Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 Fréttir DV Mýflug og Jórvík án flugrekstrarleyfa: Flugfélag Islands flýg ur í skjóli Flugleiða - og hélt leyfinu þrátt fyrir neikvæða eiginfjárstöðu á síðasta ári ' ■ ___________________________________ Fokker flugvél merkt Flugfélagi Islands Félagiö flýgur Fokker- og ATR-vélum á rekstrarleyfum Flugleiöa og íslandsflugs. Tólf flugfélög hafa verið með gild flugrekstrarleyfi íslenskra flugmálayf- irvalda undanfarin ár. Þar er um að ræða Flugfélag íslands, Flugleiðir, Atl- anta, Islandsflug, MD flugfélagið, Flug- félag Vestmannaeyja, Leiguflug ísleifs Ottesen, Þyrluþjónustuna, Suðurflug, Garðaflug, Mýflug og Flugfélagið Jór- vík. Mýflug missti flugrekstrarleyfi sitt um áramótin þar sem ekki var sótt um endumýjun á leyfinu á tilskyldum tíma og Jórvík hefur ekki verið með gilt flugrekstrarleyfi frá því í haust er viðhaldssamningur félagsins féll úr gildi. Jórvík lagði í desember inn nýj- an viðhaldssamning og beðið er eftir afgreiðslu flugmálayfirvalda á því máli. Missir Mýflugs á sínu leyfi er al- varlegur í ljósi þess að félagið hefur m.a. gert út sjúkraflugvél á ísafirði. Að sögn Skúla Guðjónssonar hjá Flugmálastjóm em rekstarleyfin gefin út á ákveðnar flugvélategundir. Vekur þar athygli að Flugfélag íslands hefur einungis flugrekstrarleyfi vegna flugs Metro- og Twin Otter-flugvéla, en ekki leyfi til flugs á stærri vélum, eins og Fokker- eða ATR-flugvélum sem er samt uppistaðan í flugþjónustu félags- ins. Notar Flugfélag tslands þær vélar á flugrekstrarleyfúm Flugleiða og ís- landsflugs, en Skúli segir að til standi að Flugfélagið yfirtaki fljótlega leyfi Flugleiða vegna Fokker-vélanna. Jón Karl Ólafsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags íslands, staðfestir að eigið fé félagsins hafi verið neikvætt um 77 milljónir í september og sam- kvæmt því hafi félagið ekki átt að vera með flugrekstrarleyfi. „Það er hins vegar nýverið búið að laga þá stöðu. Nú fyrir áramótin var hlutafé aukið í fyrirtækinu um 360 milljónir króna. Aö því leyti em þessi skilyrði fyrir flugrekstrarleyfi uppfyllt. Síðasta ár var mjög erfitt og tap á rekstrinum stefnir í að vera um 300 milljónir króna. Við vorum því á mannamáli hreinlega komnir í gjald- þrot. Flugleiðir sem aðaleigandi ákvað „Við ætlum að opna húsgagna- galleri I einu af sjö jarðhýsunum þama í Ártúnsholtinu á næstunni. Síðan er stefnt að því að nýta hin jarðhýsin fyrir alls kyns menning- arstarfsemi,“ segir Kristinn Brynj- ólfsson, hönnuður og innanhúsarki- tekt hjá hönnunarfyrirtækinu Des- form. Kristinn festi kaup á gömlu kartöflugeymslunum í Ártúnsholt- inu fyrir fjórum árum en þær voru þá í eigu íslandsbanka. Kristinn vill ekki gefa upp kaupverðið en af rödd hans má ráða að verðið hafi verið gott og hann hyggur á stórfram- kvæmdir á einum besta útsýnisstað í höfuðborginni: „Þetta eru sjö jarðhýsi eða skemm- ur eins og ég kalla þær. Hver þeirra er 200 fermetrar að flatarmáli og loft- hæð 5 metrar. Jarðhýsin ná 30 metra inn í holtið, með steyptum veggjum og stálbogalofti sem á að þola sprengjuregn því jarðshýsin voru upphaflega byggð á stríðsárunum sem sprengjugeymslur," segir Krist- Skilyrði um jákvætt eigið fé Mjög ströng skilyrði eru fyrir veit- ingu flugrekstrarleyfa og er blaðinu kunnugt um að gengið hafi verið hart eftir því, við suma minni flugrekstrar- aðila að minnsta kosti, að þeir upp- fylltu ákvæði um t.d. sterka eiginfjár- stöðu. í reglugerð segir m.a. að nauð- synlegt sé að efnahagur flugfélags standi jafnan traustum fótum og að það standist strangar öryggiskröfur svo að áreiðanleg og fullnægjandi