Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2001, Page 15
14 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2001 19 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiftlun hf. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvœmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aósto&arritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, síml: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aórar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Filmu- og plötugeró: isafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverö á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverö 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Nauðsynleg orkunýting Tími stóru vatnsorkuveranna í Noregi er liðinn, að sögn Jens Stoltenbergs, forsætisráðherra Noregs. Hann lýsti þessu yfir í nýársávarpi til þjóðar sinnar. Ráðherrann blés af þrjár fyrirhugaðar og umdeildar virkjanir í þjóðgarði sunnan við Bodö í Norður-Noregi. „Ég veit að þetta er ákvörðun sem á eftir að valda deilum,“ sagði forsætisráð- herrann, „en ávinningurinn af þessum mannvirkjum er ekki nógu mikill til að réttlæta óafturkræf náttúruspjöll.“ Áhrifa orða norska forsætisráðherrans gætir ekki aðeins í heimalandi hans heldur og hér á landi. Náttúruverndar- sinnar þar og hér fagna orðum hans. í yfirlýsingu Náttúru- vemdarsamtaka íslands segir að þessi niðurstaða norskra stjórnvalda hafi óhjákvæmilega áhrif á íslandi því norska ríkið eigi ríflega 40 prósent hlutafjár í Norsk Hydro. Það skyti því skökku við ef Norsk Hydro tæki þátt í að valda óbætanlegum skaða á íslenskri náttúru með byggingu Kárahnjúkavirkjunar i þágu álvers í eigu Norsk Hydro. Það kann að vera að afstaða norska forsætisráðherrans hafi áhrif á áætlanir Norsk Hydro hér á landi. Á það var raunar bent í frétt í Degi í gær að norska stórfyrirtækið hefði ekki verið auðvelt í taumi til þessa og því litu íslensk stjórnvöld fremur til þess að veita stækkun Norðuráls í Hvalfirði forgang fram yfir virkjanir og álversframkvæmd- ir á Austurlandi. En það þarf orku í stækkun álversins ekki síður en i nýtt álver á Austurlandi. Komi til stækkun- arinnar er fyrirhugað að byggja tvær rennslisvirkjanir í Þjórsá. Fara verður með mikilli gát við svo mikla röskun á um- hverfi sem vatnsaflsvirkjanir eru. Staða okkar er þó önn- ur en Norðmanna og fráleitt að halda því fram að við get- um með sama hætti og þeir lýst því yfir að tími vatnsorku- vera sé liðinn. Rétt er að minnast þess að Norðmenn hafa virkjað vatnsföll sín af miklum krafti í heila öld og sækja orku sína að mestu til vatnsorkuvera. Þessum orkuverum munu þeir viðhalda. Til viðbótar hafa þeir aðra orkugjafa og geta því leyft sér þá stefnubreytingu sem forsætisráð- herrann kynnti í áramótaávarpi sínu. Ríkisstjórn Stolten- bergs hefur á prjónunum byggingu tveggja orkuvera sem nýta munu jarðgas til orkuframleiðslu. íslendingar eiga hvorki gas- né oliulindir eins og Norð- menn. Við verðum því að nýta okkur orkuauðlindir hér á landi, vatnsorku og jarðvarma. Þær auðlindir verður hins vegar að nýta af skynsemi og að undangengnum nákvæm- um rannsóknum og umhverfismati. í ósnortinni náttúru felast mikil verðmæti. Þau verðmæti þarf að meta og bera saman við þær fórnir sem þarf að færa samfara orkuöflun sem