj- ara hafi komið uppstyttan í viðræðunum á óvart. Senn líður að þeim tíma, upp úr áramótum, er fram- haldsskólanemar ættu við eðlilegar aðstæður að heíja nám að nýju eftir jólaleyfi. Hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma eru liðnir um tveir mánuðir frá upphafi verk- falls. Það er því knýjandi nauðsyn að ná samningum sem fyrst svo skaði nemenda verði ekki meiri en orðinn er. Línur hljóta að hafa verið lagðar þegar samningar náð- ust rétt fyrir jól milli samninganefndar Félags framhalds- skólakennara og Verslunarskóla íslands um nýjan kjara- samning. Verkfalli kennara við skólann hefur því verið af- lýst. Á heimasíðu Kennarasambands íslands segir að kjara- samningurinn felur í sér mikla hækkun grunnlauna strax um áramót vegna stórtækra tilfærslna milli yfirvinnu og dagvinnu. Fram hefur komið hjá Þorvarði Elíassyni, skólastjóra Verslunarskólans, að vinnuskipulagi kennara í skólanum hafi nánast verið umbylt með nýja kjarasamningnum. Aukagreiðslur, aðrar en yfirvinna utan dagvinnu, fara nú inn í mánaðarkaup. Þetta þýðir nær tvöfóldun grunnkaups kennara við skólann. Sérstök bókun fylgir samningnum um kennsluskylduaf- slátt en þar kemur fram ein helsta tilslökun kennara við Verslunarskólann. Kennsluafslátturinn er minnkaður í skilgreindum áföngum gagnvart starfandi kennurum við skólann á löngum tíma. Kjarasamningurinn tekur því á því helsta sem um hefur verið deilt. Hann byltir grunnlaunum kennara en að sama skapi má vænta mikils samdráttar í yf- irvinnu. Þetta er meginatriði þess sem kennarar hafa barist fyrir enda var dagvinnuþáttur launa þeirra orðinn talsvert lægri en hjá viðmiðunarstéttum meðal háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna. Um leið verða kjarasamningarnir gagnsærri en áður. Menntamálaráðherra bendir á það í yfirliti sínu að með kjarasamningi eins og gerður var í Verslunarskólanum verði auðveldara að átta sig á því fyrir hvað er verið að greiða enda um verulega tilfærslu frá alis kyns álagi og yf- irvinnugreiðslum inn í dagvinnutaxta. Því auðveldi hin nýja skipan skólameisturum og kennurum að takast á við ný verkefni sem sé mikils virði á tímum örra breytinga og nýmæla í námi og vinnubrögðum nemenda. Ráðherra menntamála fagnar því þeim áfanga sem náð- ist með Verslunarskólasamningnum og formaður Félags framhaldsskólakennara hefur lýst því yfir að um góðan samning sé að ræða. Trygging sé fólgin í hærra og jafnara mánaðarkaupi en um leið fái kennarar aukna stjórnunar- lega ábyrgð. Sé vilji til þess hjá samninganefndum framhaldsskóla- kennara og ríkisins ættu samningar að nást innan tíðar, byggðir á þegar gerðum Verslunarskólasamningi. Línan hefur verið lögð. Mikilvægt er að skólastarf geti hafist strax upp úr áramótum. Tjón nemenda má ekki verða meira. Jónas Haraldsson DV Skoðun Byggðaröskun og kvótakerfi Á vegum íslenskra stjórn- valda hafa menn farið um víðan völl, út um allan heim, ráðherrar, þingmenn, embættismenn og aðrar sendiskutlur, allir til að lofa kvótakerfið. Auðvitað eru til útlendingar sem sjá að þetta gjafakvótakerfi mætti heimfærast til annarra landa, því aldrei er sagt rétt frá. Aldrei sagt frá brott- kasti, byggðavanda, skuld- setningu, réttu ástandi fískistofnanna og ójafnvæg- inu í samfélaginu á öllum sviðum. - Það er búið að Ijúga alltof miklu