Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Blaðsíða 28
Frakkarnir koma landsleikir í handbolta 1. leikur Ásvellir laugard. 6. janúar kl.16:00 2. leikur KA-heimilið sunnud. 7. janúar kl.17:00 3. leikur Laugardalshöll þriðjud. 9. janúar kl.20:15 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 Kópavogur: Manni . bjargað úr eldsvoða Reykköfurum slökkviliðsins tókst aö bjarga manni sem lokast hafði inni er eldur kom upp á bíla- verkstæði í Kópavogi um þrjúleyt- ið í gærdag. Eldurinn kom upp við dyr verk- stæðisins eftir að sprenging varð í bensinbrúsa. Maðurinn var einn á verkstæðinu og hélt sig á kaffistofu verkstæðisins þar til reykköfurum tókst að ná honum út. Hann var í símasambandi við Neyðarlínuna frá því að eldurinn kom upp þar til honum var bjargaö út. m Reykkafarar fóru inn í húsið til mannsins, settu á hann reykköfun- arbúnað og leiddu manninn út. Hann var fluttur á slysadeild til að- hlynningar en reyndist ekki illa haldinn. Eldurinn var staðbundinn við innkeyrsludyr og við súlu skammt frá, og sprengingin sem varð í bensínbrúsanum hafði brotið rúðu og póst í glugga. Búið var að slökkva eldinn um klukkan hálf- fjögur. -SMK Garðar Sverrisson í Helgarblaði DV á morgun er ít- arlegt viðtal við Garðar Sverris- son, formann Öryrkjabandalags ís- lands, sem um þessar mundir stendur í mikilli baráttu við stjórnvöld fyrir hönd félagsmanna sinna. í blaðinu er rætt við Viðar Eggertsson leikstjóra um Öndveg- iskonur, fjallað um borgarskáldið Tómas Guðmundsson og blönkum lesendum kennt að komast af án peninga í Reykjavík. Skilnaðir og áhrif þeirra á böm, hor og framleiðsla þess og það að vera örvhentur kemur einnig tals- vert við sögu í blaðinu. læxnir DV-MYND KK/HH Sat fastur inni á logandi verkstæði Reykkafarar björguðu manni úr eldsvoöa á bílaverkstæði í Kópavogi í gærdag. Maöurinn beið slökkviliösíns á kaffi- stofu verkstæðisins, en eldurinn var staðbundinn við innkeyrsludyrnar. Flugdólgaslagurinn heldur áfram: Ómar ætlar til Strassborgar - Flugleiðamenn undir feldi „Ég fer í undirrétt og Hæsta- rétt og ef það gengur ekki fer ég með málið alla leið fyrir Mann- réttindadómstólinn í Strass- borg,“ segir Ómar Konráðsson tannlæknir sem vísað var úr Flugleiðaþotu í Minneapolis ásamt vinkonu sinni fyrir skemmstu, þó svo ferð þeirra væri heitið til Mexikós. „Ég fer fram á tíu milljón króna skaða- bætur á mann; alls tuttugu milljónir," segir Ómar tann- læknir. Forráðamenn Flugleiða hafa gefið í skyn að hugsanlega verði umrædd- ir farþegar, sem vísað var úr Mexík- ófluginu í Minneapolis, kærðir og krafðir skaðabóta fyrir truflun, ólæti og ölvun i háloftunum: „Málið er enn í athugun en nið- urstaða ætti að liggja fyrir á næstu dögum,“ segir Guðjón Arngrímsson í kynningardeild Flugleiða. Ómar Kon- ráðsson fer ekki fram á skaðabæt- ur fyrir hönd tveggja Vest- mannaeyinga sem einnig var vísað úr Flugleiðaþotunni enda segist hann ekki þekkja það fólk; „Ég get ekki borið ábyrgð á því þó eitthvert annað fólk sé að reykja f flugvélum. Sjálfur var ég hálfsofandi þegar ég var rifrnn upp með offorsi í Minneapolis. Ég hélt þá að ég væri kominn í sól- ina í Mexíkó og brá því þegar ég stóð allt í einu úti í 12 stiga frosti. Vin- kona mín hefði getað dáið því hún var í sumar- sandölum og sumarkjól þegar henni var vísað úr vélinni," segir Ómar Konráðsson en hann hef- ur ráðið Hilmar Ingi- mundarson hæstaréttarlögmann til að reka mál sitt fyrir öllum dómstigum, innlendum sem er- lendum. Lögmenn Flugleiða munu sjá um væntanlegan málarekstur fyrir hönd félagsins. -EIR Ómar Konráösson Ætiaði í sól - lenti í