sannarlega skilar þjóðinni efnahagslegum ávinningi. Nýting vatnsafls hér á landi er eðlileg en um leið verð- ur að taka tillit til náttúru landsins. Stjórnvöld ættu jafn- framt að huga að öðrum leiðum til orkuöflunar. Þar er hægt að taka Dani til fyrirmyndar. Þeir nýta sér orku sem nóg er af hér á landi, vindorku. Nýjar tölur sýna að 13 pró- sent orkunotkunar Dana fást með vindorku. Á síðasta ári fékkst þessi orka með 6 þúsund vindmyllum og áætlað er að í lok þessa árs fullnægi myllurnar 15 prósent orkuþarf- ar Dana. Öflugar vindmyllur, líkt og í Danmörku, eru mikil búbót þótt ekki séu þær gallalausar fremur en aðrir orkugjafar. Þeim fylgir hljóð- og sjónmengun. Hins vegar verður ekki litið fram hjá því að þróuð samfélög nútímans eru orku- frek. Orkunnar verður að afla en með tilhlýðilegri aðgæslu og virðingu fyrir náttúrunni. Jónas Haraldsson I>V Áhafnir skipa og stöðugildi - opið bréf til samgönguráðherra Hr. Sturla Böðvars- son samgönguráðherra. í Morgunblaðinu fimmtudaginn 28. des- ember er viðtal við þig vegna frumvarps sem þú lagðir fram á Alþingi skömmu fyrir jól um „Áhafnir skipa“. Með þessu frumvarpi er lagt til að lögð verði niður á milli 350 og 400 stöðu- gildi vélstjóra á fiski- skipaflotanum af 1137 stöðugildum m.v. skipa- skrá 1. desember 2000 eða á bilinu 30%-35% þeirra. Orðrétt úr viðtalinu í viðtalinu er orðrétt eftir þér haft: „Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra segir að verið sé að horfa til þess aö miklar breytingar hafi orðið á vélbúnaði skipa, meðal annars með aukinni sjálfvirkni." - Og annars staðar í viðtalinu kemur orðrétt fram: „Hann segir að vissulega séu skiptar skoðanir um áhrif fækkunar vélstjóra og stýrimanna. Það sé hins vegar faglegt mat ráðuneytisins og sérfræðinga sem það hafi leitað til, meðal annars hjá Sigl- ingastofnun, að ekki dragi úr öryggi sjómanna þótt vélstjór- um fækki á tilteknum gerðum skipa." Og enn segir í viðtalinu: „Það er fjarri lagi að eingöngu sé byggt á tillögum útvegsmanna.“ Óskað eftir rökstuðningi Ef við byrjum á tækninýjung- unum þá verður fækkunin mest á skipum með aðalvél -750 kw en í þeim flota eru 374 skip. Þar af eru 60% skipanna eldri en 25 ára. Hvað varðar álit sérfræðinga bæði innan og utan ráðuneytisins þá óskaði undirritaður margoft eftir því í nefndarstarfmu að Jónatan Sveins- son hrl., einn nefndarmanna, sem upplýsti að hann bæri ábyrgð á til- lögum til fækkunar vélstjóra, að hann rökstyddi þær m.a. með áliti sérfræðinga en fékk þau svör að hon- um bæri ekki skylda til þess. Það er því ákaflega ánægjulegt að slík sér- fræðiúttekt skuli liggja fyrir. „Með þessu frumvarpi er lagt til að lögð verði niður á milli 350 og 400 stöðugildi vélstjóra á fiskiskipaflotan- um af 1137 stöðugildum m.v. skipaskrá 1. desember 2000 eða á bilinu 30%-35% þeirra.“ Hvað varðar það að hér séu á ferð- inni tillögur LÍÚ að stærstum hluta þá er rétt að geta þess að nefndar- mönnum gafst kostur á að setja fram athugasemdir við nefndarálitið. Vél- stjórafélag íslands setti fram fjöl- margar athugasemdir en LÍÚ ekki eina einustu. Segir það nú ekki allt sem segja þarf um hverjum þessar breytingar eru þóknanlegar? Faglegt mat ráðuneytisins? í framhaldi af þessum orðum þín- um óskast upplýst: 1) Hvaða nýja tækni er það ná- kvæmlega sem er forsenda þess að hægt sé nú að fækka vélstjórum fiskiskipa um 30-35%? 