að útlendingum um íslenskan sjávarútveg. Sjávarútvegur ESB Inn í sjónvarpsþætti Páls Bene- diktssonar fréttamanns Sjónvarpsins voru margir til kallaðir, þar á meðal Jakob Jakobsson fiskifræðingur sem ræddi um fiskveiðiráðgjöf og flski- fræði ESB. Taldi hann að hjá ESB hafi illa tekist til en miklu betur hjá okkur. Ég get ekki séð að það sé raunin, því er nú verr. Ekki hefur Jakobi tekist að byggja upp síldar- Grétar Mar Jónsson forseti Farmanna- og fiskimannasambands tslands stofninn viö ísland þrátt fyrir að farið hafi verið al- gjörlega eftir hans ráðgjöf í 30 ár. Mest höfum við getað veitt 120 þúsund tonn, getur stofninn ekki orðið stærri eða hvað? Fiskveiðistjórnun ESB hefur verið gagnrýnd af ís- lenskum fiskifræðingum og stjórnmálamönnum, þeir hafa bent á kvótahopp hjá ESB. Við íslendingar erum ekki saklausir í þeim efh- um. Ég man ekki betur en útgerð norður í landi hafi verið með norskt skip á kaupleigu og fengið kvóta út á það í norsk-ís- lensku síldinni og sé að flagga skipi nú fyrir áramót til Færeyja til að fá kvóta í færeyskri lögsögu. Það eina jákvæða í þáttum Páls Benediktssonar var umfjöllunin um sjávarútveg ESB. En Páll minntist ekki á veiðar útlendinga á íslands- miðum í dag, og þar endurspeglast þekking hans eöa þekkingarleysi á íslenskum sjávarútvegi. Færeyingar mega veiða loðnu, síld (norsk-ís- lenska) við ísland, lúðu, þorsk og meðafla svo sem löngu, keilu, „Þáttagerðin hefur kostað milli 50 og 60 milljónir sem eru miklir peningar, en það sem verst er að þœttimir eru áróður meira og minna fyrir mjög ranglátu og vit- lausu gjafakvótakerfi. “ - Aðstandendur þáttarins Alda- hvörf, staddir í Kína. kolmunna og annað. Norðmenn fá að veiða loðnu og síld, keilu, löngu, lúðu og einhvern meðafla. ESB hefur 3000 tonna karfakvóta. Rússar hafa leyfi til að veiða norsk- íslenska síld og makríl. Japanir hafa leyfi til túnfiskveiða á 5 skipum á ári. Grænlendingar geta veitt út- hafskarfa upp á 150 mílna landhelgis- línuna og loðnu á íslandsmiðum. Ég hef hér bent á það sem ég tel rangt með farið og bent á það sem vantaði í þættina þegar verið er að fjalla um sögu og stöðu sjávarútvegs við aldcir- hvörf og horft til framtíðar. Hlægilegar vangaveltur Þá á ég eftir að minnast á þá aðila sem kostuöu þáttagerðina. Sumir kalla þá aðila sem greiddu kostun Skólar og sámkeppni Nú í kennaraverkfalli taka margir til máls og umræðan er undarleg að því leyti að allir eru sammála um að kennarar ættu að fá bætt kjör, enda menntun mikils verð og nauðsynleg- ust fjárfestinga og allt það. Eða rétt- ara sagt: allir byrja á að samþykkja nauðsyn kjarabóta kennurum til handa, í orði að minnsta kosti. En í næstu andrá hafa þeir sem eru rikis- stjórnar- og markaðshyggjumegin í tilverunni kjaftað málið í ramman hnút. Og þeir segja eitthvað á þá leið að kennarar séu sjálfum sér verstir, þeir séu ekki nógu sveigjanlegir í kerfisbreytingum og ekki nógu opnir fyrir samkeppni og undanskilið er að þeir verði að bæta ráð sitt ef þeir vilja hækka sitt kaup. Markaöslausnir Talið um sveigjanleikann er einatt svo þokukennt að utangarðsmaður neyðist til að gefast upp við að botna í því hvaö menn eru að fara. Sam- keppnisboðskapurinn er skýrari - Kjallari „Skólar verða aldrei eins, en nú verður munur þeirra meiri og eykst jafnt og þétt. Lakari