Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Síða 24
!8 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 Tilvera x>v .1 í f iö E F T l R V l N N U Standardar a Múlanum Kvartett Ásgeirs Ásgeirssonar spilar á Múlanum á Kaffi Reykjavík í kvöld. Ásgeir er nýkominn heim úr framhaldsnámi í g+itarleik í Hollandi en með honum leika Róbert Þórhallsson á kontrabassa, Vignir Þór Stefánsson á pianó og Matthías Hemstock á trommur. Kvartettinn leikur þekkta djasstandarda og hefjast tónleikarnir kl. 21. Klúbbar ■ LANP OG SYNIR AFTUR A GAUKNUM Jólin eru ekki búin enn og þess vegna ætla töffararnir í Landi og sonum að mæta með jóla- fjörið á Gauk á Stöng aftur í kvöld. Krár ■ SIXTIES A KAFFI REYKJAVIK > Hljómsveitin Sixties spilar á Kaffi Reykjavík í kvöld og það kostar 500 kr. inn. Kabarett ■ UPPISTANDT HÁFNÁRFIRÐÍ Á Kaffi Firði í Hafnarfirði verður uppistandi í kvöld. Fjóriri grínistar, Harry hinn finnski. Daníei, Björn og Gunnar ætla ap sjá um að áhorfendur hlæi af sér jólaspikið. Fjörið hefst upp úr kl. 21. Sveitin ■ GREIFARNIR A LUNDANUM Greifarnir verða á ferð og flugi um allt land yfir hátíðarnar. I kvöld spila þeir á Lundanum í Vestmannaeyj- um. n ■ BUTTERCUP Á SJALLANUM Hljómsveitin Buttercup verður á Sjalianum á Akureyri í kvöld og spil- ar fyrir djammara. ■ SÓLDÖGG Á HÓTEL HÚSAVÍK Strákarnir í hljómsveitinni Sóldögg ætla að spila á Hótel Húsavík í kvöld. Leikhús ■ ÁBIGAIL HELDUR PARTÍ Ábfgail lieldur partí eftir Mike Leigh sýnt í kvöld kl. 20 á litla sviði Borgarleik- hússins. ■ GÓÐAR HÆGÐIR Draumasmiðj- an sýnir leikritið Góðar hægðir eftir Auði Haraids í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. , ■ MISSA SOLEMNIS I dag kl. 17.30 verður sýndur í Kaffileikhúsinu einleikurinn Missa Solemnis eða í öðrum heimi eftir finnsku leikkonuna og leikstjórann Kristiinu Hurmerinta. Leikari er Jór- unn Sigurðardóttir og leikstjóri er höfundurinn Kristiina Hurmerinta. ■ SKÁLDANÓTT I kvöld kl. 20 verð- ur Skáldanótt eftir Hallgrím Helga- son sýnd á Stóra sviöi Borgarleik- hússins. ■ SÝND VEIÐI Leikritið Sýnd veiöi sýnt í kvöld kl. 20 í Iðnó. ■ VITLEYSINGARNIR { kvöld kl. 20 % verður jólasýning á Vitleysingunum eftir Ólaf Hauk Símonarson í Hafnar- fjaröarleikhúslnu. Örfá sæti laus. ■ Á SAMA TÍMA SÍÐAR Á sama tíma síðar sýnt í kvöld í Loftkastal- anum kl. 20. A-kort gilda. ■ HORFÐU REIÐUR UM ÓXL Horföu reiður um öxl eftir John Os- l born verður sýnd í kvöld kl. 20 í Þjóðleikhúslnu. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is Djass á Kaffi Reykjavík: Vonandi bíta útgefendur á agnið - „reyni ad flytja inn djassleikara á hverju ári,“ segir Sunna Gunnlaugsdóttir I níunda sæti yfir bestu diska ársins „Ég byrjaði að læra á orgel frekar ung og fór síðan í tónlistarskóla FÍH þar sem ég hafði mikinn áhuga á djassi. Að því námi loknu fór ég til Bandarikjanna til að læra meira, ég hef bæði verið í tónlistarskóla og í einkanámi. Ég fór út 1993 og hef ver- ið mikið í New York síðan. Þetta er annar diskurinn minn, hinn kom út 1997 og heitir „Far far away“. Þegar sá diskur kom út fór ég hringinn í kringum landið með tríó og það gekk mjög vel. Undanfarin ár hef ég reynt að flytja inn djassleikara og halda tónleika á hverju ári, Ég er að vonast til að fá „Mind- ful“ gefinn