2) Þú talar um að þessi ákvörðun byggi á faglegu mati ráðuneytisins og sérfræðinga sem leitað hafi verið til m.a. hjá Siglingastofnun íslands. framhaldinu óskar undirritaður eftir því, fyrir hönd Vélstjórafélags ís- lands, að fá að sjá þetta faglega mat, sem hefur .þær afleiðingar að vél- stjórum fiskiskipa fækkar um 30-35%. Helgi Laxdal íslenska og enska Oft er látið sem íslensk tunga sé ern kerling og ekkert ami að henni. Þó er beint að henni ýmislegum skeytum, leynt og ljóst. Til dæmis sagt sem svo, að tunga þessi flækist fyrir þeim ábata sem hafa má af al- þjóðavæðingu og sé hún alltof dýr í rekstri nú á dögum þegar arðsemis- krafan ríkir ein. Og geti menn að minnsta kosti gengið í rétta átt- með því að kenna sem mest á ensku í há- skólum landsins og sjálfsagt að byrja þá á viðskiptafræðum. Ótti viö vitleysur Önnur skeyti sem sýnast mein- lausari birtast í kvörtunum um að íslenska sé of erfið í notkun. Eða gerð of erfið með kröfum um málvernd og málvöndun. Af- leiðingin sé sú að vaxandi fjöldi íslendinga þori varla að nota mál sitt „af ótta við að segja eitthvað vitlaust" og „fá á baukinn fyrir“ eins og seg- ir í fróðlegum Morgun- blaðspistli eftir Kristján G. Arngrímsson (17.12.). Það sé svo ekki nema eðlilegt að í ótta við hina „ópinberu tungumálslögreglu" leiti menn á náðir enskrar tungu, enda gildi um hana allt aðrar um- gengnisreglur: „Það er eins og mað- ur megi gera hvað sem er við hana, það verður enginn vondur og les yfir manni með flngurinn á lofti.“ Þetta er misskilningur. Vitanlega sýnist enskan auðvelt mál og þeir sem nota hana eiga ekki á hættu að gera jafn margar villur og þeir sem tala beygingamál á borð við ís- lensku og rússnesku. En þótt auðveldara muni að ná lágmarksfærni í ensku en mörgum öðrum tung- um, þá kvarta enskumæl- andi ekki minna en við yfir lélegu valdi mikils fjölda fólks á móður- máli. Málfræði er einfaldari í ensku en íslensku en stafsetning mun erfið- ari pg orðaforðinn bæði mikill og lítt gagiisær mörgum, því hann kemur úr öllum áttum. Nú síðast sé ég sárar kvartanir frá breskum fyrirtækjum um að starfs- menn þeirra sé svo vanir því að „gera hvað sem er“ við enska tungu í tölvupósti og spjalli að þeir geti ekki komið frá sér óbjagaðri setn- ingu til viðskiptavina sem þeir eru í tölvusambandi við. Beri fyrirtækin svo mikið tjón af (bjöguð enska vek- ur vantrú á varningi og þjónustu), að þau telja það borga sig að leigja „tungumálslögreglu", það er að segja stranga kennara til aö taka starfslið- ið í endurhæfingu í málfræði og rétt- ritun. Og af því Bush yngri hefur verið mikið í fréttum að undanfornu, þá er ekki úr vegi að minna á það, að bandarískum pistlahöfundum þykir illt að verðandi forseti skuli hafa úr litlum orðaforða að spila, bera einatt rangt fram orð sem hann skilur illa, hrasa um setningafræðina og fara rangt með tíðir sagna. Málvöndun allsstaðar Nei - málvöndunarkröfur eru alls- staðar hafðar uppi. Ekki aðeins hjá þeim sem eiga í vök að verjast fyrir enskuáhrifum eins og íslendingar, Danir, Þjóðverjar og Rússar heldur og meðal enskumælandi þjóða sjálfra. Þær eru auðvitað fegnar því að mál þeirra er mikið notað í alþjóðlegum samskiptum - en hafa áhyggjur af