Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2001, Qupperneq 4
Fréttir
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 2001
DV
Tveir menn ákærðir í einhverju alvarlegasta e-töflumáli sem hefur komið upp hér:
„Íslands-Bretinn“ neitar
- Bretinn búsettur hér en gefið að sök að hafa afhent íslendingnum efnin í London
Ríkissaksóknari hefur gefiö út
ákæru á hendur Bretanum
Garreth John Ellis, 28 ára, og Víöi
Þorgeirssyni, 34 ára, fyrir aö hafa
staðið saman aö innflutningi á
meira en 5 þúsund e-töflum í júlí
síðastliðnum. Þeir eru einnig
ákæröir fyrir að hafa ætlað að
flytja efnin inn í ágóðaskyni hér á
landi. Þetta er með stærri fikni-
efnamálum sem ákært hefur verið
í hér á landi.
Bretanum, sem hafði verið bú-
settur hér á landi síðustu misserin
á undan, er gefið að sök að hafa
tekið á móti e-töflunum af ein-
hverjum ónafngreindum manni í
London og afhent þær Víði sem fór
með efnin í farangri sínum i flug-
vél til íslands. Tollveröir fundu
efnin í farangrinum og var Víðir
þá handtekinn og úrskurðaður í
gæsluvarðhald þar sem hann hefur
setið síðan. Bretinn kom sama dag
til landsins en var handtekinn
mánuði síðar og var hann þá
einnig úrskurðaður í gæsluvarð-
hald.
Víðir hefur viðurkennt sök sína.
Hann hefur sagt við yfirheyrslur
að hann hafi verið burðardýr og
farið í ferðina til Englands að
beiðni Garreth í þeim tilgangi að
sækja efnin og þiggja svo peninga
fyrir innflutninginn. Bretinn er á
öðru máli - hann neitar að hafa
staðið að innflutningnum en viður-
kennir að hafa tekið á móti fíkni-
efnapakka í London og afhent Víði.
Bretinn kveðst ekkert hafa vitað
hvað hefði átt að verða um efnin
eftir að Víðir tók við þeim ytra.
Rikissaksóknaraembættið er að
afla gagna frá breskum yfirvöld-
um. Það brot Bretans eitt og sér að
afhenda íslendingnum efnin í Bret-
landi er refsivert gagnvart honum
hér á landi í þessu máli. Hins veg-
ar er hann aðallega ákærður fyrir
aö hafa staðið að innflutningnum.
Fáist það atriði ekki sannað fyrir
dómi verður engu að síður hægt að
sakfella hann eftir íslenskum
hegningarlögum fyrir afhendingar-
brotið. í 5. grein hegningarlaga
segir aö hægt sé að sakfella er-
lenda ríkisborgara, búsetta hér á
landi, eins og Bretinn var, sé sýnt
fram á að sama brot sé saknæmt i
því landi þar sem það var framið í.
í rauninni gilda sömu lög um ís-
lenska ríkisborgara erlendis, þ.e.
reynist íslendingur hafa framiö
brot erlendis er hægt að sakfella
hann fyrir íslenskum dómstóli ef
athæfið er saknæmt í því landi þar
sem það var framið. -Ótt
Skúli Bjarnason reifar nýstárlegar hugmyndir í skýrslu sinni fyrir borgina:
Neðanjarðarlest í Reykjavík
- kominn tími til að hugleiða nýja kosti í almenningssamgöngum
Seltjarnarnes
3,97 km
Vestfjarðagöng
- stærð miðuð við Reykjavík
Helldarrúmtak útgraftar er um
320.000 m3 afföstu bergl.
Það er tenlngur sem er 68,4 m á kant.
Tll samanburðar er Hallgrímsklrkja
sem er 73 m há.
2,76 km
\
\
Kópavogur
1,96 km
„Full ástæða er til að opna á um-
ræðu um neðanjarðarlestakerfi í
Reykjavík til að minnka þessa
hömlulausu notkun á einkabílum í
borginni," segir Skúli Bjarnason
hæstaréttarlögmaður sem Reykja-
víkurborg réð til
að gera skýrslu
um almennings-
samgöngur á
höfuðborgar-
svæðinu.