út fljótlega. í apríl spil- aði ég á tónleikum í Virginíuríki fyrir íslenska sendiráðið og i fram- haldi af því kom ég disknum á fram- færi hjá dagblaði þar í von um að fjallað yrði um hann. Það var að visu ekkert nýtt skrifað um hann við það tækifæri en fyrir stuttu frétti ég að gagnrýnandi blaðsins hefði sett hann i niunda sæti yfir bestu diska ársins. Þetta er eini FJölskyldumál Diskurinn er ekki formlega kominn út Sunna Gunnlaugsdóttir, djassleikari og tónskáld, er að gera þad gott í Bandaríkjunum og diskurinn hennar „Mindful" var kosinn níundi besti diskurinn á árinu. djassdiskurinn á listanum og 'eini diskurinn sem ekki er gefinn út af stórum útgefanda. Ég er því að vona að þetta bæti stöðuna hjá mér og að stóru útgefendurnir biti á agnið.“ Gömul íslensk lög í nýjum út- setningum „Lögin á „Mindful" eru öll frum- samin og eftir mig. í framtíðinni langar mig að gefa út gömul íslensk lög í nýjum útsetningum og hef ver- ið að kynna útgefendum demó. Þetta eru lög eins og Höllukvæði, Komdu inn í kofann minn og svo lög við íslensk ljóð. Ég er búin að klambra saman þremur lögum við ljóð Tómasar Guðmundssonar og Við hver áramót erum við vön að spá í það hvemig hlutirnir hafa nú gengið hjá okkur og hvað framtíðin muni bera í skauti sér. Á þessum tímamótum er fróðlegt að velta því fyrir sér hver staða fjölskyldunnar eiginlega er hjá okkur uppi á íslandi nú þegar horft er til nýrrar aldar. Staöa fjölskyldunnar Því miður verður að segjast eins og er að fjölskyldan og málefni hennar hafa dregist nokkuð aftur úr hér á landi miðað við það sem gengur og gerist 1 löndunum kringum okkur. Sumir segja að það sé nú bara vegna þess að við séum þannig gerðir, ís- lendingar, við séum ekkert að velta okkur upp úr hlutunum. Þegar á eigi að herða sjái fjölskyldan um sína. Fjölskyldan er öryggisnetið sem við treystum á. En hvað gerist þegar að- stæður eru þannig að fjölskyldan sjálf er í upplausn? Eða þegar stórfjölskyld- an getur ekki lengur gegnt hlutverk- inu sem einu sinni var? Hlutverk hennar er sífellt að minnka í nútima- samfélagi og stofnanir þjóðfélagsins hafa meira eða minna tekið við af henni. Fjölskyldan skiptir okkur öll miklu máli og velferð hennar. En af ein- hverjum ástæðum erum við svo hóg- vær að við látum ekki í okkur heyra þegar á hana er gengið. Til þess að gera sér í hugarlund stöðu fjölskyld- unnar í dag skulum skoða nokkur dæmi um aðstæður sem þyngja róður- inn hjá fjölskyldum á tslandi við upp- haf nýrrar aldar. Langur vinnudagur Til að byrja með má nefna að hér á landi er lengri vinnudagur en hjá nokkrum af nágrönnum okkar í Evr- ópu. Laun eru lægri en þar, þannig að yfirvinna og aukavinna eru nauðsyn- Börn að leik Þó aö vinnudagur sé langur eru gæsluúrræöi fyrir börnin á engan hátt sam- bærileg viö það sem býöst hjá nágrönnum, okkar. Fjölskyldan er öryggisnetið sem við treystum á. En hvað gerist þegar aðstæður eru þannig að fjölskyldan sjálf er í upplausn? Eða þegar stórfjöl- skyldan getur ekki lengur gegnt hlutverkinu sem einu sinni var? Hlutverk hennar er sífellt að minnka í nútíma- samfélagi og stofnanir þjóðfé- lagsins hafa meira eða minna tekið við af henni. Fjölskyldan skiptir okkur öll miklu máli og velferð hennar. En af einhverjum ástæðum erum við svo