skólar verða enn fátœkari en áður að peningum og „mannauði“ og möguleikar nemenda þeirra til framhaldsnáms þeim mun þrengri. “ - Frá ráðstefnunni Heimili og skóli í desember á sl. ári. Með og á móti eins og t.d. kom fram á dög- unum í Morgunblaðsgrein eftir framkvæmdastjóra Sam- taka atvinnulífisins. En þar er kennurum ráðlagt að efla að sínu leyti samkeppni um laun og nemendur, stuðla að því að skólar séu fjárhagslega sjálfstæðir hver um sig og fái peninga eftir því hvernig þeim gengur 1 samkeppni um nemendur, einnig skuli kenn- arar mæla með því áð „fjölga vinnuveitendum I skólakerf- inu“ - þ.e.a.s. með aukinni einka- væðingu framhaldsskóla. Og muni þá öllum vel farnast ef eftir gengur. Menn kannast við þessar hug- myndir, þeim er oft hampað á hægri- væng stjómmála og það er ekki í fyrstá sinn að átök eins og kennara- verkfallið eru notuð til að fara með trúarsetningar um að beita skuli markaðslausnum á félagslega þjón- ustu. En taki menn eftir því, að það er undarlega lítið um að vitnað sé til heimilda um það hvernig til tekst í raun þar sem slíkri stefnu er fylgt. New York Review of Books birti nýlega úttekt á fimm bókum sem skoða tilraunir með slíka skólasam- keppni. Lengst var í þessum efnum gengið á Nýja Sjálandi þar sem árið 1989 hófst allsherjarkerfisbreyting undir samkeppnisfána. Og eins og búast mátti við er reynslan af til- rauninni eitthvað á þessa leið: Hvar lenda menn? Skólar verða aldrei eins Breytingin kemur sér vel fyrir hluta nemanda og hluta kennara. Þann hluta nemenda sem eiga sér efnameiri aðstandendur og reyndari Arni Bergmann rithöfundur í skólamálum. En hlutur annarra versnar. Skólar verða aldrei eins, en nú verður munur þeirra meiri og eykst jafnt og þétt. Lakari skólar verða enn fátækari en áður að peningum og „mannauði" og möguleikar nemenda þeirra til framhaldsnáms þeim mun þrengri. Frjálst val á skólum var vígorð breytinganna en í reynd eiga margir þess engan raunverulegan kost að velja um skóla. Þeir sem lægri hafa tekjur geta ekki valið hvar þeir búa eða kostað akstur eða aukakostnað sem fylgir því að vera á „finni" skóla. í stuttu máli: tiiraunir með þær kerfisbreytingar sem einmitt vaka fyrir þeim sem nú leggjast gegn is- lenskum framhaldsskólakennurum leiða til þess, að í reynd er horfið frá viðleitni til að gefa ungu fólki jöfn tækifæri til að vinna í skólakerfinu úr sínum gáfum og áhuga. Svo er annað. - Nýja-Sjáland var áður þekkt fyrir nýjungar í kennslu- málum og góðan meðalárangur skól- anna. En breytingamar hafa dregið úr samstöðu skóla um kennslustarf. í nýju kerfi eru skólar og kennarar ófúsari til að deila með öðrum „bestu hugmyndum" um kennsluaðferðir og námsgögn - vegna þess að þeir líta nú á sig sem samkepppnisaðila fyrst og fremst. Og hið fjárhagslega sjálf- ræði einstakra skóla, sem lítur svo vel út í kenningu, hefur furðu oft leitt til stórskaðlegrar ævintýra- mennsku og pretta. - Gáum að þessu - með öðru. Árni Bergmann Mörgum finnst aö vanti meiri samkeppni þau áhrif að olíufélögin geri allt sem þau geta til að draga úr kostnaði við sölu og dreifingu. Við erum í rauninni að skapa annan kost en við höfúm átt fram til þessa. Ef þetta leiðir til hagstæðari samninga við olíu- félögin þá er tilganginum náð. Við höfum verið í viðræðum við félögin og erum það