því um leið. Brátt nota fleiri ensku sem „annað tungumál" en þeir sem eiga ensku að móðurmáli og þessu fylgir margur vandi - því ört breiðist út fá- tækleg og einfólduð tölvuenska sem ef til vill þokar með tíð og tíma út í horn þeirri ensku sem merkar bækur hafa verið skrifaðar á. Gleymum því ekki heldur, að á Englandi sjálfu hefur landsfólkið lengi verið klofið í hópa eftir málfari og tök- um á máli. Annarsvegar fara þeir sem hafa hlotið drjúga menntun, hinsvegar þeir sem látnir voru eiga sig, máttu svo sannarlega tala eins og þeim sýnd- ist, enda fátækir erfiðismenn flestir. Nú kvarta menn ekki aðeins yfir því að landsmenn skilji ekki hver annan - heldur og að þeir sem aldrei voru settir undir málaga og málvönd- un séu svo illa máli farnir og óskrif- andi að þeir geti ekki tekið þátt í nú- tíma samfélagi. Við höfum með mál- vöndunarstappi unnið gegn slíkri þróun á liðnum áratugum og náð ekki ómerkilegum árangri - ef því bauki er hætt í þægindaskyni eru all- ir verr settir en áöur. Árni Bergmann „Þeir sem aldrei eru undir málaga settir lenda utan garðs í fleiri skilningi en einum...“ Gullfiska- menning „Nútímamað- urinn ver sig fyr- ir fjölmiðlum, sí- vaxandi upplýs- ingaflæði, með þvi að koma sér upp eins konar gullfiskaminni þar sem allt kem- ur og fer nánast á ljóshraða. Menn sjá og heyra einhver reiðinnar býsn á hverjum degi en fátt og jafnvel ekkert situr eftir þegar upp er staðið. Ein afleiðingin gæti orðið sú að menn vilji síður axla ábyrgð langtímasjón- armiða ... Mín kynslóð breytti heim- inum meira en hún gerði sér nokkra grein fyrir. Það er enginn vafi á því að þriðja árþúsundið fær erfitt verk- efni að ráða bót á gullfiskasjónarmið- um fortíðarinnar." Gunnar Dal heimspekingur. I Degi 4. janúar. Gamaldags atvinnugreinar „Það fór hrollur um þjóðarsálina þegar svo virtist sem markaðir okkar á fiskimjöli og lýsi væru i hættu. Hvers vegna? Varla ætti öllum þess- um þúsundum sem vinna við fram- antaldar og hliðstæðar greinar að verða skotaskuld úr því að vinna upp tekjutapið af þessum gamaldags at- vinnugreinum, sem að mestu byggjast upp á nokkrum körlum og sjómönn- um á einhverjum krummavíkum á landsbyggðinni. Og aftur er spurt: Er lífið þá kannski enn þá saltfiskur? Þórir N. Kjartansson framkvstj., Vík í Mýrdal. í Mbl. 4. janúar. Med og á móti Ríkidæmi íslenskrar náttúru Með hagsmuni þjóðarinnar og ríkidæmi ís- lenskrar náttúru í huga höfum við engar forsendur til að byggja risastíflur. Norski forsætis- ráðherrann veit, eins og margir vel upplýstir stjórn- málamenn út um heim, að páli Ólafsson nýja tíma og þekkingu. risavirkjanir eru vistfræðileg jarofræöingur Eflum menntun og hugvit spellvirki. ————— j stað þess að pissa í skó Virkjanakostir Landsvirkjunar framtíðarbarna landsins meö því að bjóða aðeins upp á geigvænleg lands- halda áfram að virkja í blindni og til- spjöll. Þeir munu rýra gildi íslenskr- litsleysi! ar náttúru og framtíð lands og þjóð- ar verulega - ekki aðeins fyrir þá sem vilja eiga baklandið án mann- Guðmiindiir virkja heldur ná skaðleg áhrif uppistöðulóna í sjó fram og geta rýrt möguleika sjávarútvegs þegar fram líða stundir. Björt framtíð íslendinga byggir ekki á fleiri risavirkj- unum á öræfum heldur nýj- um hugsunarhætti í takti við rkjanakosti á hálendinu? Mörg