Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Qupperneq 22
26
Tilvera
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
DV
Glæsilegt úrval
Glæsilegt úrval af handunnum rúmteppum,
dúkum, Ijósum og gjafavörum.
Árshótíðadress fyrir börn og fullorðna,
samkvæmisveski.
Matta rósin 20% afsl.
Pelsar í úrvali
op» Sigurstjarnan
virka daaa 11-18, ( bláu húsi við Fákafen.
lougord. 11-16 Sími 588 4545.
Bring It on:
Klappstýrukeppnin
Á nýársdag verður tekin til sýn-
ingar í Sam-bíóunum, Háskólabíói,
Nýja bíói, Keflavík og Nýja bíói,
Akureyri, Bring It on, ný kvik-
mynd sem fjallar um háskólastúlk-
ur sem hafa það að áhugamáli að
vera klappstýrur. Mynd þessi naut
mikilla vinsælda í Bandaríkjunum
á haustmánuðum.
í myndinni segir frá undirbún-
ingi klappstýruliða fyrir meistara-
keppni í greininni. Torrance
Shipman (Kirsten Dunst) er fyrir-
liði San Diego-menntaskólans og í
hennar augum kemur ekkert annað
til greina en sigur. Torrance er í
skóla sem hefur allt til alls og styð-
ur vel við bakið á liði sínu. Helsti
keppinauturinn er Clovers-mennta-
skólinn þar sem fyrirliði er Isis
(Gabrielle Union). Þarf hún auk
þess að þjálfa að hafa fyrir því að
safna peningum svo lið hennar geti
verið þátttakandi. Mikið á eftir að
ganga á áður en sjálf keppnin hefst,
til að mynda eru ekki allir sann-
færðir um að liðið hennar Torrance
sé löglegt.
-HK
Slakaö á fyrir átökin
Kirsten Dunst fyrir miðri mynd í hlutverki klappstýrufyrirliðans.
Gullna skálin:
^ James Ivory
á slóðum
Henry James
Dancer in the Ðark
★★★★ Dancer in the Dark er há-
melódramatísk sápuópera, gerð af
hjartans einlægni og miklu næmi -
en um leið læðist stöðugt að manni
sá grunur að Von Trier sé aö
skemmta sér við að hafa áhorfand-
ann að fifli. -ÁS
ikíngut
Kylfingurinn og kylfusveinninn
Matt Damon í hlutverkum sínum og eru komnir á golfvöllinn.
Þjóðsagan um Bagger Vance:
Golf og til-
gangur lífsins
Charlize
Theron
leikur
kærustu
kylfingsins.
Robert Redford hefur á undanförn-
um árum skipt tíma sínum á milli
þess að leika og leikstýra og stundum
verið í báðum hlutverkum. í nýjustu
kvikmyndinni sinni, The Legend of
Bagger Vance, er hann eingöngu fyrir
aftan kvikmyndavélina og lætur leik-
arana Matt Damon, Will Smith og
Charlize Theron njóta sín.
Matt Damon leikur fyrrverandi
stríðshetju úr fyrri heimsstyrjöldinni
sem þjáist af hryllingi stríðsins þegar
heim er komið til Bandaríkjanna.
Hann þarf að byggja upp líf sitt að
nýju og endurvinna ást fyrrver-
andi kærustu sinnar sem leikin
er af Charlize Theron. Fyrir
stríð hafði persóna Matt
Damons leikið golf og náð langt.
Hann ákveður að taka upp
golfiðkunina að nýju en gengur treg-
lega til að byrja með. Það er ekki fyr-
ir en kylfusveinninn hans, leikinn af
stórstjörnunni Will Smith, kennir
honum leyndarmál hins fullkomna
golfhöggs sem í þessu tilfelli reynist
vera lykillinn að tilgangi lífsins.
Matt Damon haíði aldrei leikið golf
áður en hann tók að sér hlutverkið.
Golfkennarinn Tim Moss fékk það
verk í hendurnar að gera hann að það
góðum kylfingi að sveifla hans væri
sannfærandi, sem sagt að fá Matt
Damon til að hitta boltann. Þeir
eyddu vel yfir hundrað klukkutímum
og að sögn Moss var Damon fljótur að
átta sig á íþróttinni og ná tökum á
kylfunum. Damon segist í kjölfarið
hafa ánetjast golfinu það mikið að nú
noti hann hverja frístund sem hann á
til að spila golf.
Will Smith kunni meira fyrir sér í
íþróttinni: „Það eru um það bil sex ár
síðan ég sló mitt fyrsta högg og ég hef
af og til verið að fara í tíma hjá
fremstu golfkennurunum. Það var því
kjörið tækifæri fyrir mig að leika í
myndinni og fá sem aukabónus
kennslu hjá færum atvinnu-
mönnum."