enn og munum halda þeim áfram. Það er í sjálfu sér ekki keppikefli að fjölga aðilum sem selja olíu ef samkeppnin er viðunandi hjá sem eru í þessari starfsemi. tilraun til að kanna nýjan J „Það má segja að þetta séu ákveðin K tímamót og málið getur vissulega þró- ast í ýmsar áttir. Ekkert er útilokað. En það sem við erum að reyna að gera er ekki flókið, við erum einfald- lega að ná fram meiri hagræð- ingu, spara útgerðinni peninga og veitir sannarlega ekki af. Mörgum í okkar hópi finnst að það mætti vera meiri og virk- ari samkeppni í olíuverslun- inni. Við ákváðum að kanna þennan möguleika, að selja olíu beint úr olíu- skipum í höfnum. Ég vona að þetta hafi Q Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ hinum Þetta er kost.“ Uíuverslun útgerðarmanna Skiljanleg gremja bitnar á seljendum olíuvara það ráð að versla heldur við útlendinga en íslensku olíufé- lögin. Það er gert á jólum, þeg- ar gjörvallur íslenski flotinn er í höfh og afgreiðsla því með auðveldara móti. Margt bend- ir til að verðlækkun sé vænt- anleg á olíu á íslandi vegna lækkandi innkaupsverðs. Við þessum viðbrögðum hags- munasamtaka útgerðarmanna er lítiö að segja. Við hjá Skelj- ungi óskum eftir áframhald- andi góðum samskiptum við íslenska útgerðarmenn og munum ' '"IzSx'i „Mikil hækkun ■ á °líu á heims- markaði á undan- r fómum misserum hefur bitnað mjög á mörgum íslenskum fyrir- tækjum og einstaklingum. í sumum tilvikum hefur skilj- anleg gremja verið látin bitna á seljendum olíuvara á ís- landi, íslensku olíufélögunum. Við hjá Skeljungi höfum bitið á jaxlinn og reynt að taka því sem að höndum ber, þó við fáum engu ráöið um hvernig mál þró- ast á heimsmarkaði. Hagsmunasam- tök útgerðarmanna hafa nú brugðið á Kristinn Björnsson forstjóri Skeljungs gera okkar besta til að tryggja þeim besta verð, gæði og þjónustu." Danska olíuskipiö Sophle Theresa er í Vestmannaeyjum og færlr útgerðlnni jólagtaðnlng í forml ódýrara eldsneytls. A þennan hátt eru útgerðarmenn komnir í vlssa samkeppnl vlð olíufélögln þrjú, sem selja olíuna á talsvert óhagstæðara verði. Ekki eru allir á elnu máli um réttmæti þess að útvegsmenn efni til slíkrar jólasölu á olíu. þáttanna Mafiu. Það geri ég ekki, ég kalla þetta klíku, því þó að nokkur fyrirtæki og stofnanir kosti gerð þáttanna þá eru þetta sömu aðilarnir að stórum hluta, SH, SÍF, ÍS, LÍÚ, Nýsköpunarsjóður með stjórnarfor- manninn Arnar Sigurmundsson í broddi fylkingar, sjávarútvegsráðu- neyti með 10 milljóna styrk, og síðast en ekki sfst borgar Ríkissjónvarpið 10 milljónir fyrir sýningarréttinn. - Þáttagerðin hefur kostað milli 50 og 60 milljónir sem eru miklir peningar, en það sem verst er að þættirnir eru áróður meira og minna fyrir mjög ranglátu og vitlausu gjafakvótakerfi. Ýmsar vangaveltur Páls Bene- diktssonar virkuöu hlægilegar, eins og sú að fara svokallaða fyrningar- leið og taka bara 1% af kvóta til baka á ári, Fyrningarleið er í lagi ef kvót- inn kæmi til baka á 5 árum. En þaö er auðvitað hans mál og hans skoð- anir og dæma sig sjálfar. Ég get ekki ímyndað mér að hægt verði að fá fé frá Sjónvarpinu, Sjávarútvegsráðu- neytinu eða Nýsköpunarsjóði til að gera þáttaröð um gallaða fiskveiði- stjómun á íslandi. - En það má þó reyna. Grétar Mar Jónsson Ummæli Afmarkaður dómur „Ég efa það ekki eina mínútu