þjón- usta verði tryggð. Fyrir félög sem hafa leyfi fyrir flugvélar með minna en 20 sætum er tilgreint lágmarks eigið fé að á þeim tímapunkti að halda rekstrin- um áfram og setja hér inn peninga." - Er það rétt að Flugfélagið hyggist yfirtaka rekstrar- leyfi Fokker flug- véla Flugleiða? „Já, það verður klárlega gert i febrú- ar næstkomandi. Þetta er tæknilegt at- riði og snýst um að við getum annað- hvort blautleigt vélar með áhöfnum og flugrekstrarleyfi eins og við höfum gert og beinn flugrekstur sé þá í höndum inn sem ætlar að byrja á því að sýna eigin húsgagnahönnun í „kartöflu- geymslunum". Eins og gefur að skilja eru engir gluggar á jarðhýsunum en Kristinn stefnir að því að setja heilan glervegg á framhlið hverrar skemmu sem veitir ljósi inn í holtið og hefur þegar sett upp einn slíkan. Desform, fyrirtæki Kristins, hef- jafnvirði 80.000 ECU, eða um 6,4 millj- ónir ísl. kr. Undir það fellur væntan- lega Flugfélagið með rekstrarleyfi á 19 sæta vélar. Flugfélagíð undir verndarvæng í þessu samhengi vekur því athygli að samkvæmt upplýsingum úr bók- haldi Flugleiða hf. var hlutdeild Flug- leiða í eigin fé Flugfélags íslands nei- kvæð um 74 milljónir króna þann 30. september s.l. og hlutdeild þeirra er 96%. Því má gera ráð fyrir að eigið fé handhafa flugrekstrarleyfisins. Hins vegar getum við þurrleigt vélamar án áhafna og flugrekstrarleyfa og þá erum við orðnir ábyrgir fyrir öllum pakkan- um. Við stefnum að því að breyta þess- um samningi við Flugleiðir yfir í þurr- leigusamninga frá og með febrúar. Það hefur verið unnið að þessu í heilt ár og mun auka hagræði í rekstri félagsins, t.d. varðandi nýtingu á flugmönnum." - Sjá menn þá fyrir sér batnandi hag? „Já, það er ýmislegt að breytast í þessu. Við vorum að skrifa undir samning á Grænlandi á miðvikudag sem tryggir okkur 100 milljónir 1 rekstrartekjur vegna flugs á austur- ur sérhæft sig í hönnun og gerð bólstraðra húsgagna og þá sérstak- lega sófa. Starfar Desform með und- irverktökum í Litháen og framleiðir nær eingöngu fyrir erlendan mark- að. Sófi frá Kristni var sýndur á heimssýningunni Expo 2000 í Hannover fyrir skemmstu og fékk þar viðurkenningu fyrir að vera Flugfélagsins sé neikvætt um 77 m.kr (74/0,96). Ekki verður því annað séð en móðurfélagið Flugleiðir hf. ábyrgist eiginfiárstöðu Flugfélags íslands hf. gagnvart íslenskum flugmálayfirvöld- um sem að öðrum kosti hefi verið skylt að svifta félagið flugrekstrarleyfi sínu. Um fiárhagsstöðu segir m.a. í ákvæðum vegna samninga um Evr- ópska efnahagssvæðið.: „Ef stjómvald- ið sem veitir leyfi telur að breytingar sem tilkynntar eru samkvæmt 3. mgr. skipti verulegu máli varðandi fiárhags- stöðu flugfélagsins, skal það krefiast þess að félagið leggi fram endurskoð- aða viðskiptaáætlun." - Hvemig getur Flugfélag íslands þá haft gilt flugrekstrarleyfi verandi með neikvæða eiginfiárstöðu? „Það er nú það,“ sagði Skúli Guð- jónsson. „Þeir vom að endumýja leyfi nú um áramótin og það var gert með fyrirvara um að þau gögn sem þeir skila inn uppfylli skilyrði. Það er ekki búið að skoða þau gögn.“ Skúli Guðjónsson líka að fiármál fé- laganna væru trúnaðarmál, en eftirlit væri haft með félögunum, m.a. með skoðun milliuppgjöra. Guðjón sagðist ekki þora að tjá sig um hvers vegna flugmálayfirvöld hafi ekki gripið til að- gerða þegar milliuppgjör lá fyrir í sept- ember. -HKr. strönd Grænlands. Sjúkraflugssamn- ingur og útboð á áætlunarflugi út frá Akureyri mun líka bæta hag fyrirtæk- isins. Þetta ár hefur hins vegar verið gífúrlega erfitt, m.a. vegna mikils elds- neytiskostnaðar og gengisþróunar. Staðan ætti hins vegar ekki að versna úr þessu og við erum nú m.a. loks að taka upp nýtt bókunarkerfi.