Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2000, Síða 28
Gleðilega
hátíð
Bílheimar
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fulirar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
Gúndaganga
/ gær voru liöin tvö ár frá því Guömundur ísar Ágústsson lést í bílslysi, fjórtán ára gamall. Af því tilefni stóöu fjölskylda hans og vinir fyrir minningartónleikum
Gúnda í Fossvogskirkjugaröi. Þetta er í annaö sinn sem efnt er til Gúndagöngu á dánardegi hans. Sjá bls 29.
DV-MYND INGÓ
/' Neskirkju og göngu þaöan aö leiöi
*
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Vann 30 milljónir:
Orðlaus
Sigurður Líndal lagaprófessor um dóm Hæstaréttar:
og brugðið
Rúmlega fertug kona í austurbæ
Reykjavlkur vann liðlega 30 milljónir
í Happdrætti Háskóla íslands í gær-
kvöldi. Þegar konunni var tilkynnt
um vinninginn símleiðis af starfs-
mönnum happdrættisins kom hún
ekki upp orði og var auðheyrilega
^j^rugðið. Hún hvorki hrópaði upp yfir
sig né lét segja sér tíðindin tvisvar
eins og títt er við slikar aðstæður.
Konan átti fimmfaldan trompmiða
á númerinu 15133 og að auki einfald-
an miða á sama númeri. Fimmfaldur
trompmiði hjá Happdrætti Háskóla ís-
lands kostar 4000 krónur á mánuði og
einfaldur miði 800 krónur. Árlegur
kostnaður vegna miðanna er því
57.000 krónur. Vinningshafmn fékk
milljón króna vinning á þetta sama
númer fyrir einu ári.
Hinn nýbakaði milljónamæringur
hefur óskað nafnleyndar en á heimili
hennar er búsettur karlmaður, sem að
öllum likindum er eiginmaður henn-
ar, og tvö böm. Heimilið hefur póstá-
ritunina 108, Reykjavík. -EIR
Tekjutenging
Ognaði lögreglu
með fiskigoggi
a undanhaldi
Karlmaður varð heldur æstur á
dansleik á Flateyri á þriðjudagskvöld-
ið og þegar lögreglumenn fóru að
skipta sér af honum hafði hann í hót-
unum við lögreglu og fleira fólk. Að
sögn lögreglunnar á ísafirði sveiflaði
maðurinn einnig fiskigoggi í kringum
sig máli sínu til stuðnings.
Maðurinn var handtekinn og færö-
ur í fangageymslur á ísafirði. Er
runnið hafði af manninum var hann
yfirheyrður og síðan sleppt. -SMK
Sigurður Líndal lagaprófessor segir
aðspurður um
Siguröur Líndal
jað hvort nýgenginn
dómur i svokölluðu
öryrkjamáli sé for-
dæmisgefandi að
tilfinning sín sé sú
að tekjutengingar
vegna ýmissa
greiðslna i þjóðfé-
laginu séu á undan-
haldi. Sigurður seg-
ir að í þessum efn-
um sé hægt að hafa
Stíflan farin
„Sú stífla sem varð til þess að upp
úr slitnaði sl. fóstudag er út af borð-
inu,“ sagði Elna Katrin Jónsdóttir,
formaður Félags framhaldsskólakenn-
ara, en viðræður samninganefndar
þeirra og ríkisins komust aftur á
skrið í gær. Þórir Einarsson ríkis-
sáttasemjari kvaðst í gærkvöld ekki
vilja tjá sig um stöðu viðræðnanna en
þeim verður haldið áfam í allan dag.
Elna Katrín sagði viðræður nú á
sömu nótum og þær hefðu verið fram
til sl. fóstudags þegar rikið hefði kraf-
ist þess að nær allur vinnutímakafli
samnings kennara féUi brott.
„Það er alls ekki enn ljóst hvort
' *aunabreytingar eru nægiiegar til að
ásættanlegt sé að gera kjarasamning,"
sagði Elna Katrín. -JSS
hliðsjón af barnabótum, námslánum
og meðlögum.
„Þróunin er í þá átt að líta á hvem
einstakling sem alveg sjálfstæðan og
óháðan öðram. Það birtist meðal ann-
ars í þvi að það dregur úr tekjuteng-
ingu,“ segir Sigurður.
Hann segir þessi atriði hafa þann
ókost að þá sé jafnvel „ausið pening-
um í þá sem lítið þurfa á því að
halda“. Þá yrði minna til skiptanna
fyrir þá sem raunverulega þurfa á því
að halda.