að Alþingi sam- þykki með hraði lög sem eru réttarbót fyrir öryrkja í landinu ... Við litum svo á, að dómur Hæstaréttar taki á mjög afmörkuöum þætti og það væri að mínum dómi al- varlegt ef ekki mætti tekjutengja. Þá væri aldrei hægt að koma til móts við þá sem minnst mega sín. Ég teldi illa komið ef sá sem hefur hálfa milljón í mánaðarlaun fær jafnmikið í opinber- ar bætur og sá sem hefur hundrað þúsund krónur á mánuði." Ingibjörg Pálmdóttir heilbrigöisráöherra í Degi 23. desember. Lög og pólitík „Ef launþegi gefur út innstæðulausar ávísanir fyrir háum fjárhæðum má hann búast við þungum kárínum og jafnvel vist á Hrauninu. Þetta eru lög. Ef einstök ráðuneyti eða Alþingi spreða tugum eða hundruðum milijóna umfram allar heimildir vegna Þjóðmenningarhúss og í nýjar skrif- stofur þingmanna er enginn ábyrgður og því engin krafa gerð um refsingu. - Þetta er pólitík." Sæmundur Guövinsson blaöamaöur I Mbl. 23. desember. Alþingi verði kallað saman „Það er að mínum dómi ekkert sem stendur í vegi fyrir því að öryrkj- um verði greiddar út þær bætur sem Hæsti- réttur dæmdi þeim. En ef í ljós kemur að nauösynlegt sé að breyta lögum til að greiða öryrkjum bætur, í samræmi við dóm Hæstaréttar, er eðlilegt að Alþingi verði kallað sam- an milli jóla og nýárs og nauðsynlegar breytingar gerðar á lögum til að greiða öryrkjum út þær bætur sem ranglega hafa verið af þeim teknar." Ögmundur Jónasson alþm. 1 Degi 23. desember. Jarðgangaþref „Verði Siglufjarðar- göng látin ganga fyrir þannig að jarðgangagerð á Austfjörðum tefjist í 5 eða 6 ár þá má ríkis- söórn Davíðs Oddssonar mín vegna sjá sína sæng útbreidda, missa þingmeirihlutann sem hún hefur og biðjast fyrir um hverja helgi ásamt Hjörleifi Guttormssyni og fleiri álvers- andstæðingum. Þingmenn Austfjarða geta aldrei fallist á að þeirra kjördæmi sitji áfram á hakanum f jarðgangagerð þó að þingmenn Norðurlands eystra og vestra verði á öðru máli.“ Guömundur Karl Jónsson. Úr opnu bréfi i Mbl. til samgönguráöherra ............... . 23. deSember. Fallandi framleiðni í okkar þjóðfélagi er lftil framleiðniaukning. Fram- leiðni stendur í stað í mörg- um starfsgreinum og í sum- um fer hún jafnvel minnk- andi. í hefðbundnum at- vinnugreinum er fram- leiðni almennt lítil. Fram- leiðni minnkar víða í opin- bera kerfinu. Þá veldur op- inber ofstjómun á ýmsum sviðum minnkandi fram- leiðni í þjóðfélaginu. Framleiðni Framleiðni er mælikvarði á af- kastagetu og ekki flókið hugtak. Tök- um fyrirtæki með 100 manns. Segj- um að starfsmönnum sé fækkað um tvo án þess að afköst minnki. Fram- leiðsla á mann hefur þá aukist um 2% og framleiðni fyrirtækisins einnig. Geta fyrirtækja til að fram- leiða sífellt meira meö sama mann- afla, fé og aðfóngum er kölluð fram- leiðniaukning. Þegar framleiðnin vex batnar afkoma fyrirtækisins. Það lækkar söluverð, bætir sam- keppnisstöðu sína og skilað auknum hagnaði. Unnt er að mæla framleiðni og framleiðniaukningu í flestum starfs- greinum einkarekstrar og opinberr- ar starfsemi. Sé framleiðniaukning í þjóðfélaginu í heild fáum við stöðugt meiri afköst með sama mannafla og aðfóngum. Við það verða meiri verð- mæti til skiptanna. Sé lítil eða engin framleiðni kemur þaö niður á sam- keppnisstöðu okkar gagnvart öðrum þjóðum. Sérfræðingar fjármálafyrir- tækja hafa