“ - Verða breytingar á starfsmanna- haldi? „Það er alltaf verið að skoða hvað megi gera betur en ég tel engar stór- vægilegar breytingar í mannahaldi fram undan," sagöi Jón Karl Ólafsson. -HKr. einn af athyglisverðustu sýningar- gripum sýningarinnar. Kristinn hefur fengið mörg kauptilboð í gömlu kartöflugeymsl- umar í Ártúnsholtinu eftir að hann eignaðist þær, eða eins og hann seg- ir sjálfur: „Það líður vart sá dagur að einhver vilji ekki kaupa þær af mér.“ -EIR Óviðunandi daggjöld Daggjöld á Hrafn- istu nægja ekki til rekstursins og því er stofhunin rekin með tapi. Guömundur Hallvarðsson, alþing- ismaður og formaður stjórnar Hrafnistu, segir að daggjalda- grunnurinn sem greitt sé eftir sé rang- ur. Dagur greinir frá. Tíu ára bið eftir lóð Bæjarráð hefur tekið vel í ósk Ragn- ars Sverrissonar, kaupmanns á Akur- eyri, og Jóns M. Jónssonar um að fá að byggja á lóðinni við Gránufélagsgötu 6. Málið hefúr tekið sinn tíma þai' sem Ragnar og Jón sóttu fyrst um lóðina í april árið 1990. Dagur greinir frá. Forstjóri Atlanta hættir Magnús Gylfi Thorstenn hefur ákveð- ið að láta áf störfum sem forstjóri Flug- félagsins Atianta frá og með 20. janúar 2000. Amgrímur Jóhannsson, stjómar- formaður Atlanta, tekur við starfinu tímabundið þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn. Visir greinir frá. 3500 manns á undirskriftalista Yfir 3500 manns hafa skrifað nafn sitt á lista til stuðnings við flýtingu tvöfóldunar Reykjanesbrautar á vef- síðu Víkurfrétta. Sett era fram þrjú markmið: Að tvöfóldun verði sett á Vegaáætlun fyrir árin 2002-2006. Að umhverfismati verði lokið árið 2001 og framkvæmdir hefiist í síðasta lagi snemma árs 2002 og ljúki ekki síðar en ái'ið 2004. Læknir kaupir Stóra-Kropp Eigendaskipti verða á næstunni á jörðinni Stóra-Kroppi i Reykholtsdal í Borgarfirði. Núverandi eigendur hafa samþykkt tilboð Kristínar Hjörleifs- dóttur, læknis í Svíþjóð, í eignina. Mbl. greinir frá. Braut í Skerjafirði óraunhæf Gunnar I. Birgis- son, alþingismaður og formaður bæjar- ráðs Kópavogsbæjar, segir að það sé „bölv- uð vitleysa allt sam- an“ að huga að gerð nýrrar A-S flug- brautar á fyllingu í Skerjafirði. Dagur greinir ffá. Hækkun á vegtolli Spölur ehf., sem á og rekur Hval- fiarðargöngin, stefnir að hækkun á vegtolli Hvalfiarðarganga með vorinu. Að öðrum kosti stefnir í taprekstur á fýrirtækinu. Sæsilfur fær starfsleyfi Hollustuvemd rík- isins gaf í gær út starfsleyfi til handa Sæsilfri ehf. sem áformar sjókvíaeldi á laxi I Mjóafirði. Um- hverfisráðherra og Skipulagsstofnun höfðu áður gefið út þá úrskurði að laxeldið væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Hólmanes sett á sölu Stjóm Hraðfrystihúss Eskifiarðar hf. samþykkti í gær að auglýsa ís- rækjutogarann Hólmanes SU til sölu án aflaheimilda. Skipinu var lagt í nóvember og áhöfri þess sagt upp störf- um í lok nóvember sl. Samningar um sjúkraflug Samningar heilbrigðisráðuneytisins vegna sjúkraflugs til næstu þriggja ára era langt komnir og stefnt er að undir- ritun þeirra á næstunni, en samning- amir era gerðir i framhaldi af útboði sem ráðist var í á haustmánuðum. -HKr. Flugfélag íslands var komið í þrot: Hlutafé aukið um 300 milljónir - eftir gríðarlegt tap á síðasta ári, segir framkvæmdastjóri Einkaframtak í Ártúnsholti: Listamiðstöð í kartöflugeymslunum - gallerí, kaffihús og fagrar listir Jarðhýsin í Ártúnsholtl Kristinn Brynjólfsson keypti þau af íslandsbanka og nú vilja allir kaupa þau af honum. Jón Karl Ólafsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.