„Ég skynja þróunina þannig að
tekjutenging sé á hægu undanhaldi og
eins ýmsar sporslur eins og sjó-
mannaafsláttinn. Það er afskaplega
viðkvæmt mál. En útgerð er sveiflu-
kennd, stundum græða menn og
stundum tapa þeir. En hún verður að
ganga og þá er hlaupið í þetta."
Hæstlréttur
Dómur í máli Öryrkjaþandalagsins hefur valdiö uppnámi.
„Ég vil ekki fullyrða að hvers kon-
ar tekjutenging fari í bága við jafn-
réttisákvæði stjórnarskrárinnar. Það
er spurning um hvort hún bitnaði
þannig á tilteknum hópum að kalla
mætti misrétti. Ef hins vegar væri
hægt að útfæra tekjutengingu þannig
að hún gengi jafnt yfir alla sem eins
stæði á um er hugsanlegt að hún gæti
staðist," sagði Sigurður Líndal.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður vildi í morgun ekki
svara spurningu um það hvort ör-
yrkjabandalagsdómurinn hefði for-
dæmisgildi enda sé hann nú að fara
að takast á við formennsku í nefnd
sem rikisstjórnin skipaði til að meta
til hvaða aðgerða þurfi að grípa vegna
dóms Hæstaréttar um tengingu bóta
öryrkja við tekjur maka.
Jón Steinar bendir hins vegar á að
sá misskilningur hafi komið fram að
nefndin sé skipuð til að fara ekki eft-
ir dóminum. Hann undirstrikar að
verkefni nefndarinnar sé að fara yfir
það hvernig hægt sé að bregðast við
hinum nýgengna dómi og eftir atvik-
um með lagabreytingum.
Hvorki náðist í Davíð Oddsson for-
sætisráðherra né Geir Haarde fjár-
málaráðherra vegna málsins.
-Ótt
Aramótafókus
í Fókus á morgun, er að finna ít-
arlega úttekt á tónlistarárinu,
helstu poppspekingar landsins velja
bestu plötur ársins. Nokkrir ein-
staklingar rifja upp verstu áramótin
sem þeir hafa lifað. Eins gefst les-
endum kostur á að glugga í heljar-
innar völvuspá næsta árs. Áramóta-
djammið er neglt niöur eftir stétta-
skiptingu landsins og menn ársins
eru tilnefndir.
ORÐLAUS MILLI!
Fjórar íkveikjur í nótt
Fjórar íkveikjutilraunir voru gerð-
ar í Reykjavík og á Seltjarnarnesi í
nótt.
Um klukkan hálftvö í nótt var eld-
ur borinn að ruslatunnum við bakhús
að Laugavegi 3b og logaði eldur þar
upp eftir húsvegg þegar slökkvilið og
lögregla komu að. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn og engin slys urðu á
fólki.
Um þrjúleytið barst slökkviliðinu
tilkynning um eld í Valhúsaskóla á
Seltjarnamesi. Rúður höfðu verið
brotnar í skólabyggingunni og logandi
rusli hent inn um brotnar rúöurnar.
Litlar skemmdir urðu af eldinum aðr-
ar en reykjarlyktin sem barst um
skólann. Um sama leyti var kveikt í
DVJJIYND PJETUR
Reynt aö kvelkja í Valhúsaskóla
Rúöur voru brotnar í Valhúsaskóla í
nótt og eldur borinn aö skólahúsinu.
áldósastandi við Eiðistorg á Seltjarn-
arnesi. Hann bráðnaði í eldinum og er
ónýtur eftir. Engin slys urðu á fólki í
hvorugu tilvikanna.
Einnig var reynt að kveikja í ein-
hverju rusli við Landsbankann á
Langholtsvegi um eittleytið í nótt.
Engar skemmdir urðu á húsinu og
engin slys urðu á fólki.
Lögreglan í Reykjavík er með mál-
in í rannsókn.
Auk þessa var slökkviliðið kallað
að talsvert miklum vatnsleka i heima-
húsi í Mosfellsbæ í nótt. Einnig
slökkti slökkviliðið eld í Snæland
vídeó að Furugrund í Kópavogi um
hálfáttaleytið i gærkvöldi, en að sögn
varðstjóra slökkviliðsins er ekki talið
að sá eldur hafi kviknað af manna-
völdum. Ekki urðu verulegar
skemmdir á húsnæðinu. -SMK