svæöi áhugaverö til orkuvinnslu Nei, því fer fjarri. Við erum í dag að skoða á hvem hátt við eig- um að nýta þá kosti sem vænlegir og hag- kvæmir eru og bera þá saman innbyrðis, einkum með tilliti til umhverfisáhrifa þeirra. Hér á ég við vinnu við rammaáætlun vegna nýrra vatnsafls- og jarðhitavirkjana. Sú vinna er í fullum gangi og er áformað að fyrsta hluta hennar verði lokið í árslok. Þau svæði sem era áhugaverð til frekari orkuvinnslu er m.a.: Þjórsár- og Tungnaársvæði, en þar eigum við eftir að virkja tölu- verða orku ennþá. A vatna- sviði Skaftár og Hverfisfljóts er um verulega orku að ræða sem litið hefúr verið rannsök- uð enn sem komið er. Al- kunna er að á hálendi Austur- lands er hægt að virkja 25 - 30% af vatnsorku landsins að því að talið er. Loks má nefha miðhálendið upp af Skagafirði og Skjálfandafljót, en þar er að finna verulega vatnsorku sem verið er að rannsaka. Loks ber að nefna allnokkur há- hitasvæði á miðhálendinu sem lítið hafa verið rannsökuð, t.d. Torfajök- ulssvæðið og háhitasvæði á Norð- austurlandi. Valgeröur Sverrisdóttir iOnaOarréöherra Mikil umræöa hefur veriö um virkjanir á hálendinu aö undanförnu. Ymsir telja aö ekki megi ganga lengra en þegar hefur veriö gert og aö nú sé kominn tími til aö taka náttúruvernd fram yfir virkjanir. Von á betri tíð „Ég á von á betri tíð í ár ... Lægra gengi krónunnar mun færa mörgum fyrirtækjum meiri tekjur, lægra oliuverð mun skila sér í lægri kostnaði og gera má ráð fyrir vaxtalækkun þegar líða tekur á árið. Ýmsir óvissuþættir eru þó enn fyrir hendi, eins og þróun verðbólgu og endurskoðun kjarasamninga í febrúar. Ef sex mánaða uppgjörin staðfesta að fyrirtækin séu að ná betri tökum á umhverfinu getum við vænst þess að markaðurinn taki viö sér með haustinu." Edda Rós Karlsdóttir hjá Veröbréfum Búnabarbankans. í Viöskiptablaöinu 4. janúar. Skoðun Ríkisbankarnir - stjórnarandstaðan stjórni öðrum þeirra Ríkisstjórninni tókst ekki að afnema alla frjálsa sam- keppni milli bankanna. Þetta átti að gera fyrir jól með því að sameina Búnaðarbanka og Landsbanka. Samkeppnis- ráð tók í taumana og sagði slíka sameiningu brot á sam- keppnislögum. Þetta gengi líka á móti öllum reglum um frjálsa samkeppni. Hugsa yrði um viðskiptamenn bankanna og svo væri til neytendavemd. Svo lýðræðislegur sem þessi úrskurður er þá var honum tekið illa af ýmsum aðilum. Einn ráðherra talaði niður til samkeppn- isráðs í hádegisútvarpi næsta dag. Við seljum Búnaðarbanka og Lands- banka næsta vor. Þannig skiptir þessi úrskurður samkeppnisráðs engu máli. Þeir mega eiga sig með sinn úrskurð. Einnig mótmælti aðal- bankastjóri Landsbankans úrskurði samkeppnisráðs i viðtali við blaðið „Dagur". Ekki var annað að heyra á formanni Viðskiptanefndar Alþingis í sjónvarpi en hann væri á svipaðri skoðun. Alþingi hefði ákveðið sig á bak við tjöldin í þessu máli. Það tæki varla að ræða málið frekar. Öðrum kæmi þetta ekki við. - En er þetta svona einfalt? Lagasafnið gieymdist Almennir borgarar og starfandi lögfræðingar bæði dómarar og lög- menn byrja á að fletta upp í Laga- safninu ef þeir vilja vita hvað eru lög í landinu. Þetta gerði ríkisstjórnin ekki áður en hún ákvað einhliða að sameina Búnaðarbanka og Lands- banka fyrir jól. Ef ríkisstjómin hefði lesið sitt eigið Lagasafn