nýlega vakið athygli á lít- illi framleiðniaukningu hér á landi. í framhaldi af því hafa spunnist nokkrar umræður. Framlelðni fyrirtækja Framleiðni fyrirtækja hér á landi hefur lengi verið minni en í þróuð- um iðnríkjum. Menn hafa þó ekki haft af því áhyggjur. Greinarhöfund- ur hefur nokkrum sinnum vakið at- hygli á lítilli framleiðni í bankakerf- inu og byggingariðnaði án umtals- verðra viðbragða. Nú eru augu manna þó að opnast fyrir mikilvægi þess að framleiðni fyrirtækja aukist. Bankakerfið hefur lengi verið skóla- bókardæmi um fyrirtæki með litla framleiðni. Hinn mikli munur inn- lánsvaxta og útlánsvaxta er talandi dæmi um stöðu íslenskra lánastofn- ana. Framleiðni fjármálafyrirtækja fer einnig minnkandi því þensla fjár- málageirans er meiri en svarar til af- kasta hans. Þess vegna felst í því viss kaldhæðni að einmitt starfs- menn fjármálafyrirtækja veki at- Stefán Ingólfsson verkfræöingur hygli á lítilli framleiðni- aukningu í þjóðfélaginu. í mörgum hefðbundnum at- vinnugreinum er fram- leiðni lítil. Sem dæmi má nefna byggingariðnaðinn. Fyrir liðlega áratug var framleiðni vinnuafls í bygg- ingariðnaði helmingi minni en í Danmörku. Framleiðni í atvinnugreininni hefur reyndar farið minnkandi í áratugi. Byggingarkostnað- ur hækkar stöðugt meira en almennt verðlag. Nemur munurinn liðlega 1% á ári. Hækkun- ina má aðallega rekja til aukinna op- inberra krafna og álagna. Hluta hennar, minnst 0,1% á ári, má þó rekja til minnkandi framleiðni í byggingariðnaði. Minnkandi framleiðni í opin- bera kerfinu Framleiðni í opinbera kerfinu er fallandi. Rekstrareiningar þurfa stöðugt aukið fé til að reka óbreytta starfsemi. í opinbera kerfinu er einnig ofstjómun sem leggur gagns- lausa vinnu á einstaklinga, fyrirtæki og opinberar stofnanir og minnkar þannig framleiðni þjóðfélagsins alls. Greinarhöfundur athugaði fyrir ára- tug hvemig rekstrarkostnaðar tiltek- innar ríkisstofnunar þróaðist. Stofn- unin hafði sömu verkefni allt tíma- bilið sem athugunin náði til og ekki var sýnileg aukning í afköstum eða . gæðum. Rekstrarkostnaður stofnun- arinnar óx til jafnaðar um 2% á ári reiknað á föstu verðlagi. Framleiðni hennar féll sem þvi nam, 20% á ára- tug. - Unnt er að finna mörg verri dæmi. Ofstjórnun opinberra aðila veldur líka minnkandi framleiðni í þjóðfé- laginu. Sem dæmi má taka setningu laga um fjöleignarhús. I reglugerð sem þeim fylgir er lögð mikil og óþörf vinna á ráðgjafa sem gera eignaskiptayfirlýsingar og starfsfólk byggingafulltrúaembættanna. Fyrir- mæli reglugerðarinnar eru með ólík- indum. Reikna skal sjö gerðir af flat- armáli og rúmmáli fyrir hverja ein- ingu hvers einasta húss. Sé flatarmál stiga ekki reiknað eða sameign auð- kennd með gulum lit á teikningum er skjalinu umsvifalaust hafnað. Vinna við þennan geira hefur minnst fjórfaldast með tilkomu reglugerðarinnar. Vegna hennar þarf fleiri vinnandi menn til að leysa sama verkefni. Framleiðni í þjóðfé- laginu minnkar. Stefán Ingólfsson „Ofstjórnun opinberra aðila veldur líka minnkandi fram- leiðni í þjóðfélaginu. Sem dœmi má taka setningu laga um fjöleignarhús. í reglugerð sem þeim fylgir er lögð mik- ^ il og óþörf vinna á ráðgjafa sem gera eignaskiptayfirlýs- ingar og starfsfólk byggingafulltrúaembættanna. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.