Robert Redford hafði lengi
verið einn vinsælasti leikari
Bandaríkjanna þegar hann
sneri sér að leikstjórn og sló í
gegn með sinni fyrstu kvik-
mynd, Ordinary People, sem
hlaut óskarsverðlaun sem
besta kvikmyndin. The Legend
of Bagger Vance er sjötta
myndin sem hann leikstýrir.
Aðrar myndir hans eru The
Milagro Beanfield War, A
River Runs Through It, Quiz
Show og The Horse Whisperer.
★★★ Góð kvikmynd sem byggir á
þjóðsagna- og ævintýrahefð. Myndin
fjallar um grænlenskan dreng sem
rekur á íslandsstrendur í vetrar-
hörkum. Aðall myndarinnar er líkt
og í góðum ævintýrum, barnsleg
einlægni sem skilar sér til áhorf-
enda. Mest áhersla er lögð á sam-
band Bóasar og Ikínguts og þar
mæðir mikið á hinum ungu leikur-
um, Hjalta Rúnari Jónssyni og Hans
Tittus Nakinen. Drengirnir ná upp
sérlega góðum og einlægum sam-
leik. Góð fjölskylduskemmtun.
-HK
Snatcfi
irirk Snatch er fyndin, hröð og per-
sónur fjölbreyttar og skrautlegar. Ef
áhorfendur geta liðið ofbeldið, sem er
mikið og gróft, þá er Snatch frábær
skemmtun með sterkum höfundarein-
kennum leikstjórans Guy Ritchies.
Stíll Ritchies gerir út á hraða, stutt
samtöl, ofbeldi og margar persónur
sem fá að mestu leyti jafnmikið pláss
í myndinni. Þetta tekst honum af
snilld, sérstaklega þegar að því er
gáð að handritið er innantómt. -HK
Den eneste Ene
irirk Den eneste Ene er bæði ósköp
dönsk og alls ekki. Það má eiginlega
segja að þetta sé rómantísk gaman-
mynd af ameriskri sort sem flutt hef-
ur verið til Danmerkur: einfeldnings-
leg trú á ástina, árangurslaus fram-
vinda sögunnar, hamingjusamur endir
og feel-good-andi sem svífur yfir vötn-
unum. Persónumar eru hins vegar
danskar og samfélagið skandinavískt.
Það að þessi blanda skuli ganga upp
gerir Den eneste Ene nokkuð merki-
lega mynd. -GSE
Robert Redford á tali við Charlize Theron
meðan á upptökum stóð.
Charlotte Stant
Uma Thurman leikur þessa tilfmningaþjáðu veru sem þykir eftirtektarverð-
asta persóna sögunnar.
Háskólabíó frumsýnir á nýársdag
The Golden Bowl, nýjustu kvik-
mynd þrieykisins, Ivory, Merchant
og Jhabvala, sem á að baki margar
frábærara kvikmyndir eins og
Howard’s End, Remains of the Day,
A Room With A View og Surviving
Picassos, svo nokkrar séu nefndar
úr hópi gæðamynda. í þetta sinn er
'• þríeykið á slóðum Henry James og
er það James Ivory sem leikstýrir
útgáfu þeirra af skáldsögu James,
The Golden Bowl.
Henry James hefur á undanförn-
um árum verið í miklu uppáhaldi
hjá kvikmyndaleikstjórum sem
vilja láta taka sig alvarlega og á ti-
unda áratugnum voru tiu sögur
hans kvikmyndaðar. Þekktustu
myndirnar frá þessum áratug eru
Portrait of a Lady, The Wings of the
Dove og Washington Square. Þrí-
eykið sem stendur að baki The
Golden Bowl hefur kvikmyndað
ívær af skáldsögum Henrys James,
The Europeans (1979) og The
Bostonians (1984) svo þau ættu að
. oekkja baksvið sagna James vel.
The Golden Bowl gerist í
Englandi og á Ítalíu á árunum 1903
: il 1909 og er saga um tvö hjónabönd
>g persónurnar sem þau mynda.
'egar myndin hefst er Americo
>rins að hefja búskap með Maggi,
lóttur ríks Bandaríkjamanns.
hinsinn vill ekki sleppa hendinni
:if ástkonu sinni Charlotte Stant og
ylgjumst við með þeim eiga sinn
uðasta ástarfund um leið og tilvon-
mdi brúðgumi velur brúðkaupsgjöf
íanda brúði sinni. Örlögin haga því
;vo til að Charlotte Stant giftist
\dam Verver, föður Maggie, þannig
>ð fjölskyldulífið verður flókið svo
ekki sé meira sagt enda taka prins-
:nn og Charlotte fljótt upp fyrra
iamband og halda að þau geti kom-
ist upp með það vegna þess hve
makar þeirra eru værukærir. Þetta
er þó hinn mesti misskilningur eins
og kemur i ljós.
í helstu hlutverkum eru úr-
valsleikarar á borð við Uma Thur-
man, Nick Nolte, Jeremy Northam,
Kate Beckinsale, James Fox og
Madelaine Potter.
-HK