og lög um samkeppnisráð þá hefði hún séð að fyrirætlanir hennar voru brot á þeim lögum og farið aðra leið. Það er slæmt til afspumar og ekki góð fyrirmynd ef ríkisstjómin sjálf viröir ekki lög landsins. Það er ekki betra, og raunar enn verra þegar rík- isstjórnin lætur sér ekki segjast. Eft- ir úrskurðinn var talað niður til Samkeppnisráðs. Með slíkum um- mælum lýsa menn í raun og veru yfir að þeir séu sjálfir hafnir yfir lög og rétt í lýðræðisríki. Er þá ekki kominn tími á það að kjósa aftur fljótt til Alþingis? Þá gætu nýir aðil- ar tekið viö stjóm landsins. Þjóðar- innar vegna væru það vonandi al- þingismenn og ráðherrar sem virtu lýöræðið í orði og verki. Bankasamkeppni vantar í dag höfum við 20% eða hærri út- lánsvexti t.d. á krítarkort- unum. Hér voru mestalla síðustu öld þrír ríkisbank- ar í Austurstræti. Það voru: Búnaðarbanki, Landsbanki og Útvegs- banki. Margir bankastjór- ar þeirra voru virtir leið- togar þjóðarinnar. Áður en Ásgeir Ásgeirsson varð bankastjóri við Útvegs- bankann hafði hann verið alþingisforseti og forsætis- ráðherra. Svo var hann að lokum kjörinn forseti lýð- veldisins íslands. Hann er aðeins tekinn sem dæmi en margir virtir ágætismenn hafa verið og eru banka- stjórar við þessa banka. Mestan hluta síðustu aldar var reynt að gæta þess að ríkisstjórn og stjórnarandstaðan hefðu nokkuð að jöfnu fulltrúa í stjórnum ríkisbank- anna. Það má kalla það bankalýð- ræði að vilja láta alla hópa hafa áhrif og nota ekki meirihlutavaldið í lýð- ræðisríki. Sem betur fer voru flestir leiðtogar þessarar þjóðar lýðræðis- sinnaðir á síðustu öld og sýndu það í verki. Almenningur mætti hugleiða það að 20% útlánsvextir voru bannaðir sem okur mestan hluta síðustu ald- ar. Til voru: Lög um bann við okri, dráttarvexti o.fl. Þau settu útláns- vöxtum hámark. Við förum að vísu ekki aftur í það far en vextir mættu vera lægri en 20%. Á svæði evrunn- ar f Vestur-Evrópu eru í dag svona ' almennt helmingi lægri vextir en hér á landi. Samt virðist V-Evrópa komast vel af. Þar er ekki ein sála með peningaviti til sem léti sér detta í hug að taka Island sér til fyrir- myndar og hækka vexti um 100% og hafa þá 20%. Tillaga um virka samkeppni. Taka mætti upp það fyrirkomulag að ríkisstjórnin setti sína fulltrúa t.d. f stjórn Landsbanka. Aftur á móti væru allir fulltrúar ríkisins í stjórn Búnaðarbanka frá stjórnar- andstöðu. Þá gæfist stjórnarandstöö- unni kostur á í raun að framkvæma tillögur sínar og hugmyndir. Með þessu væri gerð tilraun til frjálsrar samkeppni í bankamálum. Horfið væri alfarið frá þeirri hugsun einræðis og einokunar sem kom fram hjá ríkisstjórninni með tilraun hennar til að sameina Búnaðar- banka og Landsbanka með valdi, þrátt fyrir lög sem bönnuðu slíkt. Með þessum skrifum er lagt til að menn noti frjálsa samkeppni og hafi hag af henni. í framhaldi af því yrði meira lýðræði á íslandi. Og efnahag- ur venjulegs fólks myndi batna. Lúðvík Gizurarson „Á svœði evrunnar í Vestur-Evrópu eru i dag svona al- mennt helmingi lœgri vextir en hér á landi. Samt virðist V-Evrópa komast vel af. Þar er ekki ein sála með peninga- % viti til sem léti sér detta í hug að taka ísland sér til fyrir- myndar og hækka vexti um 100% og hafa þá 20%.“ :

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.