Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2001, Blaðsíða 3
38 ára reykingamanns ... stendur hjarta reykinf amannsins næst Ef engin fita er í sígarettum hvernig geta þá reykingar orsakað þetta ógeðslega fitujukk í slagæðunum? Mjög auðveldlega, miðað við niðurstöður nýjustu rannsókna frá Bandaríkjunum. Og það sem mest kemur á óvart- hjá ótrúlega ungu fólki. Nokkrum sekúndum eftir að þú kveikir þér í sígarettu, veitirðu þúsundum efna inn í blóðrásina. Sum þeirra skemma æðaþelið í slagæðaveggjunum með þeim afleiðingum að þeir verða límkenndir og safna í sig fitu- ögnum úr blóðinu. Þessi eyðilegging hefst daginn sem þú byrjar að reykja. Reykingamaður um þrítugt getur verið kominn með þrefalt meira af fituútfellingum í ósæð, aðalslagæðinni frá hjartanu, en jafnaldri sem ekki reykir. Því meira sem þú reykir, þeim mun hraðar myndast fituútfellingarnar. Ef þær losna geta þær myndað blóðtappa sem leitt getur til heilablóðfalls eða hjartaáfalls. En - sitji þær sem fastast þrengist æðin smátt og smátt og getur það m.a. leitt til kransæða- sjúkdóms. Átta af tíu reykingamönnum vilja hætta að reykja. Ef þú ert einn þeirra skaltu ekki fresta því lengur. Næst þegar löngunin altekur þig skaltu hugsa um hvernig reykingarnar fara með líkamann. Hver einasta sífaretta veldiur |»ér skaia! Upplýsingar um námskeið í reykbindindi eru á www.reyklaus.is Ráðgjöf í síma 800 6030

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.