„Ég er sérstak-
lega hrifinn af
hugmyndinni
um neðanjarðar-
lest undir borg-
inni. Við íslend-
ingar höfum aðgang að ódýru raf-
magni og búum við rysjótt veður-
far sem gerir þetta enn fýsilegri
kost. Að mínu mati er kominn tími
til að skoða þennan möguleika af
fullri alvöru," segir hann.
í skýrslu Skúla er lagt til að sett-
ur verði á laggirnar starfshópur til
þess að meta tiltæka kosti og gera
arðsemisáætlanir um lestargöng
undir borginni. Þá er velt upp
spurningum um arðsemi ganga-
gerðar víða um land miðað við um-
rædda hugmynd um göng undir
Reykjavík.
Að sögn hans blasa við gríðarleg
útgjöld vegna aukinnar notkunar
einkabíla á höfuðborgarsvæðinu.
„Á næstu fimmtán til tuttugu
árum verður að leggja um 40 millj-
arða króna í að búa umferðarkerfið
undir fyrirsjáanlega aukningu á
notkun einkabílsins. Venjulegar
fjölskyldur eru að berjast við að
halda uppi tveimur til þremur bíl-
um og í því liggur óhemjukostnað-
ur. Ef komið yrði á fót neðanjarðar-
lestarkerfi sem næði til alls höfuð-
borgarsvæðisins og fólki gæfist
kostur á að komast frá miðbæ
Reykjavíkur til Hafnarfjaröar i
hlýju og notalegu umhverfi á 7 mín-
útum myndi staöan breytast til
batnaðar. 1 kjölfarið gæfist svigrúm
til að losa sig við þennan aukabil,
með tilheyrandi spamaði fyrir
heimilin og minnkandi umferðar-
þunga,“ segir Skúli lögmaður. -jtr
Sjómannadeilan:
Algjör óvissa
DV. AKUREYRI:____
„Ég hef ekki
nokkra einustu
hugmynd um
hvað gerist á
næstunni ef það
gerist þá eitt-
hvað. Sáttasemj-
ari lýsti því yfir
þegar útvegs-
menn höfnuðu
tillögu okkar að
hann teldi engan
grundvöll til að
kalla menn saman og það veit í
rauninni enginn hvað gerist eða
hvenær," segir Konráð Alfreðsson,
formaður Sjómannafélags Eyjafjarð-
ar og varaformaður Sjómannasam-
bands íslands, um horfur í deilu sjó-
manna og útvegsmanna.
Boðun verkfalls 15. mars er nú
samþykkt í hverju sjómannafélag-
inu af öðru, og í Sjómannafélagi
Eyjafjarðar, sem er eitt stærsta fé-
lagið, var samþykkt með 83% at-
kvæða að hefja verkfall 15. mars.
Konráð Alfreðsson segir að ekkert
bendi til annars en verkfallið skelli
á þá, hann segist ekki sjá neinn
grundvöll fyrir viðræðum og samn-
ingum fyrir þann tíma. -gk
Konráð
Aifreðsson
Enginn grundvöll-
ur sjáanlegur.
Steingrímur J.
forðast afstöðu
Vegna leiðara DV
í gær, þar sem sagt
er að Steingrímur
J. Sigfússon hefði
hvatt forseta til að
undirrita ekki lög
um breytingar á al-
mannatryggingum
vegna öryrkjadóms-
ins svonefhda, vildi
Steingrímur koma
eftirfarandi til
skila: „Ég hef forðast að taka af-
stöðu til þess máls og ítrekað sagt í
viðtölum við fjölmiðla að ég vilji
ekki blanda mér í það hvað forset-
inn eigi að gera í þessu tilviki og tel
ekki heppilegt að stjórnmálamenn
geri það. Ég hef hins vegar tjáð mig
um hvaöa afleiðingar það hefði ef
forsetinn skrifaði ekki undir og það
sem eftir mér er haft á baksíðu DV
síðastliðinn þriðjudag um það efni
er rétt.“
Steingrímur J.
Sigfússon.