frosti. Guöjón Arngrímsson Viöbragöa Flug- leiöa aö vænta. Heldur miðar í viðræðum kennara og ríkisins: Stefnt að samningi um helgina - aðilar brjóti odd af oflæti sínu, segja nemendur Nokkuð hefur miðað í samninga- viðræðum saminganefnda fram- haldsskólakennara og ríkisins und- anfama daga, að sögn Elnu Katrín- ar Jónsdóttur, formanns Félags framhaldsskólakennara. Stefnt er að því að ljúka samningum um helg- ina. Elna Katrín sagði að rætt væri um að taka fyrstu áfangahækkan- irnar sem lægju fyrir, tilfærslur og nýtt launakerfi inn strax í upphafi samningstíma. Enn væri eftir aö ganga frá ýmsu varðandi launakerf- ið, vinnutímanum, samningstíma l§p^; \ M Steinunn Vala Elna Katrín Sigfúsdóttir. Jónsdóttir. og vinnu kennara að loknu verk- falli. Ekki væru öll ágreiningsefni útkljáð enn. Fremur ólíklegt væri þó að viðræðumar myndu stranda úr því sem komið væri, þótt ómögu- legt yæri að fullyrða um það. Félag framhaldsskólanema sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem segir að framhaldsskólanemar eigi ekki lengur aukaskammt af þolin- mæði. Þeir sem hafi átt þess kost séu nú komnir í vinnu eða jafnvel til útlanda. Steinunn Vala Sigfús- dóttir, formaður félagsins, segir að nemendur vilji að samningsaðilar brjóti odd af oflæti sínu, geri það sem þurfi til að endar nái saman og leysi deiluna. -JSS Samtök atvinnulífs: Óstjórn í rík- isfjármálum - fjárlög bresta „Það er umhugsunarefni að rik- isútgjöld hafa hækkað í ríkari mæli en hjá öðrum þjóðum og rétt ábending hjá Samtökum at- vinnulífsins að afkomubatinn er tilkominn vegna aukinna tekna ríkis- sjóðs,“ segir Þórður Friðjóns- son, forstjóri Þjóðhagsstofh- unar, um þá gagnrýni sem Samtök atvinnulífsins hafa sett fram á stjóm ríkisfjármála. SA bendir á það á fréttavef sín- um að ríkisútgjöld hafl árlega hækkað um 10 prósent á árabilinu 1998 til 2001. Skatttekjur ríkissjóðs hafi hækkað um 27,5 prósent á um- ræddu árabili. Skort á aðhaldi megi glöggt sjá á launum opin- berra starfsmanna sem hafi hækk- að sýnu meira en laun annarra stétta. Laun opinberra starfs- manna hafa hækkað um 35 pró- sent frá 2. ársfjórðungi 1997 til sama ársfjóröungs árið 2000 en kaup á almennum vinnumarkaði hafi hækkað um 20 prósentustig. SA bendir á að á fjárlögum árisns 2001 hækki útgjöld um tæp- lega 14 milljarða króna og sýnt sé að fjárlögin séu þegar sprungin vegna öryrkjadóms og launahækk- ana kennara. Þar gæti framúrakst- ur numið 15 milljörðum króna. „Aðrar þjóðir hafa á sama tíma lagt áherslu á að draga úr ríkisút- gjöldum. Hve miklu við viljum ráðstafa til samneyslunnar er mál sem gera þarf upp á pólitískum vettvangi," sagði Þórður Friðjóns- son í morgun. Geir Haarde fjármálaráðherra lét ekki ná í sig vegna málsins. -rt Þóröur Friöjónsson. Vestmannaey j ar: Veðurathugun- arstöð sprengd Veðurathugunarstöö við barna- skólann i Vestmannaeyjum var sprengd í loft upp á þriðja tímanum í nótt. Lögreglan var kölluð á stað- inn og kom í ljós að pörupiltar höföu notað heimatilbúna sprengju við verknaðinn og sett hana í kass- ann sem veðurathugunartækin eru geymd í. Skömmu síðar náði lögreglan tveimur unglingspiltum sem geng- ust við verknaðinum. Þeir voru fluttir á lögreglustöð þar sem þeir voru yfirheyrðir. -SMK brother P-touch 1250 Lítil en STÓRmerkileg merkivél 5 leturstæröir 9 leturstillingar prentar í 2 linur boröi 6, 9 og 12 mm 4 gerðir af römmum Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport Heilsudýnur í sérjlokki! Svefn&heilsa ★ ★ ★ ★ ★ ^7" HEILSUNNAR veGt* Reykjavik 581 2233 Akureyri 461 1150 i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.