hógvær að við látum ekki í okkur heyra þeg- ar á hana er gengið. leg ef fjölskyldan á að láta enda ná saman. Það reynist reyndar mörgum erfitt samt. Launin duga ekki til. Sýna biðraðir hjá Mæðrastyrksnefnd nú fyrir jólin hversu alvarlegt málið í raun er. Þó að vinnudagur sé langur eru gæsluúrræði fyrir bömin á engan hátt sambærileg við það sem býðst hjá nágrönnum okkar, t.d. á Norðurlönd- unum. Enda störf fóstra og kennara lítils metin til launa. Langar fjarvistir valda spennu og deilum á heimilum. Mörg fyrirtæki reka orðið skyn- samlega tjölskyldustefnu þar sem reynt er að koma til móts við þarfir fjölskyldunnar. En allt of mörg láta sig það engu skipta. Ef börnin veikjast eigum við for- eldrarnir aðeins rétt á sjö veikinda- dögum á meðan Norðurlandabúar fá 90-160 daga. Ef við hin fullorðnu veikjumst eða verðum öryrkjar þá við ætlum að frumflytja þau á tón- leikunum í kvöld. í þetta sinn verða bara þessir einu tónleikar þar sem ég er að fara aftur til New York á laugardaginn." -Kip Fjölskyldan árið 2001 Þórhallur Heimisson skrifar um fjölskyldumál á miðvikudögum hrynur í raun grundvöllur fram- færslu fjölskyldunnar. Örorkubætur eru hér lægri en í nokkru öðru landi í Vestur-Evrópu .Eins og Hæstiréttur hefur úrskurðað hafa stjórnvöld meira að segja brotið mannréttindi ör- yrkja með því að tekjutengja bætur þeirra og hafa þannig af þeim það litla sem þeir þó fá. Ekki eru sjúkradag- peningarnir betri en örorkubætur. Barnabætur eru síðan kapítuli út af fyrir sig. Barnabætur tekjutengjum við hjá foreldrum barna eldri en 7 ára. Samtímis líta aðrir Evrópubúar á barnabætur sem eign barnanna óháð foreldrunum. Heilbrigöiskerfiö Svo má bæta við vangaveltum um húsnæðismarkaðinn. Eru ekki 600 manns á biðlista eftir félagslegum ibúðum? Það geta ekki allir keypt eða byggt, þó allir séu efalaust „í gist- ingu“ einhvers staðar. Að lokum má nefna tvö dæmi úr heilsugeiranum. Þurfi barnið þitt á tannréttingum að halda er eins gott fyrir þig að hafa drjúg laun þvi þær þarft þú að borga að mestu sjálfur. Tannréttingar eru taldar sjálfsagður hluti heilsuverndar bama í Vestur- Evrópu og því ókeypis þar. Og ef barnið þitt er geðfatlað eru fá úrræði í boði en biðlistar eftir aðstoð langir. Svona mætti lengi telja. Það er kannski ekkert undarlegt að skilnað- arhlutfallið skuli vera eins hátt hér á landi og raun ber vitni við upphaf 21. aldarinnar? Ef við viljum að aðstæður fjölskyldna á íslandi séu á nýrri öld sambærilegar við það sém gerist í löndunum í kringum okkur er svo sannarlega kominn tími til að bretta upp ermarnar. Sunna Gunnlaugsdóttir djassleik- ari mun halda tónleika á Kaffi Reykjavík í kvöld. Sunna er hér á landi í stuttri heimsókn yfir jólin en hún hefur verið búsett í New York undanfarin ár. Á tónleikunum mun hún tlytja efni af diski sínum „Mindful" ásamt Kristjönu Stefáns- dóttur söngkonu, Joris Tepper bassaleikara og Scott McLemore trommuleikara. „Mindful" var tekinn upp í des- ember á siðasta ári og kvartettinn sem leikur með Sunnu á honum hélt tónleika hér á landi í mars síð- astliðnum. Sunna segir að diskur- inn sé ekki formlega kominn út en hún standi í samningum við tvo er- lenda útgefendur sem hafi sýnt hon- um áhuga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.