Veðríö í kvöfd
Hlýjast suðaustanlands
Norðan- og noröaustanátt, 10 til 13 m/s á
Vestfjöröum en 5 til 8 m/s annars staðar.
Slydda eöa snjókoma með köflum
austanlands og dálítil él norðanlands, annars
léttskýjað. Vægt frost inn til landsins, annars
0 til 5 stiga hiti, hlýjast suðaustanlands.
REYKJAViK ÁKUREYRI
Sólariag í kvöld 16.56 16.28
Sólarupprás á morgun 10.22 10.21
Síðdegisflóö 19.54 00.27
Árdegisflóó á morgun 08.10 12.43
Skýrlngsr 6 ve&urtfiknum
J^VINDÁTT 10V-HITI
imi&i
^^VINDSTYRKUR I metrum 5 seWmdu ^VROST HEIÐSKÍRT
o g>! o
LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
V [ sm ©
RIGNING SKÚRIR \ SLYDDA SNJÓK0MA
‘•ví’ í? | j
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR Þ0KA
Greiðfært á Suðurlandi
Samkvæmt upplýsingum frá
Vegagerðinni er greiðfært á öllum
helstu vegum í nágrenni Reykjavíkur,
sama er að segja um helstu vegi í
Árnes- og Rangárvallasýslu ásamt
Borgarfjaröarsýslu. Á Vestfjöröum er
víða skafrenningur og hálka eöa
hálkublettir á vegum. Þungfært er um
Dynjandisheiði.
M——
SNJÓR
ÞUNGFÆRT
ÓFÆRT
M«>#.»iiai.AMi;wi,.-.HitlB<»;W»:lil:li:il.-ll.’al
Léttskýjað sunnan- og vestanlands
Norðan- og noröaustanátt, 10 til 13 m/s á Vestfjöröum en 5 til 8 m/s
verða annars staðar. Slydda eöa snjókoma með köflum austanlands og
dálítil él norðanlands en annars léttskýjaö.
Vindur: (
5-10 m/s \
Hiti Otil -5°
Mánuda
Vindur:
5-8 tn/s
Hiti 3° til -4°
Þriðjud
m
Vindur:
5—8 m/s
Hiti 3° til -4°
Norölæg átt, 5 tll 10 m/s.
Dálítil él noröanlands, en
víöa úrkomulaust syöra.
Frost 0 til 5 stig
Austlæg átt, víöast 5 til 8
m/s. Skúrir eöa slydduél
viö suöurströndina, en
annars úrkomulaust og
víöa bjart veöur.
Austlæg átt, víöast 5 til 8
m/s. Skúrir eöa slyddué!
viö suöurströndina, en
annars úrkomulaust og
víöa bjart veöur.
1 uIþ'-JíL 2 jggmm
AKUREYRI alskýjaö 1
BERGSSTAÐIR
B0LUNGARVÍK snjóél 1
EGILSSTAÐIR 0
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 3
KEFLAVÍK léttskýjaö 1
RAUFARHÖFN slydda 1
REYKJAVÍK léttskýjaö -1
STÓRHÖFÐI skúrir 4
BERGEN skýjaö 5
HELSINKI þokumóða 1
KAUPMANNAHÖFN rigning 3
ÓSLÓ þokumóöa 2
ST0KKHÓLMUR þokumóöa 3
PÓRSHÖFN skýjaö 6
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 6
ALGARVE léttskýjaö 10
AMSTERDAM skýjaö 4
BARCELONA léttskýjaö 7
BERLÍN rigning 2
CHICAGO skýjaö -6
DUBLIN léttskýjað 2
HALIFAX léttskýjaö -8
FRANKFURT skýjaö 4
HAMBORG þokumóöa 4
JAN MAYEN rigning 1
L0ND0N skýjaö 5
LÚXEMB0RG rigning 3
MALLORCA léttskýjaö 10
M0NTREAL -15
NARSSARSSUAQ snjókoma -10
NEWY0RK heiöskírt -4
ORLANDO heiöskírt 5
PARÍS skýjaö 5
VÍN þokumóöa 2
WASHINGTON heiöskírt -3
WINNIPEG alskýjaö -8